Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1995, Qupperneq 28
36
MIÐVIKUDAGUR 13. OKÓBER 1995
Er handboltalandsliðið flaggskip
íslenskra íþrótta?
Flaggskip íslensks
íþróttalífs
„Handboltinn ætti að vera efst-
ur í forgangsrööinni því íslenska
karlalandsliðið er jú flaggskip is-
lensks íþróttalífs."
Ólafur B. Schram, i DV.
Peningum mokað
„Búvörusamningurinn er um
það að moka í hann meiri pen-
ingum.“
Jón Baldvin Hannibalsson, í Alþýðu-
blaðinu.
Fastir í fortíðinni
Ótrúlega margir „framsóknar-
menn“ (allra flokka) virðast fast-
Ummæli
ir í fortíðinni... Þeir virðast ekki
átta sig á því að unga fólkið kýs
pasta fremur en hrygg.“
Snjólfur Ólafsson, í DV.
Aðstöðumunurinn
gífurlegur
„Aðstöðumunur Borgar- og
Þjóöleikhússins er gífurlegur. Ég
setti þaö mér það markmið að
leiðrétta þennan mismun og þeg-
ar það náðist ekki sagði ég starfi
mínu lausu.“
Sigurður Hróarsson, í Tímanum.
Fyrirliðinn erfiðastur
„Það er nú orðið ansi hart þeg-
ar maður þarf að taka á stóra
sínum gegn eigin fyrirliða."
Birkir Kristinsson landsliðsmarkmað-
ur, í Morgunblaðinu.
Mafíósar á bak við lás og slá á
Ítalíu.
Voldugasta
glæpastarfsemin
Mafían, sem hefur hreiðrað
um sig í Bandarikjunum er vold-
ugasta glæpastarfsemi í heimin-
um. í samtökum þessum er um
það bil 5000 manns í 25 „fjöl-
skyldum" er lúta stjórn „Ráðs-
ins“. Enginn veit hve mikil velta
þessarar samtaka er og hafa
ýmsar tölur verið nefndar en
sjálfsagt er veltan ekki mikið
minni en 200 milljarðar dollarar
á ári.
Blessuð veröldin
Upprunnin í
Bandaríkjunum
Uppruni mafíunnar í Banda-
ríkjunum má rekja til ársins
1869 í New Orleans en orðið maf-
ía er dregið af arabísku orði sem
felur í sér fegurð, afburðahæfi-
leika og kjark. Mestu manndráp
innan mafíunnar áttu sér stað í
september 1931 er fjörutíu
mafíósar voru felldir eftir að
Salvatore Maranzano, II Capo di
Tutti Capi var myrtur i New
York.
Þurrt að mestu
í dag verður austan- og norðaust-
anátt, víðast gola. Norðan- og norð-
vestanlands verða smáél fram eftir
degi en annars verður skýjað með
köflum og þurrt að mestu. í kvöld og
nótt verður dálítil súld með köflum
suðaustan- og austanlands. Hiti
Veðrið í dag
verður á bilinu 0 til 6 stig yfir dag-
inn en víða næturfrost. Á höfuð-
borgarsvæðinu verður hæg austlæg
átt og skýjað með köflum. Hiti 2 til
6 stig yfir daginn en vægt frost í
nótt.
Sólarlag í Reykjavík: 18.17
Sólarupprás á morgun: 8.13
Síðdegisflóð í Reykjavík: 21.07
Árdegisflóð á morgun: 9.27
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri snjóél á síö.klst. 0
Akurnes alskýjaö 1
Bergsstaöir skýjaö -2
Bolungarvík alskýjaö 0
Egilsstaöir skýjaó -2
Keflavíkurflugvöllur skýjaö 1
Kirkjubœjarklaustur skýjaó 2
Raufarhöfn alskýjaö 0
Reykjavlk skýjaö 1
Stórhöfði skýjaó 5
Bergen léttskýjaö 6
Helsinki alskýjaö 12
Kaupmannahöfn súld 13
Ósló skýjaö 6
Stokkhólmur skýjað 13
Þórshöfn skúr á síö.klst. 6
Amsterdam þoka 15
Barcelona súld 17
Berlin þokumóóa 14
Chicago heiöskírt 19
Feneyjar þokumóöa 12
Frankfurt þokumóóa 15
Glasgow rigning og súld 10
Hamborg þokumóóa 15
London mistur 14
Los Angeles mistur 18
Lúxemborg þokumóöa 13
Madrid léttskýjaö 8
Malaga þokumóða 17
Mallorca skýjaó 14
Montreal heiöskírt 14
New York heióskírt 21
Nuuk heióskírt -2
Orlando léttskýjað 24
Róm þokumóöa 12
Valencia léttskýjaö 14
Vín léttskýjaó 12
Winnipeg léttskýjaó. 8
Tryggvi Gunnar Hansen ásatrúarmaður:
Helst vil ég tjalda yfir
hofið meo nautsleori
Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum:
„Það liggur fyrir umsókn hjá
bæjarstjórninni þess efnis að fá að
setja þak á veisluskálann í vetur.
Við sækjum um þetta sem lista-
verk til að byrja með og síðar ætl-
um við að sækja um frekara leyfi
til reksturs. Vonandi fáum við já-
kvætt svar en þetta gæti skapað at-
vinnu síðar meir,“ ‘segir Tryggvi
Gunnar Hansen ásatrúarmaður
Maður dagsins
sem er einna þekktastur fyrir hof-
byggingu sína í Grindavík sem
bæjarstjórnin stöðvaði fram-
kvæmdir við á sínum tíma.
Tryggvi Gunnar er þessa dagana
ásamt nokkrum félögum sínum í
Grindavík að reisa stóran og mik-
inn skála í víkingastíl sem þeir
nefna Ægisgarð. Hann stefnir
einnig á að klára hofbyggingu sína
í Hraungerðislóðinni. „Ég ætla
Tryggvi Gunnar Hansen.
mér að tjalda yfir hana með skinni
og þá helst nautsleðri. Auk þess að
standa í þessum byggingarfram-
kvæmdum er ég að setja upp
myndlistarstúdíó með aðstööu til
að halda námskeið í myndlist.
Þetta er gamalt húsnæði sem Hrað-
frystihúsið var með starfsemi í á
sínum tíma.“
Tryggvi Gunnar hefur búið tæp
þrjú ár í Grindavík og segist lika
vel að búa þar og ekki síður við
fólkið sem býr þar. Hann hefur
ferðast víðs vegar um landið og
hlaðið ýmsar byggingar eins og
torfbæinn í Njarðvik. Hann hefur
að baki nám í myndlistarskólum
og Háskóla íslands þar sem hann
lagði stund á heimnspeki og þjóð-
fræði. Þá vann hann hjá konung-
legu akademíunni í skúlptúr í Dan-
mörku og einnig var hann við nám
í Þýskalandi í leiklist og Söng.
Þegar kemur aö áhugamálum
hans er það fljótsvarað: „Áhuga-
málið er þaö sem ég er að vinna
við, einnig hef ég gaman af að fara
með vinum og félögum út í óspillta
náttúruna og þá hef ég áhuga á að
fólk almennt komi meira saman og
ræði mál sín opinskátt. Eiginkona
Tryggva er Sigríður Vala Haralds-
dóttir sem nýkomin er frá Svíþjóð
þar sem hún var að mála og mun
hún vinna við myndlistarstúdíóið.
Tryggvi Gunnar á tvö böm með
fyrri konu sinni, Hans Inga, 14 ára,
og Önnu Sóleyju, 11 ára. Þau búa í
Svíþjóð.
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1340:
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði
Evrópuleikur í
handbolta
Víkingur, sem mætir með
ungt lið í 1. deildina í handbolta,
kaus að leika báða leiki sína í
Evrópukeppninni á erlendri
grund og er liðið því statt í Tékk-
landi og leikur tvo leiki viö Zu-
bri. Fyrri leikurinn er í kvöld og
sá síðari á sunnudaginn. Róður-
inn verður sjálfsagt þungur hjá
Víkingum, enda Tékkland með á
Iþróttir
sínum snærum góð félagslið.
í dag er einnig leikið í körfu-
boltanum og er einn leikur i 1.
deild karla og einn leikur í 1.
deild kvenna þar sem keppa á
Akranesi ÍA og Tindastóll kl. 20.
Skák
Hér er gömul og góð skákþraut eftir
Þjóðverjann Theodor Nissl, sem er
ekki auðleyst þótt fáir menn séu á
borði. Hvítur á að leika og máta í 6.
leik. Nú er lesandans að leggja höfuð í
bleyti:
Hvítur þarf aðeins að koma biskupn-
um í færi við kónginn til að máta og
aðeins svarti hrókurinn er til varnar.
Til þess að ná markinu þarf nokkra út-
sjónarsemi: 1. Bh4! Hdl 2. Bg3 Hcl 3.
Bf4 Hc2 4. Bg5! Biskupinn er aftur
kominn á sinn stað og nú er engin
vörn við hótununum 5. Bd8+ eða 5.
Bd2+ og mát i næsta leik.
Jón L. Árnason
Bridge
Nýlokið er Monradbaró-
meterkeppni Bridgefélags Reykja-
víkur með sigri þeirra Aðalsteins
Jörgensen og Ásmundar Pálssonar.
Þeir skoruðu 523 stig yfir meðalskor
en næstir voru bræðurnir Oddur og
Hrólfur Hjaltasynir með 437 og síð-
an komu hinir ungu efnilegu ísfirð-
ingar, Hlynur T. Magnússon og
Halldór Sigurðarson, með 385 stig í
plús. í fyrstu umferð síðasta spila-
dags lentu Ásmundur og Aðalsteinn
í 6 spaða slemmu á NS-hendurnar í
þessu spili. Eftir opnun suðurs
reyndist erfitt að stöðva norður
áður en menn fóru í slemmu. Sum
pörin enduðu í 6 gröndum sem er
vægast sagt vond slemma og byggist
fyrst og fremst á því að kóngur liggi
þriðji í tígli hjá austri af 6 spilum.
Hálfslemma i spaða er hins vegar
mun betri samningur:
* 32
~ G872
£ 1082
* 7652
* ÁK10
* ÁK953
* 7
KD109
N
V A
S
* 9754
♦ DG86
D104
KG4
843
t ÁD9653
* ÁG
Sex spaða samningurinn byggist
að mestu á því að spaðinn liggi 3—3
eða 4—2 með DGxx á undan ÁK10.
Spilaáætlun sagnhafa byggist þá á
því að trompa tvö hjörtu á suður-
höndina og fría þannig fimmta
hjarta sem tólfta slag, hugsanlega
með tígulsvíningu til vara ef hún
býðst. En eins og spilin liggja þá eru
6 spaðar vonlaus samningur en
hinn vondi samningur, 6 grönd,
stendur hins vegar. Þar er
tíguldrottningunni einfaldlega svín-
að og einn slagur gefinn á litinn og
þegar tíglarnir liggja 3—3, fást 5
slagir á tígullitinn. Ásmundur og
Aðalsteinn enduðu í 6 spöðum, Odd-
ur og Hrólfur i 4 spöðum og Hlynur
og Halldór í 6 gröndum.
ísak Örn Sigurðsson