Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1995, Side 8
8
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995
Útlönd
Franski málaliðinn Bob Denard gefst upp á Kómoreyjum í dag:
Erum fastir í gildru og
tökum af leiðingunum
„Við erum fastir í gildru, viö verð-
um að taka afleiðingunum. Ég held
að niðurstaða fáist á morgun,“ sagði
franski ævintýramaðurinn og mála-
liðinn Bob Denard í viðtali við
frönsku sjónvarpsstöðina TFl í
bækistöðvum sínum á Kómoreyjum
í gærkvöldi.
Búist er við að í dag muni Denard
gefast formlega upp fyrir frönsku
hersveitunum sem gerðu innrás á
eyjarnar í dögun í gær til aö brjóta
á bak aftur valdaránið sem hann og
málaliðaflokkur 'nans frömdu í síð-
ustu viku.
Denard sagðist þó ekki iðrast neins.
Málaliðinn, sem er orðinn 66 ára,
lét Said Mohamed Djohar, forseta
Kómoreyja, lausan ur gíslingu í gær.
Hann hélt til í bækistöðvum sínum
í nótt, umkringdur frönskum her-
mönnum, til að ræða uppgjöf sína.
Hann útilokaði að bjóða frönsku her-
sveitunum byrginn og berjast til síð-
asta blóðdropa.
„Það hafa farið fram viöræður en
ekki neinar samningaviöræður. Úr-
valssveitin, sem Frakkar sendu,
gerði okkur ekki kleift að sýna neina
mótspyrnu," sagði Denard sem hefur
barist í styrjöldum frá Indókína til
Alsír.
Frönsk stjórnvöld, sem réðu yfir
Kómoreyjum þar til þær fengu sjálf-
stæði árið 1975, sendu 600 hermenn
til þessara hitabeltiseyja norðvestur
af Madagaskar í gær til að svæla út
Denard og kómoreyska hðsforingja
sem höfðu handtekið forsetann og
Franskir sérsveitarmenn munda byssurnar við vegatálma í Moroni, höfuðborg Kómoreyja, í gær. Þangað komu
þeir til að reka málaiiða og valdaránsmenn á brott. Simamynd Reuter
sakað hann um spillingu.
Um átta hundruð kómoreyskir her-
menn, sem voru hliðhollir Denard,
gáfust upp fyrir frönsku sérsveitun-
um í búðum sínum í gær.
Frönsk stjórnvöld fögnuðu lausn
Djohars og var flogið með hann til
eyjarinnar Reunion þar sem hann
gekkst undir læknisskoðun. Djohar
er á áttræðisaldri.
Denard verður fluttur til Frakk-
lands og færður fyrir rétt. Hann
sagðist vera búinn að sætta sig við
það.
Fjórir eða fimm Kómoreyingar
féllu í átökunum í gær en enginn
Frakki.
Reuter
Cherie Blair, eiginkona formanns Verkamannaflokksins, vekur athygli:
Hef ur ekki áhuga á að
líta út eins og jólaskraut
Cherie Blair og eiginmaðurinn Tony dönsuðu skoskan þjóðdans á Skota-
kvöldi Verkamannaflokksins í tengslum við flokksþingið í Brighton.
Símamynd Reuter
VarlífáMars?
Rannsökuðu
steinafrá
íslandi
Vísindamenn við Washington
háskóla í St. Louis í Bandaríkjun-
um segjast hafa fundið sannanir
þess að andrúmsloft, sem svipar
til andrúmslofts jarðar, hafi eitt
sinn verið á reikistjörnunni Mars
og því sé mögulegt að þar hafi þrif-
ist líf. Vísíndamennimir rannsök-
uðu steinbrot sem borist höföu til
jarðar sem lofsteinar. Virðist sem
steinamir hafi dregið til sín eitt-
hvaö af þeim lofttegundum sem
voru í lofthjúpi Mars. í rannsókn-
um sínum rannsökuðu vísinda-
mennimir íslenska steina en jarð-
hiti og eldvirkni hefur losað mikið
af koltvioxíði úr læðingl
játarásig
gastilræði
Shoko Asahara, leiðtogi sértrú-
arsafnaöarins Æðsta sannleiks,
hefur játaö aö hafa fyrirskipað
gastilræðið í neðanjaröarlestar-
kerfi Tokyo í vor þar sem 11 lét-
ust og yfir 5 þúsund manns urðu
fyrir eitrun. Sagöi hann lögmanni
sínum aö hann hefði játað vegna
ótta um að söfnuöurinn yrði ella
bannaður í Japan.
Lögmaöur Asaharas sagöi aö
skjólstæðingur sinn mundi halda
frara sakleysi sínu fyrir rétti og
aö hann hefði verið þvingaður til
aö skrifa undir játningu. Réttar-
höld hefjast 26. október en Asa-
hara er ákærður fyrir mannrán
og morð og gastilræöi í japönsk-
um bæ þar sem 7 létust og 600
uröufyrireitrun. Reuter
I hverju verður Cherie Blair næst?
Þetta er spurning sem fulltrúar á
flokksþingi breska Verkamanna-
flokksins velta allt eins fyrir sér og
stjómmálunum þessa dagana í
Brighton. Cherie Blair er eiginkona
flokksformannsins, Tonys Blairs.
„Ég er ekki með neina fatadellu og
ég er heldur engin tildurrófa. Ég er
allajafna jarðbundin og hef engan
áhuga á að líta út eins og jólaskraut.
Ég vil að fólki finnist það geta leitað
til mín,“ segir Cherie Blair í viðtali
við breska slúðurblaöið Today. En
hvort sem henni líkar betur eða verr
hafa æsiblöðin fjallað um klæðaburð
hennar og fatasmekk frá því eigin-
maður hennar tók við formennsku í
Verkamannaflokknum.
Niðurstaða blaðanna um bæði
klæöaburö Cherie og stefnumál
Verkamannaflokksins er á sömu
lund. Undanfarna tólf mánuði hafa
framfarirnar orðiö miklar.
Þegar Tony Blair varð flokksfor-
maður í júlí í fyrra hafði Cherie álíka
mikinn áhuga á tísku og ofurfyrir-
sætan Naomi Campbell hafði á smá-
atriðum iðnaðarlöggjafarinnar,
skrifaði Catherine O’Brien í blaðið
Today. Nú er sem sé öldin önnur,
Cherie þorir að vera smart.
Cherie er eftirsóttur lögfræðingur
með meira nám að baki en eiginmaö-
urinn og hún hóf þátttöku í stjóm-
málum á undan honum. Þeir eru til
í flokknum sem telja að hún búi yfir
sterkari sannfæringu en eiginmað-
urinn.
Ýmsir hafa orðið til að velta fyrir
sér áhrifum Cherie á eiginmanninn
vegna þeirrar ákvörðunar að senda
elsta soninn í kaþólskan skóla sem
færði sig undan stjóm bæjarfélags-
ins. Cherie er kaþólsk.
Sjálfum var Tony Blair fagnað gíf-
urlega á flokksþinginu í gær og þykj-
ast flokksmenn vissir um að hann
muni leiða flokkinn fram til sigurs í
næstu kosningum, sem eiga að verða
um mitt ár 1997. Reuter
Stuttar fréttir i>v
Ekki vopnahlé
Richard Holbrooke, sendi-
manni Bandaríkjastjórnar, tókst
ekkí að tryggja vopnahlé í Bosníu
i viðræðum sínum við Milosevie
Serbíuforseta.
PáfiræðirBosníu
JóhannesPáU
páfi ræddi Bos-
níudeiluna við
Clinton Banda-
ríkjafoseta í
gær og hvatti
siðan til að
Sameinuðu
þjóðimar yrðu
efldar og endurskipulagðar tíl að
þær mættu betur varðveita frið
ogréttlæti.
NATOfrestar
Atlantshafsbandalagið hefur
ákveðið að leggja áform um
stækkun til austurs á hilluna til
að vinna tíma svo sannfæra megi
Rússa um ágæti þessa.
Fellibylur á Flórída
Fellibylurinn Ópal kom á land
í Flórída í gær og var vindhrað-
inn mestur um 220 km á klukku-
stund.
Heimsókn undirbúin
Bandarískir embættismeim
ræddu við mótmælendur og ka-
þólikka í Belfast til að undirbúa
heímsókn Clintons forseta í nóv-
emberlok.
Fieiri látnir
Fjöldi látinna af völdum jarð-
skjálftans í Tyrklandi um síðustu
helgi er kominn í 89.
Japanirgræða
Hagnaður Japana á viðskiptum
er meiri en hagfrteðingar höfðu
gert ráð fyrir.
Gorb
Mikhaíl
Gorbatsjov,
fyrrum Sovét-
leiðtogi, segir
að hann eigi
enn erfitt með
að sitja auðum
höndum og
njóta bara lífs-
ins, nú
þegar fiögur ár eru liðin frá þvi
hann lét af störfum, og hann hef-
ur ekki tekiö sér frí í þrjú ár.
54 meðlimir Hells Angels eða
Vítisengla í Danmörku hafa verið
ákærðir fyrir eina morðtilraun,
32 ofbeldisverk, 36 brot á vopna-
lögum og 11 fiárkúganir frá árinu
1990.
Friðarverðlaun Nóbels
Nefndin sem ákveður hver fær
friðarverðlaun Nóbels í ár hefur
ákveöið sig en verðlaunin verða
tilkynnt eftir viku.
Drekka minna i vinnunni
Danir drekka enn mest allra
Norðurlandaþjóða en drykkja á
vinnustööum hefur minnkaö
verulega þar sem fyrhtæki eru í
auknum mæli að taka upp skýra
áfengisstefnu.
Sagði Chirac vera óðan
Fyrrum ráð-
gjafi Mitterr-
ands, fyrrum
Frakklandsfor-
seta, segir í
endurminning-
um sínum að
Mitterrand hafi
kallað Chirac,
núverandi forse ., ... .....
sem yrði að athlægi kæmist hann
á forsetastól. Ummælin eru frá
1988.
Engarsvefnpurkurhér
Nemendum við breskan skóla
hafa verið gefnar vekjaraklukkur
svo þau geti nú vaknaö tímanlega
á morgnana og komið sér í skól-
ann. Reuter/Riuau