Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1995, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1995, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1995 Fréttir Tveir létust og um 20 farþegar slösuðust er Norðurleiðarrúta valt í Hrútafirði: Fólk kastaðist út og varð undir rútunni - sagði farþegi 1 samtali við DV í gærkvöldi „Rútan byrjaði bara að renna í hálkunni og síðan kom vindhviöa sem feykti henni út af veginum. Hún hefur örugglega farið tvær veltur," sagði Halldór Gunnlaugs- son, farþegi í Norðurleiðarrútunni sem valt við Þóroddsstaði í Hrúta- firði, skammt norðan við Staðar- skála, um níuleytið í gærkvöldi, með þeim afleiðingum að tveir lét- ust og um 20 farþegar slösuðust. Halldór taldi að í rútunni hefðu verið um 40 farþegar, hún hefði verið þéttsetin. Þegar DV fór í prentun í gærkvöldi lágu staðfestar tölur um fjölda slasaðra ekki fyrir í stjómstöð Almannavama sem komið hafði verið upp á lögreglu- stöðinni á Blönduósi. Samkvæmt heimildum DV munu þeir vera um tuttugu. „Við emm tuttugu farþegar hérna sem ekið var með niður á bæinn Þóroddsstaði. Þeir sem mest voru slasaðir urðu eftir við rút- una,“ sagði Halldór. Hann átti von á að búið yröi um fólkið í Staðar- skála í nótt. Allt tiltækt björgunarlið var kvatt á vettvang og einnig tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, TF- LÍF og TF-SIF. Þyrlumar voru not- aðar til að koma slösuðum í heilsu- gæslustöö á Hvammstanga og á sjúkrahúsið á Blönduósi. Sömu- leiðis var komið meö farþega til Reykjavíkur í nótt. Björgunarsveit- armenn úr nágrenni við slysstað- inn voru kallaðir til aðstoðar. Stella Hrönn Jóhannsdóttir var einnig farþegi í rútunni: „Fólk hreinlega kastaðist út úr rútunni og einhverjir lentu undir henni. Ég lá sjálf á rúðunni, er óskorin en er eitthvað skökk og snúin. Ég held ég sé óbrotin. Fólk er mjög rólegt hérna en þar sem stutt er síðan þetta gerðist hef ég trú á að sjokkið eigi eftir að koma. í rútunni vom bæði börn og full- orðið fólk og margir eru brotnir; fótbrotnir, viðbeinsbrotnir og handleggsbrotnir. Ég hef sem betur fer aldrei lent í öðru eins og ætla rétt að vona að ég eigi ekki eftir að upplifa svona lagað aftur,“ sagði Stella Hrönn. Ljóst er að hér er um að ræða eitt mesta hópslys sem orðið hefur álandinuíseinnitíð. -sv/bjb anum á Akureyri. DV-mynd Rasi Miss Fitness í Sjallanum: Anna og Guðrún til Ítalíu - E vrópumeistaramót næstkomandi fímmtudag Norski forsætisráðherrann: Bjargaðilífi manns í SAS-þotu og millilenti hér LeitaðáBotnsheiði Leit var gerð að manni á Botns- heiði í gærkvöld þegar hann skilaði sér ekki til byggða. Maðurinn fór akandi frá Suðureyri um miðjan dag og þegar hann hafði ekki skilað sér til Isafjarðar um sjöleytið var snjó- bíll ræstur til þess að leita uppi á heiöi. Maðurinn skilaði sér gangandi niður að bænum Birkihlíð í Botni í Súgandafirði klukkan rúmlega hálf- átta og hafði þá misst bíl sinn út af á Botnsheiðinni. Ófært var orðið innan bæjar og utan á ísafirði í gærkvöld og auk þessrafmagnslaustíbænum. -sv Stuttarfréttir Hagnaðuraf karía íslensk sjávarútvegsfyrirtæki gætu hagnast verulega ef veiði- reglur Evrópusambandsins um karfa á íslandsmiðum verða rýmkaðar. RÚ V greindi frá þessu. Hafnarsjóðiríþröng Staða haíharsjóða er verri nú en oft áður. Samkvæmt frétt RÚV lenda 34 hafnir af 60 í „veikasta flokki" h)á Vita- og hafnamála- stofnun. Daggarskrikjasést Daggarskríkja sást viö Grinda- víkurberg á laugardag. Sam- kvæmt frétt RÚV er það í annað sinn sem slíkur fugl sést austan AtlanLsliafs. Salmoneilusýking Fimm aldraðir viðskiptavinir eldhúss öldrunarþjónustudeildar Félagsmálastofnunar við Dal- braut 21-27 hlutu salmonellusýk- ingu í síðustu viku. Gripið var til fyrirbyggjandi ráðstafana og hafa fleiri ekki sýkst. Rallkappi valt Steingrímur Ingason rallkappi velti bíl sínum í alþjóðlegri keppni í Englandi í gær og varö aö hætta keppni. Hann var f þriöja sæti þegar óhappíð átti sér stað á næstsíðustu sérleiö. Stein- grímur slapp ómeiddur frá velt- unni, samkvæmt RÚV, 10 þúsund áhoríendur Aðstandendur sjónvarpsstöðv- arinnar Stöðvar 3 segjast geta náð til 10 þúsund áhorfenda á skömmum tíma. Ríkissjónvarpið greindi frá þessu og aö ný sjón- varpsstöð, Fjölsýn, hefói tekið til starfa í Vestmannaeyjum um helgina, -bjb „Anna Sigurðardóttir úr Reykja- vík sigraði í keppninni Miss Fitness sem haldin var í Sjallanum á Akur- eyri á laugardaginn var. Keppnin var haldin í annað sinn hér á landi og vann Anna einnig í fyrra. Akur- eyringurinn Guðrún Gísladóttir hafnaði í 2. sæti og Sigurbjörg Ág- ústsdóttir frá Vestmannaeyjum í því þriðja. Efstu tvær stúlkurnar, Anna og Guðrún, halda til Ítalíu nk. fimmtudag og taka þar þátt í Evrópu- meistaramóti Miss Fitness. Atta stúlkur tóku þátt í keppninni. „í keppninni erum við að leita aö mjög hæfileikaríku fólki og mikils er af því krafist. Dæmt er eftir feg- urð, framkomu og líkamsburði. Keppnin er þríþætt. Fyrst koma stúlkurnar fram í síðkjólum og halda stutta ræðu, þá koma þær fram á bíkini og þar er dæmt eftir vexti og formi. Loks er svokallað frjálst atriði þar sem þær þurfa að sýna fram á liðleika, styrk og sköpunargáfu. Flestar sýna eitthvert þolfimiatriöi," segir Sigurður Gestsson, eigandi lík- amsræktarstöövar á Akureyri, en hann og Einar Guömann standa fyrir keppninnihérálandi. -sv Gro Harlem Brundtland, forsætis- ráðherra Noregs, átti þátt í að bjarga lífi 42ja ára norsks læknis frá Björg- vin sem fékk snert af hjartaáfalli um borð í þotu skandinavíska flugfélags- ins SAS á laugardaginn. Þotan sem var á leið frá Ósló til New York átti eftir 22ja mínútna flug að íslandi þegar maðurinn ■ fékk snert af hjartaáfalli. Forsætisráðherrann taldi óráðlegt að halda áfram með sjúklinginn og óskaði eftir því að vélin lenti hér, að sögn norska blaðs- ins VG. Norski forsætisráöherrann, sem var á leið á 50 ára afmælisþing Sam- einuðu þjóðanna í New York, sat fyr- ir framan manninn og varð vör við það þegar maðurinn fölnaði upp og seig saman í sætinu. Hún er mennt- aður læknir og aðstoðaði eiginkonu „Á sama tíma sem fyrirtækin sýna góða afkomu og greiða niður sínar skuldir þá stóreykst skuldastaða heimilanna. Launamunurinn í land- inu vex eins og við höfum fengið að sjá undanfarið. Sömuleiðis eykst launamunurinn milli verkafólks á íslandi og verkafólks í nágranna- löndunum, eins og til að mynda í Danmörku. Og þegar við tölum um að segja upp kjarasamningum til að ná fram einhvem lagfæringu á laun- um verkafólks tala atvinnurekendur bara um félagsdóm. Ég tel að það væri það vitlausasta sem VSÍ gæti gert að kæra uppsögn kjarasamninga til Félagsdóms. Það myndi engan vanda leysa. Sjálft vandamálið stæði eftir óleyst. Það viturlegasta sem hægt er að gera í stöðunni er að vinnuveitendur setjist niður með okkur og við leysum málin með samningum," sagði Bjöcn Grétar Sveinsson, formaður Verkamanna- sambandsins, í samtali viö DV í gær. Hann sagöi að fyrir utan kjaramál- hans, sem einnig er læknir, við að flytja hann í aðra sætaröð þar sem hann gat lagst út af. Samkvæmt VG hélt forsætisráðherrann utan um manninn þar til vélin var lent. Sjúkrabíll beið mannsins og eigin- konu hans á Keflavíkurflugveni og voru þau strax flutt á Borgarspítal- ann í Reykjavík. Maðurinn var á spítalanum í sólarhring og gekkst þar undir rannsóknir. Ekki tókst að fá upplýsingar um nafn mannsins eða nákvæmar upplýsingar um liðan hans. Samkvæmt heimildum DV var hann þó talinn nógu hress til að út- skrifast af Borgarspítalanum og hélt hann þá ásamt konu sinni áfram til New York með flugi til Baltimore síödegis í gær. in, sem yröu fyrirferöarmest á þing- inu, myndu menn án efa taka upp málefni lífeyrissjóðanna og snúast til varnar hugmynd Finns Ingólfssonar viðskiptaráðherra um breytingar á þeim. Varðandi uppsögn kjarasamninga sagði Björn Grétar að framkvæmda- stjóm sambandsins hefði í ályktun á Vestmannaeyjafundinum skorað á aöildarfélögin að segja upp gildandi kjarasamningum. Nú væri það þingsins að segja til um framhaldið. „Miðað við tóninn í verkafólki um þessar mundir efast ég ekki um að samþykkt verði á þinginu að hvetja til uppsagnar kjarasamninga," sagði Björn Grétar. Þing Verkamannasambandsinms hefst að Hótel Loftleiðum á morgun, þriðjudag, og stendur fram á fóstu- dag. í sambandinu eru 52 verkalýðs- félög með um 52 þúsund félagsmenn. Það eru um 150 manns sem eiga rétt til þingsetu. -GHS Þing Verkamannasambandsins hefst á morgun: Uppsögn samninga og kjaramálin í heild - verða fyrirferðarmest, segir Bjöm Grétar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.