Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1995, Síða 25
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995
37
)
)
!
<
<
I
(
(
(
<
Bragi Olafsson er eitt skálda sem
lesa eigin Ijóð á Kaffi List.
Ljódlestur
og tónlist
í kvöld verða nokkur skáld og
tónlistarmenn á Kaffi List sem
munu lesa upp úr ljóðum sínum
og flutt verður tónlist. Skemmtun-
in hefst kl. 20.30 og er áætlað að
hún standi til 23.00.
Atburðir
Þeir sem koma fram eru Harald-
ur Jónssson myndlistarmaður,
sem nýverið hefur gefið út ljóða-
bók, Didda, sem einnig nýlega gaf
út ljóðabók, Magnús Gezzon, en
bók eftir hann kom út fyrir nokkr-
um dögum, Ólafur Stefánsson, en
hann er um þessar mundir að gefa
út sína fyrstu ljóðabók, Michael J.
Pollock, sem mun lesa ljóð sín á
ensku, Ingunn V. Snædal, sem gaf
út ljóðabók fyrir stuttu, Bragi Ól-
afsson, en væntanleg er fjórða
ljóðabók hans, Gímaldin, sem
syngur lög við eigin undirleik, Sig-
fús Bjartmarsson, en frá honum er
væntanleg ný Ijóðabók, Arnar
Gunnar, ungur tenór sem mun
syngja við undirleik, og Elísabet
Jökulsdóttir sem les úr eigin bók.
Fræðslu-
stundir
fyrir
almenning
Á næstu vikum og mánuðum
munu verða flutt erindi í Reykja-
víkurprófastsdæmi eystra á
fimmtudagskvöldum kl. 20.30 um
kristna trú. Fyrsta erindið er í Graf-
arvogskirkju í kvöld. Sr. Valgeir
Ástráðsson, sóknarprestur í Selja-
sókn, flytur erindið Eftirfylgdin við
Krist.
Samkomur
Siðferði fjölmiðla
í kvöld heldur Siðfræðistofnun
málþing um Siðferði fjölmiðla kl.
20.00 í Odda, stofu 101.
AGLOW
Kristilegt kærleiksnet kvenna
heldur októberfund sinn í kvöld kl.
20.00 í Kristniboðssalnum, Háaleit-
isbraut 58 til 60. Ræðumaður
kvöldsins er Paula Shields.
Spilakvöld
Eyfirðingafélagið í Reykjavík
heldur spilakvöld í kvöld kl. 20.30
að Hallveigarstöðum. Allir vel-
komnir.
Bubbi í Vík
Bubbi Morthens heldur tónleika í
Víkurskála í Vík í Mýrdal í kvöld
kl. 22.00.
Langbrók á Tveimur vinum
Hljómsveitin Langbrók heldur
tónleika í kvöld á Tveimur vinum.
Nord Sol 1995
Annar hluti Tónlistarkeppni
Norðurlanda verður í Háskólabíói í
kvöld kl. 20.00. Þá koma keppend-
urnir fimm fram með Sinfóníu-
hliómsveit íslands.
Kvenfélag Kópavogs
verður með vinnukvöld í kvöld
kl. 20.00 í Félagsheimilinu.
Gengið að Gullborg
Innarlega í Hnappadal er Gull-
borgarhraun og í því miðju er sjálf
eldstöðin Gullborg. Það er mjög
áhugavert að ganga út á Gullborg og
skoða gíginn og verður það að telj-
ast létt ganga frá veginum skammt
sunnan við Hnúka, vegalengdin er
ekki nema 2 kílómetrar. í bungunni
norðvestan við Gullborgina fundust
nokkrir hellar árið 1957 og er það
undarlegt að enginn skuli hafa veitt
þeim athygli fyrr. Mestur hellnanna
er Borgarhellir. Op hans er vítt og
mjög áberandi og heildarlengdin er
423 metrar. Mjög góð ljós verður að
hafa meðferðis ef ganga skal í hell-
inn.
Að skoðunarferð lokinni er sama
leið gengin til baka að veginum.
Þarna má vel eyða aðeins meiri
tíma, til dæmis að aka að Hnúkun-
um tveim og skoða þá og eins að
ganga á lítið fell, Þverfell, 279 metra
hátt, til að fá gott útsýni yfir Hlíðar-
vatn. Gangan hefst í 100 metra hæð
yfir sjó svo að aðeins þarf að ganga
tæpa tvö hundruð metra upp í móti
og aðeins röskur kílómetri er hvor
leið frá vegi.
Heimild: Gönguleiðir á íslandi eft-
ir Einar Þ. Guðjohnsen.
Jazzbarinn:
Kröflusveifla
Fyrir rúmum tveimur mán-
uðum lék kvartettinn Krafla á
Jazzbarnum við mikla hrifh-
ingu en í honum eru djass-
leikarar af yngri kynslóðinni,
strákar sem hafa verið að
gera það gott í djasslifi íslend-
inga. Þeir koma víða við í
spilamennskunni, taka þekkt
og minna þekkt djasslög og
lífga upp á þau með ferskri
spilamennsku.
Kvartettinn er í kvöld skip-
aður þeim Jóel Pálssyni, sem
leikur á saxófón, Kjartani
Skemmtanir
Valdemarssyni, sem leikur á
píanó, Þórði Högnasyni bassa-
leikara og Einari Val Schev-
ing sem leikur á trommur, en
hann tekur sæti Matthíasar
Hemstock sem lék með hljóm-
sveitinni í sumar.
Krafla leikur frisklegan djass á Jazzbarnum í kvöld.
Ágæt færð á
þjóðvegum
Þjóðvegir á landinu eru yfirleitt í
ágætu ástandi en hálka er þó á sum-
um leiðum, sérstaklega að morgni
dags. Á Austfjörðum er sums staðar
snjór á vegum, til að mynda á
Færð á vegum
Vopnafjarðarheiði og Öxarfjarðar-
heiði er ófært vegna snjóa. Þá er
Hellisheiði eystri þungfær um þess-
ar mundir vegna snjóa og hálka er á
Mjóafjarðarheiði. Hálendisleiðir eru
nú að lokast hver af annarri og er
orðið lokað um Kjalveg, Djúpavatns-
leið og Arnarvatnsheiði svo dæmi
séu tekin.
Ástand vega
EÖ Hálka og snjór 0 Vegavinna-aðgát @ Öxulþungatakmarkanir
03 2'*““ ® Fært fjallabílum
Dóttir Elsu
og Hafþórs
Litla telpan, sem sefur vært á
myndinni, fasddist á fæðingardeild
Landspítalans 25. september kl.
Barn dagsins
22.53. Hún var 4970 grömm að
þyngd og 53 sentímetrar við fæð-
ingu. Foreldrar hennar eru Elsa
Jensdóttir og Hafþór Sveinjónsson
og er hún fyrsta barn þeirra.
J(L
daga^EK
Dóra Takefusa leikur eitt aðal-
hlutverkið í Einkaiífi.
Einkalíf
Stjörnubíó sýnir nú um þessar
mundir tvær íslenskar kvik-
myndir, Tár úr steini, sem leik-
stýrð er af Hilmari Oddssyni, og
Einkalíf sem Þráinn Bertelsson
leikstýrir. Fer sýningum að
fækka á þeirri mynd. Einkalif
segir frá tvítugum pilti, Alexand-
er, sem haldinn er kvikmynda-
dellu og ákveður í félagi við kær-
ustu sína og besta vin að gera
heimildarmynd með mynd-
bandstökuvél um býsna skraut-
legt fjölskyldulíf sitt. Viö fram-
kvæmdina uppgötva félagarnir
hversu vandasamt getur reynst
að fanga raunveruleikann og
Kvikmyndir
jafnframt það að hversdagslíf,
sem á yfirborðinu sýnist ofur
venjulegt og jafnvel leiðinlegt, er
þegar betur er að gáð hlaðið
dramatískri spennu, gamni og
alv
Nýjar myndir
Háskólabíó: Vatnaveröld
Laugarásbíó: Dredd dómari
Saga-bíó: Umsátrið 2
Bíóhöllin: Vatnaveröld
Bíóborgin: Brýrnar í Madison-
sýslu
Regnboginn: Braveheart
Stjömubíó: Tár úr steini
Gengið
Almenn gengisskráning LÍ nr. 237.
05. október 1995 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 64,750 65,090 64,930
Pund 102,770 103,300 102,410
Kan. dollar 48,450 48,750 48.030
Dönsk kr. 11,6500 11,7120 11,7710
Norsk kr. 10,2880 10,3440 10,3630
Sænsk kr. 9,3040 9,3550 9,2400
Fi. mark 15,0420 15,1310 14,9950
Fra. franki 13,0610 13,1360 13,2380
Belg. franki 2,1989 2,2121 2,2229
Sviss. franki 56,2000 56,5100 56,5200
Holl. gyllini 40,3800 40,6200 40,7900
Þýsktmark 45,2100 45,4400 45,6800
it. lira 0,04018 0,04042 0,04033
Aust. sch. 6,4230 6,4630 6,4960
Port. escudo 0,4319 0,4345 0,4356
Spá. peseti 0,5228 0,5260 0,5272
Jap. yen 0,64390 0,64770 0,65120
Írskt pund 104,770 105,420 104,770
SDR 96,76000 97,34000 97,48000
ECU 83,6600 84,1600
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270.
Krossgátan
r~ r~ r~ T~ S □ r
v J f
ið i ",
7S“ IS iir
llp i z.
5T J
1% J
Lárétt: 1 texti, 8 tré, 9 hryðja, 10 rösk, 11
félagi, 13 yfirráð, 14 mild, 16 þegar, 17
slyngi, 20 vinnusamir, 22 flökt, góðgæti.
Lóðrétt: 1 óþétt, 2 djörf, 3 þrjót, 4 hönd, 5
góðæri, 6 afhenti, 7 lömun, 12 vanstillti,
13 kraftlítil, 15 ákafir, 18 þakhæð, 19
svelgur, 21 lík.
Lausn á síöustu krossgátu.
Lárétt: 1 hold, 5 áll, 7 efl, 8 ætli, 10
fimmtán, 13 iðkir, 15 GK, 16 ljúf, 18 ýtu,
19 laginn, 21 snati, 22 na.
Lóðrétt: 1 hefill, 2 of, 3 lim, 4 dæmi, 5 át,
6 linkuna, 9 lágt, 11 iðjan, 12 trýni, 14
kúga, 17 fit, 20 nn.