Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1995, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1995, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1995 7 Fréttir 0 -5 -10 -15 -20 -25 r \ tedhi Dg úyjjjiiíííjijijiij 25% F 20 15 10 5 Davíð Oddsson Halldór Ásgrímsson Jón Baldvin Hannibalsson Bornar eru saman vinsaeldir og óvinsældir tólf umdeildustu stjómmálamannanna samkv. skoðanak. DV. Grænu súlumar sýna niðurstöður skoðanak. DV sem var framkvæmd í júlí síðastliðnum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Margrét Frímannsdóttir Jóhanna Sigur&ardóttlr Ingibjörg Pámadóttir ÓlafurG. Elnarsson $ Skoianakönnun ov U Skoðanakönnun DV á vinsældum stjómmálamanna: Jón Baldvin óvinsælast- ur en Davíð nálgast hann - Friðrik Sophusson og Ingibjörg Pálmadóttir komin 1 hóp þeirra óvinsælustu Davíð Oddsson forsætisráðherra er vinsælasti stjórnmálamaður lahdsins um þessar mundir en jafn- framt einn af þeim óvinsælustu. En þótt hrímköld kabyssan á stjórnar- heimilinu gefi frá sér yl eru ýmsir samráðherrar Davíðs úti í kuldanum í hugum kjósenda. Á það meðal ann- ars við um þau Ingibjörgu Pálma- dóttur og Friðrik Sophusson sem nú eru óvinsælli en nokkru sinni fyrr. Þetta má lesa út úr skoðanakönnun DV sem framkvæmd var í síðustu viku. Úrtakið í skoðanakönnuninni var 600 manns. Jafnt var skipt á milli kynja og eins á milh landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins. Spurt var: „Á hvaða stjórnmálamanni hefur þú mest áUt um þessar mundir?" og „Á hvaða stjórnmálamanni hefur þú minnst áUt um þessar mundir?" Vinsældir AUs 57,3 prósent aðspurðra tóku afstööu til spurningarinnar um vin- sælasta stjómmálamanninn. Til- nefndir vora 35, þar af 14 með 4 til- nefningar eða fleiri. í hópi vinsæl- ustu stjórnmálamannanna eru 3 kratar, 10 framsóknarmenn, 11 sjálf- stæöismenn, 5 alþýöubandalags- menn, 3 kvennaUstakonur og 3 þjóð- vakar. Eins og í fyrri könnunum DV und- anfarin misseri reyndist Davið Odds- son vera vinsælasti stjómmálamað- urinn, naut fylgis 36,9 prósenta þeirra sem afstöðu tóku. Á hæla hans kom HaUdór Ásgrímsson, með 19,8 prósent tUnefninga, og Jón Baldvin Hannibalsson með 9,6 prósent. í fjórða sæti vinsældalistans hafnaði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, með 4,9 prósent tilnefninga, og í fimmta sæt- inu hafnaöi Þorsteinn Pálsson með 3,5 prósent. Ný á vinsældaUstanum er Margrét Frímannsdóttir, með 3,2 prósent tíl- nefninga, og hafnaði hún í sjötta sætinu. PáU Pétursson, Jóhanna Sig- urðardóttir og Steingrímur J. Sigfús- son höfnuðu í 7. til 9. sæti, hvert um sig með 2,6 prósent tUnefninga. í tí- unda sætinu hafnaði síðan Svavar Gestsson með 2,3 prósent tílnefninga. Óvinsældir Afstöðu til spurningarinnar um óvinsælasta stjórnmálamanninn tóku 52,3 prósent aðspurðra. Alls 31 stjórnmálamaður var tUnefndur, þar Formenn stjórnarflokkanna, Halldór Ásgrímsson og Davíö Oddsson, stinga saman nefjum í þinginu. DV-mynd GS af voru 13 með 5 tUnefningar eða fleiri. í hópi óvinsælustu stjórnmála- mannanna eru 5 kratar, 8 framsókn- armenn, 9 sjálfstæðismenn, 5 alþýðu- bandalagsmenn, 2 kvennalistakonur og 2 þjóðvakar. Þótt verulega hafi dregiö úr óvin- sældum Jóns Baldvins Hannibals- sonar á undanförnum mánuðum er hann enn óvinsælasti stjórnmála- maðurinn. Af þeim sem afstöðu tóku höfðu 23,2 prósent minnst áht á hon- um, samanborið við 34,7 prósent' í könnun sem DV framkvæmdi í júlí síðastliönum. Á hæla hans kemur Davíð Oddsson en 19,4 prósent þeirra sem afstöðu tóku höfðu minnst áhta á honum samanborið við 10,5 prósent í júU. í þriðja sætinu hafnaði Ólafur Ragnar Grímsson með 12,1 prósent tilnefninga. í könnun DV vermir Ólafur G. Ein- arsson íjórða sætið á óvinsældaUst- anum og í því fimmta er PáU Péturs- son. í sjötta og sjöunda sætinu eru þau Friðrik Sophusson og Ingibjörg Pálmadóttir en þau eru bæði ný á þessum vafasama Usta. Á eftir þeim koma síðan þau Jóhanna Sigurðar- dóttir, Finnur Ingólfsson og Ární Johnsen. -kaa Vinsælustu stjórnmálamennirnir Innan sviga eru niöurstöður skoðanakönnunar DV í júlí 1995 Atkvæði Af úrtakinu Af þeimsem af- stöðu tóku 1. (1.) Davið Oddsson 127(147) 21,2% (24,5%) 36,9% (37,0%) 2. (2.) HalldórÁsgrímsson 68 (92) 11,3% (15,3%) 19,8% (23,2%) 3. (3.) Jón Baldvin Hannibalsson 33(38) 5,5% (6,3%) 9,6% (9,6%) 4. (4.) Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 17(20) 2,8% (3,3%) 4,9% (5,0%) 5. (6.-7.) Þorsteinn Páisson 12(10) 2,0% (1,7%) 3,5% (2,5%) 6. (-) Margrét Frímannsdóttir 11 (3) 1,8% (0,5%) 3,2% (0,8%) 7.-9. (-) Páll Pétursson 9(2) 1,5% (0,3%) 2,6% (0,5%) 7.-9. (5.) Jóhanna Sigurðardóttir 9(15) 1,5% (2,5%) 2,6% (3,8%) 7.-9. (9.-10.) Steingrímur J. Sigfússon 9(7) 1,5% (1,2%) 2,6% (1,8%) 10. (8.) Svavar Gestsson 8(8) 1,3% (1,3%) 2,3% (2,0%) Ovinsælustu stjórnmálamennirnir Innan sviga eru niðurstöður skoðanakönnunar DV1 júlí 1995 Atkvæði Af úrtakinu Af þeimsemaf stöðu tóku 1. (1.) Jón Baldvin Hannibalsson 2. (2.-3.) DavíðOddsson 3. (2.-3.) Ólafur Ragnar Grímsson 4. (8.-10.) Ólafur G. Einarsson 73 (122) 61 (37) 38 (37) 20(9) 12,2% (20.3%) 10,2% (6,2%) 6,3% (6,2%) 3,3% (1,5%) 23,2% (34,7%) 19,4% (10,5%) 12,1% (10,5%) 6,4% (2,6%) 5. (4.) Páll Pétursson 18(27) 3,0% (4,5%) 5,7% (7,7%) 6. (-) Ingibjörg Pálmadóttir 13(5) 2,2% (0,8%) 4,1% (1,4%) 7. (-) Friðrik Sophusson 12(2) 2,0% (0,3%) 3,8% (0,6%) 8. (6.) Jóhanna Sigurðardóttir 11 (17) 1,8% (2,8%) 3,5% (4,8%) 9. (7.) Finnur Ingólfsson 10(12) 1,7% (2,0%) 3,2% (3,4%) 10. (8.-10.) Árni Johnsen 7(9) 1,2% (1,5%) 2,2% (2,6%)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.