Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1995, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1995, Qupperneq 32
Bruni á Laugavegi: Eldvarnar* veggir komu ívegfyrir stórbruna „Þarna eru eldvarnarveggir á tvær hliðar og þeir komu í veg fyrir að úr yröi stórbruni. Þegar við komum á staðinn'stóðu eldtungumar upp til himins og þetta leit mjög alvarlega út,“ segir Friörik Þorsteinsson, varð- stjóri hjá slökkvihðinu í Reykjavík, um /bmna sem varð í nótt í tengi- byggingu við Laugaveg 24b. Miklar skemmdir urðu á tengi- byggingunni og á klæðningu hússins númer 24b laust eftir klukkan tvö í j* nótt. Eldurinn náði hins vegar ekki að breiða sig út tii næstu húsa og var hann slökktur á rúmum tveimur tímum. Einn maður var í húsinu og vakn- aði hann við hávaða og var þá her- bergi hans á miðhæð hússins að fyll- ast af reyk. Lét íbúinn slökkvilið vita og síðan hringdu margir aðrir árvök- ulir nágrannar. íbúi hússins vissi ekki hvort fólk var í tengibyggingunni en þar munu útigangsmenn oft leita skjóls um nætur. Reykkafari var sendur inn >- og reyndist byggingin auð. Rannsóknarlögreglan hefur í nótt grafist fyrir um upptök eldsins en í morgun var engu ljósi hægt að bregða á það mál. Verða rústir tengi- byggingarinnar kannaðar betur í dag. -GK Flóttamenn til ísafjarðar Páll Pétursson félagsmálaráðherra lagði til á ríkisstjórnarfundi á þriðju- dag að tekið yrði á móti 25 flótta- mönnum frá Bosníu og var tillagan 2* samþykkt. Páll leggur jafnframt til að þessir flóttamenn fari allir til ísa- fjarðar. Bæjarstjórn ísafjarðar hefur lýst yfir áhuga á að flóttamennirnir setjist að þar vestra enda er skortur á vinnuafli í fiskvinnslu á ísafirði. Lækninga- miðill kærður Kona hefur kært lækningamiðil í Reykjavík fyrir kynferðislega áreitni og fyrir að hafa í frammi kynferðis- lega tilburði á stofu sinni. Rannsóknarlögreglan hefur málið ->nú til meðferðar. Ákvörðunar er aö vænta síðar um hvort mælt verður meðákæru. -GK FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö I DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER 55015000 MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÖBER 1995. Iðnrekandi fær fangelsi og sekt fyrir skattsvik Píljulagningameistari í Reykja- vík, Ásmundur Hafsteinsson, hefur verið dæmdur í 4 mánaða óskil- orðsbundið varðhald og til greiðslu 4 milljóna króna sektar til ríkis- sjóðs fyrir skattsvik vegna útseldr- ar vinnu sem hann gaf ekki upp fyrir árin 1990,1991 og 1992. Verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna kemur 8 mánaða varðhald að auki í stað hennar. Aðdragandi þessa máls þykir eindregið benda til þess að yfirvöld séu að taka harðar en áður á skattsvikum. Ásmundur var dæmdur fyrir að hafa vantalið rúma 9,1 milljón króna samkvæmt ótekjufærðum reikningum í starfsemi sinni. Þannig komst hann hjá að greiða 3,6 milljónir króna i tekjuskatt og útsvar og 2,2 milljónir króna í virð- isaukaskatt. Fyrir dómi bar sakborningurinn það fyrir sig að hínar vantöldu tekj- ur hefðu ekki einvörðungu runnið i eigin vasa, heldur hefði hann greitt ýmsan kostnað vegna launa starfsmanna sem hann gerði ekki launamiða fyrir, auk efniskaupa og annarra þátta í rekstrinum. í dómi héraðsdóms segir eftirfarandi um þetta atriði: „Þessi viðbára ákærða verður ekki metin honum til refsilækkun- ar, enda bar honum að skila launa- miðum vegna launagreiðslna til starfsmana sinna og gera reikn- ingsskil varðairdi annan rekstrar- kostnað." Pípulagiúngameistarinn játaði allar sakargiftir á hendur sér í yfir- heyrslu ftTír dómi þann 20. sept- ember. Hann gerði engan tölulegan ágreining um útreikninga í ákæru rikissaksóknara eða þau giign sem hann byggði á. Áður en málið kom fyrir dóm höfðu bæði ríkisskatt- sfjóri og ríkisskattanefnd úrskurð- aö um endurákvörðun á „viðbótar- tekjum" á skattframtölum sak- borningsins. í málinu kom fram að pípulagn- ingameistarinn hefur hvorki greitt iekjuskatt, útsvar né álag af hinum vantöldu tekjum og ekki heldur þatm virðisaukaskatt og álag á hann sem honum bar samkvæmt úrskurði yfirskattanefndar í apríl síðastliðnum. Bú Ásmundar var tekið til gjaldþrotaskipta í lok ágúst 1994. Dómurinn tók mið af því að . ákærði játaði brot sín hreinskilnis- lega og var það fært honum til refsilækkunar. Hins vegar taldi dómurinn brotin stórfelld. „Ákærði hefur í engu bætt fyrir brot sín, sem sköpuðu honum um- talsverða auðgun,“ segir í niður- stöðu dómsins. Hin fjögurra millj- óna króna sekt er ótengd þeim tæp- lega sex milljónum sem sakborn- ingnum ber að greiða vegna hinna vantöldu gjalda. Ingibjörg Bene- diktsdóttir héraðsdómari kvað upp dóminn. f -Ótt Flugfélagið Atlanta hefur keypt Boeing 747 breiðþotu. Vélin kom ■ fyrsta sinn til landsins í gær og flaug yfir borg- ina. Hér er vélin með Perluna í forgrunni. Hún fer í sitt fyrsta flug með íslendinga á morgun. DV-mynd ÆMK Smugusamningar: Flotvarpa bönn- uð og Barents- hafiðopnað Samningar um Smuguveiðar ís- lendinga eru í sjónmáli. Samkvæmt heimildum DV er sátt um það meðal íslenskra útgerðarmanna að samið verði um kvóta sem er á bilinu 15 til 20 þúsund tonn og flotvarpa verði bönnuð við veiðarnar en Norðmenn hafa lagt mikla áherslu á það þar sem slíkt bann nær til allra skipa sem veiðar stunda í Barentshafi. Á móti banni við veiðum með flotvörpu kemur að íslensku skipin fá að veiða utan Smugunnar þar sem mikil veiði hefur verið undanfarin ár. Útgerðarmenn sem DV ræddi við eru sammála um að gengist verði inn á þessa lausn. Þetta er breytt afstaða frá því sem var fyrir nokkru þar sem krafan var 50 þúsund tonna kvóti. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra átti fundi með norska og rúss- neska utanríkisráðherranum í gær og í næstu viku verður fundað um þessi mál í Moskvu. „Líkurnar á samningum hafa auk- ist og það er gjörbreyttur tónn í mönnum og það á við um Norðmenn líka. Það er gjörbreytt staða í þessu og líkur á samningi hafa aukist þó auðvitað sé engin niðurstaða fengin enn,“ segir Þorsteinn Pálsson sjávar- útvegsráðherra. -rt LOKI Þetta kallast víst að miðla reynslu sinni! Veðriðámorgun: Þurrtog bjart Á morgun verður norðanátt, allhvöss eða hvöss austast á land- inu en mun hægari annars stað- ar. Á Suður- og Vesturlandi verð- ur þurrt og bjart en skúrir eða slydduél annars staðar. Veðrið 1 dag er á bls. 28 brother PT300/340/540 Ný kynslóð merkivéla Verð frá kr. 11.021 Ódýrari borðar I .4 4 Nýbýlavegi 28-sími 554-4443 K I N G LOTT# alltaf á Miövikudögum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.