Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1995, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1995, Page 27
MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1995 Menning Hjálmar Hjálmarsson, Pálmi Gestsson og Örn Árnason leika ræningjana. Glatt á hjalla í Kardemommubæ Barnsleg einlægni ræður ríkjum í Kardemommubæ ogjafnvel rænin- gjamir, sem fara á kreik á nótt- unni, eru allra vænstu skinn. Þeir þurfa bara að fá sitt tækifæri eins og aðrir. Ævintýraheimur Thorbjörns Egner er einstakur. Persónurnar eru skýrar í samfélagi Karde- mommubæjarins og boðskapurinn er settur fram á jákvæðan hátt. Allir geta hrifist með. Þetta er í fimmta sinn sem Þjóð- leikhúsið setur verkið upp frá 1960 og leikstjóri að þessu sinni er Kol- brún K. Halldórsdóttir, en henni til ráðuneytis var Klemens Jónsson, sem stýrði öllum hinum sýningun- um. Upphafleg þýðing Huldu Val- týsdóttur og söngtextar Kristjáns Smáauglýsingar T Heilsa Trimform Bergllndar býður alla velkomna í frían prufutíma. Komið þangað sem árangur næst. Erum lærðar í rafnuddi. Opið frá 7.30-22 v. daga. Visa/Euro. S. 553 3818. frá Djúpalæk hljóma vel sem fyrr og eru einhvern veginn orðin óað- skiljanlegur hluti af verkinu. Uppsetningin er að flestu leyti í fastmótuðum stíl sem fylgt hefur verkinu frá upphafi og byggir um margt á hugmyndum og forskrift Leiklist Auður Eydal höfundarins sjálfs. Miðað við fyrri sýningar eru helstu útlitsbreyting- arnar fólgnar í skærari litum og suðrænum áhrifum við skreytingu leikmyndar og hönnun búninga. Þetta fannst mér koma vel út og gefa sýningunni ferskan svip. Pálmatré, blómskrúð og leirker breyta samt engu um það að þetta ævintýraland er einhvers staðar hérna rétt handan við hornið í okk- ar heimshluta, og það sama mundi auðvitað gilda hvar sem Karde- mommubærinn væri settur upp. í heild var uppsetningin litrík og lifandi, þó að rennslið hefði mátt vera þéttara til að byrja með. En fljótlega náði sýningin fullum dampi og það mátti greinilega finna af viðbrögðum krakkanna í salnum að þeir lifðu sig inn í söguna, eftir svolitla ókyrrð þegar sýningin var að byija. Ræningjamir eru aUtaf jafn vin- sælir og í hlutverkum þeirra nú eru Pálmi Gestsson, Örn Árnason og Hjálmar Hjálmarsson. Þeir fóru rólega í sprélhð á frumsýningunni og hefðu kannske mátt vera svolít- ið innlifaðri stundum. En samleik- ur þeirra er skemmthegur og bestu atriðin eins og þegar þeir ræna Soffiu frænku vel útfærð og hæfi- lega spennandi. Ami Tryggvason var ljúfur sem Tóbías í turninum og Bastian bæj- arfógeti er ein af óbreytanlegu stærðunum í sýningunni enda Ró- bert Amftnnsson alvanur í hlut- verkinu. Af nýhðum vöktu.þeir Sveinn Þ. Geirsson (pylsugerðar- maður) og Bergur Þór Ingólfsson (Sörensen rakari) sérstaka athygli fyrir skemmtilega túlkun en auö- vitað er sægur af leikurum sem koma við sögu. Krakkarnir í hlutverkum Kam- illu og Tommís, þau Guðbjörg Helga Jóhannsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson, standa sig rpjög vel. Þau em elskuleg, skýr- mælt og afslöppuð á sviðinu. Ein af þeim persónum sem setja hvað mestan svip á Karde- mommubæinn (fyrir utan ræningj- ana að sjálfsögðu) er Soffía frænka. Ólafía Hrönn Jónsdóttir er glimr- andi fin í hlutverkinu og kryddar sýninguna með skemmtilegri túlk- un sinni. Dýragervi em sérstaklega at- hygUsverð og leikendur innan í þeim stærstu vel samhæfðir í hreyfingum. Hestar, úlfaldi, kisur, hundar og ljón setja mikinn svip á sýninguna og taka þátt í atburðum á sinn hátt. Dansarnir eru fiömgir og vel útfærðir og undirstrika heildaranda verksins. Án söngva og tónUstar væri Kardemommubærinn ekki nema svipur hjá sjón og um þann þátt sér lífleg hljómsveit undir stjórn Jó- hanns G. Jóhannssonar. í heild ber sýningin Kolbrúnu K. Halldórsdóttur leikstjóra gott vitni. Hún er hefðinni trú, en setur engu að síður upp ferska og sjálfstæða útgáfu af sígUdu verki. Þjóðleikhúsið sýnir á stóra sviðinu: Kardemommubæinn ettir Thorbjörn Egner Þýðing: Hulda Valtýsdóttir Þýðing söngtexta: Kristján frá Ojúpalæk Dansar: Agnes Kristjónsdóttir og Kol- brún Halldórsdóttir Hljóðstjórn: Sveinn Kjartansson Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson Leikmynd: Finnur Arnar Arnarsson Búningar: Guðrún Auðunsdóttir Dýragervi: Katrín Þorvaldsdóttir Tónlistarstjórn: Jóhann G. Jóhannsson Listrænn ráðunautur: Klemens Jónsson Leikstjórn: Kolbrún K. Halldórsdóttir ÍHflGÆÐA- ------J MTMAUSTIÁN I /12 má/vm/A ^ ' &a-&ogtnoLðoLf° / ^ TELEFUNKEN S-8400 M NIC 33" sjónvarpstæki • Black Matrix FST-skjár 4 hátalarar, þar af 2 snúanlegir • Nicam Stereo HiFi-hljómur meb 40 W Surround magnara ísl. textavarp • Upplýst fjarstýring sem er aubveld í notkun, barnalæsing, tímarofi o.m.fl. Verb: 177.600,- TELEFUNKEN S-540 C NIC 29" sjónvarpstæki • Nýr Black D.I.V.A.-skjár 4 hátalarar • Nicam Stereo HiFi-hljómur mfb 40 W Surround-magnara • 2 þrepa Zoom Isl. textavarp • Upplýst fjarstýring sem er aubveld í notkun, barnalæsing, tímarofi o.m.fl. Verð: 131.400,- TELEFUNKEN S-531 NIC 28" sjónvarpstæki • Black Matrix FST-skjár 4 hátalarar • Nicam Stereo HiFi-hljómur meb 40 W Surround magnara • Isl. textavarp Sring sem er aubveld í not1<un, esing, tímarofi o.m.fl. Verb: 107.700,- — WSA uwmmi I TIL 24 MANAOA I WMTBITCCW.IMtlllCPIlÍCTtMBllO Skipholti T Sími: 552 9800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.