Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1995 Utiönd Jeltsín fær um Yfir 300 létust 1 eldsvoða 1 neðanjarðarlest í Baku: aðstjórna Embættis- menn fengu ekki aö hitta Borís Jeltsín Rússlandsfor- seta um helgina á sjúkrahúsiö þar sem hann liggur. Jeltsin fékk vægt hjartaáfall í lok síðustu viku og er líöan hans er óbreytt. Blaðafulltrúi forsetans heldur því fram að hann sé fær um aö stjórna landinu og ekki sé nein ástæða til að láta forsætisráö- herra landsins, Viktor Tsjemo- myrdin, taka við stjóminni. Helsti umbóta- flokkurinnfær ekki skráningu Yfirkjörstjóm í Rússlandi neit- aöi helsta umbótaflokki landsins um skráningu fyrir kosningarnar í desember. Var leiðtoga flokks- ins, hagíræðirignum og stjórn- málamanninum Grigory Javlín- sky, gefið að sök að hafa brotið reglur með því aö strika út nöfn sex manna af Iista flokksins gegn vilja þeirra. Er litið á viðbrögð yfirvalda sem aivarlegt áfall fyrir lýöræðishreyfinguna i RússlandL Mandelajóla- sveinn ársins Danskur jólasveinn fór með sig- ur af hólmi í fyrstu heimsleikum jólasveina sem haldnir voru í bænum Hulissat á Grænlandi um helgina. Saufján jólasveinar frá tólf löndum tóku þátt í keppn- inni. Jólasveinamir kusu jaíri- framt, jólasvein ársins“ og hlaut Nelson Mandela, forseti Suður- Afríku, titilinn fyrir starf sitt að velferð bama. Verðlaunaféð, 100 þúsund dollarar, rennur til barnahjálpar í Suður-Afríku. Hundruð mót- mælendatókuá mótiChirac Mörg hundruð andstæðingar kjamorkuvopna söfnuðust sam- an viö sumarbústað Majors, for- sætisráðherra Bretlands, áður Chirac Frakklandsforseti kom þangaö 1 gær. Nokkrir mótmæl- enda voru handteknir. Frakkar framkvæmdu þriðju tilrauna- sprengingu sína í Kyrrahafi á fóstudag. Bretland er eina landið innan Evrópusambandsins sem ekki hefur fordæmt tilraunir Frakka. Lubbershelsti kandídatinn Eftir miklar umræöur ínn- an NATO þykir Hollendingur- inn Ruud Lub- bers einna helst koma til greina sem næsti framkvæmda- stjóri samtakanna, að því er segir í Welt am Sonntag 1 gær. Það verður hlutverk nýs fram- kvæmdastjóra að ræða við Rússa um útvíkkun NATO til austurs og fá þá til að sætta sig við hana. Meðal annars þess vegna þykir Uffe Ellemann-Jensen ólíklegur í émbættiö því hann hefur sýnt Eystrasaltsríkjunum sérstakan velvilja. Uffe þótti einnig mótmæla sér- lega kröftuglega kjarnorku- sprengingum Frakka, auk þess sem Ðanir eru ekki í V-Evrópu- sambandinu. Reuter, Ritzau.NTB Lokuðust inni í brennandi vögnunum Óttast er að yfir þrjú hundruð hafi látið lífið og jafnmargir slasast er eldur kom upp í neöanjarðarlest í Baku, höfuðborg Azerbajdzhan, á annatíma á laugardagskvöld. Sam- kvæmt upplýsingum yfirvalda er tal- ið að kviknað hafi í vegna bilunar í háspennukapli. í fyrstu var talið að um skemmdarverk hefði getað verið að ræða. Mikjll stjórnmálaórói er í Azerbajdzhan og í fyrra létu tuttugu manns lifiö í tveimur sprengjutil- ræðum í neðanjarðarlestum í Baku. Slökkviliðsmenn, sem voru enn í gær að ná í lík úr lestinni, kváðust óttast að allt að sex hundruð hefðu látið lífið í eldhafinu. Lögreglan vís- aði þessu á bug. Örvænting greip um sig meðal far- þeganna þegar eldurinn braust út í öftustu vögnum fullsetinnar lestar- innar sem var á ferð í göngum. Vegna rafmagnsbilunar gat lestarstjórinn ekki opnað dyrnar. Sjónarvottar segja að þykkur reyk- ur hafi breiðst um lestina frá vögn- unum sem brunnu og að margir hafi kafnað eða troðist undir þegar þeir reyndu að bjarga sér út úr lestinni og upp úr göngunum. „Viö gerðum okkur grein fyrir að við yrðum að opna dymar. Þegar það tókst tróðst fólk undir þegar það reyndi að forða sér út,“ sögðu sjónarvottar. Forseti landsins, Gajdar Alijev, lýsti yfir þjóðarsorg í gær og í dag. Þingkosningar verða eftir tvær vikur í Azerbajdzhan og fer spennan vegna þeirra vaxandi. Margir stjómarand- stæðingar forsetans hafa verið hand- teknir og nýlega hlutu margir blaða- menn langa fangelsisdóma fyrir að hafa móðgað forsetann í háðsádeilu- riti. Forsetinn, sem er 71 árs, er fyrrum yfirmaður í sovésku leyniþjón- ustunni í Azerbajdzhan. Hann var í framkvæmdastjórn sovéska komm- únistaflokksins til ársins 1985. Fyrir tveimur áram kom hann aftur fram á sjónarsviðið í stjórnmálum í heimalandinu og tók við völdum þeg- ar tveimur forsetum hafði verið steypt á tæpum tveimur árum. Ritskoðun er í Azerbajdzhan og lýðræði virðist langt undan. Blóðug uppgjör hafa verið á mörgum víg- stöðvum í Azerbajdzhan á undanf- ömum árum, bæöi milli glæpaflokka og svo á milli stjórnarandstöðu og yfirvalda. Auk þess hafa Azerbajdzar átt í stríöi við Armena um átta ára skeið um héraðið Nagorno Karabach. Margir setja óróann í Azerbajdz- han í samband við miklar olíulindir í Kaspíahafi sem enn er ekki farið að nýta. Alþjóðleg olíufélög hafa samið við yfirvöld um vinnslu ol- íunnar og flutning á henni til Evr- ópu. Reuter, TT Mirza Swajovic var einn af tiu föngum sem Serbar létu lausa í gær. Hér kyssir Mirza unnustu sína, Merciha Mehmevic, við komuna til Dobrinja, eins af úthverfum Sarajevo, í gær. Fangaskipti Serba og Bosníumanna fóru fram á flugvellinum i Sarajevo og lét hvor aðili um sig lausa tíu fanga. Reuter Hótaaðhefna myrtsleiðtoga Palestínsku samtökin Jihad, Heilagt stríð, hétu því í gær að hefna morðsins á leiðtoga sam- takanna með því að efna til fleiri sprengjutilræða gegn gyðingum. Leiðtoginn, Fathi Shqaqi, var skotinn fyrir utan hótel sitt í Sli- ema á Möltu á fimmtudaginn. Tveir menn á mótorhjóli skutu fimm skotum í höfuö Shqaqis. Fá vitni voru að atburðinum en lög- reglan gat þess þó að svo hefði virst sem morðingjarnir hefðu beðið í nokkrar klukkustundir eftir fórnarlambi sínu. Shqaqi, sem var með aösetur í Sýrlandi, hafði farið til Líbýu á fund Gaddafis forseta. Malta er í nánu sambandi við Líbýu og hef- ur orðið nokkurs konar umferð- armiðstöð fyrir Líbýumenn sem hafa viljað komast hjá feröabanni á land þeirra. Fara þeir með ferj- um til Möltu. í fyrstu taldi lög- reglan að morðiö hefði verið upp- gjör í líbýska samfélaginu á eyj- unni. Samtökin Heilagt stríð segja Mossad, leyniþjónustu ísraels, eigasökámorðinu. Reuter Plötusnúðurinn sem lék á Bretadrottningu: Gabbið ekki í pólítískum tilgangi Kanadíski plötusnúðurinn, sem útvarpaði símtali sínu við Elísabetu Bretlandsdrottningu er hann þóttist vera forsætisráðherra Kanada, sagði að einungis hefði verið um símaat að ræöa án nokkurs pólítísks til- gangs. Samtal drottningar og plötusnúðs- ins, Pierres Brassards, snerist um þjóðaratkvæðagreiðsluna um sjálf- stæði Québec á morgun. Brassard hermdi svo vel eftir rödd Jeans Chrétiens, forsætisráðherra Kanada, aö drottningin lét gabbast. Lýsti Brassard yfir áhyggjum sínum yfir því að sjálfstæðissinnar í Québec færu með sigur af hólmi og spurði drottningu hvort hún vildi leggja málinu liö með því að flytja ræðu. Drottning tók vel í það. Ymsir telja að símtalið verði tfl aö auka fylgi sjálfstæðissinna. Reyndar hafa frumbyggjar Québec, indíánar og eskimóar, þegar sagt nei við aðskilnaði við Kanada í eigin Bretar eru öskureiðir yfir aö drottn- ing þeirra var göbbuð. þjóðaratkvæöagreiðslu. Þeir vilja ekki fara út í óvissu með frönsku- mælandi íbúum Qébecs. Reuter, TT Stuttar fréttir Sarajevoopnast Sarajevobúar gátu ferðast með langferðabifreiðum úr borginni i gær á þjóðvegi i fyrsta'sinn í 42 mánuði. Áður urðu þeir að ferð- ast eftir hættulegri fjallaslóð. KosiðiKróatíu Litiö er á þingkosningarnar í Króatíu sem þjóðaratkvæða- greiðslu um þjóðernisstefnu Franjos Tudjmans forseta oghót- anir hans gegn aöskilnaðarsinn- um Serba. Hundrað f órust í óveðri Nærhundrað manns fómst í óveðri á Filippseýjum um helg- ina. Sextiu þúsund manns flúöu heímili sín vegna óveðursins. Sjötíu falla á Sri Lanka Prestur tamíla á Sri Lanka sagði í gær að skæruliðar tamíla heföu myrt 29 meinta uppljóstr- ara úr eigin röðum í þessum mánuði. Yfir sjötíu féllu í bardög- um skæruliða og hermanna í gær. Sammála um kosningar Fyrrum forsætisráðherra ítal- íu, Silvio Berlusconi, og andstæð- ingar hans uröu sammála í gær um að efna ætti til kosninga um leið og fjárlagafrumvarpið heföi veriö samþykkt. Havei gagnrýnir Vaclav Havel, forseti Tékk- lands, gagnrýndi í gær Vestur- lönd fyrir aö vera of sein að opna stofnanir sínar fyrir Mið- og Austur-Evrópu. Óttast hann upp- gang harðlínumanna. Deyja i fangelsum Á þriðja þúsund hafa látist úr sjúkdómum í fangelsum í Rúanda síðustu 15 mánuðina samkvæmt upplýsingum Rauöa krossins. Nær 60 þúsund sitja í fangelsum landsins. Sprengjutilræði i Alsír Að minnsta kosti átta létu lífiö og áttatíu særðust i Rouiba í Als- ír í gær. Ráðherrafyrirrétt Gefnar hafa veriö út handtöku- skipanir á fyrrum vamarmála- ráðherra Suöur-Afríku og tíu háttsetta embættismenn vegna morða á 13 blökkumönnum 1987. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.