Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1995, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1995, Síða 32
36 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1995 Var logið að verkalýðshreyfing- unni? nn Vantar kvikasilfrið „Það var greinilega logið að okkur vegna þess að helmingur- inn af þjóðinni er búinn að fá hækkun sem er miklu meiri og það mælist ekki. Þess vegna segi ég að það vantar kvikasilfrið." Pétur Sigurðsson í DV. Engin ítök „Hættum að trúa því að við eigum einhver ítök í verkalýðs- hreyfingunni umfram aðra flokka, því það er ekki svo.“ Guðrún Helgadóttir á landsfundi Alþýðubandaiagsins Ummæli Stjörnuvitlaust „Allt verður stjörnuvitlaust 15. nóvember þegar J&MM vírusinn minnir á sig.“ Friðrik Skúlason tölvufræðingur í Morgunblaðinu. Handagangur í öskjunni „Það yrði sennilega handa- gangur í öskjunni og ekki frið- vænlegt í stjórnarráðinu ef hann kæmi á prenti og menn færu að bera sig saman og sjá hvað hinir fá.“ Páll Pétursson í DV um listann yfir launahæstu ríkisstarfsmennina. Útungunarvél fyrir klám „Segja má að Ríkissjónvarpið sé ein allsherjar útungunarvél fyrir klám, ofbeldi og saurlifnað í myndefni því sem það býður kúguðum áskrifendum sínum.“ Einar Gunnarsson í DV. Reiðhjól hafa átt aukinni vel- gengni að fagna hér á landi með- al fullorðinna. Fyrstu reiðhjólin Talið er að fyrsta fótstigna far- artækið hafi Leonardo Da Vinci eða einhver nemenda hans hann- að i kringum 1493. Fyrsta slíka farartækið var aftur á móti smíð- að af Kirkpatrick Macmillan árið 1840 í Skotlandi. Það farartæki er nú varðveitt í safninu Science Museum í London. Fyrsta hag- nýta reiðhjólið var vélocipede sem smíðað var í mars 1861 af Pi- erre Michaux og Ernest syni hans í Rue de Verneuil í París. Árið 1870 smíðaði James Starley í Coventry fyrsta reiðhjól með venjulegu sniði. Það var búið teinahjólum til að gera það létt- ara og hægt að fá það með hraða- gír. Blessuð veröldin Einhjól Hæsta einhjól sem hjólað hef- ur verið á er 31 metri að hæð. Steve McPeak hjólaði á því 114,6 metra vegalengd í Las Vegas í október 1980. Var hann bundinn í öryggisvír sem festur var í krana. Indverjinn Deepak Llele frá Maharashtra hjólaði á ein- hjóli 6378 km leið frá New York tÓ Los Angeles dagana 6. júní til 25. september 1984. Fer að rigna í kvöld Þegar líður á daginn verður kom- ið hægviðri um allt land. Fljótlega fer þó að anda frá suðaustri sunnan- og vestanlands. Þegar líður á kvöld- ið verður komin sunnan- og suð- austanátt um allt land, allhvöss með rigningu sunnan- og vestanlands en Veðrið í dag hægari og ennþá úrkomulítið ann- ars staðar. I dag verður hiti nálægt frostmarki víða um land en í kvöld og nótt tekur að hlýna í bili, fyrst sunnan- og vestanlands. Á höfuð- borgarsvæðinu þykknar upp með sunnan- og suðaustankalda. All- hvöss sunnan- og suðaustanátt og slydda eða rigning í kvöld en suð- vestan stinningskaldi og skúrir eða slydduél í nótt. Hiti 1 til 5 stig. Sólarlag í Reykjavík: 18.03 Sólarupprás á morgun: 8.25 Síðdegisflóð í Reykjavík: 13.29 Árdegisflóö á morgun: 01.29 Heimild: Almanak Háskólans #Verk=DV’ÞJO’VED #Utgd=951017 #Slögg=veður #Blm/Set=ms #= Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri rigning 2 Akurnes alskýjaó 3 Bergsstaöir slydda 0 Bolungarvík snjóél ~1 Egilsstaðir súld 2 Keflavíkurflugvöllur skýjaö 2 Kirkjubœjarklaustur léttskýjaö 4 Raufarhöfn rigning 3 Reykjavík skýjaö 2 Stórhöfói léttskýjaö 3 Bergen alskýjaö 13 Helsinki þokumóða 11 Kaupmannahöfn þoka 12 Ósló skýjaö 12 Stokkhólmur þokumóöa 11 Þórshöfn rigning 11 Amsterdam þokumóöa 11 Barcelona þokumóóa 15 Berlín þoka 11 Chicago léttskýjaó 8 Feneyjar þokumóða 11 Frankfurt alskýjaö 13 Glasgow rigning 15 Hamborg þoka 11 London mistur 15 Los Angeles heióskírt 17 Lúxemborg þokumóða 11 Madrid heiðskírt 7 Malaga þokumóöa 17 Mallorca þokumóða 13 Montreal skýjáö 4 New York heiöskírt 12 Nice heióskírt 15 Nuuk rigning 2 Orlando alskýjaö 22 París þoka 11 Róm þokumóöa 13 -1 * V i 31 mi , í ...'V 2° l // 3/z, i m í -3C * *| i 2° V Veðrid kl. 6 í morgun Valgerður Andrésdóttir píanóleikari: Flytur sömu dagskrá í Kaupmannhöfn og Uppsölum „Þessir tónleikar eru í tónleika- röð sem ég er að halda. Ég er nýbú- in að leika hluta af dagskránni á tónleikum í Danmörku, þar sem ég bý, var með tónleika á Akureyri um síðustu helgi og mun síðan flytja dagskrána í Kaupmannahöfn og Uppsölum í Sviþjóð á næst- unni,“ segir Valgerður Andrésdótt- ir píanóleikari sem heldur tónleika í Hafnarborg annað kvöld. Val- gerður lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1985 og hélt síðan utan til Maður dagsins Berlínar í Þýskalandi til frekara náms. Hún útskrifaðist frá Tónlist- arháskólanum í Berlín árið 1992 og hefur síðan búið í Kaupmanna- höfn. „Ég er búin að búa í Kaup- mannahöfti í þrjú ár og líkar vel. Ég er bæði að spila og kenna og reyni að koma mér á framfæri á sem flestum stöðum en það tekur tímann að koma sér áfram en þetta þokast upp á við.“ Valgerður hélt sína fyrstu ein- leikstónleika hér á landi í Hafnar- borg árið 1990 og hefur alltaf kom- ið af og til heim til að halda tón- leika. „Ég var einnig með „konu- prógramm" og hef farið með það um Norðurlöndin og í tilefni þess að Kaupmannahöfh er menningar- borg Evrópu á næsta ári verður sérstakt prógramm sem verður til- einkað tónlist eftir konur og hefur mér verið boðið að flytja tónlist á þeim vettvangi og er það mjög spennandi verkefni. Á tónleikunum annað kvöld leikur Valgerður tónlist eftir Jór- unni Viðar, Mozart, Debussy, Chopin og Liszt, en hún segist ekki gera upp á milli nútímatónlistar og svo klassískrar, segist reyna að vinna dagskrána þannig að nýtt og gamalt styðji hvort annað. Eiginmaður Valgerðar er Eirík- ur Hjartarson tölvufræðingur og þegar hún var spurð hvort hún væri á leiðinni heim svaraði hún: „Ég þori eiginlega ekki að segja neitt um það. Ég er búin að segja svo margt um það hvort ég sé á leiðinni heim eða ekki að vinir og ættingjar eru hættir að taka mark á mér.“ Samsýning sex myndlistarmanna f sýningarsalnum Við hamar- inn stendur yflr samsýning sex myndlistarmanna. Listamenn- irnir eru Aðalheiður S. Eysteins- dóttir, Dagný Sif Einarsdóttir, Jón Laxdal, Ólöf Sigurðardóttir, Laufey M. Pálsdóttir og Sigurdís Arnardóttir. Aðalheiður, Dagný og Sigurdís stunduðu myndlistarnám á Akureyri og útskrifuðust þaðan. Sýningar Laufey stundaði nám við Mynd- listarskólann á Akureyri en út- skrifaöist ásamt Ólöfu frá Mynd- lista- og handíðaskóla íslands vorið 1989. Jón Laxdal hefur kennt listasögu við Myndlistar- skólann á Akureyri. Þau hafa öll tekið þátt í myndlistarlífinu á Akureyri. Skák Jerevan, höfuðborg Armeníu, verður háborg skáklistarinnar næsta árið. Fyr- irhugað er að millisvæðamótið fari fram í borginni og síðan ólympíuskákmótið i septemher á næsta ári. Skákáhugi er mikill í Armeníu og láta heimamenn efnahagskreppu og stríðsátök ekkert á sig fá. Meistarmóti Armeníu lauk fyrir skemmstu með sigri stórmeistarans Artasjes Minasjan sem hlaut 8,5 v. af 11 mögulegum. Fimm stórmeistarar voru í hópi 12 keppenda. Hér er staða frá mótinu. Sigurvegar- inn hafði hvítt og átti leik gegn Hachian: 28. Rc6! Sker á vald drottningarinnar á f6 og nú kemst svartur ekki hjá liðstapi. 28. - Bxc6 29. DÍ6+ Kg8 30. Dxe7 og hvítur vann um síöir. Jón L. Árnason Bridge Það er ekki nóg að vera landsliðs- maður á heimsmeistaramóti í bridge til að kunna að segja vel á spilin sín. í þessu spili eru 7 lauf gráupplagður samningur sem ætti að vera auðvelt að ná í sögnum. At- hugum hvernig sagnir gengu fyrir sig í leik Svía og Kínverja á HM í Beijing sem nú stendur yfir. Sagnir gengu þannig í opnum sal, suður gjafari og allir utan hættu:. 4 D732 V 874 ♦ G853 * 86 4 ÁG6 «4 -- ♦ ÁK1096 4 KDG109 4 1084 * KD1032 ♦ D74 4 72 Suður Vestur Norður Austur Fu Fallenius Wang Nilsland pass 14 pass 14 pass 24 pass 2*4 pass 24 pass 44 pass p/h 44 pass 64 Fallenius og Nilsland nota sterkt laufakerfi og það dugði þeim ekki til að ná alslemmunni í laufi. Þeir bjuggust eðlilega við að tapa stórt á þessu spili að ná ekki svo gráupp- lagðri alslemmu. En Kínverjarnir voru heldur ekki á skotskónum: Suður Vestur Norður Austur Bennet Xu Wirgren Hu pass 14 pass 1» páss 34 pass 34 pass p/h 44 pass 64 Kínverska parið notaði eðlilegt sagnkerfi (standard) en það dugði ekki heldur til þess að ná alslemm- unni. Hefðir þú náð slemmunni á þitt kerfi? ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.