Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1995, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1995, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1995 17 dv_______________________________________________Fréttír Akureyri: Svíar sýna áhuga á skóverksmiðju Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „í sjálfu sér vitum viö lítiö um þaö á þessu stigi um hvaö málið snýst, annað en að þetta fyrirtæki hefur sýnt áhuga á því að stofna til rekst- urs skóverksmiðju hér í bænum,“ segir Guðmundur Stefánsson, for- maður atvinnumálanefndar Akur- eyrarbæjar. Sænska fyrirtækið Gapap Com- pany hefur sett sig í samband við forsvarsmenn Akureyrarbæjar og lýst áhuga sínum á að hefja skófram- leiðslu á Akureyri. Guðmundur Stef- ánsson segir að næsta skref í málinu verði aöfulltrúi frá Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar, sem fer með málið fyrir hönd Akureyrarbæjar, muni fara utan til viðræðna við fulltrúa sænska fyrirtækisins. „Við höfum fullan hug á að skoða þetta mál til hlítar en fyrst og fremst þurfum við að fá vitneskju um hvernig máhð snýr að Akureyrarbæ, hvort fyrirtækið er með einhverjar óskir á hendur bænum eða hvernig málið einfaldlega lítur út í heild sinni,“ sagði Guðmundur. Hafnargarðurinn á Djúpavogi. Gestur SU er á leið í land. DV-mynd Hafdís Erla Djúpivogur: Vinnu við hafnar- garðinn lokið Hafdís Erla Bogadóttir, DV, Djúpavogi: Lokið er vinnu við 180 metra lang- an hafnargarð við Djúpavogshöfn. Það var Suðurverk á Hvolsvelh sem vann verkiö og er kostnaður við garðinn 35 milljónir. Garðinum er ætlað að skýla höfn- inni fyrir úthafsöldu. Aður var búið að gera tilraunir á líkani sem sett var upp í Kópavogi. Verkið hófst í maí og því lauk í septemberlok. Séra Halldór Gunnarsson, fyrsti varastjómarmaður SVFÍ: Ekki sátt í starfs- mannamálunum - sátt um að halda frið, segir Gunnar Tómasson „Það er ekki sátt í starfsmanna- málum innan Slysavarnafélagsins. Mér kemur á óvart að sjá að Gunnar Tómasson segi aö sátt sé um þau mál. Það eru mjög skiptar skoðanir. Óánægja er um hvemig stjórnin hef- ur starfað gagnvart starfsmönnum, menn vita hvemig hún hefur beitt sér fyrir uppsögnum. Fimm manna nefnd var skipuð á fundinum á Úlfljótsvatni innan stjórnar og varastjórnar til að reyna að leita leiða fyrir Slysavarnafélagið til að hægt sé að starfa án átaka fram að næsta landsþingi. Það þarf að breyta stjórnfyrirkomulaginu og ■taka á málum varðandi samskipti stjórnar við starfsmenn," sagði séra Halldór Gunnarsson í Holti, fyrsti varastjómarmaöur SFVÍ. Gunnar Tómasson, varaforseti SVFÍ, sagöi að hann hefði ekki öðru viö þetta að bæta en því að hann segði að sátt væri um að halda frið innan Slysavarnafélagsins og um það hefðu menn tekist í hendur. Hann sagði enn fremur að nefnd- inni, sem skipuð var á fundinum á Úlfljótsvatni, hefði ekki verið falið að skipta sér af starfsmannamálum, heldur að jafna mönnum í ráð innán stjórnarinnar. ökuskóii MEIRAPRÖF íslands Námskeið til aukinná -------— ökuréttinda 17. Okt. Dugguvogur2 S. 568 38 41 ÚTBOÐ F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir til- boðum í jarðvinnu við viðbyggingu Hamraskóla. Útboðið nær til aðstöðusköpunar og jarðvinnu. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn 10.000 króna skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 19. októb- er 1995, kl. 11.00 f.h. bgdS5/5 INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 552 58 00 FORVAL Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd Hitaveitu Reykjavíkur, áformar að bjóða út viðhald dreifikerfis. Út- boðið verður lokað að undangengnu forvali. Verkið felst í að sinna tilfallandi viðhaldi og endurnýjun á dreifikerfi Hitaveitu Reykjavíkur auk bakvakta. Vinnusvæð- ið er á öllu veitusvæði Hitaveitu Reykjavíkur. Lögð er áhersla á að væntanlegir bjóðendur hafi reynslu af svipuðum verkum. Forvalsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn 5.000 króna skilatryggingu. Forvalsgögn- um skal skila á sama stað fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn 18. október 1995. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - simi 552 58 00 ™ meÓ borgarstjóra ^ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri heldur fund með íbúum Arbæjarhverfis Artúnsholts og Seláshverfis í Árseli mánudaginn 9. október kl. 20.00 Á fundinum mun borgarstjóri m.a. ræða um áætlanir og framkvæmdir í hverfunum. Síðan verða opnar umræður og fyrirspurnir með þátttöku fundar- manna og embættismanna borgarinnar. Jafnframt verða settar upp teikningar af fyrirhuguðum framkvæmdum í hverfunum ásamt öðru fróðlegu efni. Allir velkomnir. Skrifstofa borgarstjóra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.