Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1995, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995
Fréttir DV
Norskir útgerðarmenn geta ekki fallist á samningsdrögin um Smuguna:
Ætla sér að nauðga
norskum sjómönnum
- segir Oddmund Bye, formaður Norges Fiskarlag, og hafnar samningsdrögunum
„Það er til eitthvað sem heitir
nauðgun. Ef norskir stjórnmála-
menn ætla sér að semja um Smuguna
á þessum grundvelh ætla þeir að
nauðga norskum sjómönnum. Þetta
er hrein og klár nauðgun," segir
Oddmund Bye, formaður Norges
Fiskarlag, í samtah við DV.
DV bar undir hann þær hugmyndir
sem fram hafa komið um lausn
Smugudeilimnar eftir fund utanrík-
isráðherra íslands, Noregs og Rúss-
lands í Rovaniemi nú í vikunni. Eins
og komið hefur fram er rætt um 15
til 20 þúsund tonna þorskkvóta ís-
lendingum til handa, opnum norskr-
ar lögsögu fyrir veiðum íslenskra
togara og gagnkvæma kvóta á ís-
lands- og Noregsmiðum.
„í fyrsta lagi er þetta tal um gagn-
kvæma kvóta ekkert annað er hlægi-
legt rugl,“ sagði Oddmund. „Ég veit
ekki betur en að floti íslendinga sé
svo stór að það verði aldrei svo mik-
ill fiskur á íslandsmiðum að hann
dugi fyrir alla þessa togara. íslend-
ingar munu aldrei hafa nokkurn ein-
asta fisk að láta frá sér.“
Oddmund sagði enn fremur að
norskir útgerðar- og sjómenn gætu
aldrei fallist á að norsk lögsaga yrði
opnuð fyrir veiðum íslenskra togara.
Norðmenn vantaði fisk og hefðu ekk-
ert að gefa fremur en íslendingar.
„Það eina sem við getum fallist á
er að íslendingar fái takmarkaða
kvóta í Smugunni eins og mögulegt
er að veita samkvæmt sáttmála Sam-
einuðu þjóðanna um veiðar á opnu
hafi. Lengra getum við ekki gengið,"
Oddmund Bye,
Fiskarlag.
formaður Norges
sagði Oddmund.
„Ég veit satt að segja ekki hvort ég
á heldur að hlæja eða gráta þegar ég
heyri hvað Björn Tore Godal utan-
ríkisráðherra hefur verið að semja
um. íslendingar hafa undanfarin
þrjú ár stohð okkar fiski og nú á að
verðlauna þá fyrir þjófnaðinn með
því að opna norska lögsögu. Þetta er
ótrúlegt og verður aldrei samþykkt
hér í Noregi," sagði Oddmund.
Hann sagðist ekki vita til hvaða
ráða gripið yrði ef samið yrði um
Smuguna á þeim grundvelli sem
ræddur hefði verið í Rovaniemi.
„Ég veit það bara að viðbrögö okk-
ar verða hörð. Það er verið að keyra
yfir okkur og því tökum við ekki
hljóöalaust," sagði Oddmund.
-GK
Sir David Attenborough:
Væntanlegur
til íslands
W
\r
Hin heimskunni sjónvarpsmaður
og dýralífsunnandi, Sir David Atten-
borough, er væntanlegur til íslands
eftir helgi í boði bókaútgáfunnar
Skjaldborgar. Skjaldborg er einmitt
að gefa út bók um helgina eftir Sir
David sem nefnist Einkalíf plantna
og er í þýðingu Óskars Ingimarsson-
ar.
Þessi bók hefur farið sigurfor um
heiminn og hafa sjónvarpsþættir
verið gerðir eftir henni. Þættimir
verða teknir til sýninga í ríkissjón-
Varpinu 20. nóvember nk. í bókinni
veitir Sir David innsýn í líf plantna
um allan heim en það er einmitt hans
sérsvið eins og sjónvarpsáhorfendpr
hafa fengið að kynnast í gegnum ár-
in.
Sir David mun árita bók sína í
Kringlunni mánudaginn 16. október
nk. frá kl. 16-18 og í Bókalagemum
Ármúla 23 á þriðjudaginn frá kl.
10-12. -bjb
Sir David Attenborough.
mm w
n-inir.muiuuL.., nv ^„.„77 undir sýslumanninn á Akureyri.
Gyta Kna^ánaean, DV, Atoreyn. Fundur framkvæmdastjóranna
„Slikt hefur í för með sér óhag- taldi brýnt að leita leiöa til aö
ræði sem hugsanlega er hægt að tryggja framtíð embættisins og
koraast hjá. Ljóst má vera að ef ein samþykkti að lagt yrði til við sveit-
eining í samfélagi okkar á Út- arstjómir á svæðinu að þær lýsl
Eyjafjarðarsvæðínu veikist veikist yfir að þær séu tilbúnar að skoða
allt svæðiö,“ segir í ályktun fundar breyttan starfs- eöa þjónustu-
framkvæmdastióra sveitarfélaga grundvöli sem gæti orðið til þess
við utanverðan EyjaSörð um mái- aö tryggja framtíö sýslumanns-
efhi sýslumannsembættisins í Ól- embættisins í Ólafsfiröi. Sveitarfé-
afsfirði. lögin, sem þama eiga hlut að máli,
Samkvæmt flárlögum veröur em Hrísey, Árskógshreppur,
embætti sýsiumanns í Ólafsfirði Svarfaðardalshreppur, Dalvik og
lagt niður og starfsemi þess flutt Ólafsfjörður.
r. • *
• '
f ‘ - “•
___________________
Gæsaskyttur lögðu þessa tvo seli að velli i Önundarfirði á dögunum. Hér
er önnur skyttan, Njáll Jónsson, með selina. DV-mynd Róbert
Vestflröir:
Selum fjölgar
Róbert Schmidt, DV, Suðureyii:
Eftir að hætt var að greiða fyrir
veidda landseli fór veiðin minnkandi
á landinu. Það hefur leitt til þess aö
sel hefúr fjölgað við strendur lands-
ins, t.d. innfjarða á Vestfjörðum, og
spuming hveijum það er til happs.
Maðurinn og selurinn em að keppast
um þorskinn en áætlaö er að sehr
éti hundruð þúsunda tonna af fiski
árlega.
Sehr sækja fæðu sína víða og ge-
rast oft svo kræfir að leita upp að
árósum og jafnvel upp í ár og gera
þar mikinn usla.
Fyrir stuttu vom gæsaveiðimenn á
ferð í Önundarfirði og rákust á tvo
seh sem voru í fæðuleit innarlega í
firðinum og felldu þá.
Klármð á Intemetinu:
„Það er til forrit sem lokar fyrir
þær skrár á Internetinu sem ekki
er æskilegt að böm eða aðrir
komist í. Þetta er sérlega hentugt
fyrir bæði foreldra og kennara
sem vilja tryggja að börnin séu
ekki að leita uppi klám eða annan
ósóma,“ segir GuðmundurHelga-
son, starfsmaður íslenska
menntanetsins, í samtah við DV.
Forrit þetta heitir CyberPatrol
og er hægt aö nálgast það á Inter-
netinu sjálfu. Þar kostar það tvö
til þrjú þúsund krónur. Með for-
ritinu er t.d. hægt að loka fyrir
aðgang að Playboy en efni úr því
ágæta blaði mun hafa notið vin-
sælda meðai barna og unghnga.
Heimasíða fyrir forritið er:
http://www.microsys.com/CY-
BER.
Forrit þetta er að jöfnu notað
fyrir Maclúnstosh-tölvur og
IBM-samhæfðar. -GK
SigluQörður:
Rigning í
heila viku
Öm Þórarinsson, DV, Hjótum:
Ahs mældist 129,8 mm úrkoma
á veröurathugunarstöðinni
Sauðanesvita við Siglufjörð í síð-
ustu viku. Þessi úrkoma er með
því mesta sem gerist á þessum
slóðum og raunar var úrkoman
talsvert meiri þar sem allmikill
vindur var flesta daga og þá
mælist úrkoman minni en hún í
raun er. Mest mældist 49,3 mm
úrkoma á einum sólarhring.
Að sögn bæjarverkstjórans á
Siglufirði varð ekki verulegt tjón
í bænum í vatnsveðrinu og svo
heppílega vildi til að svokallaöur
holræsabíil var í bænum þegar
mesta vatnsveörið stóð yfir. Enn
er lítið lát á ótíðinni og nú eru
fjöll orðin grá niður undir byggð.
Tíðarfarið undanfarið hefur
orðið til þess að enn hefur ekki
verið hægt að leggja bundið sht-
lag á vegarkafla í Fljótum sem
undirbyggður var nú síðla sum-
ars.
Súgandafiörður:
Ráðið í
fleststörf
Róbert Schmidt, DV, Suöureyn;
„Við auglýstum eftir fólki hing-
að til vinnu og það tókst að ráða
í flest þau störf. Hugsanlega get-
um við bætt viö þremur til viðbót-
ar,“ sagði Óðinn Gestsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjunnar
Freyjuhf.
Mörg fiskvinnslufyrirtæki hafa
auglýst eftir fólki til starfa und-
anfarnar vikur með misjöfhum
árangri en um leið og skólar byrj-
uðu fækkaði veruiega fólki í
mörgum fyrirtækjum. Freyja hf.
hefur ráöið til starfa sjö mann-
eskjur, allt íslendinga.
Með tiikomu 150 tonna linubáts,
sera gerður verður út frá Suður-
eyri í vetur, batnar ástandið í
hráefnisöflun yfir vetrarmánuð-
ina til muna en trihur mega ekki
róa í desember og janúar, lögum
samkvæmt. Einnig fær Freyja hf.
fisk frá Norðurtanganum á
ísafirði þegar þannig stendur á
en um er að ræða greiöa á móti
greiða, þ.e.a.s. Freyja hf. borgar
Norðurtanganum aftur til baka
þegar nægur afh berst til fyrir-
tækisins.