Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1995, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995
Fréttir
Breytingar fyrirhugðar á Atvinnuleysistryggingasjóði:
Missa bætur ef þeir
þiggja ekki starf
- endurskoðunin á að spara ríkinu 300 miUjónir á ári
Endurskoðun á starfsemi At-
vinnuleysistryggingasjóös lækkar
útgjöld ríkissjóðs um 300 milljónir
króna á næsta ári. Bjóða á atvinnu-
lausum störf og ef störfin verða ekki
þegin eiga viðkomandi að falla af at-
vinnuleysisskrá. Einnig er gert ráð
fyrir að skoða reglur um launabætur
til fiskvinnslufólks og að afnumin
verði tenging milli bóta og breytinga
í launum. Þetta kemur fram í fjár-
lagafrumvarpi ríkisstjómarinnar.
I frumvarpinu er gert ráð fyrir að
útgjöld sjóðsins verði 3.760 milljónir
á næsta ári samanborið við 3.770
milljónir í ár. Gengið er út frá 4,8
prósenta atvinnuleysi en í ár er talið
að atvinnuleysið verði um 5 prósent.
Til atvinnuleysisbóta fara 3.328 millj-
ónir, í eftirlaunasjóð aldraðra fara
250 milljónir en þóknanir stéttarfé-
laga og kostnaður við úthlutun bóta
eru taldar munu verða 61 milljón.
í ár hefur úthlutunamefndum at-
vinnuleysisbóta verið fækkað úr 140
í tæplega 40. Við það lækka þóknun-
argreiðslur til nefnda auk þess sem
nú er greidd 3 prósenta þóknun í stað
4,5 prósenta áður. Samkvæmt fjár-
lagafrumvarpinu er stefnt að því að
gera umsjónarkerfi bóta enn mark-
vissaraogeinfaldara. -kaa
Rikisstjórnin áformar aö
skerða framlög rikissjóðs til mál-
efna barna og ungmenna um 7
prósent á næsta ári eöa 19,5 millj-
ónir. _
Samkvæmt fjárlagafrumvarp-
inu munu 242,3 milljónir renna
til þessa málaflokks á næsta ári
sambanborið við 261,8 milijónir í
ár. Fjármunir þessir renna meðal
annars til að flármagna meðferð-
arheimili fyrir börn og unglinga,
meðferðarstöðvar ríkisins og
barnaverndarráðs. -kaa
Japönsk túnfiskveiðiskip 1 Reykjavik:
Keyptu hvalkjöt
og im'sgrjóna*
brennivín
- vörðust allra frétta af aflabrögðum
„Við notum þetta í kínverska súpu
og alls kyns góðgæti annað. Þetta
þykir vera herramannsfæði og er
mjög dýr vara,“ sagði Hisak Kubo,
fiskiskipstjóri á japanska túnfisk-
veiðiskipinu Kinsho Maru, um
þurrkaða sporða og ugga af túnfiski
sem hanga á þilfari skipsins. Hann
vildi ekkert gefa út á það hvort tún-
fiskuggar teldust auka kynhvöt líkt
og hákarlauggar sem Japanar sækj-
ast mikið eftir.
Þegar DV ræddi við Kubo við
Reykjavíkurhöfn í gærmorgun voru
skipverjar í óðaönn að flytja kost um
borð. Japanarnir keyptu hér frosinn
karfa og hvalkjöt sem þeir hafa í
miklum hávegum. Þá birgðu þeir sig
upp af hrísgrjónabrennivíni og öðr-
um drykkjarfóngum. Kubo vildi sem
minnst ræða aflabrögð en sagði þó
að það væri einhver vottur.
Japönsku túnfiskveiðiskipin tvö
sem komu til Reykjavíkur í fyrradag
hafa veitt þokkalega á miðunum suð-
vestur af Reykjanesi eftir því sem
næst verður komist.
Það vekur nokkra athygli að þau
landa ekki afla hérlendis til flutnings
á markaði heldur sigla annað 'eða
landa í skip á hafi úti. Sú skýring er
gefin á því að ekki séu hérlendis
frystigeymslur eða flutningatæki
sem nái að halda því frosti í túnfisk-
inum sem nauðsynlegt er, eða 55 til
60 gráöum á celsíus.
íslenskar útgerðir hafa sýnt þess-
um veiðum nokkurn áhuga og það
er að hluta skýring á þögn Japana
um aflabrögð. -rt
islendingar buðu japanska kokkinum m.a. upp á frystan karfa sem hann keypti af þeim. Hér er japanski túikurinn
Okino ásamt Óttarri Magna Jóhannssyni sölumanni að sýna japanska kokknum karfann. Japanarnir höfðu stutta
viðkomu og héldu til veiða strax í gær eftir tæplega sólarhrings stopp. DV-mynd BG
í dag mælir Dagfari
Hetjan sigraði
Bandaríkin eru land frumkvæðis
og framtaks. í Bandaríkjunum er
óendanleg upspretta nýjunga og
nýsköpunar og alltaf eru þeir að
koma öðrum íbúum jarðarinnar á
óvart í anda mannréttinda og frels-
is.
Nýjasta dæmið eru réttarhöldin
yfir O.J. Simpson og málalokin í
þeim. Ef Dagfari man rétt þá voru
tvær ungar manneskjur myrtar á
hinn voveiflegasta hátt og Simpson
var dreginn fyrir rétt til að bera
af sér sakir um að hafa drýgt þenn-
an glæp. En það er ekki víst að
Dagfari muni þetta alveg rétt, enda
eru morðin og glæpurinn sjálfur
nánast gleymd og grafm í öllu því
dýrðarinnar kastljósi sem baðað
hefur súpersijömuna O.J. Simp-
son.
Simpson þessi er frægur fótbolta-
kappi vestur þar. Auk þess að vera
leikari og aldeilis framúrskarandi
myndarlegur maður. Ameríkanar
gátu ekki valið sér glæsilegri aðal-
leikara í þessu réttarhaldi aldar-
innar, úr því að þeir á annað borð
vildu skemmta sér við að horfa á
þaö í beinni útsendingu.
Og Simpson stóð sig vel. Sat graf-
kyrr og sviplaus í fimmtán mánuði
samfellt fyrir framan sjónvarpsvél-
arnar, þar sem áhorfendur gátu
dáðst að útliti hans og framkomu,
hinni sönnu ímynd karlmannsins
og Bandaríkjamannsins, sem hefur
slegið i gegn. Ekki nóg með íþrótta-
afrekin og kvikmyndaleikinn,
heldur hafði þessi maður unnið sér
sömuleiðis til frægðar að vera
meintur morðingi konu sinnar og
kunningja hennar. Hann var jafn-
vel sakaður um að hafa stungið
þau, hvort um sig, tuttugu eða þrjá-
tíu sinnum á hol.
Gat þetta verið betra eða skraut-
legra? Enda Simpson fljótlega tek-
inn í dýrlingatölu og er nú um þess-
ar mundir frægastur allra manna
á jarðarkringlunni.
Réttarhöldin yfir Simpson voru
engin venjuleg réttarhöld og það
er misskilningur ef menn halda að
þau hafi verið sett á svið til að fá
úr því skoriö hvort hann væri sek-
ur eða saklaus. Það var algjört auk-
atriði í þessu máli, enda kviödóm-
urinn skipaður og samansettur
með þeim hætti að það lá alltaf fyr-
ir hver niðurstaðan yrði.
Lögreglan og saksóknari halda
því jafnvel fram að að fótspor Simp-
sons hafi sést og fundist á morð-
staðnum; að blóðugur hanski í eigu
Simpsons hafi fundist við hlið líks
fyrrverandi eiginkonu; að hinn
hanskinn hafi fundist blóðugur
heima hjá Simpson; að blóðsýni
hafi sýnt og sannað að þar var blóö
úr Simpson og blóð úr konu hans.
Þessi sönnunargögn og mörg
fleiri. skipta ekki máli þegar Banda-
ríkjamenn rétta. Sérstaklega ekki
ef réttað er yfir manni, sem er fræg-
ur og á peninga og aldrei er mein-
ingin að sakfella.
Nei, réttarhöld aldarinnar yfir
Simpson voru sett á svið til að sýna
umheiminum nýjasta réttarfarið
og réttlætið í dómsölunum þar
vestra. Þeir eru alltaf á undan öðr-
um Kanarnir í hugmyndaflugi sínu
og frumkvæði. Réttarhöldin voru
tímamótaréttarhöld vegna þess að
þau brutu blað í þeirri fáránlegu
kenningu laga og réttar að sá sem
er sekur skuh endilega alltaf vera
fundinn sekur. Öðru nær. Spennan
var einmitt fólgin í því, sem og
dómsniðurstaðan, að láta fólk sjá
það svart á hvítu í beinni sjón-
varpsútsendingu hvernig einn
maður drýgir glæp á heimili sínu
og drepur eiginkonu sína og aöra
sem verða á vegi hans, án þess að
vera endilega fundinn sekur um að
hafa gert þaö.
Þetta er það sem var svo snjallt
hjá Könunum þar vestra. Og allt
er þetta samkvæmt gamla góða
ameríska bíólögmálinu að góði
maðurinn sigrar að lokum, hetjan
sleppur lifandi, stjarnan er fædd
og happy ending.
Þeir segja fyrir vestan að Simp-
son græði heil ósköp á þessu máli
sínu, enda hefur hann unniö til
þess, blessaður. Hann lagði það á
sig að drepa konuna sína og annan
til. Hann á ekkert annað skilið en
verða margfaldur milljónamaær-
ingur fyrir ómakið.
Dagfari
L
I
I
I
I
I