Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1995, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1995, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995 Neytendur Verðkönnun frá Samkeppnisstofnun: Verð hækkar hjá efnalaugum þriggja prósenta hækkun frá liðnu ári Rétt er fyrir fólk að huga vel að verði I fatahreinsunum því munurinn getur verið töluverður eftir því hvert er farið. DV-mynd GVA Samkeppnisstofnun kannaði um miðjan september hvað kostar að láta hreinsa nokkrar algengar gerðir fatnaðar og gluggatjöld. Kannað var verð hjá 28 efnalaugum á höfuðborg- arsvæðinu. Sambærileg könnun var gerð í okt- óber á síöasta ár og síðan hún fór fram hefur verð á þessari þjónustu hækkað að meöaltali um 3%. Samkeppnisstofnun þykir rétt að taka fram nokkur atriði varðandi könnunina. Hreinsun á pilsi miðast við þröngt pils. Oftast er aukalega greitt fyrir hreinsun á víðum pilsum eða pilsum með fellingum. Hreinsun á kvenblússu miðast við fína blússu á borð við silkiblússu en oft er mun ódýrara aö láta hreinsa aðrar blúss- ur. Eins og fram kemur í töflunni kost- ar hjá sumum efnalaugum jafn mikið að láta hreinsa kápu með og án hettu/skinnkraga. í nokkrum efna- laugum er sama gjald fyrir hreinsun á öllum kápum og rykfrökkum en í mörgum tilvikum er ódýrara að láta hreinsa stutta kápu. Þegar taflan er skoðuð kemur í ljós að verulegur verðmunur er milli efnalauga fyrir hreinsun á sumum flíkum, t.d. blússum og jakkapeys- um, og gluggatjöldum. Það skal tekið fram að Samkeppnisstofnun leggur hvorki mat á þjónustu fyrirtækjanna né gæði hreinsunarinnar. Eingöngu er um verðsamanburð að ræða. Verðbreytingar Ef borið er saman meðalverð í okt- óber 1994 og meðalverð í september 1995 sést að í flestum tilvikum er um einhverja hækkun að ræða. Hreins- un á jakka hefur hækkað úr 508 kr. í 518 kr. (2%), buxur/pils úr 508 kr. í 518 kr. (2%), peysa úr 333 kr. í 355 kr. (7%), jakkapeysa úr 476 í 474 (0%), silkiblússa úr 583 kr. í 596 kr. (2%), kápa úr 846 kr. í 869 kr. (3%), kápa með hettu/skinnkraga úr 888 kr. í 912 kr. (3%), rykfrakki 895 kr. í 919 kr. (3%), gluggatjöld úr 509 í 525 kr. (3%). DV Tilboð: Miðvangur -gildirtil8. okt. Á tilboði í Miðvangi í Hafnar- firði eru 10 vöruflokkar: Saltað hrossakjöt, 99 kr. kg Óhreinsuð svið, 248 kr. kg Áleggspylsubréf, 99 kr. Humar, 999 kr. kg Harðfiskbitar, 90 g, 189 kr. Dahlí kökur, 158 kr. Dahlí tertubotn, 128 kr. Fjölkornabrauð, 118 kr. Jarðarber, 450 g, 259 kr. Rauð epli, 99 kr. kg Pylsur misdýrar í verðkönnunum, sem Neyt- endasamtökin og Framleiðsluráð landbúnaðarins hafa hafið sam- starf um að gera, kemur t.d. í Ijós að pylsur eru misdýrar. Annars vegar eru SS-vínarpylsur og hins vegar aðrar vínarpylsur. Verð á SS-pylsum er mun hærra í þeim fjórum verðkönn- unum sem gerðar voru. í tveimur könnunum, 22. júní og 11. júlí, kostuðu SS-pylsurnar 718 kr. en aðrar pylsur 497 kr. Þann 23. ág- úst var verðið á SS-pylsunum enn 718 krónur en aðrar pylsur 379 kr. í könnun sem gerð var 19. sept- ember höfðu SS-pylsurnar hækk- að í 736 kr. og aðrar pylsur í 447 krónur. Pylsur eru ákaflega misdýrar. Ótrúlegur munur á bjúgum í könnun Neytendasamtakanna og Framleiðsluráðs landbúnað- arins kemur fram ótrúlega mikill verðmunur á SS-bjúgum og öðr- um bjúgum. Þann 22. júní kost- uðu SS-bjúgun 575 kr. og önnur bjúgu 398 kr.; 11. júlí var verðið á öðrum bjúgum það sama en SS-bjúgu höföu lækkað í 542 kr. Þann 23. ágúst höfðu SS-bjúgun hækkað í 639 kr. en önnur bjúgu lækkað í 219 kr. og 19. september kostuðu SS-bjúgun 575 kr. og önn- ur bjúgu 349 kr. Póstur og sími: Tveggja stafa númerin horfin Póstur og sími hefur tekið í gagniö ný símanúmer. í stað tveggja stafa númeranna eru komin þriggja stafa númer. Upplýsingar um erlend númer fást í númer 114, talsamband við útlönd í 115, símaskráin í 118, tal- samband innanlands í 119, bilanir í 145, ritsíminn í 146, símatelex í 147 og klukkan er í síma 155. Verðkönnun hjá efnalaugunum Jakki Buxur Pils Peysa Jakka- peysa Kven- blússa silki Kápa Kápameð Rykfrakki hettu/ skinn- kraga Glugga- tjöld pr.kg Efnalaug Árbæjar, Hraunbæ 102, Rvfk 505 505 505 310 310 610 895 895 895 505 Efnalaug Garðabæjar, Garðatorgi 3, Garðabæ 520 520 520 430 520 650 900 900 990 520 Efnalaug Reykjavíkur, Laugavegi 32b, Rvík 505 505 505 310 410 610 810 895 895 505 Efnalaugin Björg, Efstalandi 26, Rvík 550 550 550 450 550 665 920 950 950 580 Efnalaugin Björg, Háaleitisbraut 58-60, Rvík 550 550 550 450 550 665 920 950 950 580 Efnalaugin Fönn, Skeifunni 11, Rvík 505 505 505 310 310 610 810 895 895 505 Efnalaugin Glitra, Rauðarárstlg 33, Rvlk 505 505 505 330 400 490 810 895 895 505 Efnalaugin Glæsir, Bæjarhrauni 4, Hafnarf. 520 520 520 400 400 650 920 920 920 520 Efnalaugin Glæsir, Hverafold 1-3, Rvlk 620 520 520 400 520 400 920 920 920 520 Efnalaugin Holts-hraðhreinsun, Langhv. 89, Rvík 500 500 500 300 500 600 800 , 850 900 500 Efnalaugin Hraðhreinsun, Súðarvogi 7, Rvík 505 505 505 310 505 610 810 895 895 505 Efnalaugin Hraði hf„ Ægisíðu 115, Rvík 550 550 550 345 550 665 985 985 1035 555 Efnalaugin Hrein föt, Dvergshöfða 27, Rvlk 520 520 520 350 350 630 920 920 920 480 Efnalaugin Hreinn, Hólagarði, Lóuh. 2-6, Rvík 505 505 505 310 505 610 810 855 895 505 Efnalaugin Hreint og klárt, Laufbrekku 26, Kóp. 495 495 495 310 495 310 800 800 800 495 Efnalaugin Hvíta húsið, Kringlunni 8-12, Rvík 550 550 550 350 550 680 875 950 950 750 Efnalaugin Katla, Laugarásvegi 1, Rvík 520 520 520 320 520 610 920 920 920 520 Efnalaugin Kjóll og hvítt, Eiðistorgi 15, Seltj.nesi 525 525 525 420 525 630 940 940 940 550 Efn8laugjn Mosfellsbæ, Háholti 14, Mosfellsbæ 530 530 530 335 530 530 880 920 900 400' Efnalaugin Nóatúni, Nóatúni 17, Rvík 530 530 530 325 530 640 800 940 940 530 Efnalaugin og þvottah. Drlfa, Hringbr. 119, Rvlk 520 520 520 320 520 650 900 900 990 550 Efnalaugin Perlan, Langholtsvegi 113, Rvík 505 505 505 400 505 610 895 895 895 505 Efnalaugin Svanlaug, Engihjalla 8, Kópav. 500 500 500 400 500 600 850 900 900 500 Efnalaugin Úðafoss sf„ Vitastíg 13, Rvík 520 520 520 350 380 610 820 980 960 540 Fatahreinsun Kópavogs, Hamraborg 7, Kópav. 505 605 505 350 490 510 820 980 960 540 Fatahreinsunin Snögg sf„ Stigahlíð 45-47, Rvlk 500 500 500 300 400 600 895 895 895 500 Nýja Efnalaugin, Ármúla 30, Rvlk 550 530 530 410 450 630 890 890 840 530 Nýja Fatahreinsunin, Reykjavíkurv. 64, Hafnarfirði 505 505 505 350 500 610 810 895 895 500 Lægsta verð 495 495 495 300 310 310 800 800 800 400 Hæsta verð 550 550 550 450 550 680 985 985 1035 750 Mismunur á lægsta og hæsta verði 11% 11% 11% 50% 77% 119% 23% 23% 29% 88% Meðalverð 518 518 518 355 474 596 869 912 919 525 'Tilboð til 15. nóvember

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.