Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1995, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1995, Page 33
MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1995 5 írsk og skosk þjóðlög 1 kvöld mun Jónas Ámason flytja kveðskap sinn við írsk og skosk þjóðlög í samvinnu við hljómsveitina Keltana, en hún hefur sérhæft sig í flutningi á keltneskri þjóðlagatónlist á und- anförnum árum og leikur á hefð- bundin þjóöleg hljóðfæri. Tónlist Mikfl vinna og alúð hefur ver- ið lögð í þessa efnisskrá með kvæðum Jónasar og var hún fyrst flutt síðastliðinn mánudag og var vel tekið. Þama má heyra lög og ljóð sem margir hafa litiö á sem íslensk þjóðlög, svo þekkt eru þau hér á landi. Einnig eru flutt lög sem sjaldnar hafa heyrst en standa hjarta skálds- ins nærri. Þess má get að tón- leikar þessir eru teknir upp á geisladisk sem væntanlegur er á næsta ári. Tilbrigði við húsagerð í kvöld kl. 20.00 verður í Nor- ræna húsinu annar fyrirlestur af átta í röð fyrirlestra og fræðslufunda um byggingarlist og hönnun. Fyrirlesari í kvöld er Ben van Berkel, leiðbeinandi í arkitektaskólanum AA í Lon- don. Staða konunnar fyrr á öldum Félag íslenskra háskóla- kvenna og Kvenstúdentafélag ís- lands heldur fjögurra kvölda námskeið í umsjón Jóns Böðv- arssonar íslenskufræðings og Kolbrúnar Bergþórsdóttur bók- menntafræðings dagana 23.-30. október í stofu 102 í Lögbergi kl. 20.00 til 22.00. Opinn fundur félagsmála- ráðs Félagsmálaráð Reykjavíkur- borgar heldur opinn fund í Tjarnarsal Ráðhússins kl. 16.30 í dag og er öllum heimill aðgang- ur. ITC-deildin Kvistur Næsti reglulegi fundur verð- Samkomur ur haldinn að Litlubrekku (Lækjarbrekku), Bankastræti 2, mánudaginn 23. október kl. 20.00. Fundurinn er öllum op- inn. Ókeypis kynningarnám- skeið í hugleiðslu í dag hefst hugleiðsluvika en það er röð kynningarnámskeiða í hugleiðslu á vegum Sri Chin- moy miðstöðvarinnar og eru námskeiðin ókeypis. Þau fara fram í Sri Chinmoy miðstöð- inni, Hverfisgötu 76, kl. 15.00 tfl 17.00 og kl. 20.00-22.00 alla daga vikunnar. Listaklúbbur Leikhúskjallarans: Söngferðalag I kvöld munu Marta Guðrún Halldórsdóttir söngkona og Örn Magnússon píanóleikari koma fram í Listaklúbbi Leik- húskjallarans og flytja dagskrá sem þau hafa kosið að kalla Söngferðalag. Þau Marta og Örn munu-koma víða við og flytja þjóðlög í búningi tón- skálda, meðal annars úr safni Skemmtanir Engel Lund og Ferdinands Rauter og lög í útsetningum eft- ir Britten., Grainger og Ravel. Á seinni hluta efnisskrárinnar eru italskar antikaríur ásamt Barrokk-aríu eftir Atla Heimi Sveinsson. Tónleikamir í Leik- húskjallaranum hefjast kl. 21.00. Nýtt tónverk á 28 leikskólum John Speight hefur samið Árstíöirn- ar til flutnings í leikskólum. í dag og út þessa viku mun Tón- skóli Sigursveins D. Kristinssonar í samvinnu við Dagvist barna helga starf sitt heimsóknum á leikskóla. Tónlist Heimsóttir verða 28 leikskólar og á hverjum stað kynnt hljóðfæri, haldnir stuttir tónleikar og flutt tón- verkið Árstíðirnar eftir John Speight, sem samið er sérstaklega af þessu tilefni. Kennarar skólans hafa ásamt leikskólakennurum haft veg og vanda af undirbúningi og skipu- lagningu en nemendur Tónskólans og börnin á leikskólunum munu flytja Árstiðirnar með hljóðfæraleik og söng. Bróðir Agnesar og Arianne Litli drengurinn á myndinni fæddist á fæðingardefld Landspítal- ans 10. október klukkan 1.37. Hann Barn dagsins var viö fæðingu 3470 grömm og 52 sentímetra langur. Foreldrar hans eru Jóhanna Mavin Jónsdóttir og Aurelio Ferro. Hann á tvö systkin, Agnes, sjö ára og Arianne, þriggja ára. Ýmsar aðferðir eru notaðar til að fá giæpamenn til að játa. Nei er ekkert svar Ný íslensk og umdefld kvik- mynd, Nei er ekkert svar, sem hefur verið sýnd í Bíóborginni segir .frá Siggu, rólyndisstúlku sem kemur tfl Reykjavíkur í heimsókn til systur sinnar, Dídí- ar, sem verður best lýst með orð- unum „hvirfilbylur með vara- lit“. Báðar standa þær á tíma- mótum í lífi sínu: Sigga íhugar giftingu og börn en Dídi reynir hvað hún getur til að komast úr landi og hefia nýtt líf. Án þess að gera sér fyllflega grein fyrir því í fyrstu aðstoðar Sigga systur sína við að stela eiturlyfiasendingu frá útlendum dópsölum og í sömu andrá eru þær komnar á æðisgenginn flótta með tryllta Kvikmyndir morðingja, dópsala og löggur á hælunum. Þess á milli þvælast þær um í partíum, sofa hjá mis- vönduðum mönnum, horfa á fá- ránlegar klámmyndir og gera yfir höfuö sitt besta til að lifa af í heimi þar sem þjófnaðir, kynlíf, fikniefni, mannrán, slagsmál, rokk og nauðganir eru daglegt brauð. Nýjar myndir Háskólabíó: Flugeldar ástarinnar Laugarásbíó: Apollo 13 Saga-bíó: Vatnaveröld Bíóhöllin: Sýningarstúlkurnar Bíóborgin: Brýrnar í Madison- sýslu Regnboginn: Að yfirlögðu ráði Stjörnubíó: Netið Gengið Aimenn gengisskráning Li nr. 246. 13. október 1995 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 64,510 64,830 64,930 Pund 101,750 102,270 102,410 Kan. dollar 48,190 48.480 48,030 Dönsk kr. 11,7260 11,7880 11.771C Norsk kr. 10,3480 10,4050 10,3630 Sænskkr. 9,2640 9,3150 9.240C Fi. mark 15,0030 15,0920 14.995C Fra. franki 13,0410 13,1150 13.238C Belg. franki 2,2104 2,2237 2.222Í Sviss. franki 56,2100 56,5200 56.520C Holl. gyllini 40,6100 40,8500 40.790C Þýskt mark 45,5000 45,7400 45.680C It. lira 0,04034 0,04060 0,0403 Aust. sch. 6,4630 6,5040 6.496C Port. escudo 0,4327 0,4353 0.435C Spá. peseti 0,5279 0,5311 0,5272 Jap. yen 0,64420 0,64800 0.6512 Irskt pund 104,080 104,730 104,770 SDR 96,66000 97,24000 97,4800 ECU 83,7900 84,2900 Sfmsvari vegna gengisskráningar 5623270. Krossgátan r~ 9 r:r r- r- s iö \r~ tr ir J p 15 fl n n u J Lárétt: 1 fiárnám, 8 annars, 9 hyskin, 10 fyndið, 11 félagar, 13 viðvikjandi, 15 les, 17 hjör, 18 svari, 19 saur, 20 pípa. Lóðrétt: 1 texti, 2 armur, 3 Ijómi, 4 heyiö, 5 borinn, 6 ábreiðu, 7 stefna, 12 viöureign, 14 tré, 16 dimmviðri, 18 rykkorn. Lausn á síöustu krossgátu. Lárétt: 1 kanna, lá, 8 efia, 9 met, 10 flötina, 12 lár, 14 ness, 16 il, 17 virki, 19 skari, 20 án, 21 aura, 22 lin. Lóðrétt: 1 kefli, 2 afl, 3 njörvar, 4 natnir, 5 ami, 6 lens, 7 át, 11 asinn, 13 álku, 15 eril, 18 kái, 19 sa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.