Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1995, Page 17
FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995
25
. 'f
Bjarnólf ur skoraði
fyrir Tottenham
- boðið til enska félagsins í þriðja sinn
■ iili
Þorsteinn Gunnarsson, DV, Eyjum:
Bjarnólfur Lárusson, tvítugur
knattspymumaður úr ÍBV, kom aft-
ur til landsins á þriðjudaginn eftir
rúmlega vikudvöl hjá enska úrvals-
deildarliðinu Tottenham.
Bjarnólfur dvaldi við æfmgar hjá
Tottenham síðastliðið vor og vildi
þjálfari unglingaliðs félagsins ólmur
fá hann að nýju nú í haust til að sjá
hann í leik. Og nú vilja forráðamenn
Tottenham fá Bjarnólf sem fyrst tO
Englands á ný og að þessu sinni ætl-
ar félagið að borga allan brúsann, en
það þurfti Bjarnólfur að sjá um í hin
tvö skiptin.
„Mér gekk mjög vel. Ég lék einn
leik með 21 árs liði Tottenham, gegn
Brentford, og við töpuðum 2-3. Eg
skoraði eitt mark og lék ágætlega.
Ég vissi það ekki fyrr en eftir á að
þessi leikur var sérstaklega settur
upp fyrir mig. Þeir sögðu mér þegar
ég fór heim aö þeir vildu fá mig aftur
út og þeir myndu borga allan kostn-
að. I raun veit ég ekki mikið um
framhaldið, hvort þeir era með
samning í huga, eða hvað. Og ég veit
ekki einu sinni hvenær ég fer út.
Þetta kemur allt í ljós en er verulega
spennandi," sagði Bjarnólfur við DV.
• Bjarnólfur Lárusson
ÍBV í sumar.
leik með
s, Jason
jar Gauti
RoyHo dgsoná
leiðti Englendingurinn Roy Hodgson, illnter en hann lék með frekar óþekktum
sem náð hefur frábærum árangri liðum á árum áður í Englandi.
spyrnu, mun að öUum líkindum Untied í ensku 4. deildinni.
Hodgson stjórnaði svissneska lið- sældaUstanum hjá forráðaraönn-
inu tii sigurs gegn Ungveijum í um Inter, sérstaklega af því hann
fyrrakvöld, 3-0, og þar með eru er mikiU tungumálamaður og talar
Svisslendingar nær öraggir að m.a. ítölsku reiprennandi. Þá hafði
komast í úrslit Evrópukeppninnar. enska knattspyrnusambandiö
Hodgson hefur beðist lausnar sem einnig áhuga á að fá hann sem
þjálfari Svisslendinga en hann tók tækiúlegan ráðgjafa fyrir enska
við þeirri stöðu fyrir rúmlega landsliðið.
þremur árum. Á þeim tíma hefur Hodgson sagði þó við fréttamenn
hann náð frábærum árangri og er í gær að ekki væri búið að ganga
Hodgson á að baki glæsilegan þjáUáraferU bæði í Svíþjóð ogSviss að árslaun hans verði í kringum 60 mUjjónir króna.
Nauðsynlegt að ráða
þjálf ara f Ijótlega
- segir Kolbeinn Pálsson, formaður KKI
Enn hefur ekki verið gengið frá
ráðningu landsliðsþjálfara í körfu-
knattleik síðan að Torfi Magnússon
lét af störfum eftir Smáþjóðaleikana
snemma í sumar. Að sögn Kolbeins
Pálssonar, formanns Körfuknatt-
leikssambands íslands, hefur nýlega
verið komið saman sterkri landsliðs-
nefnd og mun hún setjast niður á
næstu dögum til skrafs og ráðagerða
í ráðningu á nýjum landsliðsþjálfara.
„Við áttum í viðræðum við lands-
liðsnefnd í gærkvöldi um hvert væri
verksvið hennar en ég tel að hún sé
mjög vel mönnuð. Við viljum að
nefndin verði með í fullum ráðum
þegar nýr þjálfari verður ráðinn.
Næsta skref er að ofan í þessi mál
verður farið en að mínu mati erum
viö á þeim tímapunkti í dag. Það er
nauðsynlegt að þjálfari taki við
landsliðinu fljótlega. Þetta er hlutur
sem þarf að framkvæma. Landsliðs-
nefnd hefur verið fámenn fram að
þessu en núna er búið að kippa þeim
málum í lag og því ekkert að vanbún-
aði,“ sagði Kolbeinn Pálsson í sam-
tali við DV.
Fljótlega mun landsliðsnefnd koma
með tillögu til stjórnar KKÍ um hugs-
anlegan landsliðsþjálfara en sam-
kvæmt heimildum blaðsins hefur
enginn öðrum fremur verið nefndur
í því sambandi.
BurnsogGudjón
sáu um Blikana
Ólafur Ástvaldsson, DV, Reykjanesbæ:
Keflvíkingar áttu ekki miklum
erflðleikum með lið Breiðabliks
og sigruðu, 116-91, í úrvalsdeild-
inni í körfubolta í gærkvöldi.
Blikamir komu þó nokkuð á
óvart 1 upphafi en síðan tóku
Keflvíkingar við sér. Sérstaklega
Burns og Guðjón og réðu Blikar
ekkert við þá félaga.
Síðari hálfleikur var auðveldur
fyrir Keflvíkinga og ógnuðu Blik-
amir aldrei forskoti heima-
manna. Bums og Guðjón Skúla-
son vora öflugir í Uði Keflvikinga
en allir leikmen liösins fengu aö
spreyta sig. Ungu strákarnir
komu skemmtilega á óvart. Best-
ir hjá Blikum voru þeir Thoele
og Birgir Mikaelsson og eins átti
Atli Sigurþórsson ágæta spretti.
Keflaxík - Breiðabtik
(61-47) 116-91
0-4, 12-9, 30-20, 40-30, 59-44
(61-47), 76-56,90-62,110-61,119-91.
Stig Keflavíkur: Lenear Burns
31, Guðjón Skúlason 24, Falur
Harðarson 16, Davíð Grissom 13,
Sigurður Ingimundarson 9, Guð-
jón Gylfason 8, Elentínus Mar-
geirsson 7, Albert Óskarsson 6,
Gunnar Einarsson 2.
Stig Breiðabliks: Michael Tho-
ele 32, Birgir Mikaelsson 20, Hall-
dór Kristmannsson 15, Atlí Sigur-
þórsson 13, Einar Hannesson 5,
Hjörtur Áraason 4, Daöi Sigur-
þórsson 2.
Fráköst: Keflavík 37, Breiðabiik 27.
3ja stiga körfúr: Kcflavík 17/9,
Breiðablik 21/8.
Dómarar: Einar Einarsson og
Eggert Þór Aðalsteinson, ógætir.
Áhorfcndur: Um 350.
Maður ieiksins: Lenear Burns,
Keflavik.
Afturelding enn án stiga
Þóröur Gíslason skrifar:
„Þetta var lélegt, fyrri hálfleikurinn var
afleitur, við gerðum marga tekníska feila
og vömin hriplak. í sókninni gerðum við
fá mörk af níu metrunum og Bjarni var
að verja hin skotin," sagði Bjarki Sigurðs-
son, leikmaður Aftureldingar, vonsvikinn
eftir tap gegn Haukum, 23-24, að Varmá.
Afturelding er enn án stiga í deildinni eft-
ir þrjár umferðir og liðsmenn verða að
rífa sig upp fyrir sunnudaginn en þá leika
þeir seinni leikinn í Evrópukeppninni.
Leikurinn var jafn í upphafi en um miðj-
an hálfleikinn missti Afturelding mann
út af og Haukar geröu þrjú mörk í röð.
Uundir lok hálfleiksins gerðu Haukamir
svo tvö mörk úr hraðaupphlaupum, ein-
um færri. Varnarleikurinn hjá báðum lið-
um var afspymu slakur en Bjami var að
verja vel á meðan markverðir Aftureld-
ingar höíðu varið þijú skot. Hér urðu
kaflaskipti í leiknum, Afturelding bætti
vörnina og Bergsveinn fór að verja og
Haukamir gerðu aðeins þrjú mörk síðustu
22 mín. leiksins. Aftqrelding náði ekki að
fylgja þessu eftir í sókninni og Haukamir
höfðu sigur.
Hjá Aftureldingu var meðalmennskan í
fyrirrúmi. Lítil ógnun var úr homunum
í fyrri hálfleik en skánaði í þeim síðari og
lék Páll þá ágætlega. Róbert lék lasinn á
línunni en barðist vel. Skytturnar byijuðu
leikinn vel en duttú út þegar á hann leið
og hafa yfirleitt leikið betur.
Liðsheild Haukanna var góð í fyrri hálf-
leik og leikgleðin í fyrirrúmi, enda þijár
vikur síðan þeir léku síöast. I síðari háif-
leik datt botninn úr leik liðsins og Bjarni,
Halldór og Aron héldu liðinu á floti.
„Við höfðum vænlega stöðu en það loðir
við okkur að hleypa þessu í spennu í lok-
in,“ sagði Gunnar Gunnarsson, þjálfari
Hauka.
Afturelding - Haukar
(13-16) 23-24
1-0, 4-4, 7-7, 11-12, 11-15 (13-16),
15-18, 16-21, 20-21, 20-24, 23-24.
Mörk Aftureldingar: Bjarki Sig-
urðsson 5/2, Páll Þórólfsson 5,
Gunnar Andrésson 4, Ingimundur
Helgason 3, Róbert Sighvatsson 3,
Þorkell Guðbrandsson 2, Viktor
Viktorsson 1.
Varin skot: Bergsveinn Berg-
sveinsson 10/1, Sebastian Alexand-
ersson.l.
Mörk Hauka: Halldór Ingólfsson
8/4, Aron Kristjánsson 5, Björgvin
Þorgeirsson 3, Þorkell Magnússon
3, Gunnar Gunnarsson 2, Petr
Baumruk 2, Sveinberg Gíslason 1.
Varin skot: Bjami Frostason 18/1.
Brottvísanir: Afturelding 6 mín„
Haukar 8 mín.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og
Rögnvald Erlingsson, góðir.
Áhorfendur: 335 greiddu að-
gangseyri.
Maður leiksins: Bjarni Frosta-
son, Haukum.
Knattspymumenn á Akureyri:
„Við munum hjakka
áfram í sama farinu“
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ef þetta verður niðurstaðan, þá líst
mér aö sjálfsögðu mjög illa á framhald-
ið,“ segir Kristján Kristjánsson, formað-
ur knattspyrnudeildar Þórs á Akureyri,
en samkvæmt þriggja ára fram-
kvæmdaáætlun bæjarstjórnar er ekki
varið peningum til uppbyggingar yfir-
byggðrar aðstöðu til knattspymuæfinga
í bænum.
Yfirbyggð aðstaða til knattspyrnuiðk-
unar er efst á lista knattspymumanna
bæjarins, sem telja að sú staðreynd að
bæði Akureyrarliðin leiki í 2. deild end-
urspegli aðstöðuleysi þeirra til æfinga.
Gert hafði verið ráð fyrir að Akur-
eyrarbær myndi leggja fram 60 milljónir
króna í hlutafélag sem rætt hefur verið
um að stofna og sjá átti um uppbyggingu
yfirbyggðrar æfingaaðstöðu, en frá því
hefur verið horfið.
„Ég hef aldrei verið hrifmn af þeirri
hugmynd að stofna um þetta hlutafélag,
enda tel ég að Akureyrarbær eigi aö sjá
um að byggja þessa aðstöðu og reka
hana. Þessi niðurstaða nú þýðir í raun-
ini ekki annað en að áfram verður hjakk-
að í sama farinu, að ösla snjóinn á æfing-
um fram á vor og koma verr undirbúnir
til leiks en flestir andstæðinga okkar.
Það verður áfram stöðnun eins og verið
hefur," segir Kristján Kristjánsson.
_______________íþróttir
Ákærurímútu-
málinu birtar
í fyrradag vom lagðar fram
formlegar kærur á hendur knatt-
spyrnumönnunum Bruce Grob-
belaar, John Fashanu og Hans
Segers i rétti í Southarapton í
Englandi. Þremenningarnir voru
enn fremur látnir lausir úr varð-
haldi gegn tryggingu.
Grobbelaar er sakaður um að
hafa tekið viö 4 milljónum króna
M Fashanu fyrir að hafa haft
áhrif á úrslitin í leik Newcastle
og Liverpool. Grobbelaar stóð í
marki Liverpool sem tapaði, 3-0.
Fashanu er sakaður um að hafa
afhent Grobbelaar áöumefnda
uppliæð og um að hafa aíhent
Segers 1,9 milljónir króna eftir
að lið hans, Wimbledon, tapaði,
3-0, fyrir Liverpool.
Segers er sakaöur um að hafa
tekið á móti ofangreindri upp-
hæð.
Grobbelaar er enn fremur sak-
aöui'nm að hafa þegið 200 þúsund
krónur frá fyrrum viðskiptafé-
laga sínum, Chris Vincent, fyrir
að tapa ótilgreindum leik.
Þremenningarnir neita öllum
ákæruatriöunum og virtust af-
slappaðir og sjálfsöruggir við
réttarhöldin. Sex ákæmatriði af
tiu, sem saksóknari birti í upp-
hafi hafa verið felld niður, þar á
meðal allt sem tengdist eiginkonu
Fashanus.
Kiyundzic
áframhjá HK
Júgóslavneski knattspyrnu-
maðurinn Miodrag Kujmidzic
befur gengið frá samningi viö HK
ura að leika áfram með félaginu
næsta sumar. Hann kom til HK í
lok júní ásamt landa sínum, Tom-
islav Sivic. Líklegt er að Sivic
verði einnig með HK en hann
leikur í Júgóslavíu i vetur.
Steingrimur
íSkotlandi
Steingrímur Ingason tekur um
helgina þátt í sterku ralli í Skot-
landi, Tour of Mull, sem hefst í
kvöld á eyjunni Mull. Aöstoðar-
maður hans verður Breti, Joof
Haig að nafni. Steingrímur er
með rásnúmer 7 af 149 keppend-
um og er því greinilega áiitinn í
hópi fremstu ökuraanna í rallinu.
Ralhð er um 600 km langt, þar
af eru eknir ura 300 km á sérleið-
um, og meiri hlutinn er ekimi í
myrkri, í kvöld og nótt, og fram
á aöfaranótt sunnudags.
KA-Viking Stavanger:
Forsalan
gengurvel
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
FuUvíst má telja að færri kom-
ist að en vilja á síðari leik KA og-
norska iiösins Viking í Evrópu-
keppni bikarhafa sem fram fer á
Akureyri á sunnudag kl. 16.
Forsala aðgöngumiða er hafin í
versluninni Toppmenn og Sport
á Akureyri og þar höföu um miðj-
an dag í gær selst á 6. hundraö
aðgöngutniðar. Eins og kunnugt
er tapaði KA fyrri leiknum í Sta-
vangri um síðustu helgi með eins
raarks mun, 23-24, en flestir telja
að ineð stuðningi áhorfenda á
heimaveUi muni KA- menn klára
dæmið og komast áfram í 2. um-
ferö.
Fleiri Evróptileikir eru um
helgina þri Afturelding tekur á
móti Negotino frá Makedóniu í
Mosfellsbæ á sunnudagskvöldið
klukkan 20. Negotino vann fyrri
leikinn, 22-18.
Víkingar leika báða leiki sina
gegn Zubri í Tékklandi um helg-
inaog Stjaman sækir Artasheim >
til Grikklands í meistarakeppni
kvenna og fer þangað með átta
marka forskot.