Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1995, Side 22
26
ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1995
Menning
Heimasíðaum
Jónforseta
Vestfirska forlagiö á Þingeyri
og tölvuþjónustan Snerpa á
ísafiröi hafa opnaö heimasíðu á
Intemetinu um Jón Sigurðsson
forseta. Þar er að finna tnargvís-
Iegan fróðleik um Jón og er sið-
urini ætlaö að auka þekkingu
okkar á þessari þjóðhetju sem
barðist fyrir sjálfstaeði íslend-
inga.
Islensk og ensk útgáfa er þegar
til á netinu og til stendur að koma
upp danskri og þýskri útgáfu af
síðunni. Veffang síðunnar er:
http://www.snerpa.is/kynn/j/jon-
sig/.
Atvinnulausirfá
afsláttíÞjóð-
leikhúsið
Þjóöleikhúsið hefur ákveðiö að
veita atvinnulausu fólki afslátt
af miöaveröi á sýningar leikhúss-
ins. Um er að ræða sama afslátt
og eftirlaunafólk og nemendur
framhaldsskóla njóta, sem er há-
marksafsláttur. Gildir hann á
sýningardegi gegn ffamvísun
innritunarskírteinis og verður
hægt að fá tvo miða hverju sinni.
Aí'slátturinn gildir á allar sýning-
ar leikhússins á leikárinu.
í tilefni af þessari nýjung var
atvinnulausu fólki nýlega boðið
að koma endurgjaldslaust á sýn-
ingu á Stakkaskiptum eftir Guð-
mund Steinsson en það verk fjall-
ar m.a. um áhrif atvinnuleysis á
einstaklinginn og hans nánustn.
Mikill Ijöldi þáði boðið og naut
kvöldstundarinnar í Þjóðleikhús-
inu.
Ráðstefna um
íslenskar
kvennarann-
sóknir
Rannsóknarstofa í kvenna-
fræðum viö Háskóla íslands efnir
um næstu helgi til ráöstefnu i
Odda um íslenskar kvennararm-
sóknir. Á ráðstefnunni verða
fluttir ffæðilegir fyrirlestrar, ér-
indi úr kvennabaráttunni og pall-
borðsumræður fara fram um
kvennaráðstefnuna í Kína með
þátttöku Vigdísar Fínnbogadótt-
ur forseta.
Við opnunarathöfh ráðstefn-
unnar mun Fride Eeg-Henriksen
ro.a. flytja ávarp en hún er for-
stöðumaður nýrrar norrænnar
stofnunar um kvennarannsókn-
ir. FyrirJestrar verða alls 34 meö
afar íjölbreyttu efni. Fyrirlesarar
koma úr mannfræði, bókmennta-
ft-æði, félagsfræði, sálfræði, þjóð-
fræði, sagnfræði, málfræði, guð-
fræði, hjúkrunarlræði, uppeldis-
og menntunarfræði og félags-
ráðgjöf.
tíðl. vetrardag
Heimilisiðnaðarfélag / íslands
hefur ákveðið að efna til sérstakr-
ar þjóðbúningahátíðar 28. októb-
er nk. sem er fyrsti vetrardagur.
Hátiðin fer fram á Hótel Borg og
er öllum boðin þátttaka, hvort
semþeireruí félaginueðaekki.
Á hátíðinni flytur Fríða Ólafs-
dóttir dósent erindí um upphlut-
inn og karlabúninginn, fágætir
búningar verða til sýnis, Vorkór-
inn mun létta lund hátíöargesta
og aö sjálfsögðu verða á boöstól-
um myndarlegar kaffiveitingar.
Eitt af markmiðum Heimilis-
iðnaðarfélagsins er að halda vörð
um íslenska þjóðbúninginn,
íræða almenning um hann og
gæta þess að heföir tengdar hon-
um glatist ekki. Þannig er Heimil-
isiönaðarskólinn m.a. með þjóð-
búningasaum, baldýringu og
kniplánámskrásimii. -bjb
Hörð gagnrýni á störf Borgarleikhússins:
Listræn
flatneskja?
- stekkur af mér eins og vatn af gæs, segir Sigurður Hróarsson
„Að tala um flatneskju við þessar
aðstæður, það stekkur af mér eins
og vatn af gæs,“ sagði Sigurður Hró-
arsson, leikhússtjóri Borgarleik-
hússins, m.a. í samtali við DV í til-
efni af gagnrýni sem fram hefur
komið hjá leikhúsgagnrýnendum
Alþýðublaðsins og Tímans. „Listræn
flatneskja," segir Amór Benónýsson
m.a. í Alþýðublaðinu og Gunnar Stef-
ánsson spyr í Tímanum hvar sálin
sé í leikhúsinu.
Hér er fast að orði kveðið og ekki
í fyrsta sinn þegar Borgarleikhúsið
er annars vegar. Síðustu ár hefur
hallað undan fæti fjárhagslega og
ljóst er að leikhúsið stendur á tíma-
mótum. Sigurður Hróarsson sagði
upp á síðasta vetri og hættir eftir
þetta leikár. Viðar Eggertsson hefur
verið ráðinn í hans stað og þykir
öraggt að hann hafl aldrei á sínum
ferli tekist erfiðara verk á hendur.
Eitthvað mikið að
„Það er eitt-
hvað mikið að í
Borgarleikhús-
inu. Auðvitað
vantar þá pen-
inga en það
skýrir þó engan
veginn þá list-
rænu flatn-
eskju sem þar ríður nú húsum. Aftur
og aftur er boðið upp á sýningar sem
standast ekki lágmarkskröfur sem
gera verður til atvinnuleikhúss nú á
ofanverðri tuttugustu öldinni," segir
Arnór m.a. í pistlinum.
„Ég gagrýni fyrst og fremst val
verkefna, úryinnslu þeirra og val
listamanna. Á þessu er engin alls-
herjarlausn en minn tilgangur var
að vekja upp umræður um listræna
stöðu leikhússins. Er ekki vinur sá
sem til vamms segir?“ sagði Arnór í
samtali við DV.
Hann sagði að stokka þyrfti upp
stjómkerfi Borgarleikhússins. Það
ætti að gera m.a. með því að víkka
valdsvið leikhússtjórans og gera
hann einráðan, líkt og tíðkaöist með
þjálfara knattspyrnuliðs. Því ætti
Viðar Eggertsson að láta það verða
sitt fyrsta verk að fara fram á að fá
að velja sjálfur í liðið.
Örvænting eftir
vonda uppskeru?
í Tímanum segir Gunnar Stefáns-
son m.a. um leikhúsið: „Mér dettur
helst í hug að í Borgarleikhúsinu ríki
einhvers konar
arsson er formaður ráðsins. Hann
örvænting eftir
vonda upp-
skeru síðustu
tveggja leikára
og erfiða stöðu
sem af því hef-
ur leitt. Verk-
efni sem er „ís-
lenskt, létt, skemmtilegt, nútíma-
legt“ á að bjarga þessu við. Það er
eitthvað svona „sem fólkið vill sjá“,
hafa menn líklega hugsað í húsinu."
Gunnar sagði við DV að hann væri
orðinn þreyttur á þeim svörum for-
ráðamanna Borgarleikhússins við
gagnrýni að það vantaði pening í
kassann. Sú skýring gengi ekki enda-
laust. Það væri t.d. ekki peninga-
spursmál „að velja óframbærileg
verk eins og Tvískinnungsóperuna."
„Ég hef verið óánægður með verk-
efnaval Borgarleikhússins. Þar er of
mikið af léttvægum viðfangsefnum.
Grín- og söngleikir hafa verið alls-
ráðandi. Leikhús með metnað verður
að bjóða upp á fleira. Eins hafa sýn-
ingarnar ekki verið nógu góöar,
hvort sem það er leikstjórum eða
leikurum að kenna,“ sagði Gunnar.
Aðspurður um lausn á vanda leik-
hússins sagði Gunnar að það þyrfti
að opna það meira, of þröngur hópur
ynni hjá leikhúsinu og fleiri þyrftu
að koma að því. Einnig þyrfti að
vanda val verkefna betur.
Marklaus skrif
Sigurður Hróarsson sagði það ekki
vana sinn „að eltast við það sem
gagnrýnendur segja í sínum pistl-
um“. Hann sagði þessi skrif mark-
laus á meðan starfsemin gengi eins
vel og hún hefði
gert á þessu
leikári.
„Við höfum
verið með sýn-
ingar sem
trekkja mjög
vel. Þannig
komu núna um
helgina hátt í 5 þúsund manns í hús-
ið. Að tala um flatneskju við þessar
aðstæður, það stekkur af mér eins
og vatn af gæs,“ sagði Sigurður.
Endurskipulagning hafin
Leikhúsráð Borgarleikhússins ber
ásamt leikhússtjóra ábyrgð á verk-
efnavali hverju sinni. Kjartan Ragn-
sagöi í samtali viö DV að gagn-
jii? , rýninni mætti
W ~ IWm svara með því
If, JB að frá þvi í vor Bkf
• ÆF hefði mikil
vinna átt sér
stað innan leik- —-s 1 v
hússins í þá átt
að betrumbæta vinnufyrirkomulag í
húsinu.
„Mér fmnst æskilegt að opna Leik-
félagið meira. Það hefur frá upphafi
rekið leikhúsið með miklum sóma. í
fyrravetur sömdum við ítarlega
skýrslu um stöðu leikhúsreksturs í
Borgarleikhúsinu. í framhaldi af því
komum við með ýmsa gagnrýni á
félagið sjálft. Á aðalfundi félagsins í
vor voru gerðar lagabreytingar um
starfsemina sem þegar er farið að
framkvæma. Nýr leikhússtjóri var
t.d. ráðinn samkvæmt þeim breyt-
ingum. Við stefnum að því að endur-
skipuleggja leikhúsið með nýjum
leikhússtjóra í framhaldi af þessari
skýrslu," sagði Kjartan.
Hann sagði reynslu af atvinnuleik-
húsum erlendis vera þá að ákveðinn
fjölda ára tæki fyrir þau aö mótast
og aðlagast nýju húsnæði. Form fé-
lagsins og stjórnkerfi þyrftu endur-
skoðun og sú endurskoðun væri haf-
in af fullum krafti.
Verkefnin ekki alltaf
mér að skapi
Viðar Egg-
ertsson tekur
við stöðu leik-
hússtjóra
næsta haust en
hann hefur
stýrt Leikfélagi
Akureyrar
undanfarin ár.
Hann vildi í samtali við DV ekki tjá
sig mikið um stöðu Borgarleikhúss-
ins á meðan hann væri ekki kominn
þangað til starfa.
„Ég hef haft þá stefnu á Akureyri
að tala ekki svo mikið um það sem
ég ætla að gera heldur láta verkin
taia. Ég held að mér hafi tekist þetta
og látið verk tala öðruvísi en áður
var. Ég vænti þess að -eins muni
verða í Borgarleikhúsinu. Vissuiega
fylgja nýjum herrum nýjar hug-
myndir. Eg get þó sagt, og hef sagt
áður, að verkefni Borgarleikhússins
hafa ekki alltaf verið mér að skapi,“
sagðiViöar. -bjb
Sérstakt sögukvöld í Kaffileikhúsinu:
Prestarláta
gamminn geisa
Kaffileikhúsið í Hlaðvarpanum
efnir annað kvöld til sérstaks sögu-
kvölds sem nefnist Prestasögukvöld.
Þar munu fimm kunnir prestar láta
gamminn geisa. Þetta verður fjórða
sögukvöld vetrarins í Kaffileikhús-
inu en það fyrsta í hópi svokallaðra
„starfsgreinasögukvölda“ sem verða
í leikhúsinu í vetur. Sagnaprestamir
verða Áml Pálsson, Dalla Þórðar-
dóttir, prestur í Miklabæ, Gunnar
Sigurjónsson, prestur í Digranes-
kirkju, Irma Sjöfn Óskarsdóttir,
prestur í Seljakirkju, og Kristján
Valur Ingólfsson, rektor í Skálholti.
Prestamir munu án efa flytja sögur
af skemmtilegum uppákomum í
kirkjustarfinu því einhverjum hefur
orðið á í messunni, svo mikið er víst.
Ása Richardsdóttir, framkvæmda-
stjóri Kaffileikhússins, sagði í sam-
tali við DV að tilvalið heföi verið að
Irma Sjöfn Oskarsdóttir er í hópi
sagnaprestanna.
láta presta ríða á vaðið á starfs-
greinasögukvöldunum þar sem
Kirkjuþing stæði yfir í Reykjavík en
þingiðhefstídag. -bjb
Geislaplatamed
Stemunni Bimu
Japis hefur
gefið út geísla-
plötu þar sem
Steinunn Birna
Ragnarsdóttir
leikur róman-
tísk píanóverk
^ eftir Grieg og
Schumann.
Platan var hljóðrituð í Háskóla-
bíói og íslensku ópemnni og tón-
meistari var Bjarni Rúnar
Bjarnason. Málverk á kápu er
eftir Vigni Jóhannsson. Þetta
mun vera í fyrsta sinn sem píanó-
konsert með ísienskum einleik-
ara ásamt Sinfóníuhijómsveit ís-
lands er gefmn út á geislaplötu.
Steinunn er i fremstu röð ís-
lenskra píanóleikara og hefur
komið fram á fjölmörgum tón-
leikum hérlendis og hlotið lof
gagnrýnenda og hrifníngu áheyr-
enda fyrir vandaðan leik.
Hávar Sigur-
jónsson í Þjóð-
leikhúsið
Hávar Sigur-
jónsson hefur
verið ráðinn
nýr leiklistar-
ráðunautur
Þjóðleikhúss-
ins úr hópí sjö
umsælgenda.
Hávartekurvið
af Árna Ibsen sem starfað hefur
í leikhúsinu til fjölda ára.
Hávar á að baki fjölþætt nám í
leikhúsfræðum í Englandi og hef-
ur sett upp fjölda leikrita 1 at-
vinnu- og áhugamamtaleikhús-
um um allt land. Að auki hefur
hann starfað við blaöamennsku
og auglýsingagerð. Árin 1991-93
var hann leiklistarráðunautur
Ríkisútvarpsins og hefur verið
samningsbundinn leikstjóri við
Þjóðleikhúsið síðustu tvö leikár.
Þá var frumsamið leikrit hans
eitt 5 leikrita sem hlaut sérstaka
viðurkenningu í Leikritasam-
keppni Ríkisútvarpsins fyrr á
þessu ári.
Djúpuvíkuræv-
í
ferðumlandið
Leikfélag Hólmavíkur ætlar um
næstu helgi að heíja hringferð
um landið með einþáttunginn
Djúpuvíkurævintýriö eftir þau
Vilhorgu Traustadóttur og Sigurö
Atlasou í leikstjórn þess síðar-
nefnda. Hringferðin hefst á
Hvammstanga 20. október nk. og
lýkur í Reykjavík 5. nóvember.
Alls verða 14 sýningar á 12 stöð-
um. Auk Hvammstanga og
Reykjavíkur eru þetta Sauðár-
krókur, Dalvík, Freyvangur,
Laugar, Húsavík, Borgarfjörður
eystri, EgUsstaðir, Hornafiörður,
Kirkjubæjarklaustur og Selfoss.
Djúpuvíkurævintýrið var
frumsýnt á dögunum á Hólmavík
í tiiefni af árlegum formanna-
fundi Bandalags íslenskra leikfé-
laga. Einþáttungurinn fiallar um
uppgang og hrun byggðar á
Djúpuvík á síldarámnum. Tón-
list skipar stóran sess í verkinu.
Fjórir félagar Leikfélags Hólma-
víkur fara í hringferðina, þrír
leikarar og einn tæknimaður.
Einkalifplaiitna
Skjaldborg hefur gefið út bók-
ina Einkalíf plantna eftír Sir
David Attenborough í þýöingu
Óskars Ingimarssonar. I tilefni
þessa hefur Sir David verið á ís-
landi til aö árita bókina. Þættir
byggðir á bókinni verða teknir til
sýninga Ifiá ríkissjónvarpinu 20.
nóvember nk.
-bjb