Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1995, Page 8
8
FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995
T
Útlönd
Utlönd
Hillir loks undir endalok Thule-málsins?
Danska ríkisstjórnin bauð í gær um
900 milljóna króna miskabætur til
handa þeim sem unnu að hreinsun-
arstörfum í Thule á Grænlandi eftir
að bandarísk sprengjuvél hlaðin
kjarnorkusprengjum fórst þar 1968.
Bæturnar fá fyrrum verkamenn í
Thule, Grænlendingar sem unnu að
hreinsunarstörfum og aðstandendur
þeirra sem hafa látist síðan slysið
átti sér stað. Fær hver aðili um 50
þúsund danskar krónur eða um 600
þúsund íslenskar. Með þessum bóta-
greiðslum vill ríkisstjórnin setja
verðugan endapunkt við hið svo-
nefnda Thule-mál en þeir sem unnu
að hreinsun eftir flugslysið hafa stöð-
ugt haldið því fram að veikindi þeirra
tengdust geislavirkni á slysstað og
þeir ættu rétt á bótum. Með greiðslu
miskabóta en ekki skaðabóta álítur
ríkisstjórnin að hún beri enga ábyrgð
á því sem gerðist 1968.
Thule-málið komst í hámæh í sum-
ar þegar upplýst var að H.C. Hansen,
fyrrum forsætisráðherra Dana, hafði
gert leynilegan samning við Banda-
ríkjamenn um að þeir mættu fljúga
með kjarnorkuvopn yfir Græniand
og geyma þau í herstöðinni í Thule,
Þá sættust dönsk og grænlensk
stjórnvöld á að skipa nefnd um rann-
sókn málsins. Sérstakur fundur var
haldinn um máhð í Kaupmannahöfn
í síðustu viku, með aðild ahra hlutað-
eigandi. Þar var fjallað ítarlega um
ahar hhðar málsins.
Lars Emil Johansen, formaður
grænlensku heimastjórnarinnar,
sagði að þessi málalok væru vel við-
unandi. „Þetta er mjög rausnarlegt
tilboð af hálfu dönsku ríkisstjórnar-
innar, ekki síst þar sem engar sann-
anir hafa komið fram um að veikindi
verkamanna í Thule og Grænlend-
inga tengist hreinsunarvinnunni eft-
ir slysið,“ sagði hann og bætti við að
heimastjórnin mundi samþykkja til-
boðið. Lars Emil segir að um 200
Grænlendingar komi til greina sem
bótaþegar.
Talsmaður verkamannanna í
Thule var afar óhress með útspil rík-
isstjórnarinanr í fyrstu en sagði
seinna að niðurstaðan væri viðun-
andi.
Ekki var eining innan dönsku rík-
isstjórnarinnar um bótaupphæðina.
Róttækir vinstrimenn vildu hafa
heildarupphæðina mun lægri.
Hans Engell, formaður íhalds-
flokksins, sagði að hann vildi ekki
greiða krónu í bætur vegna Thule-
málsins. Hann sagði Poul Nyrup
Rasmussen forsætisráðherra ætla að
kaupa sér frið með bótunum en fengi
ekkert nema vandræði í staðinn.
Ritzau
Vinningstölur
miðvikudaginn: 11.10.1995
Aðaltöiur:
@®(D
19) (29) (32)
Hillary Clinton, forsetafrú Bandarikjanna, heldur hér á sex mánaða gömlum dreng á sjúkrahúsi i Managua I Ník-
aragva. Hillary hóf heimsókn sína til Suður-Ameríku í gær með eins dags heimsókn til Níkaragva.
Simamynd Reuter
Húsmæðurvilja
ekkiveraneinar
ÆA. Mll* Bar Jkail 5MA dMfe 4PMIM
nornKerungar
Argentínskar húsmæður voru
orðnar svo þreyttar á að vera sí-
fellt ýtt út í horn á nieðan femín-
istar, lesbíur og hommar böðuðu
sig í sviösijósinu að þær ákváðu
að grípa til sinna ráða. Þær ætla
áð halda heimsþing húsmæðra í
Buenos Airessíöari mánuðinum.
Húsmæður frá fjórtán löndum
munu sækja tveggja daga ráð-
stefnu þar sem þær ræða brey ttar
kröfur til kvenna inni á heimil-
unum.
„Besti c-íhahagsráöherra
heimsins er húsmóðirin. Hvar
stæði maðurinn ef litla konan
hefði ekki lagt alla peningana til
hliðar?" segir Lita de Lazzari,
stofnandi alheimssamtaka hús-
mæöra og aðalhvatamaður ráð-
stefnunnar.
MonaSahlin
uppvísaðkorta-
misnotkun
„Ég er mér
meðvitúð um
aö ég hef breytt
rangt en ég hef
ekki dregið mér
neitt fé,“ segir
Mona Sahlin,
ráðherra í
sænsku stjórn-
inni og væntanlegur eftirmaður
Ingvars Carlssonar forsætisráð-
herra. Hún hefur orðiö uppvís að
því að nota ráðherragreiðslukort
sitt í eigin þágu.
Það er sænska blaðið Expressen
sem hefur ílett ofan af kortamis-
notkun ráðherrans. Ráðherrar fá
kort til að kaupa sér fót, hjól-
reiðabúnað, til að leigja sér bíl
og til aö taka út reiðufé í hrað-
bönkum. Reut«;r,TT
Vanefndauppboð
Vegna vanefnda fyrri uppboðskaupanda fer fram vanefndauppboð á hluta
í Bræðraborgarstíg 5, Reykjavík, 01 -01, þingl. eign Þóreyjar Brynju Jóns-
dóttur á.skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6, 2. hæð, þriðjudaginn 17.
október I995 kl. 11.00 eftir kröfu Lífeyrissjóðs verslunarmanna og Ólafs
Pálssonar, Heiðarlundi 20, Garðabæ.
SYSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
12. október 1995
Danir bjóða um 900
milljónir í miskabætur
BÓNUSTÖLUR
@@)(§)
Heildarupphaeð þessa viku:
48.081.768
Aisi, 2.021.768
uinningur fór til Danmerkur, Noregs og Svíþjóöar
BiMT MEO rÝfllKVARA PRENTVILLUR
Auglýsing
um styrki til leiklistarstarfsemi
Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu 1996 til starf-
semi atvinnuleikhópa er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu
á fjárlögum.
Umsóknir gætu miðast við einstök verkefni eða samfellt
starf til lengri tíma og verður afstaða tekin til skiptingar
fjárins eftir eðli umsóknanna og eftir því sem fé á fjárlögum
1996 í þessu skyni kann að segja til um.
Umsóknir skulu berast til menntamálaráðuneytisins, Sölv-
hólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 15. nóvember nk. á eyðu-
blöðum sem þar fást.
Menntamálaráðuneytið 11. október 1995
Deiluaöilar saka hvorir aöra um vopnahlésbrot:
Gleðin allsráðandi
í Sarajevo í gær
- enn hart barist 1 norövesturhluta Bosníu
Rússnesk skáld-
konalátinlaus
úrsteininum
Ung rússnesk skáldkona, sem
var gefiö að sök að haía selt fikni-
efni fyrir andviröi 1300 króna,
hefur verið látin laus úr fangelsi
á meðan réttarhöld yfir henni
fara fram. Hún var húin aö sitja
inni í eitt ár.
Skáldkonan, sem er 22 ára göm-
ul, var sökuö um aö hafa selt of-
skynjunarlyflð LSD tveimur
flkniefnaneytendum í fyrra þegar
hún var að skrifa greinar um eit-
urlyfjaheiminn. Veijendur skáld-
konunnar segja að málið sé til-
búningur yfírvalda en þvi hafnar
saksóknari.
Loks heimatil-
búnirsmokkar
Úkraínumönnum hefur nú tek-
ist aö gangsetja verksmiðju sem
framleiðir smokka úr latexi.
Þetta var önnur tilraun þeirra til
aö lieOa eigin framleiðsiu.
Reuter
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
krafðist þess í gærkvöldi að deiluað-
Oar í Bosníu hiýddu vopnahléinu
sem hófst á miðnætti í fyrrinótt.
Engu að síður háfa harðir bardagar
geisað í norðvesturhluta Bosníu.
Annað var uppi á teningnum í höf-
uðborginni Sarajevo þar sem ró og
friður og gleði réðu ríkjum í gær.
Annars staðar í landinu bárust að-
eins tíðindi af skothríð á stöku stað.
Vonir manna um að loks takist að
binda enda á átökin sem hafa staðið
í hálft fjórða ár hafa því glæðst.
Stjórn múslíma og serbneskir
fjendur þeirra sökuðu þó hvorii aðra
um að blása til stórsóknar nærri
bænum Sanski Most, sem hersveitir
stjórnarinnar náðu á sitt vald á mið-
vikudag.
Vopnahléið á að standa í sextíu
daga til að gefa deiluaðilum ráðrúm
til að semja um varanlegan frið. Ör-
yggisráðið beindi spjótum sérstak-
lega að Serbum í gærkvöldi og sak-
aði þá um að stunda kynþáttahreins-
anir í norðvesturhluta Bosníu.
Alija Izetbegovic, forseti Bosníu,
sagði aö tilraunir Serba til að ná
Sanski Most úr höndum stjórnar-
hersins stefndu vopnahléinu í voöa.
„Ég tel að þessar fréttir tefli vopna-
hléinu í tvísýnu. Við verðum að
svara fyrir okkur ef ekkert lát verður
á,“ sagði Izetbegovic.
Her Bosníu-Serba sakaði andstæð-
inga sína, múslíma og Króata, um
að hunsa algjörlega vopnahléiö og
senda sjö herfylki tii aö taka þátt í
bardögunum í norðvesturhluta
Bosníu.
Reuter