Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1995, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1995, Page 13
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995 13 Fréttir Dómur vegna átaka við Lækjartorg í september 1994: Fangelsi fyrir líkamsárás - fómarlambið talið munu eiga við varanlegt tvísýni að stríða Norræna félagið í Reykjavík Aðalfundur Norræna félagsins í Reykjavík verður haldinn í Norræna húsinu mánudaginn 9. október kl. 17.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin hvetur félagsmenn til að mæta á fundinn. / Héraðsdómur Reykjavikur hefur dæmt Guðna Þór Sigurjónsson, 32 ára, í 5 mánaða fangelsi, þar af 3 mánuði skilorðsbundið, fyrir stór- fellda líkamsárás með því að hafa valdiö öðrum karlmanni varanleg- um áverkum þegar hann sló hann hnefahögg í maga og andlit á Lækj- artorgi aðfaranótt laugardagsins 17. september 1994. Við réttarhöldin kom fram að mað- urinn, sem varð fyrir höggunum umrædda nótt, var að stilla til friðar og var í raun óviðkomandi Guðna. Þá kom einnig fram að sakborning- urinn hefur æft kraftlyftingar og hnefaleika. Hefur þegar samið um skaðabætur Áður en máhð kom til úrlausnar fyrir dómi hafði Guðni greitt mann- inum skaðabætur vegna afleiðinga líkamsárásarinnar. DV hefur ekki fengið gefið upp hve há fjárhæðin var en samkvæmt upplýsingum blaðsins nam upphafleg krafa einni milljón króna. Þolandinn var með gleraugu þegar árásin var gerð en eftir hana var hann fluttur á slysadeild til læknis- rannsóknar og um nóttina kom í ljós að andlitsbein hafði brotnað og vefir og vöðvar gengið til. í kjölfar þessa hefur-maðurinn átt við tvisýni að stríða við vissar aðstæður auk dofa í hægri hluta andlitsins. Læknir, sem kom fyrir dóminn, taldi líklegt að tvísýnið yrði varanlegt þar sem það hefur ekki breyst frá síðastliðnum áramótum. Einnig mætti búast við viðvarandi taugatruflun í hægri kinn og vör. Hafði engan afbrotaferil að baki Með hhðsjón af afleiðingum verkn- aðarins ákvaö Sverrir Einarsson héraðsdómari að tveir mánuðir af fimm mánaða refsingu Guðna yrðu óskilorðsbundnir. Sakborningurinn hafði engan afbrotaferil að baki sem talið var skipta máh við ákvörðun refsingar. Guðni viðurkenndi greið- lega það sem honum var gefið að sök. Sakborningurinn áfrýjaði niður- sparihefta heimilanna 904 1750 39,90 mfnútan Taktu þatt í sparileik sparihefta heimilanna með því að hririgja í síma 904 1750 og svara þrem laufléttum spurningum úr Spariheftum heimilanna sem dreift hefur verið inn á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu. Gtæsileg verðlaun í boði! Einn heppinn þátttakandi hlýtur Hotpoit 1200 snúninga þvottavél meo innbyggðum þurrkara frá Heklu að verðmæti 79.277 I luluumt*^ • dótturfyrirtækl General Electric 1h|HEKLAHF Að auki eru 27 heppnir þátttakendur dregnir úr pottinum og hljóta þeir einn af eftirfarandi vinningum hver: Aftdáœiw sss Vöruúttekt að verðmæti kr. 5.000 frá Benetton Matarúttekt fyrir 4 frá veihngastaðnum Sjanghæ Vöruúttekt að verðmæh kr. 4.000 frá Karel hrirel Fjölskyldupitsu, gos og brauðstangir frá Pizza Hut Rug Ban værðarvoð að verðmæh kr. 5.9Ö0 frá Marco húsgagnaverslun Filmuframköllun að verðmæh kr. 3.000 frá Framköllun á stundinni Gjafabréf að verðmæti kr. 3.000 frá Rafha Mánaðar líkamsræktarkort í World Class -^maas^ 4íut I\1 ctX C O húsgagnaverslun %$rummM y Hreinsun að verðmæti kr. 2.000 frá Efnalauginni Björg Dregið verður úr réttum lausnum mánudaginn 16. október. Nöfn vinningshafa verða birt í síma 9041750 þriðjudaginn 17. október. stööu héraðsdóms þegar við dóms- uppsögu. -Ótt tímarit fyrir alla MUNIÐ NYTT SIMANUMER 550 5000 Gagnrýnendur eru á einu máli um ágæti nýja Hyundai Elantra og viðbrögð almennings hafa verið í samræmi við það. Nýr „Frá grunni, laglega hannaður í og vel búinn" 2) Öruggur ,,....þá hefur við hönnun einnig verið lögð áhersla á öryggið.".... 1) Nýja vélin er sprækari „Eitt helsta tromp Elantra er nýja „beta“ vélin.“ „í raun má því segja að þessi nýja vél sé einstaklega vel heppnuð fyrir þennan bíl.“ 2) piiisi Vel búinn „Þetta er vel búinn bfll og þess verður strax vart um leið og sest er inn.“ 2) „Búnaður er nokkuð ríkulegur, samlæsingar, rafstilling hliðarspegla, útvarp og rafmagnsrúður" 1) Snotur að innan „Þegar sest er inn verður flest til ánægju....“ 1) Verd: 1.395.000 kr. á götuna 19 9 6 l)Mbl. 17. september. - 2)D.V. Bflar 25. scptember. Góður kostur „í heild verður að segja að þessi nýja Elantra er allgóður kostur á þeim harða markaði sem íslenskur bflamarkaður er nú.“.... 2) ...þetta er vel búinn bfll sem býður af sér góðan þokka, fullvaxinn bfll í millistærðarflokki, og ekki sakar að útlitið er í góðu lagi. “ 2) HYUnDHI ...til framtíðar ÁRMÚLA 13 SÍMI: 568 1200 BEINN SÍMI: 553 1236

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.