Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1995, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1995
Útlönd
Vitni heyrðu stúlku
öskra í kjallaranum
Vitni, sem gisti aö heimili Rose-
mary West, móðurinnar sem ákærö
er fyrir aö hafa myrt 10 ungar stúlk-
ur, um það leyti sem elsta dóttir
hennar hvarf, sagöi fyrir rétti í Winc-
hester í gær aö öskur hefðu heyrst
úr kjallara hússins eina nóttina og
orðin „nei, nei, gerðu það ekki“. Þeg-
ar vitnið spurðist fyrir um óhljóðin
daginn eftir sagði Rosemary að dóttir
hennar, Heather, þá tæplega 17 ára,
hefði fengið martröð.
Um svipað leyti hvarf Heather.
Samkvæmt framburði vitna í réttar-
salnum í gær virtist Rosemary
standa alveg á sama um hvarf henn-
ar. Hún og maður hennar, Fred West,
sem hengdi sig í fangaklefa sínum á
nýjársdag, gáfu afar mismunandi
skýringar á hvarfl Heather þegar
þau voru spurð. Hvarf Heather og
ólíkar skýringar West-hjónanna
vöktu áhuga lögreglunnar en það var
þó ekki fyrr en tæpum sjö árum síð-
ar, í febrúar í fyrra, að örlög Heather
urðu kunn. Þá var lík hennar graflð
upp úr bakgarði West-hjónanna að
Cromwellstræti 25 í Gloucester. í
kjölfarið fundust níu lík, þar á meðal
af dóttur Freds frá fyrra hjónabandi,
sem hvarf á áttunda aldursári, 1973.
Flestum fórnarlamba West-hjón-
anna hafði verið misþyrmt og þau
misnotuð kynferðislega áður en þau
voru myrt. Annað vitni, sem kom
fyrir rétt í gær og gisti að heimili
West-hjónanna á miðjum áttunda
áratugnum, þegar flest morðin voru
framin, sagðist hafa heyrt barnsrödd
hrópa eina nóttina, að því er virtist
úr kjallaranum: „Hættu, pabbi.“
Þykir það renna stoðum undir það
sem vitni hafði eftir Rosemary að
Fred misnotaöi dætur þeirra.
Annað vitni, lesbísk vinkona Rose-
mary, sagði réttinum í gær frá kynn-
um sínum af West-hjónunum og
miklum áhuga þeirra á ofbeldisfullu
og afbrigðilegu kynlífi. Sagði hún
Rosemary hafa notið þess að ýta fólki
fram á ystu nöf tilfinningalega og
auðmýkja það á ýmsan máta. Þannig
var hún oftsinnis bundin og kefluð
meðan Rosemary lék sér að henni
eða leyfði Fred að athafna sig að vild.
Reuter
20. október á Hótel íslandi
Karlakór Akurcyrar/Geysir syngur létt liig
undirst jórn Roars Kvam viðundirleik
Richards Sinun píanóleikara.
Fjóriraf bestu hagvrdingum Evjafjarðar
kasta fram stökum og kveðast á undir
handleiðslu Þráins Karlssonar.
I.eikhúskvartettinn: Atli Guðlaugsson,
Jóhannes Gíslason. Jónasína
Arnhjörnsdóttir og Þuríður líaklursdóltir.
Undirleikari á gítar Birgir Karlsson.
Kattadúettinn: Atli Guðlaugsson og
Þuríður Raldursdóttir.
Norðlenskt jasstríó leikur fyrir matargesti.
Mikael J. Clark syngur við undirleik
Riehards Sinnn.
Matseðill:
Sérrílöguð villisveppasúpa
Rauðvínslegidlambalæri með
kryddjurtasósu og meðiaéti
Sítrónuhnetuís með ávöxtum
og rjóma
Verð kr. 3.900
Sýningarverð kr. 2.000 I
Kynnir: Þráinn Karlsson leikari.
Hljómsveit (ÍFJRMINDAR \ALTVSSONAR
leikur fvrir dansi.
HÖTEL
Elizabeth Hurley, kærasta leikarans Hughs Grants, brá sér á fjáröflunarsam-
komu til styrktar rannsóknum á brjóstakrabba í New York. Símamynd Reuter
Stuttar fréttir
Vill endurtalningu
Ameríski múslimaleiðtoginn
Farrakhan ber brigður4 talningu
lögreglunnar á fjölda svartra
fundarmanna í Washington á
mánudag og vill endurtalningu.
RættviðSlobodan
Samningamenn stórveldanna
ræöa við Slobodan Milosevic
Serbíuforseta um frið í Bosníu.
Njósnari slapp
Norður-kóreskur njósnari
slapp lifandi frá skothríð sunnan-
manna og komst aftur heim en
félagi hans lét lífið.
Súfranskaelst
Franska konan Jeanne Cal-
ment, sem hitti Van Gogh á sínum
tíma, náði í gær hærri aldri en
nokkur hefur áöur náö, hún varð
120 ára og 238 daga.
Ciller tjaslarsaman
Tansu Ciller, forsætisráðherra
Tyrklánds, ætlar að reyna að
koma aftur saman stjóminni sem
féllumdaginn. Reuter
Sahlin ekki með
í kapphlaupinu
Mona Sahlin, varaforsætisráð-
herra Svíþjóðar, sækist ekki lengur
eftir því að verða leiðtogi jafnaðar-
mannaflokksins og taka við af Ing-
vari Carlssyni forsætisráðherra þeg-
ar hann hættir í mars á næsta ári.
Hún tilkynnti Carlssyni þetta í gær
og staðfesti það í sjónvarpsviðtáli í
gærkvöldi.
Sahlin hefur átt undir högg að
sækja undanfarna daga eftir að upp
komst að hún notaði greiðslukort
ríkisins í eigin þágu.
Nefnd sænska þingsins hafnaði í
gær að rannsaka kortamisnotkun
Sahhn og vísaði málinu til saksókn-
ara. TT, Reuter
Öryggiherttil
muna í Paris
Frönsk stjómvöld ætla að herða
allt öryggi í París til muna eftir að
sprengja í neðanjarðarlest særði 29
manns í gærmorgun. Alsírskir bók-
stafstrúarmenn eru grunaðir um að
standa að tilræðinu. Átta manns
voru enn á sjúkrahúsi í morgun, þar
af einn maður sem missti annan fót-
innísprengingunni. Reuter
HYUnDRI
... til framtíðar
Hyundai Accent,
84 hestöfl, meS beinni
innspýtingu,samlæsingum
og vönduðum
hljómflutningstækjum.
Fallegur, rúmgóður
og nýtískulegur bíll,
hannaöur með það
að leiðarljósi að gera
aksturinn ónægjulegan
ó öruggan hótt.
LÆKKAR
á mynd,
álfelgur og vindskeiS.
949.000
KR. Á GÖTUNA
ARGUS & ORKIN /SÍA BL051