Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1995, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1995, Page 4
4 MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1995 Fréttir Sjómaðurinn sem vann 5 miUjónir 1 lottói og hafði heitið á starfsstúlkur hársnyrtistofu: Bauð sjö stúlkum í 208 þúsund króna f erð - fór með þeim til Glasgow á laugardag en fleiri eru famir að heita á stúlkumar Ægii Már Kárasan, DV, Suðumesjum; „Ég vona að þær eigi eftir að skemmta sér vel í ferðinni. Þær eru allar mjög hressar og skemmtileg- ar,“ sagði Einar Daníelsson, sjómað- urinn í Keflavík sem nýlega vann 5 milljónir króna í lottói. Hann var að fara í ferð til Glasgow með sjö konum sem hann hafði boöið með sér þang- að. Ástæöan var að áður en Einar fékk vinninginn hafði hann heitið á aUar starfsstúlkur Hársnyrtistofu Harðar Guðmundssonar í Keflavík - ef hann fengi 5 rétta byði hann þeim í utanlandsferð. Einar greiddi 208 þúsund krónur fyrir sjö starfsstúlkur og eiganda stofunnar. Hann sagðist í samtali við DV ætla að geyma afganginn af pen- ingunum á góðum stað - þeir færu ekki í neina vitleysu. Nýleg frétt DV af vinningnum og áheiti Einars varð til þess að margir Kátir Glasgow-farar með Einari Danielssyni og Herði Guðmundssyni. Þær eru Hafdis A. Karlsdóttir, Gréta Grétars- dóttir, Anita I. Arnarsdóttir, Bjarnveig Bjömsdóttir, Þóranna Andrésdóttir, Anna K. Sigurðardóttir og Kolbrún Valdi- marsdóttir. DV-mynd ÆMK hafa haft samband við Hörð, eiganda hársnyrtistofunnar - fleiri vilja heita á stúlkumar sjö. „Það hafa margir haft samband við mig og haft þetta á orði, bæði ein- stakhngar og gamlir viöskiptavinir. Ég get þó ekki nefnt nein nöfn,“ sagði Hörður. „Þetta hefur allt verið mjög sér- stakt. Margir slá svona áheitum fram í gríni en standa síðan ekki við þau. Það var hins vegar vilji Einars að bjóða hópnum út þó við heföum ekki reiknaö með neinu frá honum. Það er hins vegar ekki hægt að neita að þiggja svona boð þegar þaö er borið fram af slíkum heilindum og dreng- lyndi," sagði Hörður. Einar hefur verið viðskiptavinur hjá Herði í yfir 30 ár. Hópurinn kem- ur heim úr Glasgowferðinni á morg- un, þriðjudag. Á meöan er stofan lok- uð. -Ótt Davið Oddsson forsætisráðherra tekur á móti Benedikt Daviðssyni, forseta ASÍ. DV-mynd TJ Kjaramálin krufin í stjómarráðinu: Hefðbundinn en gagnlegur fundur - segir Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusambandsins „Fundurinn var með heföbundn- um hætti en ég held að hann hafi engu að síður verið gagnlegur. Þaö er kannski enginn árangur kominn í ljós en okkur virðist sem þaö ríki skilningur á því að um vandamál sé að ræða,“ segir Benedkit Davíðsson, forseti Alþýðusambandsins. Benedikt gekk ásamt Birni Grétari Sveinssyni, formanni Verkamanna- sambandsins, og Ara Skúlasyni, hag- fræðingi ASÍ, á fund Daviðs Odds- sonar forsætisráöherra og Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra á laugardaginn til að ræða þá stöðu sem komin er upp á vinnumarkaðin- um í kjölfar nýfalhns kjaradóms. Á fundinum upplýstu ráðherrarnir að þeir myndu freista þess að fá for- sendur kjaradómsins þannig að hægt yrði að skoða þær viðmiðanir sem gengið var út frá í úrskurði dómsins. Þá viöraði Davíð þá hugmynd að komið yrði í veg fyrir með lagasetn- ingu aö æðstu embættismenn þjóðar- innar fengju þriggja prósenta launa- hækkun sem launþegar eiga að fá um áramótin. Benedikt segir að þó siðferðilegar forsendur kjarasamninganna séu brostnar muni það fyrst koma í ljós í lok næsta mánaðar hvort hægt verði að segja samningunum upp. Á hinn bóginn megi hugsa sér aö gripið verði til aðgerða þrátt fyrir að samn- ingar séu í gildi, til dæmis á félaga- eða einstakhngsgrundvelli. „Við bíðum eftir að fá einhver gögn frá kjaradómi til að við getum hafið okkar vinnu. Vinnan verður að vera farin að stað áður en þing Verka- mannasambandins hefst 24. október þannig að það er ekki langur tími til stefnu," segir Benedikt. -kaa I dag mælir Dagfari Með forsetann í maganum Forsetakjör er í uppsighngu. Þaö kemur eiginlega þjóðinni í opna skjöldu vegna þess að enginn átti von á því að Vigdís Finnbogadóttir léti af störfum. Frú Vigdís hefur setið á forsetastóh svo lengi aö ís- lendingar voru hættir að reikna með því að kjósa þyrfti nýjan for- seta. Enda er þjóðin hálflömuð af tilhugsuninni um að einhver annar setjist að á Bessastöðum. Ekki þó allir. Fjölmiðlar eru fam- ir aö útnefna forsetaframbjóöend- ur og eftir þeirri upptalningu að dæma virðist enginn hörguh á hæfu fólki. Að minnsta kosti að þeirra eigin mati. Það kemur nefni- lega í ljós að helftin af þjóðinni getur vel hugsað sér að taka við af Vigdísi. Fólk var unnvörpum að bíða eftir afsögn hennar til að geta gefið kost á sér sjálft. Miöað við öll þau nöfn sem eru nefnd í blöðum, kjaftasögum og á fömum vegi er biðröð af fólki sem telur sig ýmist eiga erindi á Bessa- staði ehegar hefur oröið fyrir stöð- ugum þrýstingi um að fara þangað. íslendingar era lánsöm þjóð að vera ekki á vonarvöl með forseta- frambjóðendur eða hæfa forseta ef tekið er mark á viöhorfum og við- brögðum þeirra sem til era kallað- ir. Þeir segjast að vísu ekki hafa hugsað máhð ofan í kjölinn og eigi eftir að leggjast undir feld og í raun og vera er eina vandamálið hjá flestu þessa fólks að þetta sé ekki rétti tíminn til að spyrja. Þess vegna er þetta ekki rétti tíminn th aö svara án þess þó að viðkomandi æth að svara neitandi að framboð komi til greina. Fram kemur að við suma hefur hugmyndin um forsetaframboð veriö reifuð en þeir hafa af lítihæti ekki vfljað tjá sig aö svo komnu máh. Það kemur með öðrum orðum í ljós að þúsundir íslendinga hafa orðaö það við aðrar þúsundir ís- lendinga hvort þeir vUji ekki gefa kost á sér sem forsetar. Það eina sem hefur komið í veg fyrir aö þess- ar áskoranir og vangaveltur ein- stakra hugsanlegra frambjóðenda úti í þjóðfélaginu hafa ekki verið gerðar opinberar hingað th er tillit- semi við frú Vigdísi. Núverandi forseti hefur sem sagt verið til trafala gagnvart frama og framboði annarra frambærUegra og hugsanlegra forseta og þegar fólk hefur verið að segja að frú Vigdís sé eini íslendingurinn sem sómir sér á Bessastöðum er það af algjörri vanþekkingu á stöðu mála og þeim mikla fjölda sem hefur beðið í ofvæni eftir að Vigdís hætti. Vandinn verður sá einn að koma sér saman um hver eigi að verða forseti. Ekki má heldur gleyma þeim sem geta líka oröið forsetar en enginn hefur enn þá komið auga á. Fjöldi frambærUegra frambjóðenda er tvímælalaust á boðstólum en því miöur hefur enginn orðað það við þessa einstaklinga og enginn nefnt þeirra nafn. Margur maðurinn hggur andvaka í angist heima hjá sér og skUur ekkert í því að koma ekki tU greina sem forseti og það er einmitt þessi hópur fólks sem hefur nú risið upp og heldur því fram að þjóðin geti verið án for- seta. Forsetaembættið er óþarft segja þessar Ulu tungur og þessi kenning stafar ekki af því að þeim finnist forsetastarfið óþarft heldur af hinu að úr því nöfn þeirra era ^pkki í umræðunni á enginn annar skihð að vera forseti. Þá sé best að leggja forsetaembættið niður. Þegar upp er staðið verður það að teljast mikið lán að frú Vigdís skuh hafa ákveðiö að gefa ekki kost á sér áfram. Eftir sextán ára valdaferil hennar hafa safnast upp svo margir forsetaframbjóðendur að þjóðin er jafnvel að velta því fyrir sér að kjósa ahs engan for- seta! Það er ekki hægt að gera upp á milli þeirra og það getur enginn hugsað sér að einhver annar verði forseti meðan hann sjálfur getur ekki orðið forseti. Sem er út af fyr- ir sig synd. Hver á þá að nota vín- kjaharann á Bessastöðum sem nú er búið aö endurhanna fyrir rúman miUjarö? Þá er Ula farið meö góöan vínkjahara. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.