Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1995, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1995
7
Fréttir
0
-5
-10
-15
-20
-25
r \
tedhi Dg úyjjjiiíííjijijiij
25% F
20
15
10
5
Davíð
Oddsson
Halldór
Ásgrímsson
Jón Baldvin
Hannibalsson
Bornar eru saman
vinsaeldir og óvinsældir
tólf umdeildustu
stjómmálamannanna
samkv. skoðanak. DV.
Grænu súlumar sýna
niðurstöður skoðanak.
DV sem var framkvæmd
í júlí síðastliðnum.
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Margrét
Frímannsdóttir
Jóhanna
Sigur&ardóttlr
Ingibjörg
Pámadóttir
ÓlafurG.
Elnarsson
$
Skoianakönnun
ov
U
Skoðanakönnun DV á vinsældum stjómmálamanna:
Jón Baldvin óvinsælast-
ur en Davíð nálgast hann
- Friðrik Sophusson og Ingibjörg Pálmadóttir komin 1 hóp þeirra óvinsælustu
Davíð Oddsson forsætisráðherra
er vinsælasti stjórnmálamaður
lahdsins um þessar mundir en jafn-
framt einn af þeim óvinsælustu. En
þótt hrímköld kabyssan á stjórnar-
heimilinu gefi frá sér yl eru ýmsir
samráðherrar Davíðs úti í kuldanum
í hugum kjósenda. Á það meðal ann-
ars við um þau Ingibjörgu Pálma-
dóttur og Friðrik Sophusson sem nú
eru óvinsælli en nokkru sinni fyrr.
Þetta má lesa út úr skoðanakönnun
DV sem framkvæmd var í síðustu
viku.
Úrtakið í skoðanakönnuninni var
600 manns. Jafnt var skipt á milli
kynja og eins á milh landsbyggðar
og höfuðborgarsvæðisins. Spurt var:
„Á hvaða stjórnmálamanni hefur þú
mest áUt um þessar mundir?" og „Á
hvaða stjórnmálamanni hefur þú
minnst áUt um þessar mundir?"
Vinsældir
AUs 57,3 prósent aðspurðra tóku
afstööu til spurningarinnar um vin-
sælasta stjómmálamanninn. Til-
nefndir vora 35, þar af 14 með 4 til-
nefningar eða fleiri. í hópi vinsæl-
ustu stjórnmálamannanna eru 3
kratar, 10 framsóknarmenn, 11 sjálf-
stæöismenn, 5 alþýöubandalags-
menn, 3 kvennaUstakonur og 3 þjóð-
vakar.
Eins og í fyrri könnunum DV und-
anfarin misseri reyndist Davið Odds-
son vera vinsælasti stjómmálamað-
urinn, naut fylgis 36,9 prósenta
þeirra sem afstöðu tóku. Á hæla hans
kom HaUdór Ásgrímsson, með 19,8
prósent tUnefninga, og Jón Baldvin
Hannibalsson með 9,6 prósent. í
fjórða sæti vinsældalistans hafnaði
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, með 4,9
prósent tilnefninga, og í fimmta sæt-
inu hafnaöi Þorsteinn Pálsson með
3,5 prósent.
Ný á vinsældaUstanum er Margrét
Frímannsdóttir, með 3,2 prósent tíl-
nefninga, og hafnaði hún í sjötta
sætinu. PáU Pétursson, Jóhanna Sig-
urðardóttir og Steingrímur J. Sigfús-
son höfnuðu í 7. til 9. sæti, hvert um
sig með 2,6 prósent tUnefninga. í tí-
unda sætinu hafnaði síðan Svavar
Gestsson með 2,3 prósent tílnefninga.
Óvinsældir
Afstöðu til spurningarinnar um
óvinsælasta stjórnmálamanninn
tóku 52,3 prósent aðspurðra. Alls 31
stjórnmálamaður var tUnefndur, þar
Formenn stjórnarflokkanna, Halldór Ásgrímsson og Davíö Oddsson, stinga
saman nefjum í þinginu. DV-mynd GS
af voru 13 með 5 tUnefningar eða
fleiri. í hópi óvinsælustu stjórnmála-
mannanna eru 5 kratar, 8 framsókn-
armenn, 9 sjálfstæðismenn, 5 alþýðu-
bandalagsmenn, 2 kvennalistakonur
og 2 þjóðvakar.
Þótt verulega hafi dregiö úr óvin-
sældum Jóns Baldvins Hannibals-
sonar á undanförnum mánuðum er
hann enn óvinsælasti stjórnmála-
maðurinn. Af þeim sem afstöðu tóku
höfðu 23,2 prósent minnst áht á hon-
um, samanborið við 34,7 prósent' í
könnun sem DV framkvæmdi í júlí
síðastliönum. Á hæla hans kemur
Davíð Oddsson en 19,4 prósent þeirra
sem afstöðu tóku höfðu minnst áhta
á honum samanborið við 10,5 prósent
í júU. í þriðja sætinu hafnaði Ólafur
Ragnar Grímsson með 12,1 prósent
tilnefninga.
í könnun DV vermir Ólafur G. Ein-
arsson íjórða sætið á óvinsældaUst-
anum og í því fimmta er PáU Péturs-
son. í sjötta og sjöunda sætinu eru
þau Friðrik Sophusson og Ingibjörg
Pálmadóttir en þau eru bæði ný á
þessum vafasama Usta. Á eftir þeim
koma síðan þau Jóhanna Sigurðar-
dóttir, Finnur Ingólfsson og Ární
Johnsen. -kaa
Vinsælustu stjórnmálamennirnir
Innan sviga eru niöurstöður skoðanakönnunar DV í júlí 1995
Atkvæði Af úrtakinu Af þeimsem af- stöðu tóku
1. (1.) Davið Oddsson 127(147) 21,2% (24,5%) 36,9% (37,0%)
2. (2.) HalldórÁsgrímsson 68 (92) 11,3% (15,3%) 19,8% (23,2%)
3. (3.) Jón Baldvin Hannibalsson 33(38) 5,5% (6,3%) 9,6% (9,6%)
4. (4.) Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 17(20) 2,8% (3,3%) 4,9% (5,0%)
5. (6.-7.) Þorsteinn Páisson 12(10) 2,0% (1,7%) 3,5% (2,5%)
6. (-) Margrét Frímannsdóttir 11 (3) 1,8% (0,5%) 3,2% (0,8%)
7.-9. (-) Páll Pétursson 9(2) 1,5% (0,3%) 2,6% (0,5%)
7.-9. (5.) Jóhanna Sigurðardóttir 9(15) 1,5% (2,5%) 2,6% (3,8%)
7.-9. (9.-10.) Steingrímur J. Sigfússon 9(7) 1,5% (1,2%) 2,6% (1,8%)
10. (8.) Svavar Gestsson 8(8) 1,3% (1,3%) 2,3% (2,0%)
Ovinsælustu stjórnmálamennirnir
Innan sviga eru niðurstöður skoðanakönnunar DV1 júlí 1995
Atkvæði Af úrtakinu Af þeimsemaf stöðu tóku
1. (1.) Jón Baldvin Hannibalsson 2. (2.-3.) DavíðOddsson 3. (2.-3.) Ólafur Ragnar Grímsson 4. (8.-10.) Ólafur G. Einarsson 73 (122) 61 (37) 38 (37) 20(9) 12,2% (20.3%) 10,2% (6,2%) 6,3% (6,2%) 3,3% (1,5%) 23,2% (34,7%) 19,4% (10,5%) 12,1% (10,5%) 6,4% (2,6%)
5. (4.) Páll Pétursson 18(27) 3,0% (4,5%) 5,7% (7,7%)
6. (-) Ingibjörg Pálmadóttir 13(5) 2,2% (0,8%) 4,1% (1,4%)
7. (-) Friðrik Sophusson 12(2) 2,0% (0,3%) 3,8% (0,6%)
8. (6.) Jóhanna Sigurðardóttir 11 (17) 1,8% (2,8%) 3,5% (4,8%)
9. (7.) Finnur Ingólfsson 10(12) 1,7% (2,0%) 3,2% (3,4%)
10. (8.-10.) Árni Johnsen 7(9) 1,2% (1,5%) 2,2% (2,6%)