Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1995, Blaðsíða 28
28
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1995
Biðraðir hafa misgóð áhrif á
skap manna.
Stendur
stuggur af
biðröðum
,,Mér hefur alla tíð staðið
stuggur af biðröðum. Þær hafa
svipuð áhrif á mig og að ganga í
takt, hvort tveggja krefst þess að
maður láti af eigin vilja.
Úlfar Þormóðsson, í DV.
Sauðfjárbændur og svína-
bændur
„Ef keyra á þetta í gegnum
auka búnaðarþing þar sem sauð-
fjárbændur eru í meirihluta þá
sjáum við svínabændur okkar
málum betur borgið utan þessa
Ummæli
félagsskapar.“
Jón Eiríksson um
búvörusamninginn í DV.
Styrkþegar félagsmála-
kerfisins
Sú stefna sem farið hefur ver-
ið eftir undanfarna áratugi hefur
gert marga bændur að styrkþeg-
um félagsmálakerfisins.
Kristján Pálsson, í Alþýðublaðinu.
KR loks stórveldi?
Það er fyrst hægt að tala um
KR sem stórveldi í dag eftir að
Lúkas er kominn þangað."
Jónas Þórhallsson, Grindavík, í DV.
Grenjandi Ijón
„Samskipamenn hafa verið
eins og grenjandi ljón hérna um
allt.“
Kári Svavarsson á Egllsstöðum, í DV.
Hæpið er að eitthvað af þessum
börnum eigi sama afmælisdag.
Fimm systkin —
sami afmælisdagur
Það er ekki mjög óalgengt að
systkin eigi sama afmælisdag en
að fimm systkin eigi sama af-
mælisdag er einsdæmi. Eina
staðfesta dæmið um þetta eru
systkinin Caherine (fædd 1952),
Carol (1953), Charles (1956),
Claudia (1961) og Cecilia (1966),
börn hjónanna Ralphs og Caro-
lyn Cummings sem eiga heima í
Virginiu í Bandaríkjunum. Þau
eiga afmæli 20. febrúar. Líkurn-
ar til að þetta gerist aftur er 1 á
móti 17.797.577.730’ eða nánast
fjórfaldur íbúafjöldi veraldar.
Blessuð veröldin
Eiga afmæli á
hlaupársdag
Þrjú böm Henriksen-fjölskyld-
unnar í Andenes í Noregi, Heidi
(fædd 1960), Olav (1964) og Leif-
Martin (1968) geta sjaldan haldið
upp á afmælið sitt því þau eru öll
fædd á hlaupársdaginn, 29. febr-
úar. Enn eitt dæmi um sameigin-
legan afmælisdag er afmælidag-
ur Ralphs Bertrams Williams frá
Norður-Karólínu. Hann fæddist
4. júli, þjóðhátíðardag Bandaríkj-
anna, sem væri ekki í frásögur
færandi ef ekki væri fyrir það að
faðir hans og afi fæddust einnig
þennan dag.
Stormur eða rok fyrir austan
Austan- eða norðaustangola eða
kaldi Verður fram eftir degi og skúr-
ir suðaustan- og austanlands en dá-
lítil él norðanlands. Allhvöss norö-
austanátt og rigning suðaustan-
lands síðdegis og í kvöld verður all-
hvöss eða hvöss norðanátt og slydda
eða rigning um landið austanvert.
Veðrið í dag
Allra austast má jafnvel búast við
stormi eða roki seint í kvöld og í
nótt. Um landið vestanvert verður
mun hægari norðcm- og norðaustan-
átt. Norðvestanlands verða áfram
dálítil él en suðvestanlands verður
skýjað með köflum og þurrt. Hiti 0
til 8 stig, hlýjast sunnanlands. Á
höfuðborgarsvæðinu verður norð-
austangola og síðar kaldi og létt-
skýjað.
Sólarlag í Reykjavlk: 18.24
Sólarupprás á morgun: 8.07
Síðdegisflóð í Reykjavík: 19.58
Árdegisflóð á morgun: 8.14
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri alskýjaö -1
Akurnes skýjaö 4
Bergsstaðir léttskýjaö -4
Bolungarvík rigning 2
Egilsstaöir rign/súld 1
Keflavíkurflugvöllur skýjaó 2
Kirkjubœjarklaustur alskýjaó 4
Raufarhöfn skýjaö 1
Reykjavík léttskýjaö 1
Stórhöföi skúr 5
Bergen hálfskýjaó 9
Helsinki skýjaö 12
Kaupmannahöfn þokumóöa 13
Ósló skýjaó 5
Stokkhólmur skýjaö 10
Þórshöfn skúr 8
Amsterdam þoka 14
Barcelona þokumóöa 17
Berlin lágþokubl. 12
Chicago heiöskírt 8
Feneyjar þokumóöa 15
Frankfurt þoka 13
Glasgow skýjaö 7
Hamborg þoka 12
London þokumóöa 13
Los Angeles þokumóóa 17
Lúxemborg þoka 14
Madrid skýjaö 13
Mallorca þokumóóa 14
Nuuk snjókoma -1
Orlando alskýjaö 24
Róm þokumóóa 19
Vín þoka 12
Winnipeg hálfskýjaö 12
0° * , Ý 1°
>8| \ %
MKIl 3° 0"^ fk ) m
• >•
V Veðrið kl. 6 í morgun
Hermann Sigtryggsson, íþróttafulltrúi á Akureyri:
Fyrsta „fórnarlamb"
65 ára reglunnar
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það má segja að ég sé fyrsta
fórnarlamb þessarar svokölluðu 65
ára reglu, ég verð sá fyrsti sem
hætti i starfi sem yfirmaður hjá
Akureyrarbæ vegna hennar," segir
Hermann Sigtryggsson, íþróttafull-
trúi á Akureyri, en hann mun láta
af þvi starfi á næstu mánuðum
Maður dagsins
vegna aldurs.
Hermann verður 65 ára í janúar
og fellur þá undir þá reglu Akur-
eyrarbæjar að menn í störfúm yfir-
manna skuli láta af þeim við þenn-
an aldur. „Menn hafa nú verið að
nefna það við mig hvort þetta
standist landslög en ég hef ekki
verið að velta því neitt sérstaklega
fyrir mér. Það kann að vera gott,
bæði fyrir mig og eins fyrir þetta
Hermann Sigtryggsson.
starf, að einhver yngri taki við,“
segir Hermann.
Hann er íþróttakennari að
mennt og kenndi íþróttir eftir að
hann útskrifaðist sem slikur árið
1951. Síðan í ársbyrjun 1963 hefur
Hermann verið íþróttafulltrúi Ak-
ureyrarbæjar en hann hafði áður
unnið hjá bænum við önnur störf.
„Þessi breyting nú þýðir ekki að ég
muni hætta störfum og það er rætt
um tilflutning hvað mig varðar en
jafnframt er samkomulag um að
vinna þetta í rólegheitunum,“ seg-
ir Hermann.
Áhugamál Hermanns eru marg-
vísleg. Hann nefnir sem dæmi
íþróttir og ýmis félagsstörf. „Ég hef
líka mikinn áhuga á listum og
einnig alls kyns smíðum og föndri
og sjálfur er ég með lítið verkstæði
heima hjá mér. Þá er útivera og
ljósmyndun líka ofarlega á lista
yfir mín áhugamál," segir Her-
mann.
Hann er giftur Rebekku Guð-
mann og eiga þau tvær uppkomnar
dætur.
Myndgátan
Bræðslumark Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi.
DV
ísland-
Tyrkland
í fótbolta
Stórleikur verður í fótboltan-
um í kvöld þegar íslendingar
mæta Tyrkjum í landsleik á
Laugardalsvellinum. íslendingar
fóru mjög iUa út úr fjTri við'úr-
eign liðanna og töpuðu með
fimm mörkum gegn engu, þann-
íþróttir
ig að það er harma að hefna í
kvöld og víst er að íslenska liðið
gerir aUt tU að fá ekki sömu út-
reið og stefnir að sjálfsögðu á sig-
ur. Leikurinn hefst kl. 20 og er
leikið í flóðljósum.
í kvöld eru einnig þrír leikir í
1. deild kvenna í handboltaúum.
KR- Víkingur og ÍBV-Haukar
leika kl. 20 en FH-Fylkir leika
klukkan 18.15. Þá eru þrír leikir
í 2. deUd karla í handboltanum.
Skák
Þessi staða er frá alþjóðamóti í
Búdapest fyrir skömmu. Tékkinn
Jan Votava, sem sigraði á mótinu,
hafði svart og átti leik gegn Frakk-
anum Touzane:
8
7
6
5
4
3
2
ABCDEFGH
2 W #1
iil
* A
m -e
á Á A
A A A A
<á> BiöS
20. - Bxb2+! 21. Kxb2 Hxa2+! 22.
Kcl Ef 22. Kxa2 Rc3+ og fangar
drottninguna. 22. - Hal+ 23. Kd2 c3+
24. Ke2 Hxel+ 25. Kxel c2 26. Re2
cl=D+ 27. Rxcl Dxcl+ og hvítur
gafst upp.
Bridge
Síðastliöinn sunnudag var heims-
meistaramótið í sveitakeppni formlega
sett í Beijing í Kína. Því miður eru Is-
lendingar ekki meðal þátttakenda um
Bermúdaskálina eftirsóttu en fulltrúar
Evrópu í þeirri keppni eru Frakkar, Hol-
lendingar, Sviar og ítalir sem eru núver-
andi Evrópumeistarar. Riðlakeppni
stendur yfir fram til fostudagsins 13.
október en fjórðungsúrslit, undanúrslit
og úrslit fara fram 14.-20. október. Hér er
spil úr viðureign Svía og Frakka á EM í
sumar. Frakkarnir höfnuðu í einu grandi
slétt, unnu í opnum sal. 1 lokuðum sal
opnaði Svíinn NUsland á 14-16 punkta
grandi á norðurhendina og FaUenius
stökk í þrjú á suðurhendina. Frakkinn
Michel Perron spilaði út hjartasexunni í
upphafi:
4 ÁK52
V G104
4 Á3
* Ð1096
* D64
» Á63
* 9872
* ÁG3
* G87
* D52
* KG64
* K84
* 1093
* K987
* D105
* 752
Nilsland byijaði vel þegar hann sétti
drottniriguna í blindum, sem gerði Paul
Chemla nánast ómögulegt að gefa slag-
inn. Hann drap á kóng, Perron fékk
næsta slag á ás og spUaði meira hjarta.
Samgangur varnarinnar var nú brotinn.
NUsland spilaði nú lauftíúnni og hleypti
henni og spUaði síðan áfram laufi. Perron
drap réttilega á ás og spilaði sig út á laufi
og NUsland varð því að finna níunda
slaginn á spaða eða tígul. Hann spilaði
spaða á ásinn, Chemla setti níuna og síð-
an var síðasta laufinu spilað. Tígull fór i
hjá Perron og blindum en Chemla henti
spaðaþristi. Þá var spaðakóngur tekinn
og Nilsland reyndi að lesa í stöðuna. Ef
vestur átti.spaðadrottninguna hefði aust-
ur átt 5 tígla í upphafi, sem var ólíklegt
eftir hjartaútspUiö. Með það fyrir augum
hitti Nilsland á að spila spaða áfram frek-
ar en aö taka tígulsvíninguna og Svíarn-
ir græddu 11 impa. Svíarnir unnu leik-
inn, 17-13.
fsak Örn Sigurðsson