Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1995, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1995, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 26. OKTOBER 1995 Fréttir Gríðarstórt snjóflóð féll á Flateyri og tuga íbúa saknað í nótt: Hús horfin í heilu lagi - algjör eyðilegging blasir hér við, sagði einn björgunarmanna Flóðið fór yfir austasta og efsta hluta kauptúnsins á Flateyri. Ekki er vitaö með vissu um umfang þess en þó vitað að 17 hús eru ónýt eða skemmd. Fólk var í átta þessara húsa. Snjótlóöið á Flateyri féll utan þess svæðis sem menn töldu hættulegast. Þessi raöhús á Flateyri urðu fyrir snjóflóöinu mikla í nótt. Griðarstórt snjóflóö, sem kom óvænt úr Skollahvilft og fór yfir snjóflóðavamir, hreif a.m.k. 17 hús með sér á Flateyri klukkan 4.07 í nótt. Fljótlega varð ljóst að á þriðja tug íbúa var saknað. Þegar DV fór í prentun höfðu fréttir borist um einn látinn og a.m.k. tveir voru slasaðir en tugum íbúa hafði verið bjargað. Þeir sem stóðu í eldlínunni á Flat- eyri hvöttu fólk til að sýna stillingu og reyndu aö vera bjartsýnir. „Þetta er algjör eyðilegging. Húsin eru horfin í heilu lagi,“ sagði einn íbúa Flateyrar í samtali við DV um hálfri klukkustund eftir að flóðið féll. Flóðið féll á innanverða Flateyri, við götumar Ólafstún, Hjallaveg, Tjamargötu og Unnarstíg og raunar Snjóflóðið á - birt meö fýrirvara Flugvöll- urinn á Þingeyri ruddur Flugvöllurinn á Þingeyri var mddur í morgun þannig að hann yrði til taks þegar flugfært yrði til Vestfjarða. Að sögn Davíðs Kristjánsson flugvallarstjóra um hálftíu í morgun var búist við að flugbrautin yrði fær í kringum hádegið. Þingeyri er næsti staður við Flateyri með tiltækan flug- völl. Stórhríð var á Þingeyri í morgun og þrjú snjóruðnings- tækinotuðáflugvellinum. -bjb Rauðikrossiim: Tuttugu milljónir í fyrstuað- stoð Stjóm Rauða kross íslands kom saman til fundar í morgun í til- efni snjóflóðsins á Flateyri. Sfjómin ákvað að veita 20 millj- ónir króna í fyrstu aðstoð við þá sem verða fyrir hamfórunum. Fjórir flokksstjórar RK í fjölda- hjálp em á leið til ísafjarðar með varðskipinu Ægi, auk þess sem flokksstjórar frá Bolungarvík og ísafirði em á leið til Flateyrar. Ríkisstjórnin: Neyðar- fundur í morgun Flestir ráðherrar ríkisstjómar íslands komu saman til neyðar- fundar um áttaleytið í morgun vegna hörmunganna á Flateyri. Vigdís Finnbogadóttir forseti kom til fundar við ríkissfjómina. Þar var m.a. ákveðið að kalla saman hóp ráðuneytisstióra, líkt og gert var vegna flóðsins á Súða- vík í janúar sL, til aö koma skipu- lagi á þær björgunaraðgeröir sem snúa að ríkisstjóminni sérstak- lega og greiða fyrir því að björg- unarstarf geti gengið snurðulaust áFlateyri. -bjb alla leið niður að heilsugæslustöð við Eyrarveg en hann er miðsvæðis í þorpinu. Brak úr húsum barst fram hjá kirkjunni og alla leið niður að pósthúsi sem stendur við Hafnar- stræti neðarlega á eyrinni. Tveggja hæða hús við Unnarstíg fór nánast í heilu lagi niður að heilsugæslustöð- inni. Hríð gerði björgunarsveitarmönn- um og öðrum sem vetthngi gátu vald- ið erfitt fyrir með björgunarstörf. Flateyringar voru einir um björgun- arstörf fyrstu klukkustundimar vegna mjög erfiðrar færðar. Flóðið var svo stórt að það féU á svæði sem talin voru utan hættusvæðis - yfir snjóflóðavamir. Fjölskyldunni í húsinu við Hjalla- veg 4 var bjargað í morgun eftir að fólkið, hjón með tvö böm og eitt gest- komandi, halði beðið í rústum þess í nokkra klukkutíma. Tíu ára dreng- ur skarst nokkuð og var orðinn kald- ur þegar björgunarmenn komu aö. Hann er þó ekki í lífshættu. Annað heimilisfólk slapp ómeitt. Björgunarmenn vom þegar síðast fréttist enn að leita um tuttugu íbúa. Þar á meðal var eiginmaður konu sem flúði úr húsi sínu í gærkvöldi og vildi sofa á öruggari stað í nótt. Maðurinn vildi ekki fara úr húsinu og er hans nú leitað. Fólk á Flateyri segir að gífurleg snjókoma hafi verið í alla nótt en ekki var búist við að veðrinu slotaði fyrrenífyrstalagiíkvöld. -Ótt/GK Björgunarmenn komu með Æsunni Nokkrir tugir björgunarsveitar- manna frá ísafirði vom á leiö til að- stoðar fólkinu sem lenti í snjóflóðinu á Flateyri í nótt. Þegar DV fór í prent- un í morgun var báturinn Æsan að fara aðra ferð yfir Önundarfjörð með björgunarsveitarmenn frá Holti og hafði gengið vel að flytja þá yfir. Það vom um 13-14 menn frá björg- unarsveitinni Skutli sem fóru með Æsunni frá Holti, annað eins frá Tindum í Hnífsdal og svipað frá Hjálparsveit skáta á ísafirði. Björg- unarsveitarmenn hafa meðferðis öll tæki í eigu sveitanna og búnað til að hlúa að þeim sem lentu í flóðinu. ís- firðingarnir vom fyrstu björgimar- mennirnir sem komu til Flateyrar. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu- maður á ísafiröi og formaður al- mannavamarnefndar fyrir vestan, var veðurtepptur í Reykjavík þegar snjóflóðið féll á Flateyri. Fulltmi hans, Sólveig Jóhanna Guðmunds- dóttir, gegndi formennsku í al- mannavamanefnd í hans stað en Almannavamir ríkisins í Reykjavík hafa yfirumsjón með björgunarað- gerðum. -GHS Elínóra Guðmundsdóttir, Flateyri: Barnabarnið slasaðist „Maðurinn minn er núna hjá barnabami okkar í heilsugæslustöð- inni. Þetta er tíu ára strákur og hann var orðinn kaldur en óverulega slas- aður. Ég get bara setið hér og vonað hið besta,“ sagði Elínóra Guðmunds- dóttir á Flateyri en hún bjó í húsinu númer 7 við HjaUaveg. Húsið slapp en öll næstu hús fyrir austan eyðilögðust. Elínóra sagði að sér hefði í nótt sýnst sem þökin hefðu farið af húsunum við hliðina en vegg- imir stæðu eftir. Lítið væri þó hægt að sjá vegna dimmviðris. „Hér er rafmagnslaust og ég heyri ekki í útvarpi. Ovissan er því alger en allir sem geta em að leita að hin- um týndu. Þetta em hræöilegar hörmungar og ég veit ekki hvemig verður með framhaldiö hér. Þessi ósköp byrja svo snemma,“ sagði Elínóra. -GK Snjóflóðið á Flateyri: Hef ur áður fallið á „ör- uggt" svæði - segir Guðmundur Sigurðsson „Mimnmælasögur segja að flóð hafi áður fallið á þetta svæði og gamlir menn segja að stórt flóð hafi fallið um miðjan sjötta áratug- inn á raðhúsalengjuna við HjaUa- veg sem taldist á ömggu svæði," segir Guðmundur Sigurðsson, íbúi við Ólafstún á Flateyri, en búist er viö að snjóflóöið hafi hrifið með sér og gjöreyðUagt hús hans í nótt. Eiginkona Guðmundar hringdi í hann um fimmleytið í nótt á Borg- arspítalann í Reykjavík þar sem hairn var í læknisrannsókn tíl að láta hann vita af snjóflóðinu. Hún hafði verið látin rýma hús þeirra hjóna við Ólafstún, enda taldist það til hættusvæðis, og var stödd hjá tengdaforeldrum sínum með böm- in tvö, 1 og 4ra ára, á ömggu svæði í miðju þorpinu. „Ég hef ekkert annað heyrt. Það hafa engar fréttir borist af húsinu og klukkan fimm í morgun vissi enginn neitt,“ sagði Guðmundur við DV í morgun. Búist er við að öU húsin við Ólafs- tún séu Ula farin eftir flóðið og verða þau látin bíða þar til síðast. -GHS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.