Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1995, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1995, Page 23
FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995 31 Fréttir Rjúpnaveiðar hafa ekki áhrif á stofnstærðina: Ég gerði enga skyssu með veiðibanninu - segir Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi umhverfisráðherra „Ég gerði enga skyssu raeð því að setja á takmarkað veiðibann á rjúpu. Það var hins vegar ég sem útvegaði fé til að ljúka rannsóknum á rjúp- unni sem hafnar voru en höfðu legiö niðri vegna fjárskorts. Þær rann- sóknir leiddu til þess að nú er hægt að sýna fram á að ekki er sjáanlegt að veiðin, eins og hún hefur verið síðustu áratugi, skipti sköpum í stofnbreytingum. Menn geta auðvit- að sagt það nú að ég hafi gert skyssu með veiðibanninu. Það er bara ekki rétt vegna þess að það var ekki vitað þá sem vitað er nú með veiðina og stofnstærðina. Það kom hins vegar í Smáauglýsingar ljós í þessum rannsóknum að ijúpan er staðbundinn fugl. Því geta veiðar gengið of nærri stofninum á ákveðn- um stööum,“ sagði Össur Skarphéð- insson, fyrrum umhverfisráðherra, í samtaii við DV. Náttúrfræðistofnun hefur sent frá sér upplýsingar um ástand ijúpna- stofnsins. Þar kemur fram að ekki er hægt að sjááð veiðin eins og hún hefur verið síðustu áratugi skipti sköpum fyrir stofnstærðina. Einnig kemur fram að stofninn var síðast í hámarki 1986 en minnkaði síðan og var í lágmarki 1993. Nú er stofninn á uppleið og er talið að hann sé nú um ein milljón fugla. Árin 1992 til 1994 er talið að hvert ár hafi verið veiddir 100.000 fuglar árlega. Það virðist því sem hin marg- fræga stofnstærðarsveifla, sem alltaf hefur verið talað um varðandi rjúpnastofninn, sé hér að verki eins og áður en veiðin skipti ekki máli. Rannsóknir á rjúpnastofninum halda áfram og hafa á fimmta hundr- aö rjúpur verið merktar á fótum og vængjum. Eru veiðimenn beðnir að skila þessum merkjum til Náttúru- fræðistofnunar verði þeir varir við þau. Einnig að tilgreina veiðistað og veiðidag. Netfang DV: httpr//www.skynr.ls/dv/ : S Bílaleiga NýirToyota-bílar. Á daggjaldi án kj'lómetragjalds eða innifóldum allt að 100 km á dag. Þitt er valið! Bílaleiga Gullvíðis, símar 896 6047 og 554 3811. S Bilartilsölu Gott verð - aðeins 590 þús. staögreitt. Econoline 4x4, árg. ‘76, 8 cyl., sjálfsk., 12 bolta GM afturhásing, Dana 44 að framan, 35” BF Goodrich, álfelgur, dráttarkúla, innréttaður m/svefnað- stöðu, eldavél, vaskur, dúklagt gólf, snúningsstólar, 2 sæta bekkur með beltum aftur í, hljómtæki o.fl. Verð að- eins 590 þús. stgr. Uppl. á bflasölunni Bílabatteríinu, sími 567 3131. Benz 506 D ‘78,4x4 til sölu í þokkalegu standi. Vel búinn að innan. Úpplýsing- ar í símum 555 3196 og 853 5712 eftir kl. 15.30. ^ Jeppar Isuzu Van, bensín, 11 manna, ‘88, 4x4. Bfll í góðu standi. V. 790. þ. Athuga skipti eða gott stgrv. Bflasala Bryn- leifs, Keflavík, s. 4214888 og 4215488. Útsala, útsala. Ford Bronco XLT II ‘86, sjálfskiptur, 6 cyl., 36” dekk, ljóskast- arar, aukatankur o.m.fl. Þarfnast við- gerðar. Skipti möguleg. Verð 700 þús. staðgr. Visa/Euro raðgr. eða skulda- bréf. Uppl. í síma 588 2227. Hólmavik: Árlegur formanna- f undur Bandalags íslenskra leikfélaga Guðfinnur Finnbogason, DV, Hólmavík; „Það er mikil gróska í starfsemi margra leikfélaga vítt og breitt um landið, færðar eru upp sýningar á hveijum vetri og hjá sumum fleiri en ein uppfærsla. Mörg félaganna eru þó ekki vel sett fjárhagslega, rík- isstuðningurinn hefur verið fóst upp- hæð og því hefur hlutur hvers félags minnkað við fjölgun bandalagsfé- laga,“ sagði Vilborg Valgarðsdóttir, framkvæmdastjóri Bandalags ís- lenskra leikfélaga. Árlegur formannafundur banda- lagsfélaganna 76 var haldinn á Hólmavík nýlega. „Mörg sveitarfélög þyrftu að taka sig á og auka framlög sín til þessarar menningarstarfsemi og önnur að taka hana upp sem ekki hafa látið fé af hendi rakna til hennar hingað til. Vönduðum leikverkum fylgir oft meiri kostnaður við uppfærslu, ekki síst hjá þeim landsbyggðarfélögum sem sækja þurfa leikstjórnendur til Reykjavíkur," sagði Vilborg enn fremur. Hún sagði að það væri við hæfi að halda fundinn á Hólmavík því að Leikfélag Hólmavíkur hefði starfað af miklum krafti og dugnaði mörg undanfarin ár. Þetta félag væri þó eitt af mjög fáum sem ekki nytu framlags frá bæjarfélagi sínu. í tilefni þessa haustfundar var gamanleikurinn Piparkerlingin eftir Eileen Walsh settur upp með leik- fólki úr hinum ýmsu leikfélögum eft- ir samlestur og eina æfingu og er það nýjung að slíkt sé reynt. Vakti sýn- ingin mikinn fógnuð viðstaddra. Fé- lagar í Leikfélagi Hóimavíkur fluttu Djúpavíkurævintýrirð eftir Vilborgu Traustadóttur í leikgerð Sigurðar Atlasonar og þótti sú sýning takast afburða vel. Toyota 4runner EFi 2400, ‘86, 5 g., 3 d., blár, ek. 140 þ., 33” dekk, kastarar, breytt fyrir 35”, V. 1050 þ. MMC L-300, 4x4, ‘89, 8 m, álf., nýl. lakk, uppt. vél og kassi. Gott eintak. V. 1100 þús. Ath. lánakjör til 48 mán. Litla bílasalan, Skógarhlíð 10, s. 552 7770 Til sölu Nissan Patrol, árg. 1993, ekinn 79 þús. km, upphækkaður, 36” dekk, með spili, intercooler o.fl. Verð 3,4 milljónir. Upplýsingar í síma 588 6102, Þegar Ágúst Einarsson þjóðvakaþingmaður tók sér frí frá þingstörfum tók Lilja A. Guðmundsdóttir sæti hans á Alþingi. Þar með var þingflokkur Þjóðvaka skipaður eintómum konum. Það mun ekki hafa áður gerst hjá stjórn- málaflokki, þar sem bæði kynin eru á framboðslistum, að þingflokkurinn sé bara skipaður konum. Það er ekki hægt að bera Kvennalistann saman við þetta þar sem enginn karlmaður er i framboði fyrir þann flokk. Hér á myndinni er þingflokkur Þjóðvaka eins og hann er í dag, Jóhanna Sigurðardóttir, Svanfriður Jónasdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir og Lilja Á. Guðmundsdóttir. DV-mynd BG Toyota 4Runner, árgerð ‘85, til sölu, upphækkaður, 35” dekk, breyttur, ek- inn 205 þúsund. Upplýsingar í símum 853 1299 og 557 4083. Skemmtanir ® Kokkurinn iy víð fi^'kabyssuna Smiðjuv.6 Kóp. SS: 5677005 Tilboö: 4 hamborgarar og franskar, 990, heimilis- og grillmatur, kaffl og köku- sneið, 150, kaflfi og vaflfla m/ijóma, 200, cappuccino og kakó. Sá stóri, sterki, 380 kr. Kokkurinn, Smiðjúvegi 6. Veitufyrir- tækiná Akranesi sameinuð -nýrveitustjóri Daniel Ólafeson, DV, Atamesr Nýtt veitufyrirtækí tekur til starfa á Akranesí 1. janúar 1996. Það mun sameina hitaveitu, raf- magnsveitu, vatnsveitu, tækni- deild bæjarins og áhaldahús í nýtt fyrirtæki. Tuttugu og fimm umsóknir bár- ust um starf veitustjóra qg ræddi bæjai-ráö við sex þeirra. Ábæjar- stjómarfundi fór fram atkvæða- greiðsla meðal bæjarfulltrúa um val á nýjum veitustjóra og fékk Magnús Oddsson, rafveitustjóri á Akranesí, 6 atkvæði og Ingólfur Hrólfsson, framkvæmdastjóri HB, 2 atkvæði og einn skilaði auöu. Bæjarstjórn samþykkti síö- an með 9 atkvæðum gegn engu að ráða Magnús sem veitustjóra og einnig var samþykkt tillaga um samkeppni meðal bæjaihúa um nafn á hið nýja íyrirtæki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.