Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1995, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1995, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1995 :t Fréttir Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra um málefni langtímasjúkra bama: Frumvarp í smíðum sem hraða á vinnu við - nefnd flallar um öll þau atriði sem aðstandendur hafa kvartað yfir „Það er í gangi vinna við undir- búning aö smíði frumvarps um réttindi sjúklinga almennt og inni í því verður sérstakiega tekið á réttindum langtímasjúkra bama. Ætlunin er síðan að leggja frum- varpið fram á yfirstandandi þingi. Öll þau atriöi sem hefur verið kvartað yflr í þessum efnum eru til umfjöllunar í nefnd sem hefur verið skipuð til að undirbúa frum- varpsdrögin. Nýlega bað ég nefnd- ina sérstaklega um að hraða sínum störfum og á því von á að fá línur frá henni hvað úr hverju," sagði Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- ráðherra í samtali við DV aðspurð um „lagaskort" í máefnum lang- tímasjúkra barna. Eins og fram kom í DV á fóstudag sögðu móðir stúlkunnar sem ný- lega gekkst undir nýrnaígræðslu í Boston og talsmaður Styrktarfé- lags krabbameinssjúkra bama að réttindi foreldranna væm annað- hvort mjög óljós eða hreinlega ekki fyrir hendi. Þegar t.a.m. væri kom- ið með böm á sjúkrahús væm til dæmis ekki sérstakir aðilar sem kynna fólki réttarstöðu þeirra - það sé því undir hælinn lagt hvað fólk fái að vita t.d. varðandi styrki eða greiðslur. Um þetta sagði Ingibjörg: „Inn í fmmvarpið munu koma atriði sem snúa að því hvert hægt sé að leita og að hnur verði hreinar varðandi réttarstöðu fólks. Síðan þarf að kynna hana. Fólk á ekki að þurfa að vera lamað af veikind- um, annaðhvort vegna sjálfs sín eða bama sinna, og verða svo að fara flóknar leiðir til aö kanna rétt sinn,“ sagði ráðherra. Ingibjörg sagði að frjáls ráöstöfun veikindadaga fullorðinna vegna umönnunar langtímasjúkra barna sinna væri fyrst og fremst málefni vinnuveitenda og stéttarfélaga samhliða kjarasamningum: „Síðan er spurning hvað Trygg- ingastofnun á aö koma til móts við þetta fólk,“ sagði Ingibjörg. -Ótt Skólaskákmótinu lauk um helgina Landsmótiö í skólaskák var haldiö á Blönduósi um helgina. Keppt er í yngri og eldri aldursflokki. Sigurvegari í yngri flokki varð Davíð Kjartansson með 10,5 vinninga af 11 mögulegum. í 2. sæti varð Guð- jón H. Valgarðsson með 8,5 vinninga og í 3. sæti varð Hjalti Rúnar Ómars- son líka með 8,5 vinninga. í eldri flokki sigraði Bragi Þor- finnsson með 9,5 vinninga, í 2. sæti varð Jón y. Gunnarsson með 9,0 vinninga og jafnir í 3. til 4. sæti urðu Bjöm Þorfinnsson og Einar Hjalti Jensson með 8,5 vinninga. Þetta er í 16. sinn sem landsmótið í skólaskák er haldið. Mótið fer þann- ig fram að fyrst em haldin skólamót og komast efstu menn úr þeim á sýslumót. Síðan em haldin kjör- dæmamót þar sem sigurvegarinn fer á landsmótið. Um þijú þúsund nem- endur taka þátt í undankeppninni víðs vegar um land. Nú bjóöum viö vetrardekk á felgum tilbúin undir bílinn á einstöku veröi.- VOLKSWAGEN GOLF: 175/70-13 KELLY verð pr. 4 stk. kr. 36.000.- 175/70-13 SÓLUÐ verð pr. 4 stk.kr. 30.000:- MITSUBISK! CQLT 0G LANCER: 170/70-13 KELLY verð pr. 4 stk. kr. 36.000. - 175/70-13 SÓLUÐ verðpr. 4.stk. kr. 30.000.- Einar Þór Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður hlaut verðlaun á stuttmyndahátíð i Tyrklandi á dögunum en var alls staðar neitað um ferðastyrk þangað. Síðan fékk hann farmiða til Tyrklands og gistingu í verðlaun. DV-mynd JAK íslenskur kvikmyndageröamiaöiir verðlaunaður 1 Tyrklandi: Neitað um styrk hér - verðlaunin voru farmiðar til og frá Tyrklandi Einar Þór Gunnlaugsson kvik- myndagerðarmaður var á dögunum verðlaunaður á stuttmyndahátíð í Tyrklandi fyrir mynd sína Regínu. Regína var í hópi 13 stuttmynda sem verðlaunaðar voru af 100 á hátíð- inni. Einar komst hins vegar ekki sjálfur á hátíöina þar sem honum var alls staðar neitað um ferðastyrk hér heima. Hann leitaði til Kvikmynda- sjóðs, menntamálaráöuneytisins og Flugleiða. Verðlaunin sem Einar fékk voru flugmiðar til og frá Tyrk- landi og hótelgisting í viku. Regína var eitt af verkefnum Ein: ars Þórs í Alþjóðakvikmyndaskólan- um í London en hann lauk þar námi fyrir þremur árum. Myndin hefur farið á fleiri hátíðir en í Tyrklandi, s.s. í Ósló og Munchen, og alls staðar vakið mikla eftirtekt. Hins vegar hef- ur Einar aðeins komist á eina hátíð og það var í Edinborg í Skotlandi fyrir tveimur árum. „Ég geri mér grein fyrir að þaö er ekki hægt að hjálpa öllum. Þetta er hins vegar ekki í fyrsta sinn sem mér er neitað um styrki til að fara á þess- ar hátíðir. Þaö virðist vanta einhvern aðila til að hafa hönd í bagga. Kvik- myndasjóður starfar eftir ákveðnum reglum hvað þetta varðar. Það er mjög mikilvægt að maður sé sjálfur á staðnum þegar myndimar eru sýndar, ekki síst þegar þær hljóta verðlaun," sagði Einar Þór. Vinnur að mynd í fullri lengd Aðspurður sagðist Einar að sjálf- sögðu ætla að nýta sér verðlaunin og fara til Tyrklands. Það væri óá- kveöið hvenær vegna mikilla anna heima fyrir. Einar er að vinna hand- rit að kvikmynd í fullri lengd í sam- ráði við breska framleiðendur en hann fékk styrk frá Evrópska hand- ritasjóðnum til að gera handritið. íslenskir og breskir leikarar taka þátt í myndinni en tökulið verður íslenskt. Stefnt er að fmmsýningu í ársbyrjun 1997. -bjb Sfldarviðræður hefjast í dag „Þetta em embættismannaviðræð- ur og það verður farið yfir vinnu vísindanefndar sem skipuö var full- trúum frá öllum löndunum til að skoða og meta útbreiðslu norsk- íslensku síldarinnar milli einstakra hafsvæða. Á þessum fundi munu menn fara yfir skýrslu nefndarinn- ar,“ sagði Þorsteinn Pálsson sjávar- útvegsráðherra í samtali við DV. Viðræðumar fara fram í Moskvu og auk Rússa em fulltrúar frá ís- landi, Noregi og Færeyjum á fundin- um. Fyrir íslands hönd sitja fundinn þeir Ami Kolbeinsson ráðuneytis- stjóri, Guðmundur Eiríksson þjóð- réttarfræðingur, Helgi Ágústsson | ráðuneytisstjóri og Albert Jónsson frá utanríkisráöuneytinu. Á fundinum verður einnig rætt um með hvaða hætti eigi að ræða síld- veiðimáhn við Evrópusambandið og reyna að samræma afstöðu ríkjanna varðandi þær viöræður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.