Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1995, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1995, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995 T Útlönd Utlönd Hillir loks undir endalok Thule-málsins? Danska ríkisstjórnin bauð í gær um 900 milljóna króna miskabætur til handa þeim sem unnu að hreinsun- arstörfum í Thule á Grænlandi eftir að bandarísk sprengjuvél hlaðin kjarnorkusprengjum fórst þar 1968. Bæturnar fá fyrrum verkamenn í Thule, Grænlendingar sem unnu að hreinsunarstörfum og aðstandendur þeirra sem hafa látist síðan slysið átti sér stað. Fær hver aðili um 50 þúsund danskar krónur eða um 600 þúsund íslenskar. Með þessum bóta- greiðslum vill ríkisstjórnin setja verðugan endapunkt við hið svo- nefnda Thule-mál en þeir sem unnu að hreinsun eftir flugslysið hafa stöð- ugt haldið því fram að veikindi þeirra tengdust geislavirkni á slysstað og þeir ættu rétt á bótum. Með greiðslu miskabóta en ekki skaðabóta álítur ríkisstjórnin að hún beri enga ábyrgð á því sem gerðist 1968. Thule-málið komst í hámæh í sum- ar þegar upplýst var að H.C. Hansen, fyrrum forsætisráðherra Dana, hafði gert leynilegan samning við Banda- ríkjamenn um að þeir mættu fljúga með kjarnorkuvopn yfir Græniand og geyma þau í herstöðinni í Thule, Þá sættust dönsk og grænlensk stjórnvöld á að skipa nefnd um rann- sókn málsins. Sérstakur fundur var haldinn um máhð í Kaupmannahöfn í síðustu viku, með aðild ahra hlutað- eigandi. Þar var fjallað ítarlega um ahar hhðar málsins. Lars Emil Johansen, formaður grænlensku heimastjórnarinnar, sagði að þessi málalok væru vel við- unandi. „Þetta er mjög rausnarlegt tilboð af hálfu dönsku ríkisstjórnar- innar, ekki síst þar sem engar sann- anir hafa komið fram um að veikindi verkamanna í Thule og Grænlend- inga tengist hreinsunarvinnunni eft- ir slysið,“ sagði hann og bætti við að heimastjórnin mundi samþykkja til- boðið. Lars Emil segir að um 200 Grænlendingar komi til greina sem bótaþegar. Talsmaður verkamannanna í Thule var afar óhress með útspil rík- isstjórnarinanr í fyrstu en sagði seinna að niðurstaðan væri viðun- andi. Ekki var eining innan dönsku rík- isstjórnarinnar um bótaupphæðina. Róttækir vinstrimenn vildu hafa heildarupphæðina mun lægri. Hans Engell, formaður íhalds- flokksins, sagði að hann vildi ekki greiða krónu í bætur vegna Thule- málsins. Hann sagði Poul Nyrup Rasmussen forsætisráðherra ætla að kaupa sér frið með bótunum en fengi ekkert nema vandræði í staðinn. Ritzau Vinningstölur miðvikudaginn: 11.10.1995 Aðaltöiur: @®(D 19) (29) (32) Hillary Clinton, forsetafrú Bandarikjanna, heldur hér á sex mánaða gömlum dreng á sjúkrahúsi i Managua I Ník- aragva. Hillary hóf heimsókn sína til Suður-Ameríku í gær með eins dags heimsókn til Níkaragva. Simamynd Reuter Húsmæðurvilja ekkiveraneinar ÆA. Mll* Bar Jkail 5MA dMfe 4PMIM nornKerungar Argentínskar húsmæður voru orðnar svo þreyttar á að vera sí- fellt ýtt út í horn á nieðan femín- istar, lesbíur og hommar böðuðu sig í sviösijósinu að þær ákváðu að grípa til sinna ráða. Þær ætla áð halda heimsþing húsmæðra í Buenos Airessíöari mánuðinum. Húsmæður frá fjórtán löndum munu sækja tveggja daga ráð- stefnu þar sem þær ræða brey ttar kröfur til kvenna inni á heimil- unum. „Besti c-íhahagsráöherra heimsins er húsmóðirin. Hvar stæði maðurinn ef litla konan hefði ekki lagt alla peningana til hliðar?" segir Lita de Lazzari, stofnandi alheimssamtaka hús- mæöra og aðalhvatamaður ráð- stefnunnar. MonaSahlin uppvísaðkorta- misnotkun „Ég er mér meðvitúð um aö ég hef breytt rangt en ég hef ekki dregið mér neitt fé,“ segir Mona Sahlin, ráðherra í sænsku stjórn- inni og væntanlegur eftirmaður Ingvars Carlssonar forsætisráð- herra. Hún hefur orðiö uppvís að því að nota ráðherragreiðslukort sitt í eigin þágu. Það er sænska blaðið Expressen sem hefur ílett ofan af kortamis- notkun ráðherrans. Ráðherrar fá kort til að kaupa sér fót, hjól- reiðabúnað, til að leigja sér bíl og til aö taka út reiðufé í hrað- bönkum. Reut«;r,TT Vanefndauppboð Vegna vanefnda fyrri uppboðskaupanda fer fram vanefndauppboð á hluta í Bræðraborgarstíg 5, Reykjavík, 01 -01, þingl. eign Þóreyjar Brynju Jóns- dóttur á.skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6, 2. hæð, þriðjudaginn 17. október I995 kl. 11.00 eftir kröfu Lífeyrissjóðs verslunarmanna og Ólafs Pálssonar, Heiðarlundi 20, Garðabæ. SYSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK 12. október 1995 Danir bjóða um 900 milljónir í miskabætur BÓNUSTÖLUR @@)(§) Heildarupphaeð þessa viku: 48.081.768 Aisi, 2.021.768 uinningur fór til Danmerkur, Noregs og Svíþjóöar BiMT MEO rÝfllKVARA PRENTVILLUR Auglýsing um styrki til leiklistarstarfsemi Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu 1996 til starf- semi atvinnuleikhópa er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu á fjárlögum. Umsóknir gætu miðast við einstök verkefni eða samfellt starf til lengri tíma og verður afstaða tekin til skiptingar fjárins eftir eðli umsóknanna og eftir því sem fé á fjárlögum 1996 í þessu skyni kann að segja til um. Umsóknir skulu berast til menntamálaráðuneytisins, Sölv- hólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 15. nóvember nk. á eyðu- blöðum sem þar fást. Menntamálaráðuneytið 11. október 1995 Deiluaöilar saka hvorir aöra um vopnahlésbrot: Gleðin allsráðandi í Sarajevo í gær - enn hart barist 1 norövesturhluta Bosníu Rússnesk skáld- konalátinlaus úrsteininum Ung rússnesk skáldkona, sem var gefiö að sök að haía selt fikni- efni fyrir andviröi 1300 króna, hefur verið látin laus úr fangelsi á meðan réttarhöld yfir henni fara fram. Hún var húin aö sitja inni í eitt ár. Skáldkonan, sem er 22 ára göm- ul, var sökuö um aö hafa selt of- skynjunarlyflð LSD tveimur flkniefnaneytendum í fyrra þegar hún var að skrifa greinar um eit- urlyfjaheiminn. Veijendur skáld- konunnar segja að málið sé til- búningur yfírvalda en þvi hafnar saksóknari. Loks heimatil- búnirsmokkar Úkraínumönnum hefur nú tek- ist aö gangsetja verksmiðju sem framleiðir smokka úr latexi. Þetta var önnur tilraun þeirra til aö lieOa eigin framleiðsiu. Reuter Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna krafðist þess í gærkvöldi að deiluað- Oar í Bosníu hiýddu vopnahléinu sem hófst á miðnætti í fyrrinótt. Engu að síður háfa harðir bardagar geisað í norðvesturhluta Bosníu. Annað var uppi á teningnum í höf- uðborginni Sarajevo þar sem ró og friður og gleði réðu ríkjum í gær. Annars staðar í landinu bárust að- eins tíðindi af skothríð á stöku stað. Vonir manna um að loks takist að binda enda á átökin sem hafa staðið í hálft fjórða ár hafa því glæðst. Stjórn múslíma og serbneskir fjendur þeirra sökuðu þó hvorii aðra um að blása til stórsóknar nærri bænum Sanski Most, sem hersveitir stjórnarinnar náðu á sitt vald á mið- vikudag. Vopnahléið á að standa í sextíu daga til að gefa deiluaðilum ráðrúm til að semja um varanlegan frið. Ör- yggisráðið beindi spjótum sérstak- lega að Serbum í gærkvöldi og sak- aði þá um að stunda kynþáttahreins- anir í norðvesturhluta Bosníu. Alija Izetbegovic, forseti Bosníu, sagði aö tilraunir Serba til að ná Sanski Most úr höndum stjórnar- hersins stefndu vopnahléinu í voöa. „Ég tel að þessar fréttir tefli vopna- hléinu í tvísýnu. Við verðum að svara fyrir okkur ef ekkert lát verður á,“ sagði Izetbegovic. Her Bosníu-Serba sakaði andstæð- inga sína, múslíma og Króata, um að hunsa algjörlega vopnahléiö og senda sjö herfylki tii aö taka þátt í bardögunum í norðvesturhluta Bosníu. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.