Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1995, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 1995
Fréttir
Leynilistinn um 250 tekjuhæstu ríkisstarfsmenn fæst ekki birtur:
Held að farið sé með list-
ann eins og mannsmorð
- segir félagsmálaráðherra - verður ekki birtur, segir fiármálaráðherra
„Ég hef ekki séð þennan lista og
ég held að það sé farið með hann eins
og mannsmorð. Mér finnst eðhlegt
að birta hann,“ segir Páh Pétursson
félagsmálaráðherra um Usta fjár-
málaráðuneytisins um 250 tekju-
hæstu ríkisstarfsmennina sem er
meðal þess sem lagt var tfi grundvall-
ar launahækkunum kjaradóms til
handa æðstu embættismönnum ís-
lenska ríkisins.
Á Ustanum er Davíð Oddsson for-
sætisráðherra í 129. sæti en auk hans
komust tveir ráðherrar inn á Ustann.
Félagsmálaráðherra segir að þrátt
fyrir nauðsyn þess að birta listann
geri hans sér fuUa grein fyrir að slík
birting kæmi til með að valda usla í
stjómkerfinu.
„Það yrði nú sennilega handagang-
ur í öskjunni og ekki friðvænlegt í
stjórnarráöinu ef hann kæmi á
prenti og menn færu að bera sig
samna og sjá hvað hinir fá. Þetta er
það sem kemur í veg fyrir að forsend-
ur kjaradóms séu birtar. Ég efast
ekki um að kjaradómur hafi unnið
samviskusamlega að sínu og haft
hhðsjón af launabreytingum hjá
þessu fólki. Þetta verður til þess að
þama er ein mikUvægasta forsendan
hjá kjaradómi," segir Páll.
Hann segist vita að þegar Stein-
grímur Hermannsson var forsætis-
ráðherra á sinum tíma hafi hann
verið í 97. sæti. „Það eru greinilega
nokkrir sem renna fram úr forsætis-
ráðherra og það er töluvert skrið á
þessu. Birting Ustans myndi hreinsa
andrúmsloftið en það myndi ekki
bæta andrúmsloftið í stjórnkerfinu.
í mínu ráðuneyti er mjög Util yfir-
vinna og staöið á bremsunum varð-
andi slíkt. Ég veit ekki hvað starfs-
fólk segir ef það sér að sömu stöðu-
heiti í öðrum ráðuneytum em mikið
betur borguð," segir PáU.
Þeir hæstu með sex
milljónir á ári
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra segir að ekki komi til greina
að birta listann. Slík birting gæfi
ekki réttan samanburð við laun og
það hefði aldrei tíðkast að fjármála-
ráðuneytið gæfi upp laun einstakl-
inga. „Við gefum ekki upp laun ein-
stakra _ starfsmanna ríkisins," segir
Friðrik'.
Hann segist ekki vilja upplýsa
hveijir tróni efst á Ustanum en þar
eigi ekki sæti einstaklingar sem teng-
ist stjórnarráðinu.
„Þessi Usti kæmi mjög á óvart því
þetta eru ákveðnar stéttir sem vinna
mjög mikið og hafa mikla yfirvinnu.
Ég get nefnt lækna, flugumferðar-
stjóra og jafnvel lögreglumenn. Þetta
eru ekki pólitíkusarnir. Við gefum
ekki þennan Usta upp en það getur
verið að það komi einhvern tímann
að því að svarað verði hvernig launa-
skiptingin er mUU einstakUnga, hve
margir hafa þessi laun og hve marg-
ir hafa hin. Éina undantekningin er
sú að kjaradómur fær þessar upplýs-
ingar sem eru ekki nafngreindar,"
segir Friðrik.
Hann segir vandann snúast að
hluta um það að á þessum Usta sé
eingöngu tekið tilUt til launa sem
Launaskrifstofa ríkisins greiðir út.
Ekki til þess hluta launa sem greidd
eru annars staðar svo sem B-hluta
fyrirtækja. Upplýsingar byggðar á
umræddum Usta yrðu því einungis
til þess faUnar að kalla á vangaveltur
sem ekki væru byggðar á raunveru-
legum launum. Friðrik segist þó geta
upplýst hvað þeir hæstu á Ustanum
hafi í laun: „Þeir sem eru hæstir á
þessum lista á árinu 1994 náðu um 6
miUjónum króna í laun.“
-rt
ÞrírlétulifiðáSuðurlandsvegieftirofsaakstur:
Ok yf ir smábíl á um
150 kflómetra hraða
- engar reglur gilda um aðferðir lögreglu við að stöðva óða ökumenn
Báðir bílarnir gjöreyðilögðust við áreksturinn og er talið að fólkið sem i þeim var hafi látist samstundis. Er talið
að Chevrolettinum, sem hér sést á myndinni, hafi verið ekið á um 150 kílómetra hraða þegar hann skall framan á
Fiat Uno-bílnum. DV-mynd S
„Okkur reiknast tíl að bUnum hafi
verið ekið á um 150 kílómetra hraða
þegar áreksturinn varð. Hemlaförin
eru um 100 metrar að lengd en lög-
reglan hafði skömmu áður hætt
beinni eftirfór, þá á 140 kílómetra
hraða,“ segir Guömundur Hart-
mannsson, varðstjóri hjá lögreglunni
á Selfossi. Hann stjómaði eftirfórinni
eftir bU sem ekið var á ofsahraða frá
Reykjavík síðdegis í fyrradag, en
ökuferðin endaði með árekstri við
Kögunarhól. í árekstrinum lét þrír
menn lífið, ökumaöur bUsins sem
eltur var og tvennt í bílnum sem
ekið var á. Er talið að alhr hafi látist
samstundis.
Ofsaakstur
Upphaf harmleiksins var að á átt-
unda tímanum um kvöldið sást til
Chevrolet Monte Carlo-bíls sem ekiö
var mjög glæfralega austur yfir Hell-
isheiði. Lögreglan í Reykjavík til-
kynnti Selfosslögreglunni um bílinn
og var ákveðið að stöðva hann.
Skammt vestan Selfoss var öku-
manninum gefiö merki um að stöðva
en hann sinnti því ekki. Ók lögreglan
þá fram fyrir bílinn sem þá var ekið
áfram á ofsahraða í áttina til Selfoss.
Austan við Ölfusárbrúna var bíln-
um snúið á hringtorgi og ekið aftur
tíl vesturs. Á hringtorginu rakst
hann utan í jeppa og skemmdi hann
töluvert. Selfosslögreglan fylgdi bíln-
um eftir vestur með Ingólfsíjalli og
þegar hraðinn á-lögreglubUnum var
orðinn um 140 kUómetrar á klukku-
stund var ákveðið að slökkva á bUkk-
ljósum og sírenu og fylgja í humátt
á eftir bUnum, enda dró þá í sundur
með þeim.
100 metra hemlaför
Rétt vestan við Kögunarhól virðist
sem Chevrolettinn hafi komið aftan
að öðrum bU og reyndi bUstjórinn
að hemla. Hemlunarfórin, sem eru
um 100 metra löng, bera með sér að
bíUinn barst yfir á rangan vegar-
helming og skall þar á bíl af gerðinni
Fiat Uno. Varð áreksturinn geysi-
harður og steig reykjarsúla tíl lofts.
Lögreglan haíði skipulagt aðgerðir
sínar svo að ætlunin var að stöðva
umræddan bíl við vegamót HeUis-
heiðarvegar og Þrengslavegar. Biðu
lögreglubUár úr Reykjavík hans þar.
Glæfrafórinni lauk hins vegar áður
þangaö kom.
Þau sem létust voru karl á sjötugs-
aldri og kona á sextugsaldri, bæði
úr Hafnarfirði. Ökumaöur bílsins
sem hörmungunum oUi var 22 ára
gamaU úr Reykjavík.
Engar reglur um eftirför
Þegar áreksturinn varð haíði lög-
reglan hætt beinni eftirför eftir
ákvörðun lögreglumanna á vett-
vangi. Guömundur Hartmannsson
varðstjóri sagði í samtaU við DV að
engar reglur gUtu um eftirfór af
þessu tagi og yrðu lögreglumenn að
meta hvað gera skyldi eftir aðstæð--
um hverju sinni.
í þessu tilviki var ákveðið að bíða
með frekari aðgerðir þar tU komið
væri vestur á HelUsheiöi enda átti
þá að vera búið að stöðva aUa umferö
þar. Hörmungamar dundu hins veg-
ar yfir áður en svo langt var komið.
-GK
Þú getur svaraO þessari
spurningu meö því aO
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já
Nei
a 904-1600
leyfa hundahald
í fjölbýlishúsum?
Alllf I tt»«f n« ktfflnu me6 ttnvaUstma g8ta nýtt 8ér þessa þjónustu.
Stuttar fréttir
Dræmrjúpnaveiði
Rjúpnaveiði var dræm fyrstu
veiðidagana um helgina vegna
veðurs. Samkvæmt nýlegum
mælingum er ijúpnastofninn í
uppsveifiu. TaUð er að ein milljón
fugla sé í hauststofninum.
Emerald í vanskil
Flugfélagiö Emerald Air er
komið í vanskU með tvær fyrstu
afborganirnar af 90 mUljóna
króna láni Lífeyrissjóös bænda,
samtals 68 tniUjónir.
Of mikiil niðurskurður
HeUbrigðisráðherra segir að
áform um niðurskurð á bótum tíl
fólks i endurhæfmgu gangi allt
of langt. Hann segir ekki á dag-
skrá að ráðast á þennan hóp
manna. Stöð 2 gi-eindi frá þessu.
Mjöggóðsíldveiði
Mjög góð síldveíði er á miöun-
um úti af Austfjörðum þrátt fyrir
rysjótta tið. Háberg GK fékk full-
fermi í einu kasti. Skipin eru í
Reyðarfjarðardýpi.
Ekkertum ESB
TiUögu um að íslendingar hætti
aðild að Evrópska efnahagssvæð-
inu var vísað frá í stjórnmála-
nefnd landsfundar Alþýðubanda-
lagsins og kom ekki til afgreiðslu.
Bretargefafé
Breska ríkisstjórnin hefur gefið
Islendingum fjárhupphæö tU
kaupa á trjám til gróðursetningar
við aðalgöngustígúm í Fossvogi
en þar yröi áningarstaður sunn-
an ÖskjuhUðar.
Umboðsmaður skuldara
Fólk í greiðsiuerfiðleikum og
sem ekki telur sig hafa fengið
eðlUega úrlausn sinna mála varð-
andi skuldir sínar við íslands-
banka getur nú leitað tU sérstaks
umboösmanns skuldara í bank-
anum.
Kjarasáttmáti rofinn
í ályktun stjórnarfundar Þjóð-
vaka segir að kjarasáttmáUnn,
sem gerður var við launafólk í
landinu, hafi verið rofinn. Venju-
legt launafóik hafi misst þolin-
mæðina og landftótti og vonleysi
aukist dag frá degi.