Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1995, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1995, Side 7
MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1995 7 Fréttir Hinn ákæröi fjárgæslumaður Lífeyrissjóðs starfsmanna Áburðarverksmiðjunnar: Hyggst kæra sjóðinn Þorsteinn V. Þóröarson, fyrrum fjárgæslumaður Lífeyrissjóðs starfs- manna Áburðarverksmiðjunnar, segist ætla að kæra stjóm sjóðsins til bankaeftirlits Seðlabankans fyrir vanrækslu og afskiptaleysi á þeim eignum þar sem veð hafa tapast - ef ríkissaksóknaraembættiö tekur ekki málið upp sjálft. Eins og fram kom í DV fyrir helgina hefur Þorsteinn verið ákærður fyrir umboðssvik upp á tugi milljóna og 1,5 milljóna króna fjárdrátt með því að hafa keypt skuldabréf með ótryggum veðum í eigninni Skipholti 50d og tugum íbúða við Beijarima en sjóðurinn hefur tapaö tugum miUjóna króna í kjölfar þessara viðskipta. Þorsteinn segir á hinn bóginn að stjórnendur lífeyrissjóösins hafi unnið vísvitandi gegn sér. „Ég keypti þessi bréf til þess að auka ávöxtun sjóðsins. Allir sem standa í slíku vita að því hærri ávöxt- un því meiri er áhættan," sagði Þor- steinn. „Stærsta talan sem deilt er um er kaup á bréfunum í Skipholti 50d. Matið sem ég hafði á eigninni frá tveimur fasteignasölum var á sínum tíma 110-120 milljónir króna. 1.4. mars keypti Lífeyrissjóður lækna húsið á 36 milljónir á uppboði án þess að Lífeyrissjóður starfsmanna Áburðarverksmiðjunnar byði í eða hefði af því afskipti. í lok maí seldi læknasjóðurinn eignina á 45 milljón- ir og í dag, eftir frekari framkvæmd- ir Ármannsfells, er þessi sama eign til sölu h)á Eignamiðluninni á 172,5 milljónir. Verðmætamat forsvars- manna lífeyrissjóðsins er því rangt og þeir hafa með vísvitandi aðgerð- um ekkert aðhafst til að forða honum frá 40-50 milljóna króna tapi. Fjár- festingin var ekki ótryggari en þann- ig að 8. september var hún auglýst sem eign á besta stað í borginni." Varðandi ákæruatriðið um fjár- dráttinn sagði Þorsteinn: „Það byggist á því aö ég lánaði þeim aðila sem seldi mér bréfin þessa upp- hæð, persónulega út úr mínum reikningi, á um einu ári. Hann not- aði féð tfi að þinglýsa húsnæði fyrir sína umbjóðendur. Þegar ég gerði upp við hann bréfin tók ég af upp- hæðunum sem ég hafði lánað hon- um. Þetta var því fjárstreymi sem fer aldrei um sjóðinn heldur var ég þannig að endurgreiða mér. Ég við- urkenni að þetta var aðferðafræði- lega rangt en þetta skapaðist af því aö maðurinn var gjaldþrota og hafði sjálfur ekki hefti og ég vildi hafa hönd í bagga með það sem hann gerði,“ sagði Þorsteinn. „Ef saksóknari sér ekki aðgerða- leysi forsvarsmanna sjóðsins ætla ég að kæra þá aðila tfi bankaeftirhts Seðlabankans," sagði Þorsteinn. -Ótt Aukin þjónusta í BOSCH verslun Sérpöntum alla almenna varahluti í Fólks- og jeppabifreiðar Vöru- og f lutninga- bifreiðar Vinnuvélar og landbúnaðartæki Fljót og góð þjónusta * Vikuna 24. sept. - 1. okt. 1995 ^^0 i OG ALLIR í HÁSPENNU HVAR SPILAR ÞÚ ? Hafnarstrœti 3 Laugavegur 118 l

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.