Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1995, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1995, Síða 14
14 MÁNUUDAGUR 16. OKTÓBRER 1995 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111; blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT114,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - Aörar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@ismennt.is - Auglýsingar: dvaugl@ismennt.is. - Dreifing: dvdreif@ismennt.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftanrerð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk. Leynilistann á borðið Þaö er til merkis um öfugsnúinn hugsunarhátt innan íslenska stjómkerflsins aö mikilvægasta leyndarmál valdastéttarinnar um þessar mundir skuli hvorki varöa viðkvæm milliríkjamál né erfiðar samningaviöræöur um lífshagsmunamál íslendinga. Það sem kerfiskallamir leggja núna mesta áherslu á að halda leyndu er heldur ekki vitneskja um málefni bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli eöa leynilegar samræður NATO-ríkja í Brussel um hemaðaráætlanir gegn Bosníuserbum. Síður en svo. Það óttalega ríkisleyndarmál sem möppudýrin svo- nefndu reyna með öllum tiltækum ráðum að fela ræki- legar en nokkurt hemaðarleyndarmál er listi sem tekinn var saman um þau raunveruleg laun sem skattborgarar landsins greiða til þeirra opinbem embættismanna sem mest fá borgað fyrir starf sitt. Samkvæmt heimildum DV eru á þessum leynilista upplýsingar um launagreiðslur af opinberu fé til 250 tekjuhæstu starfsmanna ríkisins. Ljóst er af því kappi sem kerfið leggur á að halda listanum leyndum að þar er ekki um neinar smáfúlgur að ræða. Enda hefur komið fram opinberlega að jafnvel forsætisráðherra landsins hafi lent nokkru fyrir neðan miðju. Leynilistinn hefur að geyma upplýsingar um þau laun sem skattgreiðendur í landinu borga í reynd starfsmönn- um sínum. Þetta em því staðreyndir sem launagreiðand- inn, það er almenningur, á heimtingu á að fá á borðið. Það er óverjandi með öllu að liggja á listanum og setja hann þar með í flokk með mikilvægustu ríkisleyndar- málum sem varða öryggi landsins. Það lýsir best óþolandi hroka kerfisaðalsins að oddvit- ar stjómkerfisins skuli reyna að halda því fram með leyndarkröfunni að þegnum landsins, þeim sem borga brúsann, komi ráðstöfun þessa fjár í raun og vem ekkert við. í því sambandi þýðir lítið að vísa til persónulegra hagsmuna einstakra embættismanna. Með því að starfa hjá hinu opinbera hafa þeir fyrirgert rétti sínum til sér- stakrar leyndar um starfskjör sín. Leyndarkröfuhugsunin er ein afleiðing algengs mis- skilnings sjálfumglaðra embættismanna á hlutverki sínu. Þeir eiga stundum erfitt með að átta sig á þeirri einfóldu staðreynd að þeir em ráðnir til starfa í stjóm- kerfinu til að vera þjónar þjóðarinnar en ekki herrar hennar. Almenningur á auðvitað skýlausa kröfu til þess að fá greinargóðar upplýsingar um hvað slíkir menn frá greitt fyrir þá þjónustu sem þeir veita, eða eiga að veita þjóðinni. Því hefur reyndar stundum verið haldið fram .að í reynd sé það embættismannaaðallinn sem stjórni land- inu með áhrifum sínum og tengslum á bak við tjöldin. Stjórnmálamenn, sem þurfa að leita eftir stuðningi al- mennings við gerðir sínar með tiltölulega skömmu milli- bili, koma og fara. Það á líka við um ráðherra. En kerfis- kóngarnir sitja áfram í valdastólum sínum og virðast sjá svo vel um sig og kollega sína í opinberri þjónustu að upplýsingar þar að lútandi þoli ekki opinbera umræðu. Krafa skattgreiðendanna er skýr, einföld og sanngjörn. Það á að leggja leynilistann um tekjuhæstu starfsmenn ríkisins á borðið án tafar. Ef kerfið þumbast enn við hlýtur að koma til kasta al- þingismanna að beita valdi Alþingis til að draga þessar upplýsingar upp úr leynihirslum kerfisins og fram í dags- ljósið. Þingið hefur fengið fjárveitingavaldið frá þjóðinni. Því fylgir siðferðileg skylda til að skýra þeirri sömu þjóð frá því hvemig fjármununum hefur verið varið. Elías Snæland Jónsson Verötryggð jafngreiðslulán eru óhagganleg, trúarleg kennisetn- ing, í húsbréfakerfinu. Það boðar ógæfu fyrir húsnæðiskaupendur. Greiðslubyrði húsnæðislána verð- ur að léttast þegar frá líður svo fólk geti unnið sig út úr fyrsta vandanum. Greiðslubyrði hús- bréfanna þyngist þegar líður á lánstímann vegna þess að þau eru verðtryggð jafngreiðslulán. Þau eru þess vegna hættuleg og ber að breyta þeim í hentugri gerðir lána. Menn eiga að taka til skoðunar aðra kosti en felast í núverandi húsnæðislánakerfi óbreyttu. Ráðamenn verða að hlusta á rök því heill kynslóða er í húfi. Byggingarsjódur ríkisbis, kt. 460169-2409. Rcvkjavfk,, iýsir hér mcð yfir þvi, að hann skuldar kcnniiala hcimilivfang Húsbrff þrita ergefid thmed hrimi/d fuigtim nr. 76H9S9um hreyringn ú lögum um Hi'tsna-disstofmm rikisins nr.,W/WtS. sbr. iSgnr. /th /QSX Byggingarsjóður rikisins greidir verdbirtur nf brifi þessu t kr. hreytingum á lúnskjiiraeisi’úlu frá úrgáfiitiegi brífsins ti/ gjaidJaga ng rexti fyrir snma timabi/. Vm em/argreiðs/n iið inn/ausn eða útdrútt. svo og verðinggingu. viixiakjör ng ðnnur kjiir og tki/má/a fer samknrmi reg/ugerð nr. //9SV. sjá bakh/ið. Húsbrefska/ terið skrá á nafn. Vm skattalagarneðferð húsbréfs jsessa vfsást ti/ 9 greinar regtugerðar á bakh/ið. fit’jkft/x/k. 15 Méiwn/bt'r /WV Að vinna sig út úr vandanum Fyrir fasteignakaupendur er mikilvægt að geta unnið sig út úr erfiðleikum fyrstu áranna eftir húsnæðiskaup. Greiðslubyrði af II, llYUI.IM.AKSJÓIJS KlKIMSS Ih KIKISSJOHS Isl ASDS „Vandalaust er að benda á liprari gerðir húsnæðislána en verðtryggðu jafngreiðslulánin í húsbréfakerfinu," segir m.a. í greininni. Hentugri húsnæðislán húsnæðislánum þarf að minnka stöðugt og verða viðráðanleg þeg- ar líður frá kaupunúm. Mikilvægt er fyrir launafólk að skuldir lækki og það sjái fram á bjartari tíma. Fjölskyldur eyða nú hverri hand- bærri krónu í afborganir án þess að grynnki á skuldum eða greiðslubyrði húsnæðislána létt- ist. Minni háttar óvænt útgjöld valda því að fólk missir húsnæði sitt. Það hefur slæm áhrif á líf fólks og heilsu að lifa stöðugt í óvissu og áhyggjum af fjárhags- legri framtíð fjölskyldunnar. Mik- ilvægt er að húsnæðislánakerfið vinni gegn þessu álagi. Þegar menn tóku upp há verðtryggð jafngreiðslulán í húsnæðislána- kerfinu skildu þeir þetta ekki. Það er löngu tímabært að menn kanni aðra kosti en felast í núver- andi húsnæðislánakerfinu óbreyttu. Því má breyta á marga vegu til batnaðar. Bjóða má nýjar gerðir lána, taka upp breytilegan lánstíma á hinum ólíku lánum, hækka lánshlutfall, bjóða fasta og breytilega vexti. Þessir kostir, ásamt öðrum sem ekki eru taldir hér, eru einfaldlega ekki skoðaðir. Ástæðan er að menn einblína á verðtryggð jafngreiðslulán með fostum vöxtum. Þau ?ru boðorð húsbréfakerfisins. Við þeim verð- ur ekki hróflað hversu dýrkeypt sem þau reynast húsnæðiskaup- endum. Á meðan hrannast vanda- málin upp á heimilum fasteigna- kaupenda. Þrír nýir kostir Vandalaust er að benda á lipr- ari gerðir húsnæðislána en verð- Kjallarinn Stefán Ingólfsson verkfræðingur tryggðu jafngreiðslulánin í hús- bréfakerfinu. Nefna má þrjár sem dæmi; verðtryggð lán með jöfnum afborgunum, óverðtryggð lán og lán erlendra lánastofnana. Lífeyr- issjóðir hafa veitt sjóðfélögum, verðtryggð 20-25 ára lán meö jöfn- um afborgunum og fostum eða breytilegum vöxtum. Greiðslu- byrði samanstendur af vöxtum og afborgunum og minnkar stöðugt þegar líður á lánstímann. Algengustu húsnæðislán í okk- ar heimshluta eru óverðtryggð með jöfnum afborgunum til 15-25 ára. Vextir eru fastir eða breyti- legir. Greiðslur eru háar í upphafi en minnka hratt að raunvirði. Miðað við 3% verðbólgu léttist greiðslubyrðin um 20% fýrstu fimm árin eftir húsnæðiskaup svo kaupendur vinna sig fljótt út úr byrjunarerfiðleikum. Óverð- tryggðu lánin geta verið hærri en verðtryggð lán. í meðalári má lána 90% af kaupverði íbúðarhús- næðis. Sum veðlánafyrirtæki þjóna húsnæðiskaupendum utan eigin heimalands. Þau mundu bjóða ís- lendingum óverðtryggð lán i eigin gjaldmiðli fyrir allt að 90% sölu- verðs. Greiðslumat erlendu lána- stofnananna er það rúmt að þús- undir fjölskyldna, sem ekki fá inni í húsbréfakerfinu, gætu ráð- ist í húsnæðiskaup með erlendu lánsfé. Lánin eru með jöfnum af- borgunum svo greiðslubyrðin mundi líklega minnka um 4-6% á ári fyrstu árin reiknað á fóstu verðlagi. Kaupendur vinna sig þess vegna nokkuð fljótt út úr erf- iðleikum fyrstu áranna eftir kaup. Stefán Ingólfsson „Greiöslumat erlendu lánastofnananna er þaö rúmt aö þúsundir fjölskyldna, sem ekki fá inni í húsbréfakerfinu, gætu ráðist í húsnæðiskaup með erlendu lánsfé.“ Skoðanir annarra Alþingismenn og almenningur „Mánaðarhækkun launa til alþingismanna er langt umfram það sem fjöldi fólks verður að sætta sig við í mánaðarlaun! ... Það er alvarlegt mál ef þingmenn líta svo á, að sú launastefna sem mörkuð hefur verið í þjóðfélaginu, og þeir hafa krafist að launþegar í landinu tækju mið af, eigi ekki við þá. Slíkt hlýtur að bjóða hættunni heim og ýta undir það viðhorf sem víða hefur komið fram, aö grund- völlur kjarasamninganna sé brostinn." M.L.S. í 8. tbl. VR-blaðsins. Stjórnarfar magntollanna „Með gríðarlega háum magntollum er verið aö hindra að innlenda framleiðslan fái nokkra erlenda samkeppni. Neytendur greiða fyrir þessa stefnu stjórnvalda með hærra grænmetisverði en vera þyrfti. Þótt pólitískur vilji kunni ennþá að vera fyr- ir því hér á landi að reka verndarstefnu af þessu tagi til að hlífa íslenzkum garðyrkjubændum við út- lendri samkeppni, er rétt að kalla hlutina sínum réttu nöfnum. Hina raunverulegu ástæðu fyrir hækkun grænmetisverðs á íslandi er að finna í stjórnarfari'nu, ekki í tíðarfarinu." Úr forystugrein Mbl. 12. okt. Forsetaembættið „Forseti íslands talaði af sér i Kína og talaði aftur af sér í einkaviötali sem hún veittí Morgunblaðinu þegar hún sagði stúdentamorðingjann Li Peng vera „gáfaðan og greindan mann“. Og afsökunin þess efn- is að ekki væri hægt að segja allt þegar setið væri í rauðum silkisófum gestgjafa var dapurleg og kallaði á jafn harða gagnrýni og þá sem fiöfð var vegna um- mælanna í Kína ... Fulltrúar forsetaembættisins eru reiðir og sármóðgaðir og forsetaembættið hefur sett ofan. En það er of mörgum sem finnst óþægilegt að viðurkenna það.“ Kolbrún Bergþórsdóttir í Alþbl. 13. okt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.