Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1995, Blaðsíða 30
42
MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 1995
Afmæli
Karen Erla Erlingsdóttir
Karen Erla Erlingsdóttir, Mána-
tröð 18, Egilsstöðum, er fertug í
dag.
Starfsferill
Karen fæddist á Fáskrúðsfirði og
ólst þar upp í foreldrahúsum. Hún
stundaði nám við Alþýðuskólann á
Eiðum 1968-71, lauk stúdentsprófi
frá MR1975, stundaði nám við
íþróttaháskólann í Köln og lauk
þaðan mastersprófi í íþróttafræð-
um 1981, stimdaði nám við Leið-
sögumannaskóla íslands 1987 og
stundaði íþróttaframhaldsnám í
stjórnun og markaðsfræði við
íþróttaháskólann í Ósló 1989-90.
Karen stundaði fiskvinnslu á Fá-
skrúðsfirði á námsárunum, var
kennari við Grunnskólann á Fá-
skrúðsfirði 1981, kenndi við íþrót-
takennaraskóla íslands 1981-89 og
vann á samyrkjubúi í ísrael sumar-
ið 1986, var íeiðsögumaður á íslandi
á sumrin frá 1986, var ferðamála-
fulltrúi Austurlands 1990-94 en
hefur rekið upplýsingamiðstöðina
á Egilsstöðum sl. sumar, auk þess
sem hún hefur, jafnframt heimilis-
störfum, sinnt ýmsum sérverkefn-
um.
Karen hefur æft ýmsar íþrótta-
greinar frá því á unglingsárum hjá
íþróttafélaginu Leikni á Fáskrúðs-
firði, keppti í júdó og knattspymu
í Þýskalandi á námsánmum, hefur
þjálfað í fijálsum íþróttum á Fá-
skrúðsfirði og víðar.
Karen sat í nemendaráði MR, í
stjóm íþróttafélagsins á Laugar-
vatni, hefur starfað á vegum Fram-
sóknarflokksins, setið í stjóm kjör-
dæmasambands flokksins á Aust-
urlandi og var formaður þess
1993-94 og var varaþingmaður
1991-95.
Fjölskylda
Karen giftist sl. laugardag Bimi
Ingvarssyni, f. 16.8.1952, verkefna-
stjóra hjá Rafmagnsveitunum.
Hann er sonur Ingvars Ingvarsson-
ar, bónda á Desjarmýri í Borgar-
firði eystra', sem er látinn, og k.h.,
Helgu Bjömsdóttur húsfreyju sem
nú er búsett á Egilsstöðum.
Sonur Karenar og Björns er Úlfur
Bjömsson, f. 1.6.1994.
Bræður Karenar em Guðmund-
ur Karl Erlingsson, f. 17.10.1954,
flugmaður hjá Flugleiðum, búsett-
ur á Seltjamarnesi, kvæntur
Margréti Albertsdóttur og eiga þau
þrjá syni; Ástvaldur Anton Erlings-
son, f. 23.12.1957, rafmagnsverk-
fræöingur hjá Rafmagnsveitunum
á Egilsstöðum, kvæntur Signýju
Ormarsdóttur og em böm þeirra
Karen Erla Erlingsdóttir.
AuöurogAnton.
Foreldrar Karenar: Jón Erlingur
Guðmundsson, f. 18.3.1916, d. 4.6.
1976, sveitastjóri á Fáskrúðsfirði,
og k.h., Hulda Karlsdóttir, f. 28.3.
1922, húsmóðir, nú búsett í Reykja-
vik.
Orðsending til
stjórnarformanna og forstjóra
Nú líður að því að hlutafélög þurfi að breyta samþykktum
sínum vegna lagabreytinga sem urðu í lok árs 1994.
Undirritaður býðst til að aðstoða við það starf enda sé
haft símasamband með nægum fyrirvara.
Páll Skúlason hdl.,
Sólvallagötu 41,
sími 552-0868, kl. 9-11 f.h.
n
UTBOÐ
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum
í byggingu 3. áfanga Ölduselsskóla.
Útboðið nær til jarðvinnu, uppsteypu og utanhússfrágangs.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykja-
vík, gegn 15.000 króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 24. október 1995,
kl. 11.00 f.h.
bgd 91/5
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - sími 552 58 00
ímarit fyrir alla
Á NÆSTA SÖLUSTAÐ
SÍMA 563 2700
Einn glæsilegasti og öflugasti
sportbíll landsins til sölu:
I—IE
F=3CZIF=II
944 Túrbó
Árg. “86, Ek. 60 þ. km„ Toppl., leður, nýl. sumard./vetrard„ álf. o.m.fl.
Uppl. í síma 567 3131 Bílabatteríinu, Bíldshöfða 12.
Verð: 2.200.þ.
Stgr. verð: 1.550.þ.
Guðný Sigurðardóttir
Guðný Sigurðardóttir, Brautar-
landi 22, Reykjavík, er sextug í dag.
Starfsferill
Guðný fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hún lauk gagnfræðaprófi
frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar.
Guðný starfaði hjá Trygginga-
stofnun ríkisins og stundaði versl-
unarstörf en hefur sl. fimmtán ár
verið fjármálastjóri hjá Steinprýði
hf.
Hún hefur átt heima í Reykjavík
alla tíð, er virkur félagi í Odd-
fellow-reglunni og er einn af stofn-
endum félagsins Fífur sem er félag
eiginkvenna flugvirkja.
Fjölskylda
Guðný giftist 10.5.1958 Elíasi
Agh Guðmundssyni, f. 30.6.1934,
flugvirkja og framkvæmdastjóra.
Hann er sonur Guðmundar H. In-
gjaldssonar sem er látinn, og Ág-
ústínuElíasdóttur.
Fósturforeldrar Elíasar Egils
voru Ingólfur Einarsson og Gúð-
laug Líney Jónsdóttir sem bæöi eru
látin.
Börn Guðnýjar og Elíasar Egils
eru Guðlaugur Ágúst, f. 14.4.1958,
flugvirki en sambýliskona hans er
Guðrún Júlíusdóttir og er dóttir
þeirra Lilja Björk Kjartansdóttir;
Kristján, f. 10.2.1962, framleiðslu-
stjóri en sambýliskona hans er Ses-
selja Jónsdóttir; Erla, f. 14.1.1964,
húsmóðir, en sambýlismaður
hennar er Gunnar Hjálmarsson og
eru böm þeirra Birgitta, f. 1990 og
Egill, f. 1993; Elías Egill, f. 17.1.1974,
flugnemi.
Systkini Guðnýjar eru Sigurrós;
Pálína Matthiidur; Árný; Guö-
mundur Helgi; Svanhildur; Páll
Valgeir.
Foreldrar Guönýjar voru Sigurð-
ur Guðmundsson, f. 13.9.1893, d.
1977, verkamaður í Reykjavík, og
k.h„ Kristjana Sigurást Helgadótt-
Guöný Sigurðardóttir.
ir, f. 9.9.1896, d. 1974, húsmóðir.
Guðný og Elías taka á móti gest-
um í félagsheimili flugvirkja, Borg-
artúni 22, Reykjavík, í dag, 16.10.,
kl. 17.00-19.00.
85 ára
Jenný L.S, Olsen Jónsson,
Langholtsvegiæ, Reykjavík.
HaHfríður Þorstelnrsdóttir,
Hjarðartúni 3, Snæfellsbæ.
75ára
Ríkharður Ssemundsson,
Stekkjarholti 14, Akranesi.
Laufey Tómasdóttir,
Grandavegi 47, Reykjavík.
Christel Hildegard Ágústsdóttir,
Safamýri 43, Reykjavík.
Ingibjörg Guttormsdóttir,
Langholtsvegi 104, Reykjavík.
Erna Rós-
mundsdóttir
húsmóðir,
Hverfisgötu 6,
Siglufirði.
Eiginmaður
Ernu var Jó-
hannRögn-
valdsson bif
reíðastjóri sem lést 1994.
Ernaeraðheiman.
Guðfinna Sigurðardóttir,
Lindargötu 6, Sigluflrði.
Ingólfur Jónsson,
Mörk, Kelduneshreppi.
60 ára
Hilraar Rósmundsson,
fyrrv. skipstjóri og útgerðarmaður,
Boðaslóð23,
Vestmannaeyj-
um.
Gunnar L. Hjartarson,
Reykjamörk 14, Hveragerði.
Helga Gunnarsdóttir,
Baldursbrekku l, Húsavík.
Þórunn Einarsdóttir,
Njálsgötu 84, Reykjavík.
Nanna Sigríður Ottósdóttir,
Smyrlahrauni 44, Hafnarflrði.
Hilmarvonastíil
aösjásemflesta
viniogvanda-
menníAkóges-
húsinuíVest-
mannaeyjum
laugardagjnn
21.10. kl. 20.00.
50ára
Guðmundur Jónsson,
Stóru-Ávík, Ámeshreppi.
Anna Sverrisdóttir,
Kleifarseli 12, Reykjavík.
ara
Ásbjörn Sigurðsson,
Réttarholti 1, Selfossi.
Guðrún G. Sigurbjörnsdóttir,
Einigrund 18, Akranesi.
Ásdís Marion Gisladóttir,
Kjarrhólma 32, Kópavogi.
Indriði Birgisson,
Blöndubakka 1, Reykjavik.
Sigurjón Guðmundsson,
Yrsufelli 8, Reykjavík.
Vilberg Rúnar Jónsson,
Kommu, Eyjaijarðarsveit.
Karólína Guðrún Jónsdóttir,
Bölum 23, Vesturbyggð.
Sigrún B. Valdimarsdóttir,
Dæli, Þorkelshólshreppí.
GísliBjörnsson,
raðhúsi 1, Heiðarskóla, Leirár- og
Melahreppi.
Aðaiheiður Hagar Haraldsdóttir,
. Berjarima6, Reykjavík.
Sigriður Hjartardóttir,
Espilundi 16, Akureyri.
Edda Kristinsdóttir,
Grettisgötu 49, Reykjavík.
Bryndís Jóhannesdóttir,
Urriöakvísl 22, Reykjavík.