Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1995, Síða 24
24
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1995
Sviðsljós
Liz Hurley og Hugh Grant stálu senunni á tískusýningu Gianni Versaces í Milanó á mánudagskvöld. Svo virðist sem Hugh hafi verið tekinn í sátt eftir
ævintýrið með vændiskonunni Divine Brown í Hollywood í sumar. Símamynd Reuter
Gianni Versace átti erfitt með að halda athygli tískusýningargesta:
liz Hurley og Hugh
Grant stálu senunni
DeNiro gaf
einná'ann
Eitthvaö fór myndatökumaður
nokkur í taugarnar á leikaranum
Roberti DeNiro og gaf Robbi
kauða því bara einn á ’ann um
leiö og hann snaraðist inn á bar
á Manhattan um helgina. Leikar-
inn var handtekinn skömmu síð-
ar og ákærður fyrir barsmíöam-
ar. DeNiro ku hafa heimtað spól-
una úr vél myndasmiðsins en sá
neítað.
Bill Murray í
keilumynd
Gamanleikarinn Bill Murray er
við það að skrifa undir samning
Um að leika i keilu- og gaman-
myndinni Kingpin. Þar kemur
hann til með að leika á móti ekki
óraerkári mönnum og konum en
Woody Harrelson, Randy Quaid-
(frá Houston í Texas) og Vanessu
Angel. Myndin fjallar um keilu-
kappa nokkurn sem lendir illa í
því en flnnur einfeldning sem
hefur góð tök á keilutækninni.
Italski tískuhönnuðurinn Gianni
Versace var himinlifandi með þá at-
hygh sem sýning hans á vor- og sum-
artískunni 1996 fékk í Mílanó á
mánudagskvöld. En ánægjan var
nokkuð blandin þar sem athygh gest-
anna snerist á tímabih meira um
skötuhjúin Ehzabeth Hurley og
Hugh Grant en klæðin fogru.
Liz og Hugh pöntuðu sér einkaþotu
til Ítalíu og miða í fremstu röð til að
ekkert færi fram hjá þeim á sýning-
unni. Sú ráðstöfun gerði þaö líka að
verkum að ekkert fór fram hjá for-
vitnum sýningargestum.
Utan við sýningarstaðinn var múg-
ur og margmenni því að frést hafði
'af komu parsins fræga. Fílefldir ör-
yggisverðir slógu hring um Liz svo
Fyrirsæta i klæðum eftir hönnuðinn
Biagiotti. Simamynd Reuter
að hún kæmist klakklaust inn í sýn-
ingarhúsiö en æstir aðdáendur
reyndu hvað þeir gátu að fá eigin-
handaráritanir og ná mynd.
Vel fór á með þeim Liz og Hugh á
tískusýningunni. Hugh var lengi í
ónáð hjá sinni heittelskuðu"eftir að
hann var gripinn með vændiskon-
unni Divine Brown í Hollywood í
sumar en nú virðist hann hafa verið
tekinn í sátt, að minnsta kosti í bih.
Brostu þau hvort til annars og
stungu saman nefjum í mesta bróð-
erni meöan íðilfagrar fyrirsæturnar
svifu eftir sviðinu í íotum Versace.
Versace gamla þótti takst vel upp
en þegar leið á sýninguna hugsuðu
gestir meira um klæðin en hið fræga
par.
Fjölmiðlar hafa setiö um Liz eftir
að spurðist að hún hefði í hyggju að
flytjast til írlands og gerast góður og
gegn kaþóhkki. Hún er að sögn orðin
afar þreytt á sviðsljósinu og þráir
frið. En hann fær hún ekki á tísku-
sýningum.
HÚSBÚNAÐUR
///////////////////////////////
Aukablað um
HÚSBÚNAÐ
Miðvikudaginn 25. október mun aukablað um
húsbúnað fylgja DV.
Blaðió verður fjölbreytt og efnismikió að vanda.
Meóal annars verður fjallaó um heimilistæki, innrétt-
ingar, lýsingu, gólfefni, húsgögn og nýja hönnun.
Þeim sem vilja koma á framfæri nýjungum og efni í
blaðinu er bent á að senda upplýsingar til ritstjórnar
DV, Ingibjargar Sveinsdóttur, sem fyrst eða í síóasta
lagi 17. október. Bréfasími ritstjórnar er 550-5999.
Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa í
þessu aukablaði vinsamlega hafi samband við Sonju
Magnúsdóttur, auglýsingadeild DV, í síma 550 5722.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur auglýs-
inga er fimmtúdagurinn 19. október.
Ath.l Bréfasími okkar er 550-5727.
Gianni Versace ásamt fyrirsætunni Lindu Evangelista að lokinni sýningu
sinni. Símamynd Reuter