Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1995, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1995, Blaðsíða 28
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö I DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995. Silfurlax: Norðmenn vilja kaupa eigmrnar Hópur manna, Islendingar og út- lendingar sem tengjast norskum fyr- irtækjum, hefur þreifað fyrir sér um kaup á fiskeldisstöð Silfurlax að Núpum í Ölfusi og hafbeitarstöðinni í Hraunsfirði og hafbeitarlaxinum. Hópurinn hefur sent menn hingað til lands til að skoða stöðvarnar. Ásgeir Magnússon, skiptastjóri þrotabúsins, segist búast viö að í næstu viku komi tilboð frá mönnun- um, ekki sé farið að ræða kaupverð og engar afgerandi ákvarðanir hafi verið teknar í málefnum þrótabús- ins. Ef tilboð í eignirnar reynist fýsi- legt geti verið gott fyrir veðhafa og þrotabú að taka því. -GHS TilboðHaMórs: Tillagan er tímaskekkja - segir hagfræðingur ASÍ „Menn voru að reyna að fram- , kvæma þetta í síðustu kjarasamning- um en þetta var brotið niður með ákvörðun kjaradóms. Þorri launa- fólks samdi um krónutöluhækkun í síðustu kjarasamningum," segir Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur ASÍ, um þá hugmynd sem Halldór Ásgrímsson setti fram í umræðum á Alþingi í gær um nýjan siðferðis- grunn í næstu kjarasamningum. Hann varpar því fram hvort víðtæk sátt geti náðst um að eingöngu verði um fastar krónutöluhækkanir að ræða næstu árýi í stað prósentu- hækkana. „Vandamálið engur út á það að Kjaradómur túlkar þau lög sem al- þingismenn settu þeim á þann veg að honum beri ekki að fara eftir því -heldur megi reikna þessa krónutölu í prósentu af kaupi láglaunafólksins og nota til að hækka hálaunamenn- ina. Tillagan er því tímaskekkja nema þeir hespi sér í að leysa vand- ann sem snýr að ákvörðun kjara- dóms,“ segir Gylfi. -rt Heimild til sölu á Bifreiðaskoðun I fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar- innar er gert ráð fyrir aö fjármála- ráðherra verði heimilað aö selja eignarhluta ríkisins í Bifreiðaskoðun íslands. Allt að 50 milljónir af sölu- andvirðinu eiga að renna til stofn- r framkvæmda og fasteignakaupar -kaa LOKI Það væri nú einhver munur að fá líka nýjan siðferðis- grundvöll í launaumslaginu! • . TT/ ' Sáaðhúsiðvar nánastírúst „Eg heyrði bara dynk og fann fyrir þrýstingi. Rafmagnið fór af og ég sá ekkert og gerði mér enga grein fyrir því sem hafði gerst. Það var ekkí fyrr en ég var búinn að kalla á eigandann og ljósin komin á að ég sá að húsiö var nánast í rúst,“ segir Sævar Sigurbjartsson, starfsmaður í vélsmiðjunni Vél- boða í Hafnarfirði, en hann slapp ómeiddur þegar mykjudreifari, sem hann var að vinna við, sprakk i gærkvöldi. Varð gífurleg spreng- ing og þeyttist hluti þaksins af smiðjunni, gluggar fóru úr og hurö- ir gengu af hjörunum. Að sögn lögreglunnar í Hafnar- firði þykir mikil mildi að Sævar skyldi sleppa ómeiddur. Sprengingin varð laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi. Verið var að Ijúka frágangi við lokaðan mvkjudreifara með rafsuðu. Dreif- arinn var nýmálaður og ryðvarinn og er það hald lögreglu að neisti hafi komist í gas inni í dreifaranum og valdið sprengingunni. Lok og efri hluti af dreifaranum þeydtist af og fór upp í gegnum þak- ið. Sævar stóð við dreifarinn en ekkert brotanna lenti á honum. Fleiri voru að störfum í húsinu og sluppu þeir einnig ómeiddir. Mjög núklar skemmdir urðu á húsinu. Þar er auk vélsmiðjunnar verslun og skrifstofur. Er allt meira og minna úr lagi gengið; hurðir skakkar, sprungur í veggj- um og vart til heil rúða í húsinu. Vinnueftirlitið og rannsóknar- lögreglan í Hafnarfirði munu rann- saka sprenginguna nánar í dag. Fyrstu upplýsingar benda til að óeðlilega mikið gas hafi verið í nýrri tegund ryðvai-nar sem verið var að nota í fyrsta skipti. Mykju- dreifarar af þessari gerð hafa verið framieiddir lengi í Vélboða og unn- ið að þeim með sama hætti og nú án þess að óhöpp yrðu. -Ótt/GK Heimaslátrun: 2 þúsund tonn á svört- um markaði Gifurleg sprenging varð í vélsmiðjunni Vélboða í gærkvöid þegar verið var að sjóða í mykjudreifara. Sprakk dreif- arinn en maður sem stóð við hann slapp ómeiddur. Miklar skemmdir urðu á húsinu og fór m.a. lok af dreifaranum upp úr þakinu. DV-mynd S Áætlað er að 1000 tonn af dilka- kjöti og jafn mikið af nautakjöti sé: selt á svörtum markaði. Opinber sala á dilkakjöti var í fyrra um 7200 tonn og um 3400 tonn af nautakjöti. „Við héldum nýlega fund með full- trúum frá heilbrigðisyfirvöldum, yf- irdýralækni og bændasamtökunum. Þar voru menn að ræða aö giska á umfang heimaslátrunar. Það segir sig sjálft að þar sem þetta er svartur markaður liggja engar staðreyndir fyrir í málinu. Bændasamtökin hafa verið reyna að áætla þetta líka en þar hafa menn fengið lægri tölur en telja þó að um umtalsvert magn sé að ræða,“ segir Ragnheiður Héðins- dóttir, matvælafræðingur hjá Sam- tökum iðnaðarins. „Hvort sem þetta eru 500 tonn eða 1000 þá er þetta mikið og verulegur hluti af neyslunni á þessum kjötteg- undum. Menn eru að selja á milli vina en það er einnig leiddar líkur að því að einhverjar kjötvinnslur komi að þessu. Þá veit neytandinn ekkert um hvernig kjötið er tilkomið. Forsvarsmenn margra kjötvinnslna telja sig finna fyrir samdrætti á þess-1 um tíma þegar mest er um slátrun," I segir Ragnheiður. Veöriö á morgun: Gola eða kaldi Á morgun verður allhvöss norðaustanátt á Vestíjörðum og við Breiðafjörð en austlæg átt í öðrum landshlutum, gola eða kaldi. Skýjað verður um allt land og víða súld eða rigning en úr- komulítið sunnanlands. Hiti verður á bilinu 5 til 10 stig. Veðrið í dag er á bls. 36 = = brother. letr^^ PT-7000 Merkivél m/íslensku Nýbýlavegi 28 - sími 554-4443 i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.