Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1995, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1995, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1995 23 Mermincr I minningu Páls ísólfssonar Á sunnudaginn var voru haldnir veglegir orgeltónleikar og við það tækifæri jafnframt stofnaður sjóður í nafni Páls ísólfssonar. Markmiðið með stofnun þessa sjóðs er að styðja unga og efnilega orgelnemendur til náms erlendis. Páll var, eins og allir vita, mikils metinn Bach-túlkandi og tónskáld gott, en hann var einnig brautryöjandi í tónlistarmálum okkar mörgum og þá ekki síst þeim er varðaði org- Tónlist Áskell Másson elmál. Þannig var hann einn af stofnendum Félags íslenskra org- anleikara, var raunar fyrsti for- maður þess félags og átti hvað stærstan þátt í mótun þess fyrstu árin. Þaö hlýtur því að teljast vel við hæfi að þegar nú félagið ræðst í stofnun þess sjóðs, að þá sé það gert í minningu brautryðjandans, Páls ísólfssonar. Þrír okkar ágætustu organ- leikara léku á þessum tónleikum, en þeir voru Bjöm Steinar Sólbergs- son, Hörður Áskelsson og Marteinn H. Friðriksson. Leikin voru verk eft- ir Pál og J.S. Bach. Það var Bjöm Steinar sem reið á vaðið og lék hann fyrst Ostinato og fúghettu eftir Pál. Einkenndist túlkun hans af sterkum htum og einkar skýrri framsetningu og var flutningurinn allur hinn ágætasti. Við tóku sálmforleikir eftir Pál, Víst ertu, Jesús, kóngur klár og Bænin má aldrei bresta þig og vom þeir fallega leiknir af Birni Steinari. Síðan lék Bjöm umritun sína á Burlescu Páls, en hún er upphaflega skrifuö fyrir píanó. Umritunin er skemmtileg og litrík og minnti undirritaðan stundum á raddaval í schersóum Viemes. Að lokum lék Björn Steinar hið undurfallega Máríuvers Páls, í umritun Hauks Guðlaugssonar. Var það einkar smekklega gert. Hörður Áskelsson lék síðan hið mikla verk J.S. Bachs, Passacaglíu í c-moll BWV 582. Þetta erfiða og glæsilega verk var frábærlega flutt af Herði og þótt undirrituðum fmnist það bjóða upp á meiri andstæður í raddavah, þá er það smekksatriði. Hörður lék síðan Forspil í c-moh eftir Pál og gerði mjög vel. Marteinn H. Friðriksson lék að lokum Chaconnu Páls Isólfssonar. Verk- ið lék hann mjög skemmtilega. Framsetningin var fijálsleg, svipað og í fantasíu, bæði hvað varðar raddaval og leikstíl. Þessir ágætu tónleikar vora Félagi íslenskra organleikara til mikhs' sóma. Tár úr steini Kvikmyndin Tár úr steini var framflutt hér í Sfjörnubíói í síðasta mán- uði. Myndin, sem byggð er á því æviskeiði Jóns Leifs er hann var búsettur í Þýskalandi, á fjórða og fyrri hluta fimmta áratugarins, hefur vakið umtalsverða athygli og hljómdiski með tónlistinni úr myndinni, sem inn- kallaður var, hefur nú verið dreift í verslanir. Þrátt fyrir að það sé fyrir tónhstarmann greinilegt að Þröstur Leó hef- ur ekki aö baki nám í hljómsveitarstjóm og að Annie Leifs hlýtur að hafa fengist við stórbrotnari verkefni og á fagmannlegri hátt en fram kemur í myndinni, þá er það mannlegi þátturinn, samband þeirra hjóna og fjölskyldunnar allrar sem er aðalstyrkur myndarinnar. Útgefand- inn/umboðsmaðurinn virkar frem- __ Tónlist Askell Másson ur ósannfærandi, en önnur hlut- verk eru yfirleitt mjög vel leikin. Þau Þröstur Leó Gunnarsson og Ruth Ólafsdóttir fara sérlega vel með sín hlutverk, ef frá era taldir _______________________________ ofangreindir agnúar og ná að snerta mann djúpt á stundum, bæði í dramatískari atriðunum svo og í þeim hversdagslegri. Kvikmynd í dag er óhugsandi án tónhstar. Tónhst þessarar myndar er bæði upphaf og endir hennar. Tónhst Jóns Leifs. Vonandi getur þessi kvikmynd orðið til þess að augu okkar, landa Jóns, svo og umheimsins, opnist fyrir tónlist hans og tónarfi okkar. Kvikmyndatökumennirnir Sigurður Sverrir Pálsson og Slawomir Idziak fara á kostum og eiga stóran þátt í þessu hstaverki. Leikstjórinn Hilmar Oddsson, framleiðandinn Jóna Finnsdóttir og tónhstarstjórinn Hjálmar H. Ragnarsson eiga öh hrós og þakkir skihð fyrir þetta merka framtak. Undirritaður getur ekki stiht sig um að nefna að hljóðið í myndinni er það besta sem hann hefur heyrt í íslenskri kvikmynd, en um það sá Kjart- an Kjartansson. Það er skrýtið aö hlýða á hljómdisk með svo mörgum og fjölbreyttum brotum úr tónhst Jóns Leifs. Utgáfa hans er þó góöra gjalda verð og gæti ef til vill aukið áhugann á tónhst Jóns, eins og kvikmyndin. Undirritaður hefði þó vhjað hafa þarna með brot úr verki hans, Heklu, eins og reynd- ar gert er í myndinni. Smáauglýsingar - Sími 550 5000 Tilboð óskast í GMC 4x4, árg. '77, ferðainnrétting, fallegur bíll í góðu standi, skoðaður “96. Ásett verð 550-650 þús., fæst á hálfvirði gegn staðgreiðslu. Úpplýsingar í s. 587 4489 og896 2392. Jeppar Bókmenntir Sigríður Albertsdóttir Gyrðir Elíasson. Ljósið í myrkrinu Kápumyndin á nýjustu bók Gyrðis Elíassonar, Kvöld í Ijóstuminum, er eftir Sigurlaug Elíasson. Hún er ekki aöeins faheg í sínum bláu tónrnn heldur einnig lýsandi fyrir innihald bókarinnar, sýnir mann á gangi í næturhúmi, niðursokkinn í lestur og það eina sem lýsir honum er hth ennislukt sem sendir flöktandi geisla út í myrkrið. Þessi maður er reynd- ar persóna í einni af tuttugu og tveimur smásögum bókarinnar, sést aö- eins þegar skyggja tekur og truflar og skelfir vegfarendur sem leið eiga um Möðradal. Enginn veit hver maðurinn er eða hvaðan hann kemur og enn síður hvert lesefnið er! Er þetta útsendari djöfulsins eða „sendi- boði úr ljósinu handan myrkursins" (25) og hver eru skhaboðin? Viö þessu fást engin svör en maðurinn (draugurinn) er þó greinhega tenging nútíðar við löngu hðna fortíð. Slíka annars heims viðurvist er að finna í fleiri sögum Gyrðis þar sem hversdagslegar lýsingar á daglegum athöfn- um manna eru brotnar upp með vísunum í annan eða aðra heima. Andrúmsloftið er dularfuht og annarlegt og tengingin við dauð- ann er undirstrikuð með sífelldu samsphi ljóss og skugga. Margar sagnanna gerast að kvöldlagi, stundum á mörkum dags og nætur en stundum er myrkrið skolhð á og það eina sem lýsir persónum í myrkrinu er örhtil ljósglæta, logi af prí- mus, glæta frá lukt eöa ljóstíra í glugga. Ljósin eru tákn öryggisins og lífsins, handan þeirra bíður myrkrið, voldugt og uggvænlegt en um leið hlýtt og lokkandi, eitthvað óumflýjanlegt. í „Elhheimilinu" er myrkrinu (dauöanum) líkt við voðfellt brekán og það ríkir friður og æðraleysi í eftirfarandi lýsingu á gamla fólkinu sem saman eyðir sínum síðustu dög- um: „Svo kveikjum við á kertum á stólörmum og loginn bærist ekki í logn- inu eftir uppstyttuna, og bjarmi fellur á andlit okkar og aht í einu fer Jakob að raula, en það er útfararsálmur og viö þöggum gæthega niður í honum. Kertin brenna niður í stólarmana meðan við horfum þögul á stjörnur bhka...“ (29) Þessi friðsemd og notalegheit era einkennandi fyrir sögur Gyrðis. Sögu- persómn- rísla sér við sitt í ljósinu og láta undarleg teikn og fyrirboða ekki slá sig óþarflega út af laginu. Þótt nokkrir draugar fari á flakk er það ekkert thtökumál og í meðfóram Gyrðis ekkert undarlegt þótt dauö- ur maður dundi sér við smíðar í ehífðinni! Hversdagsleiki og furðuhlutír renna saman eins og ekkert sé eðhlegra, andrúmsloftið er afslappað þrátt fyrir kynlegan undirtón í sögum sem á stundum svipa th þjóðsagna þar sem margt býr í þokunni. Töfrar þessara sagna era fólgnar í stílnum sem er eins og vel bruggaður seiður, tær og ferskur en stílhnn einn og sér nægir þó ekki til að gæða sögumar miklu lífi. Þær eru flestar afar stutt- ar, nokkurs konar svipmyndir eða leiftur úr daglegu lífl og skhja ekki mikið eftir utan keiminn af kjamyríu máh. Á þessu eru þó nokkrar undan- tekningar t.a.m. sagan af Möðradalsdraugnum sem býður upp á ótal skemmthega túlkunarmöguleika og er að auki launfyndin. „Vetrarmynd- ir úr endurminningasafninu" er einnig eftirminnheg, segir af htlum dreng sem býr í sveitinni hjá afa og ömmu. Á mhh gömlu hjónanna ríkir sama notalega hlýjan og í ööram sögum en um leið sýnheg togstreita sem áger- ist undir lok sögunnar. Þó sagan láti lítíð yfir sér er hún skemmthegur vitnisburöur um undarleg og óútreiknanleg samskipti mannanna og um leiö er hún vitnisburður um góðan sögumann þegar honum tekst best upp. Kvöld i Ijósturninum Mál og menning 1995 Toyota Hilux, árgerö 1990, til sölu, ekinn 82 þúsund km. Bílinn er í góðu standi. Verð kr. 1200 þúsund. Upplýsingar í síma 553 5070. Veiðifélag Búðardalsár óskar eftir tilboðum í veiðirétt fyrir veiðiárið 1996. Um er að ræða tveggja stanga veiðiá á Skarðsströnd í Dala- sýslu. Frekari upplýsingar veitir formaður veiðifélagsins, Þor- steinn Karlsson, Búðardal, Skarðsstönd, sími 4341435. Tilboð skulu hafá borist formanni veiðifélagsins eigi síðar en 25. október nk. Veiðiréttareigendur áskilja sér rétt til að taka hvaða til- boði sem er eða hafna þeim öllum. Veiðifélag Búðardalsár 903 • 5670 Hvemig á að svara auglýsingu í svarþjónustu Þú hringir í síma 903-5670 og eftir kynninguna velur þú 1 til þess aö svara smáauglýsingu. Þú slærð inn tilvísunarnúmer auglýsingar, alls 5 stafi. * Þá heyrir þú skilaboö auglýsandans ef þau eru fyrir hendi. Þú leggur inn skilaboö aö loknu hljóömerki og ýtir á ferhyrninginn aö upptöku lokinni. Þá færö þú að heyra skilaboöin sem þú last inn. Ef þú ert ánægö/ur meö skilaboðin geymir þú þau, ef ekki getur þú talaö þau inn aftur. Hvernig á að svara atvinnu- auglýsingu í svarþjónustu r Þú hringir í síma 903-5670 og eftir kynninguna velur þú 1 til þess aö svara atvinnuaúglýsingu. * Þú slærö inn tilvísunarnúmer auglýsingar, alls 5 stafi. f Nú færö þú aö heyra skilaboö auglýsandans. * Ef þú vilt halda áfram ýtir þú á 1 og heyrir þá spurningar auglýsandans. r Þú leggur inn skilaboö aö loknu hljóömerki og ýtir á ferhyrninginn aö upptöku lokinni. p Þá færö þú aö heyra skilaboöin sem þú last inn. Ef þú ert ánægö/ur meö skilaboöin geymir þú þau, ef ekki getur þú talaö þau inn aftur. r Þegar skilaboöin hafa veriö geymd færö þú uppgefið leyninúmer sem þú notar til þess aö hlusta á svar auglýsandans. Mikilvægt er aö skrifa númeriö hjá sér því þú ein(n) veist leyninúmeriö. r Auglýsandinn hefur ákveöinn tíma til þess aö hlusta á og flokka svörin. Þú getur hringt aftur í síma 903-5670 og valiö 2 til þess aö hlusta á svar auglýsandans. Þú slærö inn leyninúmer þitt og færö þá svar auglýsandans ef þaö er fyrir hendi. Allir í stafræna kerfinu með tónvalssíma geta nýtt sér þessa þjónustu. [MKÍÐ[þ£][ÍD^I]2£\ 903 • 5670 Aðeins 25 kr. mínútan. Sama verð fyrir alla landsmenn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.