Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1995
Utiönd
Jeltsín fær um
Yfir 300 létust 1 eldsvoða 1 neðanjarðarlest í Baku:
aðstjórna
Embættis-
menn fengu
ekki aö hitta
Borís Jeltsín
Rússlandsfor-
seta um helgina
á sjúkrahúsiö
þar sem hann
liggur. Jeltsin
fékk vægt hjartaáfall í lok síðustu
viku og er líöan hans er óbreytt.
Blaðafulltrúi forsetans heldur því
fram að hann sé fær um aö
stjórna landinu og ekki sé nein
ástæða til að láta forsætisráö-
herra landsins, Viktor Tsjemo-
myrdin, taka við stjóminni.
Helsti umbóta-
flokkurinnfær
ekki skráningu
Yfirkjörstjóm í Rússlandi neit-
aöi helsta umbótaflokki landsins
um skráningu fyrir kosningarnar
í desember. Var leiðtoga flokks-
ins, hagíræðirignum og stjórn-
málamanninum Grigory Javlín-
sky, gefið að sök að hafa brotið
reglur með því aö strika út nöfn
sex manna af Iista flokksins gegn
vilja þeirra. Er litið á viðbrögð
yfirvalda sem aivarlegt áfall fyrir
lýöræðishreyfinguna i RússlandL
Mandelajóla-
sveinn ársins
Danskur jólasveinn fór með sig-
ur af hólmi í fyrstu heimsleikum
jólasveina sem haldnir voru í
bænum Hulissat á Grænlandi um
helgina. Saufján jólasveinar frá
tólf löndum tóku þátt í keppn-
inni. Jólasveinamir kusu jaíri-
framt, jólasvein ársins“ og hlaut
Nelson Mandela, forseti Suður-
Afríku, titilinn fyrir starf sitt að
velferð bama. Verðlaunaféð, 100
þúsund dollarar, rennur til
barnahjálpar í Suður-Afríku.
Hundruð mót-
mælendatókuá
mótiChirac
Mörg hundruð andstæðingar
kjamorkuvopna söfnuðust sam-
an viö sumarbústað Majors, for-
sætisráðherra Bretlands, áður
Chirac Frakklandsforseti kom
þangaö 1 gær. Nokkrir mótmæl-
enda voru handteknir. Frakkar
framkvæmdu þriðju tilrauna-
sprengingu sína í Kyrrahafi á
fóstudag. Bretland er eina landið
innan Evrópusambandsins sem
ekki hefur fordæmt tilraunir
Frakka.
Lubbershelsti
kandídatinn
Eftir miklar
umræöur ínn-
an NATO þykir
Hollendingur-
inn Ruud Lub-
bers einna helst
koma til greina
sem næsti
framkvæmda-
stjóri samtakanna, að því er segir
í Welt am Sonntag 1 gær. Það
verður hlutverk nýs fram-
kvæmdastjóra að ræða við Rússa
um útvíkkun NATO til austurs
og fá þá til að sætta sig við hana.
Meðal annars þess vegna þykir
Uffe Ellemann-Jensen ólíklegur í
émbættiö því hann hefur sýnt
Eystrasaltsríkjunum sérstakan
velvilja.
Uffe þótti einnig mótmæla sér-
lega kröftuglega kjarnorku-
sprengingum Frakka, auk þess
sem Ðanir eru ekki í V-Evrópu-
sambandinu. Reuter, Ritzau.NTB
Lokuðust inni í
brennandi vögnunum
Óttast er að yfir þrjú hundruð hafi
látið lífið og jafnmargir slasast er
eldur kom upp í neöanjarðarlest í
Baku, höfuðborg Azerbajdzhan, á
annatíma á laugardagskvöld. Sam-
kvæmt upplýsingum yfirvalda er tal-
ið að kviknað hafi í vegna bilunar í
háspennukapli. í fyrstu var talið að
um skemmdarverk hefði getað verið
að ræða. Mikjll stjórnmálaórói er í
Azerbajdzhan og í fyrra létu tuttugu
manns lifiö í tveimur sprengjutil-
ræðum í neðanjarðarlestum í Baku.
Slökkviliðsmenn, sem voru enn í
gær að ná í lík úr lestinni, kváðust
óttast að allt að sex hundruð hefðu
látið lífið í eldhafinu. Lögreglan vís-
aði þessu á bug.
Örvænting greip um sig meðal far-
þeganna þegar eldurinn braust út í
öftustu vögnum fullsetinnar lestar-
innar sem var á ferð í göngum. Vegna
rafmagnsbilunar gat lestarstjórinn
ekki opnað dyrnar.
Sjónarvottar segja að þykkur reyk-
ur hafi breiðst um lestina frá vögn-
unum sem brunnu og að margir hafi
kafnað eða troðist undir þegar þeir
reyndu að bjarga sér út úr lestinni
og upp úr göngunum. „Viö gerðum
okkur grein fyrir að við yrðum að
opna dymar. Þegar það tókst tróðst
fólk undir þegar það reyndi að forða
sér út,“ sögðu sjónarvottar.
Forseti landsins, Gajdar Alijev,
lýsti yfir þjóðarsorg í gær og í dag.
Þingkosningar verða eftir tvær vikur
í Azerbajdzhan og fer spennan vegna
þeirra vaxandi. Margir stjómarand-
stæðingar forsetans hafa verið hand-
teknir og nýlega hlutu margir blaða-
menn langa fangelsisdóma fyrir að
hafa móðgað forsetann í háðsádeilu-
riti.
Forsetinn, sem er 71 árs, er fyrrum
yfirmaður í sovésku leyniþjón-
ustunni í Azerbajdzhan. Hann var í
framkvæmdastjórn sovéska komm-
únistaflokksins til ársins 1985. Fyrir
tveimur áram kom hann aftur fram
á sjónarsviðið í stjórnmálum í
heimalandinu og tók við völdum þeg-
ar tveimur forsetum hafði verið
steypt á tæpum tveimur árum.
Ritskoðun er í Azerbajdzhan og
lýðræði virðist langt undan. Blóðug
uppgjör hafa verið á mörgum víg-
stöðvum í Azerbajdzhan á undanf-
ömum árum, bæöi milli glæpaflokka
og svo á milli stjórnarandstöðu og
yfirvalda. Auk þess hafa Azerbajdzar
átt í stríöi við Armena um átta ára
skeið um héraðið Nagorno
Karabach.
Margir setja óróann í Azerbajdz-
han í samband við miklar olíulindir
í Kaspíahafi sem enn er ekki farið
að nýta. Alþjóðleg olíufélög hafa
samið við yfirvöld um vinnslu ol-
íunnar og flutning á henni til Evr-
ópu.
Reuter, TT
Mirza Swajovic var einn af tiu föngum sem Serbar létu lausa í gær. Hér kyssir Mirza unnustu sína, Merciha
Mehmevic, við komuna til Dobrinja, eins af úthverfum Sarajevo, í gær. Fangaskipti Serba og Bosníumanna fóru
fram á flugvellinum i Sarajevo og lét hvor aðili um sig lausa tíu fanga. Reuter
Hótaaðhefna
myrtsleiðtoga
Palestínsku samtökin Jihad,
Heilagt stríð, hétu því í gær að
hefna morðsins á leiðtoga sam-
takanna með því að efna til fleiri
sprengjutilræða gegn gyðingum.
Leiðtoginn, Fathi Shqaqi, var
skotinn fyrir utan hótel sitt í Sli-
ema á Möltu á fimmtudaginn.
Tveir menn á mótorhjóli skutu
fimm skotum í höfuö Shqaqis. Fá
vitni voru að atburðinum en lög-
reglan gat þess þó að svo hefði
virst sem morðingjarnir hefðu
beðið í nokkrar klukkustundir
eftir fórnarlambi sínu.
Shqaqi, sem var með aösetur í
Sýrlandi, hafði farið til Líbýu á
fund Gaddafis forseta. Malta er í
nánu sambandi við Líbýu og hef-
ur orðið nokkurs konar umferð-
armiðstöð fyrir Líbýumenn sem
hafa viljað komast hjá feröabanni
á land þeirra. Fara þeir með ferj-
um til Möltu. í fyrstu taldi lög-
reglan að morðiö hefði verið upp-
gjör í líbýska samfélaginu á eyj-
unni.
Samtökin Heilagt stríð segja
Mossad, leyniþjónustu ísraels,
eigasökámorðinu. Reuter
Plötusnúðurinn sem lék á Bretadrottningu:
Gabbið ekki í
pólítískum tilgangi
Kanadíski plötusnúðurinn, sem
útvarpaði símtali sínu við Elísabetu
Bretlandsdrottningu er hann þóttist
vera forsætisráðherra Kanada, sagði
að einungis hefði verið um símaat
að ræöa án nokkurs pólítísks til-
gangs.
Samtal drottningar og plötusnúðs-
ins, Pierres Brassards, snerist um
þjóðaratkvæðagreiðsluna um sjálf-
stæði Québec á morgun. Brassard
hermdi svo vel eftir rödd Jeans
Chrétiens, forsætisráðherra Kanada,
aö drottningin lét gabbast. Lýsti
Brassard yfir áhyggjum sínum yfir
því að sjálfstæðissinnar í Québec
færu með sigur af hólmi og spurði
drottningu hvort hún vildi leggja
málinu liö með því að flytja ræðu.
Drottning tók vel í það. Ymsir telja
að símtalið verði tfl aö auka fylgi
sjálfstæðissinna.
Reyndar hafa frumbyggjar Québec,
indíánar og eskimóar, þegar sagt nei
við aðskilnaði við Kanada í eigin
Bretar eru öskureiðir yfir aö drottn-
ing þeirra var göbbuð.
þjóðaratkvæöagreiðslu. Þeir vilja
ekki fara út í óvissu með frönsku-
mælandi íbúum Qébecs.
Reuter, TT
Stuttar fréttir
Sarajevoopnast
Sarajevobúar gátu ferðast með
langferðabifreiðum úr borginni i
gær á þjóðvegi i fyrsta'sinn í 42
mánuði. Áður urðu þeir að ferð-
ast eftir hættulegri fjallaslóð.
KosiðiKróatíu
Litiö er á þingkosningarnar í
Króatíu sem þjóðaratkvæða-
greiðslu um þjóðernisstefnu
Franjos Tudjmans forseta oghót-
anir hans gegn aöskilnaðarsinn-
um Serba.
Hundrað f órust í óveðri
Nærhundrað manns fómst í
óveðri á Filippseýjum um helg-
ina. Sextiu þúsund manns flúöu
heímili sín vegna óveðursins.
Sjötíu falla á Sri Lanka
Prestur tamíla á Sri Lanka
sagði í gær að skæruliðar tamíla
heföu myrt 29 meinta uppljóstr-
ara úr eigin röðum í þessum
mánuði. Yfir sjötíu féllu í bardög-
um skæruliða og hermanna í
gær.
Sammála um kosningar
Fyrrum forsætisráðherra ítal-
íu, Silvio Berlusconi, og andstæð-
ingar hans uröu sammála í gær
um að efna ætti til kosninga um
leið og fjárlagafrumvarpið heföi
veriö samþykkt.
Havei gagnrýnir
Vaclav Havel, forseti Tékk-
lands, gagnrýndi í gær Vestur-
lönd fyrir aö vera of sein að opna
stofnanir sínar fyrir Mið- og
Austur-Evrópu. Óttast hann upp-
gang harðlínumanna.
Deyja i fangelsum
Á þriðja þúsund hafa látist úr
sjúkdómum í fangelsum í Rúanda
síðustu 15 mánuðina samkvæmt
upplýsingum Rauöa krossins.
Nær 60 þúsund sitja í fangelsum
landsins.
Sprengjutilræði i Alsír
Að minnsta kosti átta létu lífiö
og áttatíu særðust i Rouiba í Als-
ír í gær.
Ráðherrafyrirrétt
Gefnar hafa veriö út handtöku-
skipanir á fyrrum vamarmála-
ráðherra Suöur-Afríku og tíu
háttsetta embættismenn vegna
morða á 13 blökkumönnum 1987.
Reuter