Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1995, Blaðsíða 18
18
MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1995
Útgerðarmenn um Flæmska hattinn:
Mikil skerðing verði
sóknarmark tekið upp
Halla Benediktsdóttir, skólastjóra Prjónaskóla Tinnu, ásamt fyrstu nemend-
unum á almennu prjónanámskeiöi.
Prjónaskóli með fjög-
ur námskeið
Prjónaskóli Tinnu var stofnsettur
nýveriö í Hafnarfiröi. Undirbúning-
ur hefur staðiö yfir reitt ár en tveir
kennarar munu starfa þar í vetur.
Pijónaskóli Tinnu vill snúa þessari
þróun við og býður upp á fjögur nám-
skeið í vetur, unglinganámskeið, al-
mennt námsskeið, prjóntækninám-
skeið og heklnámskeið. Skólastjóri
er Halla Benediktsdóttir en hún hef-
ur meðal annars-starfað við kennslu
í Verkmenntaskólanum á Akureyri
og hjá Menntasmiðju kvenna á Ak-
ureyri.
Með Impact línunni
frá Celestion
hættir þú að hlusta á tónhst...
þú byrjar að heyra hana!
Jóhann Jóhannssan, DV, Seyðisfirði:
Verði sóknarmarkskerfi tekið upp
í Flæmska hattinum, eins og tillögur
Fiskveiðinefnd NAFO leggur til, mun
það hafa í fór með sér mikla skerð-
ingu fyrir sjómenn og útgerðir hér á
landi. Þetta sagði Trausti Magnús-
son, skipstjóri á Seyðisfirði, eftir
fund útgerðarmanna skipá' sem
stunda rækjuveiðar í Flæmska hatt-
inum, en fundurinn var haldinn í
Reykjavík á dögunum.
Trausti gerir ásamt öörum út tog-
arann Ottó Wathne á Seyðisfirði.
Skipið hefur ekki veiðiheimildir í ís-
lenskri lögsögu en hefur fiskað
rækju í Flæmska hattinum í rúmt
ár. Veiðamar hafa gengið allvel og
afkoman verið góð en í áhöfn eru
alls þrjátíu manns.
Á fundinum í Reykjavík voru menn
sammála um að ótímabært væri að
taka upp sóknarmarkskerfi á svæð-
inu. Bent var á aö rannsóknir þar
væru í lágmarki, veiðireynslan lítil
og því fátt til að undirbyggja slíka
ákvörðunartöku.
Trausti Magnússon, skipstjóri á
Seyðisfirði, telur að sóknarmarks-
kerfi í Flæmska hattinum geti kippt
stoðum undan útgerð skipa og haft
ófyrirsjánleg áhrif á afkomu sjó-
manna.
DV-mynd Jóhann Jóhannsson
Mánudagur 23. okt.
kl. 9.00 - 23.00 Hitt Húsið
GALLERÍ GEYSIR
MYNDLISTARSÝNING.
kl. 10.00 - 17.00 Háskúlabíð
LJÓSMYNDASÝNING frá maraþoni.
kl. 13.00 -19.00 Hafnarhúsið
LISTSMIÐJA Unglistar.
kl. 17.00 Hitt Húsið
F0RSMEKKUR að dagskrá kvöldsins.
kl. 20.30 Tjarnarbíð
LISTAKVÖLD
FRAMHALDSSKOLANNA.
Fréttir
Wlf&l
sími: 551-5353
Tvær túlkanir á sömu lagagrein með stuttu millibili:
Fjölmörg göt á heil
brigðislöggjöfinni
-segirlngibjörgPálamdóttir heilbrigðisráðherra
„Ég hef ákveðið að láta endurskoða
heilbrigðislöggjöfina í heild sinni
vegna þess að það em íjölmörg göt á
henni. Það er búið að krukka svo í
lögin og breyta þeim á aila vegu í
tímans rás að segja má að heilbrigð-
islöggjöfin sé orðin stagbætt og
þarfnist svo sannarlega endurskoð-
unar og ýmis atriði lagfæringar,"
sagði Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra þegar hún var spurð
um breytta túlkun ráðuneytisins á
lögunum um tengdar bætur sem
skertar vom á dögunum til þeirra
sem þiggja endurhæfingarlífeyri.
„Þegar lögunum var breytt 1993 og
ákvæði um endurhæfingarlífeyri var
flutt yfir í lög um félagslega aðstoð
töldu þingmenn sig vera í vissu um
að engin breyting yrði á fram-
kvæmdinni. Síðan var beðið um laga-
túlkun og samkvæmt ýtrasta texta
laganna má skilja það svo að þeir sem
þiggja endurhæfingarlífeyri eigi að
missa rétt til svokallaðara tengdra
bóta. Þess vegna voru þær teknar af.
En vegna þess að það var aldrei ætl-
un þingmanna, sem samþykktu lög-
in, að bætumar yrðu teknar af og til
þess að svo megi verða þarf ýtrustu
lagatúlkun og vegna þess að heildar-
löggjöf almannatrygginga er að fara
í endurskoðun var ákveðiö að láta
bæturnar ekki detta niður. Þetta atr-
iði verður lagfært við endurskoðun
laganna," sagði Ingibjörg Pálmadótt-
ir heilbrigðisráðherra við DV.
Það hefur vakið athygli aö bæturn-
ar voru teknar af fyrir tveimur vik-
um samkvæmt lögum og nú settar á
aftur, líka samkvæmt lögum. Ingi-
björg var spurð hvort það gengi upp
gagnvart lögunum að segja A fyrir
tveimur vikum en B í dag.
„Það er nú svo með þessi lög eins
og fleiri að lögfræðingar túlka þau
ekki allir eins. Þannig er með þá
lagabreytingu sem gerð var 1993. Ég
hef fengið misvísandi túlkun lög-
fræðinga á þessu atriði. Auk þess
sem vilji þingsins um að bætumar
skuh ekki skerðast var og er ótvíræð-
ur,“ sagði Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra.
CELESTIOn
SOUNDStylc
101%
Hljómgæði
JAPIS
'wrœr-/é-íZts*/