Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1995, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1995, Síða 16
16 MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 1995 Fréttir_____________________________________________________________________________________pv Mál Halldórs Jóhannssonar, miðasölumanns á HM í handknattleik: Tveir aðilar haf a fallið frá beiðni um gjaldþrot - Búnaðarbankinn lét fara fram árangurslaust flámám - verið að semja um þessa hluti, segir Halldór Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Tveir aöilar hafa fariö fram á að Halldór Jóhannsson á Akureyri, sem sá um sölu aðgöngumiöa á leiki heimsmeistarakeppninnar í hand- knattleik, veröi tekinn til gjaldþrota- meöferöar. Samkvæmt heimildum DV féll sá aðili sem fyrr bað um gjald- þrotameöferð yfir honum frá þeirri beiðni og Halldór segir sjálfur að Líf- eyrissjóður verslunarmanna, sem bað seinna um slíka meðferð, haíi einnig faliið frá þeirri beiðni. Þá var gert árangurslaust fjárnám hjá Halldóriað kröfu Búnaðarbanka íslands en hann segist eiga í viðræð- um við bankann um að finna lausn á því sem að honum snýr. „Það er algengt þegar menn eru meö skuldir sem ekki er veð fyrir að reynt sé aö semja um að finna farveg til að leysa slík mál og það er það sem verið er að gera. Það er varla hagur í því fyr- ir bankann að fara að afskrifa 6 millj- ónir króna í þessu sambandi og það er verið að vinna í því aö fmna leið til að leysa þetta með markvissum hætti. En þessi mál hafa dregist og dregist vegna þess að miðasölumálin hafa ekki verið gerð upp. Þegar það verður gert kemur væntanlega í ljós það sem ég hef sagt að ég eigi pen- inga hjá framkvæmdanefnd HM en hún ekki hjá mér og ég geti gengið frá mínum málum," segir Halldór. Hann segir að allt þetta megi rekja til þess að uppgjör vegna miðasöl- unnar hafi ekki farið fram og til þeirrar deilu sem hann á í við hand- knattleikshreyfinguna. „Þessar skuldir mínar má rekja til þess að ég lagði í á þriðja tug milljóna króna kostnað vegna miðasölunnar og lán vegna þess átti að greiða þegar miða- sölumálin væru gerð upp,“ segir Halldór. Varðandi ábyrgð Akureyrarbæjar sem nemur 20 milljónum króna segir Halldór aö áður en til þess að bærinn þurfi að greiða hana þurfi að lýsa hann gjaldþrota. Baldur DýrQörð, bæjarlögmaður á Akureyri, sagðist í samtah við DV ekki hafa heyrt neitt um aö gengið yrði að bæjarábyrgð- inni. „Við fylgjumst með málinu, það er það eina sem hægt er að segja um það á þessu stigi,“ sagði Baldur. Sem kunnugt er kærði fram- kvæmdanefnd HM Halldór til Rann- sóknarlögreglu ríkisins vegna upp- gjörsmála af miðasölunni og sagði Helgi Daníelsson yfirlögregluþjónn RLR aö málið væri enn til rannsókn- ar þar. Halldór verður Gyifi Kriatjáxisson, DV, Akureyri: „Það sem Halldóri Jóhannssyni ber aö gera er að mæta með pening- ana á okkar fund ef þeir eru til, leggja þá á borðiö og síðan er hægt að ræöa máliö ef eitthvað er um að ræöa,“ segir Ólafur Schram, formaður Handknattleikssam- bands Islands, um uppgjörsmál vegna miðasölu á heimsmeistara- keppnina í handknattleik í vor. Halldór Jóhannsson miðasali segir að í hans fóram séu auk 20 milljóna króna ábyrgðar í banka um 16 miUjónír króna sem komu inn vegna miðasölu, Hann telji hins vegar að honum beri þeir peningar þar sem forsendur í samnmgi hans viö Framkvæmdanefnd HM hafi breyst, m.a. vegna sjónvarpsút- sendinga. Þetta lætur nærri að vera sú upp- hæð sem Ólafur segir að Halldór skuldi HSÍ. „Það era sennilega á bilinu 16-19 milljónir. Ef Halldór er með þessa peninga þá er það hið besta mál en ég tek ekkí mark á að peningarnir séu fyrir hendi fyrr en þeir verða lagðir á borðið. Hvaö varöar sjónvarpsútsendingar þá var skýrt tekið fram í samningnum við Halldór að sjónvarpað yrði frá keppninni hér heima en það var eklci til tekið hversu umfangsmikl-. ar þær útsendmgar yrðu.“ - Halldór segir að þiö hafiö veriö ófáanlegir til að setjast niður með honum og ræða þessi mál til að komast að niöurstöðu. „Við eram auðvitað tilbúnir að tala við Halldór en ég sé engan til- gang í því nema ég viti að þessir peningar, sem hann talar um, séu til. Ég gæti hins vegar alveg trúað því að það hafi verið stirt á milli HaEdórs og framkvæmdasfjóra HM-nefndarinnar,“ sagði Ólafur. Frá vígslu nýbyggingarinnar. DV-mynd Jón Ben. Nýbygging vígð við saf nið að Skógum Jón Benediktsson, DV, Hvolsvelli: Vegna þeirra timamóta sem hafa oröið við uppbyggingu byggða- og skjalasafns að Skógum undir Eyja- flöllum var öllum íbúrnn í Rangár- þingi og Vestur-Skaftafellssýslu boð- ið að skoða safnið og fá fræðslu um uppbyggmgu þess og starfsemi ný- verið. Nýbygging við safnið var vígö 9. september. Safmð að Skógum er fjölsótt og í sumar hafa skoöað það um 25.000 gestir. Sú tala á eftir að hækka það sem eftir er árs. Hróður safnsins hefur borist víða, ekki síst fyrir fram- komu og vinsemd Þórðar Tómasson- ar safnvarðar. Hann gengur um safn- ið og lýsir því líflega á því tungu- máh sem við á hveiju sinni. Oftast endar ferðin um safnið við orgel í anddyri og hljóma sönglög á mörgum tungumálum út á hlað. 9 L 9 Arekstur milli tveggja ökutækja -sem mætast á vegreda-í-beygju Hörmuleg dauðaslys þar sem bílar mætast: Ef ekið er hægar fækkar slysunum - segir Sigurður Helgason hjá Umferðarráði „Ein leiðin til að koma í veg fyrir slys af þessu tagi er að aka hægar. Þaö gildur alltaf að menn veröa að aka í samræmi við aöstæður og þar sem vegir eru mjóir er hætta sem fylgir hraðakstri enn meiri,“ segir Sigurður Helgason hjá Umferðarráði í samtali við DV. í þessum mánuði hafa tveir menn látið lífið í árekstrum þar sem bílar mætast á vegum þar sem aðstæður eru annars ágætar. Dauðaslys þessi urðú á Suðurlandsvegi við Gunnars- hólma 8. október og á Skeiðavegi daginn eftir. Era dauðaslys af þessum rótum í umferðinni orðin fimm á árinu. Áður fórast feðgar á Suðurlandsveginum í Hveradalabrekkunni og einn mað- ur á Reykjanesbraut. Á Uðnum tíu árum hafa 53 menn látið líflð þegar bílar rekast á í beygj- um eða á beinum vegi. Af þeim eru 29 ökumenn, 17 farþegar í framsæti, fimm farþegar í aftursæti, einn öku- maður bifhjóls og einn farþegi á bif- hjóli. Dauðaslys af þessu tagi eru 37,5% allra dauðaslysa í umferðinni og á þessu ári lætur nærri að þriðjungur dauðaslysa sé vegna þess að bílar sem eru að mætast rekast á. „Því hraðar sem ekið er þeim mun alvarlegri verða afleiðingarnar beri eitthvað út af á vegum þar sem að- eins ein akrein er í hvora átt,“ segir Sigurður. -GK Ómar Garðarss., DV, Vestmaimaeyjum: Míkil og stöðug vinna hefur verið i sildinni i Vinnslustöðinni eftir að veiðar hófust í síðustu viku. Tvö skip, Kap VE og ísleifur VE, hafa landaö samtals um 2000 tonnum og liefur langstærsti hlutinn fariö til vinnslu. ísleifur landaði fyrstu sfldinni um miöja síðustu viku og var aílinn rúm 300 tonn. Kap landaði tæplega 300 tonnum á laugardag. ísleifur var aftur á ferðinni á mánudag með tæp 400 tonn, í fyrrakvöld kom Kap með 500 tonn og í gær landaöi ísleif- ur tæpum 500 toimum. Þór Vil- hjálmsson, verkstjóri í Vinnslu- stöðinni, segir að sflöin hafi hleypt miklu lífl í fyrirtækið. Síldin er öll flökuð og fryst og er flakaö allan sólarhringinn og unniö við pökkun frá kl. 8 ó morgnana til 5 og 7 á kvöldin. „Þetta er ágæt síld, stór og þokkalega feit, og gengur vel að viima hana," sagði Þór.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.