Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1995, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1995, Síða 2
.2 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1995 Fréttir Pálmi Matthíasson um skoðanakönnun DV: Ber að íhuga niður- stöðuna og þakka Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Þaö væri ósatt af mér að segja að þessar fréttir hrærðu ekki huga minn,“ segir séra Pálmi Matthiasson, sóknarprestur í Bústaðaprestakalli í Reykjavík, um niðurstöðu skoðana- könnunar DV um forsetaframbjóð- endur sem birtist í blaðinu í gær. í þeirri könnun nefndu flestir Pálma sem þann sem þeir vildu helst sjá sem arftaka Vigdísar Finnbogadótt- ur í embætti forseta íslands. „Ég hef ávallt Utið með mikilU virð- ingu til embættis forseta íslands og þess að það sé vel skipað. Ég hef ekki í neinni alvöru hugsað mér sjálfan mig í þessu embætti og frekar Utið á það sem leik hjá fólki að nefna nafn mitt í því sambandi," segir Pálmi. í skoðanakönnun DV nefndu 22,3% nafn Pálma sem þann sem þeir vUdu sjá sem næsta forseta íslands, Guð- rún Agnársdóttir hlaut 20,3%, Davíð Oddsson 15,1%, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 10,6% en aðrir minna en 10%. Pálmi segir það satt að haft hafi verið samband við sig varðandi þaö að gefa kost á sér til embættisins. „Ég neita því ekki að ýmsir hafa minnst á það við mig en ég hef ekki tekið því af mikilU alvöru. Það virðist ljóst aö mörgum er meiri alvara með þetta en mér en mér ber auðvitað aö íhuga þessa niöurstöðu og þakka,“ segir Pálmi. Séra Pálmi Matthiasson ásamt eiginkonu sinni, Unni Olafsdóttur. Guörún Agnarsdóttir læknir ásamt manni sínum, Helga Þresti Valdimars- syni. Skoðanakönnun DV um forsetaframbjóðendur: Presturinn og læknirinn sem njóta mestrar hylli Séra Pálmi Matthíasson hafnaði í efsta sæti í skoðanakönnun DV um það hvern fólk teldi vænlegastan til aö taka sæti Vigdísar Finnbogadótt- ur á Bessastöðum þegar fjórða kjör- tímabiU hennar lýkur, eins og fram kom í DV í gær. Fast á hæla Pálma kemur Guðrún Agnarsdóttir læknir sem sat um árabil á Alþingi fyrir KvennaUstann. Séra Pálmi hlaut 21,6 prósenta fylgi eða rétt rúmu prósenti meira en Guðrún, sé tekið miö af þeim sem tóku afstöðu. En hveijir eru þessir einstakUngar sem njóta trausts svo margra til að skipa sæti forseta íslands? Pálmi Matthíasson fæddist þann 21. ágúst 1951 á Akureyri og er því 45 ára gamaU. Hann ólst upp á Akur- eyri og varð stúdent frá Mennta- skólanum þar árið 1971 og lauk emb- ættisprófi í guðfræði frá Háskóla ís- lands árið 1977. Fréttamaður, lögreglumaður og prestur Pálmi var sóknarprestur í Melstað- arprestakalU í V-Húnavatnssýslu á árunum 1977 til 1981. Árið 1982 gerð- ist hann sóknarprestur í Glerár- prestakaUi á Akureyri þar sem hann þjónaði til ársins 1989. Sama ár gerð- ist hann sóknarprestur í Bústaöa- prestakalU þar sem hann þjónar enn. Hann hefur starfað sem fréttamað- ur á Ríkisútvarpinu og lögreglumað- ur hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins. Þá hefur hann verið virkur í félags- starfi þjóökirkjunnar og íþrótta- hreyfingarinnar. Eiginkona Pálma er Unnur Ólafs- dóttir skrifstofumaður og þau eiga eina dóttur, Hönnu Maríu. Læknir og þingkona Guðrún Agnarsdóttir læknir, sem fylgdi fast á hæla Pálma í skoðana- könnun DV, er 55 ára gömul. Hún fæddist 2. júní árið 1941 í Reykjavík þar sem hún ólst upp. Hún lauk stúd- entsprófi frá Verslunarskóla íslands árið 1961 og embættisprófi í læknis- fræði frá Háskóla íslands árið 1968. Hún var við nám og störf í Englandi á árunum 1970 til 1981. Guðrún er sérfræðingur í veirufræði og hefur tekið virkan þátt í ráðstefnum um veiru- og ónæmisfræði víðsvegar um Evrópu. Hún starfar nú sem sérfræð- ingur í veiru- og ónæmisfræði við Rannsóknastofnun Háskólans að Keldum. Guðrún var kjörin á Alþingi fyrir Kvennahstann árið 1983 þar sem hún sat til ársins 1991 þegar hún hvarf af þingi vegna útskiptareglu Kvennalistans. Guðrún er gift Helga Þresti Valdi- marssyni, lækni og prófessor í ónæmisfræðum við Háskóla íslands. Guðrún og Helgi eiga þrjú böm. Þau eru: Bima Huld, Agnar Sturla og Kristján Orri. -rt Þú getur svaraö þessari spurningu meO þvi aO hringja í síma 904-1600. 39,90 kr. mínútan. Já Q Ato/gj r ö d d 904-1600 Á að leyfa hundahald í fjölbýlishúsum? AIH* < HXnw ti«rflnu m»6 tónvaUtíma gata nýtt gér jiggsa f>J6na«tu. Aíli togara fyrstu 8 mánuðina: Frystitogarinn Arnar HU með mesta verðmætið - Asbjöm RE langhæstur ísfisktogara Frystitogarinn Amar HU, sem seldur hefur verið til Grænlands, er með mesta aflaverðmæti frystitogara fyrstu átta mánuði ársins. Skipið er með 371 millón króna en fast á hæla honum koma Baldvin Þorsteinsson EA með 355 mihjónir en að baki ligg- ur mesti afli íslenskra togara eða 4.860 tonn. Guðbjörg IS er í þriðja sæti með 349 milijónir króna. Af ísfisktogurum er Ásbjörn RE langhæstur með afla sem nemur 4.169 tonnum að verðmæti 206 millj- ónir króna. Þetta kemur fram í toga- raskýrslu LÍÚ. -rt Stóra fíkniefnamálið: Aðalmaðurinn gaf sig fram Eigandi eiturlyfianna, sem toll- gæslan á Keflavíkurflugvelli tók í síðustu viku, hefur nú verið úrskurðaður í gæsluvarðhald ti) 2. nóvember, Hann hringdi í fíkniefnalögregluna skömmu eft- ir að eitrið fannst og var handtek- inn. Maðurinn mun hafa átt að taka á móti efninu, tveimur kflóum af hassi og einu af amfetamfni, skammt frá keflavikúrflúgvelli eftir að Breti nokkur kom með það til landsins. Bretinn naut aðstoöar konu við flutningana og hafa þau bæði verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 25. október. Fíkniefnalögreglan vinnur enn að rannsókn málsins. -GK Leiðrétting: Kraf an var 80 prósent í viðtali við Þórarin V. Þórar- insson, framkvæmdastjóra Vinnuveitendasarabands íslands, var ranglega eftir honum haft að Flugfreyjufélag islands hefði knúið fram 80 prósent kaup- hækkun. Hið rétta er að félagið gerði kröfursem fólu í sér 80 pró- senta launahækkun. Þórarinn er beðinn velviröingar á þessum mistökum. Stuttar fréttir Fjárfrekarviðgerðir Viðgerðir á lögreglubílnum á Siglufirði hafa kostað ríkið um 400 þúsund krónur á árinu. Skv. RUV er bíllinn nú á verkstæði. MilUarðarfuðraupp íslendingar eyða tæplega 5 milljörðum króna í tóbak á ári. Skv. Mbl. renna um 3 milljarðar af þessari upphæð til ríkisins. sameinast Stofnfundur lifeyrissjóðsins Framsýnar var haldinn í gær. í sjóðnum sameinast lífeyrissjóðir 7 stéttarfélaga. Sjóðwinn tekur formlega til starfa um áramótin og verður einn stærsti lífeyris- sjóður landsins. Margir með iðraveiru Óvenjumargir haía sýkst af heilahimnubólgu að undanfórnu eða fengiö útbrot á hendur, fætur og i munn. Skv. RÚV veldur iðra- veira sýkingunni. EmeraldAir borgarekki Starfsemi Lífeyrissjóðs bænda hefur verið tekin til gagngerar endurskoðunar. Skv. Stöð tvö þykir sýnt að Emerald Air muni ekki greiða neitt af stórláni sínu til baka. Kirkjuþing hefst í dag Kirkjuþing verður sett í Reykjavík í dag. Þingið sitja bisk- up, 11 prestar, 9 leikmenn ogfull- trúi kirkjumálaráðherra. Beiðni hafnað Útvarpssijóri ætlar ekki að veröa við þeirri beiðni aðalstjórn- anda Sinfóniuhljómsveitarinnar að leysa Guðmund Emilsson, tón- listarráðunaut RÚV, frá verkefn- um sem lúta að samskiptum við hljómsveitina. Sjónvarpið greindifráþessu. -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.