Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1995, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1995, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1995 Fréttir Formaður sóknamefndar Áskirkju mótmælir forstjóra Kirkjugarða Reykjavíkur: 71 ára kona hrakin út f yrir rekstrarstjórann - visa ummælum forstjórans um dómgreindarskort til föðurhúsanna „Ég lagði fram tillögu um að komið yrði í veg fyrir að 71 ára kona yrði hrakin út til að hægt yrði að hlúa aö rekstrarstjóranum næstu þrjú árin, manni sem er á ágætis launum. Að bregðast við til- lögunni um að endurskoða ákvörð- unina með því að væna flutnings- menn hennar um dómgreindars- kort vísa ég til fóðurhúsanna," sagði Bjöm Kristmundsson, form- aður sóknarnefndar Áskirkju, í samtali við DV um málefni Kirkju- garða Reykjavíkur. Eins og fram kom í DV í síðustu viku samþykkti héraðsfundur Reykj avíkurprófastsdæmis vestra að skora á stjórn Kirkjugarðanna að endurskoða þá ákvörðun um aö segja Kristínu Halldórsdóttur upp húsnæði hennar að Kirkjuhvoli 2. Maður hennar starfaði um árabil sem garðyrkjustjóri Kirkjugarð- anna en nú starfar sonur hennar hjá stofnuninni. Kristín er hins vegar þekkt fyrir fórnfúst starf í þágu kirkjugarðanna á öllum tím- um sólarhringsins. Þórsteinn Ragnarsson forstjóri sagði við DV í síðustu viku að einn fundarmanna hefði sýnt af sér það dómgreindarleysi að leggja fram erindið á héraðsfundi sem væri ekki réttur vettvangur fyrir slíkt. Bjöm Kristmundsson, sem lagði fram tiUöguna, vísar þessu á bug, sérstaklega í ljósi þess að á dagskrá héraðsfundar hélt Þórsteinn sjálf- ur ræöu um starfsemi þeirra. „Ekki dettur mér í hug að væna fundarstjórann, sem er varafor- maður framkvæmdastjórnar kirkjugarðanna, um dómgreind- arskort - þó að hann hafl hlaupið á sig með því að ætla að vísa tillög- unni frá í valdi fundarstjóra," sagði Bjöm. „Héraðsfundur er eðlilegur vettvangur enda var tillagan flutt undir liðnum „önnur mál“. Hún var síðan samþykkt með tólf at- kvæöum gegn einu atkvæði fund- arstjórans,“ sagði Björn Krist- mundsson. -Ótt Nýr bátur í f lota Flateyringa Guðmundur Sigurðsson, DV, Flateyii; „Með þessum kaupum tvöfóldum við kvótaeign fyrirtækisins sem gef- ur okkur aukið svigrúm og tryggir hráefnisöflun til frystihússins yfir skammdegistímann,“ sagði Hinrik Kristjánsson, framkvæmdastjóri Kambs hf. Nýlega bættist 105 rúmlesta yfir- byggður stálbátur í flota Flateyringa þegar Jóhannes ívar ÍS 193 kom til nýrrar heimahafnar á Flateyri. Jó- hannes ívar er annar af tveimur skipum sem fiskvinnslan Kambur hf. á Flateyri hefur keypt af ísnesi hf. í Reykjanesbæ og með þeim um 700 þorskígildistonna aflaheimildir. Kaupin styrkja mjög stöðu frystihúss fyrirtækisins. Jóhannes ívar, sem er smíðaður í Noregi 1969 og yfirbyggur og end- urnýjaður 1989, mun fljótlega fara á linuveiðar. Skipstjóri verður Brynj- ólfur Garðarsson og Halldór Traustason yfirvélstjóri. Stýrimaöur og matsveinn komu með bátnum úr Reykjanesbæ. Jóhannes ívar ÍS 193 kemur fánum prýddur til heimahafnar á Flateyri. DV-mynd Guðmundur Fíflholt: Förgunhf.villfá skýrsvörstrax Daníel Ólafeson, DV, Akranesi: Samtök sveitarfélaga á Vestur- landi hafa lagt fram tilboð í jörð- ina Fíflholt sem er i eigu þriggja einstaklinga á Vesturlandi og þarf að svara þvi íýrir klukkan 16 í dag. Eigendur Fíflholts, sem jafn- framt eiga Förgun hf„ hafa lagt fram fyrirspurn til Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi vegna kauptilboðsins um hvort þau séu tilbúin aö semja við Förgun hf. um uröun á sorpi, Þeir vilja svar klukkan 12 á hádegi í dag í dag mælir Ðagfari Steingrímur sigraði Dagfari getur ekki látið hjá líða að óska Steingrími J. Sigfússyni til hamingju með formannskosning- arnar í Alþýðubandalaginu. Stein- grímur hlaut hundrað atkvæðum minna en Margrét Frímannsdóttir og náði þar með ekki kosningu. En hann sigraði samt, eftir því sem Margrét segir. Þetta var stórsigur segir Margrét, hún sigraði, Stein- grímur sigraði og Aiþýðub'andalag- ið sigraði. Enda brutust út mikil fagnaðarlæti þegar í ljós kom að Margrét hafði fengiö fleiri atkvæði en Steingrímur. Margir héldu fyrst að þetta væru fagnaöarlæti vegna þess að Margrét varö ofan á en hún leiðrétti fljótt þann misskilning og Steingrímur staðfesti þann skiln- ing Margrétar strax á eftir. Steingrímur fór með vísur og gamanmál og sagðist hafa haft tvær ræður tilbúnar. Aðra ef hann fengi fleiri atkvæði, hina ef hann fengi færri atkævði. Gaman hefði verið að heyra hina ræðuna, þá sem Steingrímur flutti ekki. Hún hlýtur að hafa verið góð og fyndin miðað við hvað hann var ánægður yfir J)ví að tapa. Sem var vegna þess að hann sigraði þótt hann hefði tapað. Nú er maður að velta því fyrir sér til hvers öll þessi kosningabar- átta fór fram í allt heila sumar ef báðir mundu hvort sem er sigra, hvemig svo sem kosningin færi. Var verið að gabba fólk? Var verið að láta fólk í Alþýðubandalaginu halda allan þennan tíma að kosn- ingin skipti máli og þaö væri ekki sama hver yrði kosinn formaður þegar það kom svo út á eitt hver vann? Frambjóðendurnir sigruðu báðir og raunarttendur Steingrím- ur Sigfússon uppi sem sigurvegari vegna þess að hann tapaði. Hvers vegna? Jú, Steingrímur losnaði við að verða formaður. Hann, losnaöi úr álögum eftir því sem hann segir sjálfur. Nú þarf hann ekki að fara bil beggja og lát- ast hafa skoðanir sem hann hefur ekki. Nú getur hann veriö hann sjálfur, segir Steingrímur, og nú loksins getur hann verið í pólitík fyrir sjálfan sig. Hingað til hefur hann þurft að vera í pólitík fyrir aðra og það er auðvitað óskaplegt böl fyrir venjulegan stjórnmála- mann að stunda pólitík fyrír aöra. Og svo stendur AlþýðUbandalag- ið miklum mun sterkara á eftir þegar kosningaúrsht verða þau að Steingrímur tapar. Þetta er sigur fyrir Alþýðubandalagið, segir Margrét, nýkjörinn formaður, og er ákaflega glöö yfir því að Stein- grímur skyldi hafa tapað. Það styrkir flokkinn. Og Steingrímur er himinlifandi yfir því að geta þannig styrkt flokk- inn meö því að tapa í formanns- kosningu. Þannig hefur hann lagt sitt af mörkum til að styrkja flokk- inn. Það verður aldrei nógsamlega þakkað hve margir taka þátt í stjórnmálum, og í þessu tilviki í störfum Alþýðubandalagsins, og leggja það á sig að standa í kosn- ingabaráttu í marga mánuði til þess eins aö tapa í kosningum til að styrkja sinn flokk. Sér í lagi er þetta athyglisvert í ljósi þess aö sigurvegarinn er sá sem tapar og með því að tapa til að sigra getur sá hinn sami orðiö hann sjálfur á nýjan leik. Ef alla- ballar hefðu kosið Steingrím heföi hann þurft að vera áfram annar en hann sjálfur og ahaballar hefðu aldrei uppgötvað hvaða mann Steingrímur hefur að geyma. Stein- grímur stóð í þessari kosningabar- áttu án þess að vera hann sjálfur og þurfti að hafa skoðanir sem eru allt aðrar en hann sjálfur hefur. Mikil guðs blessun er það fyrir Steingrím og flokkinn að hann skyldi tapa. Annars hefðu ahaball- ar setið uppi meö allt annan Stein- grím heldur en þann Steingrím sem Steingrímur er. Það fer ekki á miUi mála að það var ekki Margrét sem sigraði í formannskosningunni, að minnsta kosti ekki sú Margrét sem flokks- menn kusu. Það var Steingrímur J. Sigfússon sem sigraði með því að tapa. Enda gladdist hann mjög. Dagfari I I Nissan Almera er búin háþróuðu þjófavarnakerfi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.