Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1995, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1995, Qupperneq 28
40 MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 1995 Meiming Geiser. Verk eftir Antonio Hervás Amezcua. Draumveru- leiki i Ijosa- skiptum - Antonio Hervás Amezcua í Listhúsinu Laugardal Það er fremur óalgengt að sjá sýningu hér á landi þar sem sannfær- andi dýpt er í túlkun hins óræða svæðis á mörkum landslags og af- strakts, þess draumkennda og þess jarðbundna. Á sínum tíma vöktu súr- realistar máls á því að tilgangur listamannsins hlyti að vera sá að af- hjúpa þetta leyndardómsfulla svæði í tíma og rúmi þar sem hinar miklu andstæður renna saman í eitt og skapa eins konar draumveruleika. Þann- ig gæti listamaðurinn starfað á svipuðum forsendum og gullgerðarmaður miðalda sem breytti óæðri málmum í guli og leitaði andlegra sanninda í heimi efnisins. Spænski listamaðurinn Antonio Hervás Amezcua, sem á laugardag opnaði sýningu í Listhúsinu í Laugardal og sýnir jafnframt verk í Loftkastalanuin í Héðinshúsinu, vinnur að mörgu leyti út frá þess- um forsendum í málverkum sínum og höggmyndum. Handan yfir mörk tíma og rúms í málverkunum blasir við órætt landslag og draumkennt og höggmynd- imar eru bræðingur þekktra myndbrota og ókennilegs flaums sem vísar í sénn á óhamda náttúra og ólgandi tilfmningar. Það er e.t.v. einmitt vegna þess hve tilfinningar era áberandi í verkum Hervás sem þær virka framandlegar í hérlendu samhengi þar sem rökvís einfaldleiki og fyrir- fram skipulögð vinnubrögð eru jafnan í fyrirrúmi. Mörg verkanna hafa tilvísanir til íslenskrar náttúru, jafnt í titlum sem formi og lit. Hins veg- ar hefur listamaðurinn sjálfur upplýst að hann var farinn að mála „ís- lenska" náttúru áður en hann kom til landsins í fyrsta sinn fyrir um það bil tveimur áram. Slík vinnubrögð, þar sem saman fara næmi og trú á mátt ímyndunaraflsins handan yfir mörk tíma og rúms, eru sjaldséð og í því liggur styrkur sýningarinnar. Hulduheimar og óhamin orka Á sýningunni era alls 45 verk. Þar af era 26 málverk, 15 skúlptúrar og 4 grafíkverk. Sum málverkanna sýndi Antonio á liðnu ári í Portinu í Myndlist Ólafur J. Engilbertsson Hafnarfirði, en hann dvaldi þá um hríð í Straumi og vann þar verk inn- blásin af íslensku landslagi og hulduheimum þess. Málverk númer 18, Náttúruöfl tímans, var t.a.m. unnin hér á landi á síðasta ári. Þar birtist hvað skýrast hæfileiki Hervás til að túlka mörk draums og veruleika þar sem ljósaskiptin draga fram óræðar myndir. Tvö ljós að nóttu (nr. 8) er einnig glögt dæmi um þess konar ljósaskiptabirtu og er auk þess athyglis- verð fyrir það hvemig listamaðurinn nær að sætta hrópandi andstæður í verkum sínum, grófa og óhamda náttúraorku og finlega mýkt sem minnir um margt á vinnubrögð samlanda hans, Dalís, þrátt fyrir að út- koman sé til muna sjálfsprottnari hjá Hervás. SkUggi af bláu (nr. 13) er svo vísbending um að listamaðurinn er síður en svo fastur í því að jarð- binda myndir sínar og leyfir sér að vera á ókennilegu fljótandi róli. Skúlp- túramir era fjölbreytilegir að gerð. Flug (nr. 33) vekur athygli fyrir fal- lusarformið og ímyndir tengdar lífi og dauöa. Samsettar afsteypur smá- gerðra fundinna höggmynda í flæðandi flaumi spanskgræns eirsins gerir skúlptúrana í senn margræða og einfalda, aðgengilega og þó ekki. Hér er Hervás í mun táknsæislegri stellingum en í málverkunum. Grafíkverk- in fjögur eru svo.enn einn meiðurinn í fjölbreyttri listgerð Spánveijans. Þar fá hið meðvitaða og hlutbundna teikning og hin sjálfsprottna ámóta vægi. Óöur til Machado (nr. 4) er t.a.m. athyglisvert verk fyrir litaspil og dýpt í einfaldri útfærslu þar sem teikningin er í meginhlutverki. Sýn- ingin í Listhúsinu stendur tíl 30. október. Leikhús ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sfmi 551 1200 Stóra sviðið kl. 20.00. ÞREKOG TÁR eftir Ólaf Hauk Símonarson 9. sýn. fid. 19/10, uppselt, föd. 20/10, upp- selt, fimmtud. 26/10, aukasýn., laus sœti, Id. 28/10, uppselt, fid. 2/11, nokkur sœti laus, Id. 4/11, nokkur sœti laus, sud. 5/11. STAKKASKIPTI eftir Guðmund Steinsson Ld. 21/10, löd. 27/10. KARDEMOMMUBÆRINN ettir Thorbjörn Egner Frumsýning Id. 21 /10 kl. 13.00, sud. 22/10 kl. 14.00, sud. 29/10 kl. 14.00, sud. 29/10 kl. 17.00, Id. 4/11 kl. 14.00, sud. 5/11 kl. 14.00. Litla sviðið kl. 20.30. SANNURKARLMAÐUR eftir Tankred Dorst 5. sýn. mvd. 18/10, nokkur sœti laus, 6. sýn. Id. 21/10,7. sýn. sud. 22/10,8. sýn. 26/10,9. sýn. sud. 29/10. Smíðaverkstæðið kl. 20.00 TAKTU LAGIÐ, LÓA! eftir Jim Cartwright Fid. 19/10, nokkur sœti laus, föd. 20/10, upp- selt, mvd. 25/10, Id. 28/10, mvd. 1/11, Id. 4/11, sud. 5/11. Listaklúbbur leikhúskjallarans Mánd. 16/10 kl. 21.00. Miöasalan er opin alla daga nema mánu- daga frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýn- ingardaga. Einnig simaþjónusta frá kl. 10 virka daga. Greiöslukortaþjónusta. Fax: 5611200 Sími miðasölu: 5511200 Sími skrifstofu: 551 1204 VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐI Safnaðarstarf Árbæjarkirkja: Opið hús.öldrunarstarfs. á mánudag kl. 13.30-16.00. Fótsnyrting: Tímapantanir hjá Fjólu í síma 5574521. Foreldramorgnar í safnaðarheimilinu þriðjudaga kl. 10-12. Fundur fyrir stelpur og stráka 9-10 ára á m'ánudögum kl. 17-18. Hjónaband Þann 13. maí voru gefin saman í hjónaband í Ytri-Njarðvíkurkirkju af séra Jónu Kristínu Þorvaldsdóttur Vala Heiða Guðbjartsdóttir og Einar Friðriksson. Þau eru til heimilis að Þórastíg 4, Njarðvik. Ljósm. Nýmynd, Keflavík. Þann 3. júní vora gefin saman í hjónaband í Grindavíkurkirkju af séra Jónu Kristínu Þorvaldsdóttur Sólný Ingibjörg Pálsdóttir og Sveinn Ari Guðjónsson. Þau eru til heimilis í Pálshúsi, Grindavík. Ljósm. Nýmynd, Keflavík. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Stóra sviðkl. 20.30. Rokkóperan Jesús Kristur SUPERSTAR eftir Tim Rice og Andrew Lloyd Webber Miövikud. 18/10,40. sýn. sunnud. 22/10, kl. 21. LÍNA LANGSOKKUR eftir Astrid Lindgren Lau. 21/10 kl. 14, fáein sætl laus, sunnud. 22/10 kl. 14, fáein sæti laus, og kl. 17, fáeln sæti laus. Litia svið kl. 20: HVAÐ DREYMDI ÞIG, VALENTÍNA? eftir Ljúdmílu Razumovskaju Fim. 19/10, uppselt, föstud. 20/10, uppselt, laud. 21/10, uppselt. Stóra svið kl. 20: TVÍSKINNUNGSÓPERAN Gamanleikrit með söngvum eftir Ágúst Guðmundsson 4. sýn. fim. 19/10, blá kort gilda, 5. sýn. lau. 21/10, gul kort gilda. Stóra svið kl. 20: VIÐ BORGUM EKKI, VIÐ BORGUM EKKI ettir Dario Fo Fös. 20/10. Samstarfsverkelni: Barf lugurnar sýna í veltingastofu fkjallarakl. 20.30. BAR PAR eftir Jim Cartwright Forsýning fim. 19/10 kl. 21, uppselt, forsýn. föstud. 21/10 kl. 21, uppselt, frumsýning lau. 21/10 kl. 20.30, uppselt, fös. 27/10, iau. 28/10. Tónleikaröð LR: Alltaf á þriðjudögum kl. 20.30. Þri. 17/10, Snlglabandið, afmæl- istónleikar, miðav. 800 kr. Þri. 24/10, Rannveig Friða Braga- dóttir, Pétur Grétarsson og Chal- umeaux-tríóið. Miðaverð 800. Tónleikar Jónas Árnason og Keltar Mán. 16/10 kl. 20. Mlðaverð 1.000. Miðasalan er opin alla daga frá kl. 13-20 nema mánudaga frá kl. 13-17, auk þess er tekiö á móti miðapöntun- um í síma 568-8000 alla virka daga. Greiðslukortaþjónusta. Gjafakortin okkar, frábær tækifærisgjöf. Leikfélag Reykjavikur - Borgarleikhús Faxnúmer 568-0383. Þann 22. júlí voru gefin saman í hjónaband í Minjasafnskirkjunni á Akureyri af séra Þórhalli Höskulds- syni Hólmfríður Þóroddsdóttir og Darran Stonham. Þau eru til heimil- is að Neshaga 12, Reykjavík. Ljósmst. Páls, Akureyri. AIIIH 904-1700 Verö aðeins 39,90 mín m u A) U Handbolti Körfubolti Enski boltinn ítalski boltinn Þýski boltinn Önnur úrslit NBA-deildin II Vikutilboö stórmarkaðanna Uppskriftir : lj Læknavaktin 2 j Apótek 3J Gengi '11 Dagskrá Sjónvarps 2\ DagskráStöðvar2 /31 Dagskrá rásar 1 41 Myndbandalisti vikunnar - topp 20 5j Myndbandagagnrýni 6 ísl. listinn -topp 40 7] Tónlistargagnrýni 8 Nýjustu myndböndin 1 Krár 2 i Dansstaðir 3 [ Leikhús 41 Leikhúsgagnrýni .5J Bíó 6 1 Kvikmyndagagnrýni lj Lottó 2; Víkingalottó 3j Getraunir numer 904-1700 Verð aðeins 39,90 mín.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.