Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1995, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1995, Síða 17
17 MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1995 'kii u* Lárus Sighvatsson, skólastjóri Tónlistarskólans, ásamt nemanda og kenn- ara. DV-mynd Daníel Ólafsson Tónlistarskólinn 40ára Daniel Ólafsson, DV, Akraneá: „Tónlistarskóli Akraness var stofnaður 2. nóvember 1955 og verður hann því 40 ára á þessu ári og ætlum við að halda upp á afmæhð með ýmsum hætti, m.a. tónleikum á sal Fjölbrautaskólans þann 4. nóvember klukkan tvö,“ segir Lárus Sighvats- son, skólstjóri Tónhstarskóla Akra- ness. Lárus segir aðalástæðu þess að tón- leikamir eru haldnir þar þá að salur- inn er stærsti tónleikasalur á Skag- anum. í framhaldi af þessum tónleik- um, 6.-10. nóv., er ætlunin að fara með-ndnni spilahópa í heimsóknir í stofnanir og fyrirtæki. Tónlistarskólinn flutti í nýtt hús- næði fyrir þremur árum og varð þá mikil breyting því kennsla fór fram á sex stöðum áður. Á haustönn eru skráðir 236 nemendur og auk þess er skólinn með umsjón með skóla- hljómsveitinni sem starfar í þremur deildum og eru þar 70 krakkar. Lúðrasveitin, sem kölluð er A-sveit, á einnig afmæh á þessu ári því hún er að hefja sitt 10. starfsár. Ég er bjartsýnn á vertiðina í vetur - segir Jóhannes Eyleifssen á Leifa AK 2 Daníel Ólafsson, DV, Akranesi: i „Það er ekki að marka þetta núna, ég er að afbeita gömul loðnubjóð og er nýbyrjaður. Eg er að beita nýrri síld. Þeir eru að fá þetta 30-100 kg á bala. Ég er bjartsýnn á vertíðina í vetur, þó mætti kvótinn vera meiri. Ýsan er í seinna lagi núna vegna þess að sjórinn hefur verið svo heitur í haust,“ segir Jóhannes Eyleifsson, trillukarl á Leifa AK 2 á Akranesi. Jóhannes er núbúinn að stækka bátinn og skipta um allt rafmagn í honum. Báturinn var tæp sex tonn en er nú á áttunda tonn. Einnig er búið að setja shnkbretti utan á hhð- ina á bátnum og fer hann mjög vel í sjó. Jóhannes segist ekki vera með mikinn kvóta, um 7 tonn af þorski og 14 tonn af ýsu, og hann er, eins og fleiri trillukarlar, ekki ánægður með kvótakerfið. Grásleppuvertíðin í sumar er sú skásta í langan tíma og var þetta 38. vertíðin hjá Jóhann- esi. Fréttir Finnur Ingólfsson viðskiptaráðherra: Launamenn fái að velja eigin eftirlaunasjóði „Eg vil gefa launamönnum kost á að velja sér eigin eftirlaunasjóði, ekki þvinga þá til að greiða í ákveðna sjóði sem eru misjafnlega fjársterkir. Þegar opnað yrði fyrir shka heimild yrði það eðhlegt að launamenn heföu rétt til að hafa bein áhrif á fjárfestinga- stefnu sjóðanna með setu á aðal- fundum," sagði Finnur Ingólfsson viðskiptaráðherra við DV en hann setti fram framangreinda hug- mynd á aðalfundi Sambands ís- lenskra sparisjóða sl. föstudag. Finnur vih að fjársterkir aðilar eins og bankar, sparisjóðir, verð- bréfafyrirtæki og tryggingafélög taki að sér að ávaxta lífeyri launa- fólks. „Við erum með tiltölulega ungan fjármagnsmarkað sem hefur þó tekið miklum breytingum. Hann þarf að halda áfram að þróast. Líf- eyrissjóðirnir hafa yfirburðastöðu á markaðnum og í skjóh hennar geta þeir haldið uppi háu vaxtastigi í landinu. Með því að gefa fleirum kost á að taka við lífeýrissparnaði landsmanna eykst samkeppni og vextir ættu þar af leiðandi að lækka. Lífeyrissjóðirnir eru stærri en bankar og verðbréfafyrirtæki samanlagt. Þeir hafa því afgerandi stöðu á íjármagnsmarkaðnum," sagði Finnur sem sett hefur á fót nefnd til að kanna með hvaða hætti fjármagnsmarkaðurinn starfar. -bjb Hljóðkort SoundExpert 32 með Cubase LT RÉTTVERÐ: 19.900 Frabært tilboð a fax-módöldum Lexmark 4076 color 600 x 300 dpi upplausn |s/mín -150 blaða arkamatari 16 milljónir lita Fyrir Heimabanka, Einkabanka og Internet RÉTTVERÐ: 17.900 RÉTT VERÐ: 25.900 RÉTTVERÐ: 39.900 Chicony' Chicony NB7 DX4/100 - 8 MB minni 525 MB diskur 11.3" DualScan litaskjár Innbyggður hátalari og hljóðnemi. Innbyggð mús (Track point) KYNNINCARVERÐ: Canon T20 Faxtaekl Símtól - 30 m rúlla Sjálfvirkur síma/fax deilir RÉTT VERÐ: 39.900 Dxa/100 pci 8 MB minni - 850 MB diskur Wlndows 95 uppsett Tifrusf iii co> m NÝHERJI Pentium 90 PCI 8 MB minni - 850 MB diskur windows 95 uppsett ny sending a frábæru verði! TTUSt DX2/80 PCI Canon BJC-70 720 dpi litaprentari 4 bls/mín - 2 hylkja kerfi 30 blaða arkamatari Svart og litur samtímis RÉTT VERÐ: 29.500 Trust margmiðlunarpakki „4 speed" geisladrif SoundExpert hljóðkort Hátalarar - 3 geisladiskar með hugbúnaði 8 MB minni - 850 MB diskur Margmiðlunarbúnaður Wlndows 95 uppsett RÉTT VERÐ: 29.900 iTrust laugardaga 10-14 VORULISTINN A INTERNETINU htcp://www.nyherji.is/vorur/ Canon . Trust Trust tolvurnar komnar aftur Trust SKAFTAHLIÐ 24 SÍMI 569 7800 ÖLL VERÐ ERU STCR. VERÐ IVl VSK - TILBOÐSVERÐ GILDA I EINA VIKU EÐA MEÐAN BIRGDIR ENDAST NYHERJA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.