Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1995, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995
Fréttir
Fimm kvigna frá Leiðólfsstöðum saknað eftir að þær flúðu á harðahlaupum út í myrkrið:
Sjötta kvígan dró stóran
stein 25 metra vegalengd
- vona að ég verði búinn að finna kvígumar fyrir jól, segir Biami Hermannsson
Ábúendur að Leiðólfsstöðum,
skammt frá Búðardal, misstu fimm
kvígur á harðaMaupum út í myrkrið
eftir talsverðan eltingarleik á sunnu-
dagskvöldiö og hafa þeir ekki orðið
þeirra varir síðan. Bjami Hermanns-
son bóndi sagði í samtali við DV að
sjötta kvígan hefði náðst - hún hefði
verið bundin við stóran stein en síð-
an hafi sú fjórfætta, sem er innan
við ársgömul, náð að draga byrðina
með sér 25 metra vegalengd áður en
hún gafst upp.
„Ég fór á bílnum á sunnudags-
kvöldið til að leita að sex kvígum,"
sagöi Bjami. „Ég fann þær allar í hóp
við veginn og gat snúið þeim við og
ók talsvert lengi á eftir þeim. Þær
voru frekar rólegar að sjá en þegar
þegar ég stöðvaði og fór út úr bílnum
urðu þær mjög styggar - alveg brjál-
aðar, ársgamlar kvígur og kolvitlaus
kvikindi.
Eftir nokkra mæðu gafst ein kvígan
upp. Ég ákvað að binda hana fasta
viö talsvert stóran stein á meðan ég
færi á bílnum til að ná í hestakerr-
una en hinar missti ég út í myrkrið.
Ég reiknaði með að steinninn héldi
en þegar ég kom til'baka með kerr-
una var kvígan búin aö draga stein-
inn 25 metra vegalengd. Hún var al-
veg uppgefin.
Við faöir minn fómm síðan að leita
að hinum kvígunum á mánudags-
kvöldið en við urðum þeirra hvergi
varir. Ég hef því ekki séð þær frá því
á sunnudagskvöldið. Ég ætla að fara
og reyna að finna þær á laugardag-
inn. Hvort ég fmn þær veit ég ekki
en vona að það takist að minnsta
kosti fyrir jól,“ sagði Bjarni Her-
mannsson.
-Ótt
Einar R. Sigurösson, DV, Öræfum;
Vöruflutningabíll frá Kaupfélagi
Austur-Skaftafellssýslu valt á þriðju-
daginn á þjóðveginum um það bil tvo
kílómetra vestan við Fagurhólsmýri.
Bílstjórinn slapp ómeiddur. Óhappið
varð efst í svonefndum Nestanga en
þar hafa áður orðið slys. Veður var
vont, rigning og rok.
Haft var eftir bílstjóranum að
slæmum jafnvægispunkti í gámi aft-
an á bílnum hefði verið um að kenna.
íslenskkvikmynd:
Bönnuð
iiinan
16ára
Nei er ekkert svar er fyrsta ís-
lenska kvikmyndin sem er bönn-
uö innan sextán ára og haía að-
standendur hennar verið frekar
óhressir með þann úrskurð og
segja meðal annars aö heil kyn-
slóð muni tapa af myndinni.
Auður Eydal er forstöðumaður
Kvikmyndaeftirlits ríkisins. Þeg-
ar hún var spurð um ástæðuna
sagði hún myndina hafa fengið
sömu meðferð hjá Kvikmyndaeft-
irlitinu og allar aðrar kvikmynd-
ir: „Við erum aðeins að setja ald-
ursmark á myndina og gerum
það eftir vissum staðli sem viö
fórum eftir. Lögin leggja okkur
þá skyldu á lierðar að hugsa um
hag bama og unglinga og það er
eingöngu út frá því sjónarmiði
sem við metum myndir."
Auður sagðist sjálf ekki hafa
skoðað myndina en aö dómi þess
sem sá hana er ekkert í myndinni
sem réttlætir ofbeldiö eða nein
niðurstaöa sem vinnur á móti
ofbeldinu.
Trukkurinn á hliðinni. Bílstjórinn slapp ómeiddur.
DV-mynd Einar R.
Boöskapurinn í Bók lífsins sem dreift hefur veriö til barna frá sex ára aldri: Stuttar fréttir
Höggva af hönd eða
að lenda í helvíti
Um 40 manna hópur íslendinga og
Bandaríkjamanna hefur gengið í
skóla að undanfornu, í sumum tilvik-
um rætt við 45.000 böm á aldrinum
6-16 ára og afhent þeim bókina Bók
lífsins. Að sögn Hrólfs Kjartansson-
ar, deildarstjóra í menntamálaráðu-
neytinu, hefur hópurinn heimild
menntamálaráðuneytisins til þess að
afhenda bókina, að þvi tilskildu að
kennarar, skólastjórar og nemendur
samþykki það. Hins vegar hafi ekki
verið gefið leyfi til viðræðna við
bömin og því hafi verið óskað eftir
því að það yrði virt.
Hafliði Kristinsson, forstöðumaður
Fíladelfíusafnaðarins, segir aö þegar
hafi 45.000 eintökum af bókinni verið
dreift til grunnskólabama landsins
og margir foreldrar hafi hringt til að
þakka fyrir framtakið en í svona
stóru átaki hljóti alltaf einhveijir að
vera óánægðir. Hafliði viðurkennir
að sumir af dreifingaraðilunum hafi
farið út fyrir það sem fyrir þá var
lagt í skólunum en það hafi verið
rætt við fólkið.
Talsvert hefur borið á óánægju for-
eldra með dreifingu Bókar lífsins í
gmnnskólum landsins. Ýmislegt í
bókinni er tahð orka tvímælis og
reynist jafnvel óskiljanlegt fyrir börn
á grunnskólaaldri. Margir foreldrar
hafa haft samband við DV og bent á
að texti undir fyrirsögninni Hórdóm-
ur sé óhæfilegt lesefni fyrir börn frá
sex ára aldri. Þar má finna eftirfar-
andi:
„Sá sem horfir á konu með girndar-
hug, hefur þegar drýgt hór með
henni í huga sínum. Ef það sem þú
sérð með auga þínu verður til þess
að þú fellur í synd, skaltu stinga
augað úr þér og fleygja því. Betra er
að hluti af þér eyðileggist en að þér
verði öllum kastað í víti. Ef hönd þín
- jafnvel sú hægri - kemur þér til að
syndga, þá er betra að höggva hana
af og fleygja henni en lenda í helvíti.“
Dreifing Bókar lífsins er á vegum
Fíladelfiusafnaðarins, samfélaganna
á Reykjavíkursvæðinu og þjóðkirkj-
unnar.
-GHS
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Sekur
Saklaus
r ð d
a 904-1600
Er 0.1. Simpson
sekur eða saklaus?
Alllr I k«tHnu w»t <6m»l»iim« t«t« nýtt Mr |iBgs« blónuitu.
Bahamaeyjar:
100 sæti tekin frá fyrirfram
Talsverðrar óánægju hefur gætt
meöal þeirra sem stóðu árangurs-
laust í röð eftir ódýrri ferð til Ba-
hamaeyja í kjölfar fregna um að tek-
in hefðu verið frá 100 sæti fyrirfram.
„Samvinnuferðir-Landsýn höfðu
ekki boðiö neinum fyrirtækjum fyr-
irfram. Atlanta ætlaði að selja Olís,
sem þeir eru í samstarfi við, 100 sæti
í fyrri ferðina. Ohsmenn höfnuðu því
og við seldum í aha véhna. Ohsmenn
báðu síðan um að fá 100 sæti ef sett
yrði upp önnur ferð. Þaö var gert en
við vitum ekki enn hvort þeir ætla
að nýta þaú,“ segir Helgi Jóhannsson
hjá Samvinnuferðum-Landsýn.
Það skýrist væntanlega í dag hvort
Olísmenn ætla að njóta sólaryls á
Bahamaeyjum. Ef ekki fá þeir sem
eru á biðhsta sætin.
Dæmi eru um að verð á sfld til
bræðslu sé jafnhátt og verð á síld
til söltunar. Skv. frétt RÚV eru
allt að 8,50 krónur greiddar fyrir
kílóið.
Dauðinnrannsakaður
Rjúpnavertíöin hefst 15. októb-
er og eru horfur á að veiðiárið
verði þokkalegt. Skv. upplýsing-
um Tímans er búið aö setja radíó-
senda í 40 rúpur til að fylgjast
með dauðdaga fuglanna.
Egih Jónsson, varaformaður
landbúnaðarnefndar Alþingis,
segir að nýgerður búvörusarnn-
ingur stuðh að aukinni heima-
slátrun og að ranglega sé staðiö
að útfluttúngi. RUV greindi frá
þessu.
Grænmetisverð hefur lækkað
um aht að 5% undanfama 3 mán-
uði skv. konnun Framleiðsluráðs
landbúnaðarins og Neytenda-
samtakanna. RÚV greindi frá því.
Verksmiðja úr augsýn
Tímabundið leyfi til að urða
sinkúrgang í Bandaríkjunuin
hefur dregið verulega úr líkum á
að sinkverksmiðja verði reist á
íslandi eins og stefnt var aö.
Sigurður Líndal prófessor segir
það óviðunandi að hringla með
lög eins og heilbrigðisráðherra
stefnir aö í lyfjasölumálum. Við-
skiptablaðið greindi frá þessu.
-kaa
Vöruflutn-
ingabíll valt
í Óræf um