Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1995, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 1995
13
Fréttir
Kertaverksmiðjan komin í gang:
Stjórnendum sagt upp
- vegna hugsanlegrar yfirtöku bæjarins
fi í Mörkina 6
rurnar
ma inn
í fjölbreyttu
rá kr. 4.900
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum;
Kertaverksmiðjan Heimaey í Vest-
mannaeyjum hóf starfsemi í síðustu
viku eftir margra vikna hlé en
vinnslan er ekki komin í fullan gang
þar sem fjármagn vantar. Bærinn
hefur sýnt áhuga á að taka að sér
málefni fatlaðra úr höndum ríkisins
en samningar hafa enn ekki náðst. Á
meðan hangir framtíð kertaverk-
smiðjunnar í lausu lofti og um mán-
aðamótin var stjómendum sagt upp
en þeir eru fjórir.
í Heimaey, sem er vemdaður
vinnustaður, vinna 17 manns auk
stjórnenda.
Sveinn Pálmason verkstjóri segir
að enn sé starfsemin ekki komin í
fullan gang. „Þetta fer rólega af stað
því enn vantar okkur fjármagn til
kaupa á hráefni. Ef unnið væri á full-
um afköstum þryti hráefnið og fólkið
hefði ekkert að gera,“ sagði Sveinn.
„Þetta tengist vilja bæjarins til að
taka að sér málefni fatlaðra sem
reynslusveitarfélag. Semjist viö ríkið
geri ég ráð fyrir að við verðum end-
urráðnir en allt snýst þetta um pen-
inga. Við erum byijaöir að framleiða
jólakertin þannig að þau verða kom-
in á markað í tíma.“
Á bæjarskrifstofunum var staðfest
að viðræður væm í gangi við félags-
málaráðuneytið um að bærinn tæki
að sér málefni fatlaðra í bænum feng-
just nægir peningar frá ríkinu. Þar
vegur kexverksmiðjan þungt. Samn-
ingsdrög hafa gengið á milli og ef
samningar nást yfirtekur bærinn
þennan málaflökk um næstu áramót.
ardag kl. 10-16
HW5IÐ
landi), sfml 588 5518
slunarmáti nútímans.
Póstsendum
NYTT
auglysingar SÍMANÚMER
550 5000
Þaó var handagangur í öskjunni þegar konur úr sex kvenfélögum á Suóur-
landi, Kvenfélagi Oddakirkju á Rangárvöllum, Unni í Rangárvallahreppi,
Framtiðinni í Ásahreppi, Einingu í Holtahreppi, Sigurvon i Þykkvabæ og Lóu
í Landsveit, komu saman i eldhúsi elliheimilisins Lundar á Hellu ásamt
kokknum á staðnum á dögunum og gerðu slátur fyrir elliheimilið. Samtals
tóku þær 60 slátur. DV-mynd Jón Benediktsson
Islenskir aðalverktakar sömdu við ÚA:
Ú A tekur Aðalvík
og Ijósf ara á leigu
- skipin gerð út frá Suðumesjum
Ægir Már Karason, DV, Suðumesjum:
íslenskir aðalverktakar munu
leigja Útgerðarfélagi Akureyringa
tvo línubáta félagsins og var leigu-
samningurinn undirritaður í höfuð-
stöövum ÍAV í Reykjavík. ÚA mun
gera skipin út frá Suðumesjum.
Samningurinn gildir til 1. mars á
næsta ári og á ÚA formlega rétt á
honum áfram.
„Ég tel það mjög góðan kost að fá
svo öflugan aðila sem Útgerðarfélag
Akureyringa er inn á Suðurnesja-
svæðið. Það mun gera skipið út frá
Suðumesjum. Áhöfnin verður héð-
an, landað verður hér á svæðinu og
þá verður stór hluti af aflanum unn-
inn hér, öll þjónusta verður héðan
og kvótinn verður hér áfram," sagði
Ragnar Halldórsson, stjórnarmaður
hjá íslenskum aðalverktökum og
bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, í sam-
tali við DV.
Línubátamir Aðalvík og Ljósfari
hafa samtals um 1100 þorskígildis-
tonn. Þeir eru taldir mjög öflugir og
er Aðalvík með beitingavél og til
stendur að setja vél í Ljósfara einnig.
Hugmynd og tilraun ÚA er aö verka
fiskinn á Suðurnesjum og senda
hann síðan með flugi til útlanda.
Þetta verður í fyrsta sinn sem ÚA
gerir út á línu.
Mikils titrings hefur gætt meðal
sveitarstjórnarmanna og útgerðar-
manna á Suðurnesjum síðustu daga
um hvernig þessum málum yrði
háttað með bátana. Menn töldu að
verið væri að missa kvóta og skipin
frá Suðumesjum.
„Við eram búnir að eiga viðræður
við á annan tug úgerðarmanna á
Suðumesjasvæðinu en það hefur
ekki gengið upp, hvorki tU kaups né
leigu. Þetta var mjög hagstætt frá
ÚA og við treystum þeim til að gera
skipin út héðan frá Suðurnesjum
enda era þeir mjög sterkir," sagði
Ragnar Halldórsson.
Boðin venjulegum
barnafjölskyldum
Reykjavíkurborg og Mosfellsbær
hafa gert með sér samkomulag um
að reka i sameiningu flölskyldur-
áðgjöf fyrir venjulegar barnaflöl-
skyldur með böfh undir 18 ára
aldri. Ráðgjöfln verður bein og
milliliðalaus, ekki bundin vanda-
málum. Meö þessu vilja sveitarfé-
lögin fyrirbyggja stærri vandamál
og þar með koma 1 veg fyrir dýr-
keypt úrræði, svo sem vistanir á
stofhanir, sjúkrahús og þegar verst
lætur fangelsisvist.
Um er að ræða tveggja ára til-
raunaverkefni sem styrkt verður
af félagsmálaráöuneytinu með 13
milljóna króna ffamlagi. Kostnaö-
ur Reykjavíkurborgar verður 23,5
milljónir en kostnaöur Mosfells-
bæjar4,5milljónir. -kaa
...og ekki
spillir verðið
39.900:
stgr.
Flest okkar viljum hafa myndbands-
tækið þannig úr garði gert að það sé
vandræðalaust í allri notkun og ekki
þurfi sérfræðiaðstoð þegar eitthvað
bjátar á.
Panasonic SD200 myndbandstækið er
einmitt þannig úr garði gert, frábær
myndgæði, [Super Drive, A1 (áystal
viewj allar aðgerðir koma fram á skjá,
innstilling stöðva sjálfvirk ásamt
langU'ma upptöku- minni og þcss háttar
búnaði sem okkur þykir sjáifsagður nú
til dags.
JAPIS
BRAUTARHOLT
O G KRINGLUNN
S I M
5 ó 2 5 2 0 0