Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1995, Blaðsíða 26
42
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1995
Afmæli
Kristján Guðmundsson
Kristján Guðmundsson, húsa-
smiður og verkstjóri hjá Granda
hf„ Holtsgötu 31, Reykjavík, er
flmmtugur í dag.
Starfsferill
Kristján fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í vesturbænum.
Hann gekk í Melaskólann og
Gagnfræðaskóla Vesturbæjar, hóf
nám í húsasmíði 1963, lauk
sveinsprófi 1968 og lauk síðan
prófum frá Meistaraskólanum.
Kristján starfaði hjá ýmsum
byggingameisturum. Þá starfaði
hann við virkjunarframkvæmdir
að Búrfelli og í Sigöldu. Kristján
var verktaki á árunum 1977-82 og
stóð þá m.a. fyrir byggingafram-
kvæmdum við Áningastöð SVR á
Hlemmtorgi, við hús Fram-
kvæmdastofnunar við Rauðarár-
stíg og við Bláfjallaskála.
Kristján hefur starfað mikið í
Sjálfstæðisflokknum, sat í stjórn
hverfafélags Vestur- og Miðbæjar,
sat í fulltrúaráði flokksins í
Reykjavík, er fráfarandi formaður
Máífundafélagsins Óðins, situr í
miðstjórn flokksins og flokksráði
og er nú formaður verkalýðsráðs
Sjálfstæðisflokksins og einn af
varaþingmönnum flokksins í
Reykjavík.
Fjölskylda
Kristján kvæntist 24.5. 1969.
Elsu Baldursdóttur, f. 27.10. 1949,
bankastarfsmanni. Hún er dóttir
Baldurs Kristjánssonar píanóleik-
ara, sem lést 1984, og Elísabetar
Guðjónsdóttur húsmóður.
Börn Kristjáns og Elsu eru
Guðrún Lísa, f. 13.3. 1969, hús-
móðir í Reykjavík, gift Sigurbirni
Hanssyni verslunarmanni og eiga
þau tvær dætur; Sólrún, f. 3.6.
1973, háskólanemi í Reykjavík, og
á hún einn son; Kristján Heiðar,
f. 8.3. 1979, nemi í húsasmíði.
Systkini Kristjáns: Klemens, f.
10.11.1934, verslunarmaður í Nor-
egi; Aðalheiður Margrét, dó ung;
Aðalheiður, f. 11.5.1942, læknarit-
ari í Reykjavík; Hrefna, f. 9.9.
1944, starfsmaður ríkisútvarpsins,
búsett í Reykjavík; Margrét, f.
28.8. 1948, húsmóðir í Englandi.
Hálfsystur Kristjáns, samfeðra:
Ingibjörg, f. 9.8. 1927, nú látin,
húsmóðir á Höfn í Homafirði;
Kristín, f. 16.4. 1929, d. 22.7. 1961,
húsmóðir í Reykjavík.
Foreldrar Kristjáns: Guðmund-
ur Kristján Kristjánsson, f. 19.7.
1904, d. 27.1. 1958, vélstjóri i
Reykjavík, og s.k.h., Aðalheiður
Klemensdóttir, f. 21.10.1910, hús-
móðir.
Ætt
Guðmundur Kristján var sonur
Kristjáns, bílstjóra í Reykjavík,
Jónassonar, sjómanns i Þórukoti
á Álftanesi, Benediktssonar. Móð-
ir Kristjáns bílstjóra var Margrét
Sveinbjörnsdóttir.
Móðir Guðmundar Kristjáns
var Ingibjörg Guðmundsdóttir,
dóttir Guðmundar Gunnarssonar
og Guðbjargar Marteinsdóttur.
Aðalheiður er dóttir Klemensar
Klemenssonar, sjómanns í Reykja-
vík, og k.h., Margrétar Guð-
brandsdóttur húsmóður.
Kristján og Elsa taka á móti
gestum í Oddfellowhúsinu við
Kristján Guðmundsson.
I Vonarstræti i dag milli kl. 17.00
I og 19.00.
Til hamingju
með afmælið
4. október
85 ára
Guöný Guömundsdóttir,
Hrafnistu viö Kleppsveg, Reykja-
vík.
Stefán Ásbjarnarson,
Sundbúð 1, Vopnafirði.
70 ára
Gunnar Bjarnason,
Uröarbraut 9, Kópavogi.
Þuriður Jónsdóttir,
Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi.
Gunnlaugur Magnússon,
Hornbrekkvegi 12, ÓJafsfirði.
Þóra Guðjónsdóttir,
Melabraut 9, Seltjamarnesi.
60 ára
Jón Pétursson,
Höfðabraut 8, Akranesi.
Bergur Hjartarson,
Álfaskeiði 94, Hafnarfirði.
Jón Albert Finnsson,
Ásvegi 4, Dalvík.
50 ára
Sigrún Ingimarsdóttir,
Austurbergi 20, Reykjavík.
Aðalgeir Bjarkar,
Kolbeinsgötu 55, Vopnafirði.
40 ára
Sófus A. Alexandersson,
Tunguseli 3, Reykjavik.
Gunnar Sævar Kjartansson,
Ásholti 1, MosfeUsbæ.
Hrafnhildur Stefánsdóttir,
Hamragerði 11, Akureyri.
Albert Guðmundur Agústsson,
Laugavegi 22, Reykjavik.
Ingi Gunnar Guðmundsson,
Öldugötu 46, Hafnarfirði.
Jón Baldvin Halldórsson,
Hraunbæ 188, Reykjavík.
Gunnþóra Hólmfríður önundar-
dóttir,
Reykjanesi, Súðavíkurhreppi.
Sigrún Jóna Daðadóttir,
Reykjasíðu 15, Akureyri.
Sigrún Jóna tekur á móti gestum á
heimUi sínu laugardaginn 7.10. frá
kl. 20.00.
Sigurður Hannesson,
Vallarbarði 3, Hafliarfiröi.
Ólafur Gunnar R. Hauksson,
VíðivöUum 20, Selfossi.
Sesselja Margrét Jónasdóttir,
Lambhaga 15, Selfossi.
9 0 4 • 1 7 0 0
Verð aðeins 39,90 mín.
Qnátþifeyíng
0] Dagskrá Sjónv.
Dagskrá St. 2
gj Dagskrá rásar 1
0Q Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
[§3 Myndbandagagnrýni
[0] ísl. listinn - topp 40
[Z3 Tónlistargagnrýni
[§] Nýjustu myndböndin
QQ Gerfihnattadagskrá
>»Xr4SIIVIflTDBG
9 0 4 •17 0 0
Hulda Magnúsdóttir
Hulda Magnúsdóttir, Bröndu-
kvísl 19, Reykjavík, er áttræð í
dag.
Starfsferill
Hulda fæddist í Vík í Mýrdal,
átti þar heima til 1964 og stundaði
þar ýmis verkakvennastörf. Hún
hóf störf í eldhúsi Samvinnu-
banka íslands í Bankastræti 1964
og starfaði þar í tuttugu ár eða
þar tU hún lét af störfum 1984.
Eftir að Hulda flutti til Reykja-
víkur héldu þær saman heimili,
hún og Kristín dóttir hennar en
eftir að Kristín gifti sig og stofn-
aði eigið heimUi hefur Hulda búið
hjá henni.
Fjölskylda
Hulda giftist 9.6. 1935 Eggert
Einarssyni, f. 29.11. 1906, d. 14.10.
1957, verkamanni. Hann var son-
ur Einars Einarssonar og Guð-
laugar Hákonardóttur.
Dóttir Huldu og Eggerts er
Kristín Ingibjörg Eggertsdóttir, f.
14.7. 1942, skrifstofumaður og hús-
móðir í Reykjavík, gift Óskari
Magnússyni verslunarstjóra.
Barnabörn Huldu eru Eggert
Skúlason en kona hans er Anna
Guðmundsdóttir og sonur þeirra
Hafþór Eggertsson; Anna Huld
Óskarsdóttir; Magnús Óskarsson.
Systkini Huldu eru öU látin.
Þau vom Ingibjörg Magnúsdóttir,
f. 7.5. 1905; Karólína Magnúsdótt-
ir, f. 9.11. 1906; Svanhvít Magnús-
dóttir, f. 25.11. 1908; Svala Magn-
Úsdóttir, f. 20.3. 1920.
Foreldrar Huldu voru Magnús
Einarsson, f. 28.9. 1875, d. 11.2.
1946, skósmiður og póstur í Vík í
Mýrdal, og k.h., Sigurbjörg Ein-
arsdóttir, f. 25.11. 1878, d. 7.4. 1964,
húsmóðir.
Ætt
Magnús var sonur Einars Run-
ólfssonar í Steig og Kristínar
Magnúsdóttur, b. á Brekkum,
Jónssonar Lafranssonar. Móðir
Magnúsar var Þóra Jónsdóttir.
Móðir Kristínar var Ólöf Bjarna-
dóttir, b. á Litlu- Hólum, Guð-
mundssonar og Karitasar Ólafs-
dóttur.
Sigurbjörg var dóttir Einars, b.
á GUjum, Hjaltasonar, b. á Suður-
Götum, Einarssoncir Jóhannsson-
ar. Móðir Hjalta var Ragnhildur
Hulda Magnúsdóttir
Jónsdóttir. Móðir Einars var Tala
Runólfsdóttir, b. á Skagnesi, Sig-
urðssonar. Móðir Tölu var Ing-
veldur Jónsdóttir.
Móðir Sigurbjargar var Ingi-
björg Sigurðardóttir, b. á Giljum,
Árnasonar, og Önnu Gísladóttur.
Hulda tekur á móti gestum á
heimUi dóttur sinnar og tengda-
sonar í Bröndukvísl 19, Reykja-
vík, í dag eftir kl. 17.00.
Hördur Runólfsson
Hörður Runólfsson vélvirki,
Bröttugötu 14, Vestmannaeyjum,
er sextugur í dag.
Starfsferill
Hörður ólst upp í Vestmanna-
eyjum. Hann læröi vélvirkjun hjá
bróður sínum, Jóni Runólfssyni,
og lauk sveinsprófi í þeirri iðn-
grein sem hann hefur starfað við.
Hörður starfaði mikið í Sveina-
félagi járniðnaðarmanna og sat í
stjórn félagsins í nokkur ár. Hann
starfar í Sjóstangafélagi Vest-
mannaeyja og er einn af stofnend-
um þess, starfar í Félagi bjarg-
veiðimanna, er mikiU Elliðaeying-
ur og sat í stjórn félagsins i nokk-
ur ár. Þá er hann í OddfeUow-
stúkunni Herjólfí nr. 4.
Fjölskylda
Kona Harðar er Kristín Bald-
vinsdóttir, f. 19.8. 1936, húsmóðir
og bréfberi hjá Pósti og síma. Hún
er dóttir Baldvins Skæringssonar
og Þórunnar Elíasdóttur sem lést
1990.
Böm Harðar og Kristínar eru
Baldvin Þór, f. 26.3. 1954, var
kvæntur Sigríði HöUu Jónsdóttur
og eiga þau þijú börn; Sólrún
Unnur, f. 1.10. 1961, og á hún þrjú
börn; Smári Kristinn, f. 19.8. 1965,
kvæntur Dagmar Önnu Guðbjarts-
dóttur og á hann einn fósturson.
Systkini Harðar eru Jón Run-
ólfsson, f. 29.11. 1924, vélvirki í
Reykjavík; Sigrún Runólfsdóttir, f.
31.1. 1930, verslunarmaður á Sel-
fossi; Þorsteinn Runólfsson, f. 5.4.
1932, húsasmiður í Garðabæ;
Ragnar Runólfsson, f. 13.12. 1933,
húsasmiður í Kópavogi; Ástþór
Runólfsson, f. 16.10. 1936, húsa-
smíðameistari í Reykjavík; Run-
ólfur Runólfsson, f. 4.8. 1938, verk-
stjóri í Hafnarfirði.
Foreldrar Harðar voru Runólf-
ur Runólfsson, f. 12.12. 1899, d. 4.6.
1983, útgerðarmaður og síðar vél-
stjóri í Vestmannaeyjum, og Unn-
Hörður Runólfsson
ur Þorsteinsdóttir, f. 19.10. 1904, d.
16.3. 1947, húsmóðir.
Hörður tekur á móti gestum í
Oddfellowhúsinu í Vestmannaeyj-
um í kvöld kl. 20.00-22.00.