Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1995, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1995, Qupperneq 26
34 FOSTUDAGUR 13. OKTOBRER 1395 Afmæli Teitur Bjornsson Teitur Björnsson, bóndi á Brún í Reykjadal í Suður-Þingeyjar- sýslu, verður áttræður á morgun. Starfsferill Teitur fæddist á Hallbjarnar- stöðum 1 Reykjadal en ólst upp á Brun. Hann stundaði nám við Hérðaðsskólann á Laugum í tvo vetur. Teitur var bóndi í fimmtíu og fimm ár, lengst af á Brún. Hann var sveitarstjórnarmaður í Reykjadal í tuttugu og átta ár, þar af oddviti í sextán ár, sat í stjóm Kaupfélags Þingeyinga í tuttugu og fimm ár, þar af for- maður í ellefu ár, var búnaðar- þingsfulltrúi í tuttugu og fjögur ár, í stjóm Búnaðarsambands Suður-Þingeyinga í tuttugu og sex ár, sýslunefndarmaður í tuttugu og fjögur ár, í stjóm Sparisjóðs Reykdæla í tuttugu ár, í stjórn Osta- og smjörsölunnar í átta ár og er heiðursfélagi Búnaðarfélags íslands. Fjölskylda Teitur kvæntist 29.6. 1940 Elínu Aradóttur, f. 3.11.1918, húsfreyju sem var veittur riddarakross fálkaorðunnar fyrir störf að fé- lagsmálum 1985. Hún er dóttir Ara Bjarnasonar, b. á Grýtubakka í Höfðahverfi, og k.h., Sigríðar Árnadóttur frá Gunnarsstöðum í Þistilfirði. Börn Teits og Elínar eru Björn, f. 11.10. 1941, skólameistari á ísa- firði, kvæntur Önnu Gunnarsdótt- ur sérkennara; Ari, f. 13.3. 1943, ráðunautur að Hrísum og formað- ur Bændasamtaka íslands, kvænt- ur Elínu Magnúsdóttur kennara og eiga þau þrjú börn; Sigríður, f. 6.2,1946, sérkennari í Kópavogi, gift Eggert Haukssyni fram- kvæmdastjóra og eiga þau þrjú börn; Erlingur, f. 6.2. 1946, b. á Brún, kvæntur Sigurlaugu Svav- arsdóttur kennara og eiga þau einn son; Helga, f. 8.8.1947, kenn- ari á Högnastöðum II í Hruna- mannahreppi, gift Jóni Her- mannssyni, b. þar, og eiga þau þrjár dætur; Ingvar, f. 2.2. 1951, læknir og dósent á Akureyri, kvæntur Helen Teitsson líffræð- ingi og eiga þau tvö börn. Systkini Teits: Ingvar, f. 30.1. 1917, d. 1949; Helga, f. 27.2. 1919, d. 1935; Hróar, f. 14.10. 1920, d. 1991; Svafar, f. 24.11. 1922, d. 1954; Gest- ur, f. 18.4. 1924, d. 1995. Foreldrar Teits voru Björn Sig- tryggsson, f. 9.5. 1889, d. 1956, b. og oddviti á Brún, og k.h., Elín Tómasdóttir, f. 2.10. 1880, d. 1953, húsffeyja. Ætt Bjöm var bróðir Tryggva, foð- ur Inga, fyrrv. formanns Stéttar- sambands bænda. Björn var son- ur Sigtryggs, b. á Hallbjarnarstöð- um, Helgasonar, b. þar, Jónsson- ar. Móðir Helga var Herborg, systir Bjargar, langömmu Þor- grims Starra, föður Kára í Garði. Önnur systir Herborgar var Þur- íður, móðir Sigurðar, ráðherra á Ystafelli, foður Jóns rithöfundar, fóður Jónasar búnaðarmálastjóra. Herborg var dóttir Helga, ættfoð- ur Skútustaðaættarinnar, Ás- mundssonar. Móðir Sigtryggs var Sigurveig Sigurðardóttir frá Am- arvatni. Móðir Björns var Helga Jóns- dóttir, b. á Amdísarstöðum, Árnasonar, og Herdísar Ingjalds- dóttur, dbrm. á Mýri, Jónssonar, b. þar, Jónssonar, af Mýrarætt, bróður Sigurðar, föður Jóns, alþm. á Gautlöndum, fóður ráð- herranna Péturs og Kristjáns og afa ráðherranna Haralds Guð- mundssonar og Steingríms Stein- þórssonar. Móðir Teits var Elín, systir Sig- urgeirs, fóður Ingólfs, bókbindara í Vallholti. Elín var dóttir Tómas- ar, b. í Stafni, Sigurðssonar, b. þar, Sigurðssonar. Móðir Elínar var Ingibjörg Jónsdóttir, b. á Lundarbrekku, Teitur Björnsson. Sigurðssonar, b. þar, Sigurðsson- ar. Teitur og Elín taka á móti gest- um á afmælisdaginn, laugardag- inn 14.10., í Félagsheimilinu Breiðumýri, kl. 15-18. Sigurður Valdimar Friðþjófsson Sigurður Valdimar Friðþjófsson skrifstofustjóri, Laufvangi 7, Hafnarfirði, er sjötugur í dag. Starfsferill Sigurður fæddist að Bakka í Fnjóskadal í Suður-Þingeyjarsýslu og ólst upp í Fnjóskadalnum. Hann flutti til Akureyrar 1944 og tók þá utanskólapróf upp í þriðja bekk Gagnfræðaskóla Akureyrar, gagnfræðapróf þaðan 1945, tók gagnfræðapróf utanskóla við MA - 1946, stúdentspróf frá MA 1949, stundaði nám í viðskiptafræði við HÍ 1949-50, stundaði nám í ís- lenskum fræðum við HÍ 1950-57 og lauk cand. mag,- prófi með bókmenntir sem aðalgrein 1957. Sigurður var blaðamaður við Þjóðviljann 1957-63, fréttastjóri þar 1963-71, deildarstjóri Verk- fræði- og raunvísindadeildar HÍ 1971-85 og skrifstofustjóri sameig- inlegrar skrifstofu Verkfræði- deildar og Raunvísindadeildar frá 1985. Sigurður var formaður Mímis, félags stúdenta í íslenskum fræð- um, 1952-53, sat í stúdentaráði HÍ 1953-54, ritari Félags róttækra stúdenta 1954-55, formaður Launamálanefndar BÍ 1967-69, í stjórn Félags háskólakennara 1975-79 og 1989-91 og í stjórn Or- lofssjóðs BHR frá 1991. Fjölskylda Sigurður kvæntist 29.12. 1962 Jennýju Sólveigu Ólafsdóttur, f. 6.12. 1929, húsmóður. Hún er dótt- ir Ólafs Einarssonar, vélstjóra í Hvammi í Þistilfirði, sem lést 1932, og Sigrúnar Aðalsteinsdóttur húsfreyju sem lést 1942. Dætur Sigurðar og Jennýjar er Sigríður Sigurðardóttir, f. 8.10. 1964, búsett í Kópavogi, gift Jóni Hörðdal Jónassyni, en börn henn- ar af fyrra hjónabandi eru Fannar Freyr ívarsson, f. 15.2. 1987, og Erna Valdís ívarsdóttir, f. 27.4. 1990; Ólöf Sigríður Sigurðardóttir, f. 23.11. 1966; Sigurbjörg Sigurðar- dóttir, f. 10.3. 1970, gift Þóri Jóns- syni. Stjúpdóttir Sigurðar er Sigrún Jóna, f. 29.10. 1947, gift Mitchell Snyder, en sonur Sigrúnar er Þór- hallur Amarson, f. 22.5. 1964. Bróðir Sigurðar er Guðlaugur Friðþjófsson, f. 1.5. 1920, bygginga- tæknifræðingur í Hafnarfirði sem lengst af starfaði hjá húsameist- ara Reykjavíkurborgar og síðar byggingadeild borgarverkfræð- ings. Foreldrar Sigurðar: Friðþjófur Guðlaugsson, f. 13.6. 1896, d. 15.11. 1981, b. að Bakka i Fnjóskadal og síðar iðnverkamaður á Akureyri, og Sigríður Sigurðardóttir, f. 29.10. 1884, d. 4.11. 1957, húsfreyja. Ætt Foreldrar Friðþjófs voru Guð- laugur Ásmundsson, b. á Fremsta- felli i Köldukinn, og Jónina Gísla- dóttir vinnukona, lengst af á Sörlastöðum í Fnjóskadal. Foreldrar Sigríðar voru Sigurð- ur Jónsson, b. og húsmaður, og Margrét Indriðadóttir. Sigurður verður í útlöndum á afmælisdaginn. Sigurður Valdimar Friðþjófsson. lil hamingju með afmælið 13. október Bridge Stórmót Hornfirðinga í bridge: Öruggur sigur Guðmundar Páls og Þorláks Sigurvegararnir Þorlákur Jónsson og Guðmundur Páll Arnarson voru að vonum ánægðir í leikslok, enda voru verðlaunin fyrir fyrsta sætið 150.000 krónur. DV-mynd ÍS 90 ára, Gunnlaug Magnúsdóttir, Atlastöðum, Svarfaðardalshreppi. 80 ára Ingibjörg Gisladóttir, Fannborg 8, Kópavogi. Ingibjörg dvelur hjá syni sínu og tengdadóttur í Z”rich í Sviss. Jóhannes Einarsson, Sundabúð 1, Vopnafirði. Lárus Gamalielsson, Hjallabraut 33, Hafnarfirði. Magnús Ingjaldsson, Kleppsvegi 76, Reykjavík. Guðbjörg Guðlaugsdóttir, Austurvegi 5, Grindavík. 70 ára Sigríður Bjömsdóttir, Skúlagötu 40A, Reykjavík. Kjartan Jóhannesson, Skálabrekku 9, Húsavík. Aðalsteinn I. Eiríksson, Heiðarvegi 13, Reyðarfirði. 60 ára Sigurlaug Bjömsdóttir, Árskógum 13, Egilsstöðum. Sigurbjört Gústafsdóttir, 44 Rue de Bonnedvoie, L - 5950 ITZIG, Luxembourg. Hildur Ágústsdóttir, Klauf, Vestur-Landeyjum. Ágúst Pétur Haraldsson, Hlíðarvegi 13, Kópavogi. Guömundur A. Guðmundsson, Vesturbergi 78, Reykjavík. 50 ára Kristján Jóhannsson, Gunnarsbraut 5, Dalabyggð. Nikulás Friðrik Magnússon, Baughúsum 7, Reykjavík. 40 ára Hallgerður Kristinsdóttir, Lækjarbergi 17, Hafnarfirði. Sigrún Eggertsdóttir, Tómasarhaga 42, Reykjavík. Margrét Tómasdóttir, Ásbúð 100, Garðabæ. Ólafur Fannberg, Hörgshlíð 2, Reykjavik. Þorsteinn Helgi Ingason, Kárhóli, Reykdælahreppi. Ingibjörg Sæmundsdóttir, Ljósalandi, Saurbæjarhreppi. Hjörtur Bergmann Jónsson, Heimsmeistararnir Guðmundur Páll Arnarson og Þorlákur Jónsson sigruðu næsta örugglega á Opna Hornafjarðarmótinu í tvímenningi sem haddið var helgina 29.-30. sept- ember á Hótel Höfn. Þeir félagarnir tóku snemma forystuna í mótinu og höfðu, þegar upp var staðið, tæplega 200 stiga forystu á næsta par. Fjölmörg þekkt pör voru með- al þátttakenda í þessu árlega móti, þar af 4 af 6 heimsmeisturum landsins. Pörin sem kepptu á mót- inu voru 44 og börðust þau hart um glæsileg peningaverðlaun sem námu samtals 400 þúsund krónum. Verðlaun voru veitt fyrir 10 efstu sætin. Að auki voru veitt þrenn humarverðlaun á mótinu fyrir hæstu skor í ákveðnum umferðum. Mótinu var stjórnað af Sveini Rún- ari Eiríkssyni. Lokastaða efstu para vairð þannig: 1. Guðmundur Páll Arnar- son-Þorlákur Jónsson 624 2. Aðalsteinn Jörgensen-Hrólfur Hjaltason 428 3. Guðlaugur R. Jóhannsson-Ás- mundur Pálsson 328 4. Páll Valdimarsson-Ragnar Magnússon 269 5. ísak Örn Sigurðsson-Helgi Sig- urðsson 230 6. Kristján Kristjánsson-Árni Guðmundsson 165 7. Þröstur Ingimarsson-Erlendur Jónsson 161 8. Ljósbrá BaldursdótthyStefán Jóhannsson 145 9. Bjöm Theódórsson-Sverrir Ár- mannsson 120 10. Guttormur Kristmanns- son-Pálmi Kristmannsson 107 -ÍS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.