Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1995, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995.
Fréttir
_________________________________________________________x>v
Útgerð í Reykjanesbæ tekin fyrir kvótasvindl:
Mokf iskaði mannlaus
við bryggju í Keflavík
- sætir veiðileynssviptingu og sekt
Útgerð í Njarðvík hefur játað að
hafa skráð rúm 2 tonn af þorski á
krókabát sem ekki haíði farið úr
höfn í nokkra mánuði. Útgerðin, sem
á og gerir út aflahámarksbátinn
Sandvíking GK, leigði krókabát sem
ætlunin var að gera út samhliöa. í
byijun september fór Sandvíkingur
á sjó og veiddi 2,4 tonn á línu, þar
af voru 2,2 tonn af þorski. Þegar í
land kom ákvað útgerðin að skrá
aflann á krókabátinn sem hún hefur
á leigu. Þetta var gert samkvæmt
heimildum DV til að spara þorsk-
kvóta Sandvíkings en kvótinn er að-
eins 70 tonn af þorski. Krókabátur-
inn, sem er á banndagakerfi, er aftur
á móti með ótakmarkaðan þorsk-
kvóta og því er ávinningurinn aug-
ljós. Þaö má því segja að krókabátur-
inn hafi mokfiskað mannlaus við
bryggju.
Ekki tókst betur til en svo að málið
komst upp þar sem það vakti undrun
manna í kerfinu að skyndilega var
skráður afli inn á bátinn sem hafði
ekki verið við róðra svo vikum eða
mánuðum skipti. Við eftirgrennslan
lögreglu í Keflavík kom í ljós hvers
eðlis var og játaöi útgerðarmaðurinn
við yfirheyrslu að hafa skráö aflann
ranglega á krókabátinn.
Hilmar Baldursson, lögfræðingur
Fiskistofu, sagðist geta staðfest aö
Lögreglan í Keflavík hefði upplýst
mál af þessum toga. Hann vildi þó
ekki greina nánar frá málinu í sam-
tali við DV.
Umræddur útgerðarmaður vildi
ekki tjá sig um málið þegar DV hafði
samband við hann en staðfesti þó að
hann hefði játað kvótamisferlið.
Sandvíkingur verður væntanlega
sviptur veiðileyfi í þrjár vikur og fær
sektiraðauki. -rt
Stuttar fréttir
Óffædd börn ekki
skattlögð
Böm í móðurkviöi gætu orðið
þau einu sem slyppu viö innrit-
unargjöld á sjúkrahúsum sem
komið verður á um áramót. Skv,
RÚV verður ekki um aörar und-
anþágur frá gjaldtöku aö ræöa.
Hætta i ráduneytinu
Dögg Pálsdóttir og Guðjón
Magnússon hafa ákveðið aö
hætta í heilbrigðisráðuneytinu.
Bæði sóttu um starf ráðuneytis-
sfjóra en fengu hvorugt stöðuna.
Stöð tvö greindi frá.
Mýr kaþóiskur biskup
Jóhannes Páll páfi hefur skipað
Hollendinginn Johannes B.M.
Gijsen biskup til aö hafa umsjón
með starfi kaþólsku kirkjunnar á
íslandi.
Davíðtíi Nlöttu
Davíð Oddsson forsætisráö-
herra fór í gær til Möltu. Davið
mun m.a. sitja fund um alþjóöa-
mál og' funda meö Edward
Fenech-Adami, forsætisráðherra
Möltu.
Tilboðihafnað
Þrotabú hafbeitarstöðvarlnnar
Silfurlax hefur hafnaö kauptil-
boði norska fyrirtækisins NFO-
Gruppen AS1 allt búið. MbL hefur
eftir bústjóra að tilboöið hafi ver-
iö of lágt og að auki óljóst
Nýstárlegttilboð
Grandi í Reykjavík hefur
bryddað upp á þeirri nýjung aö
bjóða eiginkonum sjómanna upp
á ókeypis sálfræðiráðgjöf. Að
sögn Tímans er markmiðið með
þessu aö styrkja fjölskyldubönd
skipveija.
RiðaíSkaftárhreppi
Grunur leikur á að riöa sé á 3
bæjum f Skaftárhreppi sem tal-
inn hefur verið riðulaust svæði
til þessa. Lömbum þaðan hefur
verið dreift til bæja þar sem áöur
hefur verið skorið niður vegna
riðu og er slátrun á þeim þegar
hafin.RÚV greindi frá. -kaa
Þú getur svaraö þessari
spumingu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Jð ; Jj
Nei 113
Sandvikingur GK rær á aflahámarkskerfi með um 70 tonna þorskkvóta. I septemberbyrjun fékk hann rúm 2 tonn
af þorski i einum róðri og eigandinn freistaðist til að færa aflann á krókabát sem hann var með á leigu. Lögreglan
i Keflavik og Fiskistofa komust í málið og nú bíður bátsins sekt og veiðileyfissvipting. DV-mynd Ægir Már
Þing Landssambands smábátaeigenda:
Framboð gegn sitj-
andi formanni
„Mér finnst að viö séum á tíma-
mótum og menn verði að láta reyna
á vægi sitt innan samtakanna," segir
Bergur Garðarsson frá Grundarfirði
sem ákveðið hefur að bjóða sig fram
gegn Arthuri Bogasyni, formanni
samtakanna, á aðalfundinum sem nú
stendur í Reykjavík.
Bergur segir að fulltrúar nokkurra
félaga hafi skorað á sig að fara í fram-
boð gegn formanninum. Hann segir
vera ólgu meðal félagsmanna sem
ráði þessu. Hún snúist um launamál
starfsmanna og áherslur í baráttu-
málum samtakanna.
Arthur Bogason segist vera sáttur
við mótframboðið.
„Ég er búinn að sitja sem formaður
síðastliðin 10 ár og það væri sér-
kennilegt ef ekki kæmi mótfram-
boð,“ segir Arthur.
Þing smábátamanna var sett í gær-
morgun með ávarpi formanns. Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
ávarpaði síðan fulltrúa og svaraöi
fyrirspurnum. Þar var m.a. spurt um
afstööu ráðherra til aukinna króka-
veiða á kostnað togveiða. Kristján
Andri Guðjónsson, trillukarl frá
ísafirði, fyrirspyijandi, segist mjög
ánægöur með svar ráðherra sem
hafi falið í sér að hann fagni auknum
krókaveiðum.
Á þinginu er tekist á um hvaða fisk-
veiðikerfi verði til framtíðar. Nú búa
smábátamenn í raun við þrjú kerfi;
aflamark, aflahámark og banndaga-
kerfi.
-rt
Risasamningur ÍS:
Veiðaog
vinna 120
þúsund tonn
af alaskaufsa
íslenskar sjávarafurðir hf. hafa
gert samning við rússneska fyrir-
tækið UTRF á Kamtsjatka um aö
hafá umsjón með veiðum og
vinnslu á 120 þúsund tonnum af
fiski, mestmegnis ufsa.
Samningurinn er til eins árs
með ákvæðum um eðlilega fram-
lengingu og kemur í framhaldi
af starfsemi ÍS á þessum slóðum
undanfarin ár.
Rússneska fyrirtækið er að
mestu í eigu starfsfólks og rúss-
neskra og alþjóðlegra fiárfesta.
Með samningnum vill fyrirtækið
nýta sér þejddngu ÍS á sviöi
veiða, vinnslu og markaðsmála.
UTFR er með höfuöstöðvar sínar
í Petrapavlosk á Kamtsjatka i
A-Rússlandi og hefur yfir aö ráða
26 vínnslu- og veiðiskipum með
alls um 1600 manna áhöfnum. Á
næstu dögura verða íslendingum
boðin 30 störf að auki, þar af 20
manns á sjó.
Samstarfssamningurinn var
undirritaður í Moskvu í síöustu
viku og staðfestur á íslandi i gær.
Hann hefur í för með sér aukna
veltu hjá ÍS upp á 4 milljarða
króna. Þetta er talið meðal al-
stærstu verkefna sem íslenskt
fyrirtæki hefur tekið að sér í út-
löndum. -rt
Leithætt
Ómar Garðaiss., DV, Vestmannaeyjum;
Formlegri leit aö Steinunni
Þóru Magnúsdóttur frá Selfossi
hefur verið hætt en áfram verða
gengnar fjörur og svipast um í
kringum höfnina.
Leit hefur staðiö yfir frá því á
mánudag í síðustu viku og hefúr
hún einkum beinst að höfninni í
Vestmannaeyjum. Hámarki náði
leitin á laugardaginn þegar 17
kafarar leituöu og notuöu við það
neðansjávarmyndavél. Leitað
var bæði innan hafnar og utan
en allt án árangurs.
r ö d d
, Dómur Hæstaréttar:
Skilordsdómur fyrir kamarskot
skaut á vln sinn með haglabyssu
Á ríkið að greiða
fýrír glasafrjóvganir?
Alllr 1 »taifan« Kerllnu w«6 t6nv»l8«lw» get» nýtt séf þetsa þlinustu.
Jóhann Bjömsson var í gær í
Hæstarétti dæmdur til 6 mánaða
skilorðsbundinnar fangavistar fyrir
að hafa skotið á vin sinn þar sem
hann sat á kamri.
Atburðir þessir urðu á gæsaskytt-
iríi á Gnúpverjaafrétti síðasta haust.
Sagðist Jóhann í skýrslu lögreglu
hafa ætlað að hrekkja vin sinn þegar
hann gekk á náðhús og skaut tveim-
ur haglaskotum að kamrinum. Vin-
urinn kærði ekki og krefst ekki bóta
þótt hann hafi fengið högl í andlitið.
Færi var um 30 metrar.
Refsingin fellur niður að þremur
árum liðnum haldi hinn dæmdi skil-
orð. Jóhann skal greiða málskostn-
aðinn. -GK