Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Síða 13
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1995 13 Fréttir „Ég hef oft heyrt af því þegar slys hafa orðið að fólk talar um að bíll þeirra hafi skyndilega breytt um stefnu,“ segir Þórarinn Grímsson í Þorlákshöfn um ástand vega í grennd við Þorlákshöfn og viðar. DV-mynd KE Vegagerðin á Suðurlandi malbikar í slitför: Skapar öllum vegfarendum stórhættu - segir Þórarinn Grímsson, bifreiöarstjóri í Þorlákshöfn „Þessar brúnir skapa öUum bílum stórhættu. Ég er ekki í nokkrum vafa um að það hafa orðið mörg slys þeg- ar bílar hcifa verið að mætast og lenda utan í þessum brúnum. Þá kippir í stýrið og bíllinn breytir oft um stefnu. Ég hef oft heyrt af því þegar slys hafa orðið að fólk talar um að bíll þeirra hafi skyndilega breytt um stefnu," segir Þórarinn Grímsson í Þorlákshöfn um ástand vega í grennd við Þorlákshöfn og víð- ar. Þórarinn, sem starfaði lengi sem bifreiðarstjóri á rútum og öörum stærri bílum, vitnar þarna til þess að víða á malbikuðum vegum eru skorningar þar sem Vegagerðin hef- ur fyllt í slitfór. Þar hefur ekki verið látið nægja að fylla upp í forin heldur hefir verið hækkað upp um 3-5 sentí- metra og þar með eru komnar hvass- ar brúnir á veginn sem valda stór- hættu. „Ég hef enga skýringu á því.hvers vegna þetta er gert svona. Að frátal- inni hættunni af brúnunum þá myndast hættuástand þegar vatn sit- ur þarna á milli og frýs. Þá verður þama glerhált og ekki minni hætta en af brúnunum sjálfum. Mér er það óskiljanlegt að þeir skuli ekki vaita þetta út og slétta úr því,“ segir Þórar- inn. Sigurður Jóhannsson, umdæmis- tæknifræðingur Vegagerðarinnar á Suðurlandi, staðfesti að nokkrir veg- arkaflar væru með þeim hætti sem Þórarinn lýsir. Hann segir að þarna sé fyrst og fremst um að ræða þriggja kílómetra kafla á Eyrarbakkavegi. „Við erum að fylla í hjólfor sem em mjög hættuleg þegar það er bleyta og það getur orðið flot á bílunum. Við fyllum þetta upp með svona grófu efni til þess að þurfa ekki að fara tvisvar sinnum. Þetta er það gróft að það nægir okkur að setja einu sinni sem er helmingi ódýr- ara,“ segir Sigurður. Hann segir að þetta hafi sína kosti þegar hálka er á vegum. „Eftir því sem það er grófara þá stendur þetta lengur upp úr. Því meira sem er slétt því meiri hálka verður. Það stendur til að leggja yfir þetta finna efni á næsta ári,“ sagöi Sigurður. -rt Rlkisspítalar: Ýmsir nef ndir í for- stjórastólinn Auglýst verður eftir umsóknum um starf forstjóra Ríkisspítalanna en Davíð Á. Gunnarsson, núverandi forstjóri, tekur við starfi ráðuneytis- stjóra í heilbrigðisráðimeytinu 1. desember. Búist er við að mikill fjöldi fólks sæki um stöðuna. Nokkur nöfn hafa verið nefnd í sambandi við ráðningu forstjóra. Guðmundur G. Þórarinsson, núver- andi formaður stjórnamefndar spít- alanna, hefur verið nefndur til sög- unnar en í samtah við DV sagðist hann ekki hafa hugleitt að sækja um. Hann hefur talsverða reynslu cif Rík- isspítölunúm því að hann gegndi for- mennsku einnig í ráðherratíð Guð- mundar Bjamasonar. Fastlega er búist við að Pétur Jóns- son, framkvæmdastjóri fjármála Ríkisspítala, Ingólfur Þórisson, framkvæmdastjóri tæknimála, og jafnvel Guðríöur Þorsteinsdóttir, lögfræðingur Ríkisspítala og starf- andi framkvæmdastjóri Lífeyris- sjóös bænda, sæki um stöðu forstjóra auk annarra innanhússmanna. Líklegt er talið að nokkrir starfs- menn heilbrigðisráðuneytisins sæki um stöðuna og koma þar sérstaklega til greina Guðjón Magnússon skrif- stofustjóri og Dögg Pálsdóttir lög- fræðingur, dóttir núverandi ráðu- neytisstjóra. Þegar DV hafði samband við Guð- jón Magnússon nýlega neitaði hann að svara því hvort hann hugleiddi umsókn. Aðspurður hvort hann myndi standa við þá yfirlýsingu sína að segja upp skrifstofustjórastöðu sinni vildi hann ekki svara. Bæði hann og Dögg Pálsdóttir lýstu yfir að þau myndu segja upp störfum eft- ir að Davíð Á. Gunnarsson var ráð- inn ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- ráðuneytinu. Ekki náðist í Dögg. Gert er ráð fyrir að Pétur Jónsson eða Ingólfur Þórisson gegni störfum forstjóra þar til nýr maður tekur við störfum í janúar eöa febrúar á næsta ári. Stjórnarnefnd Ríkisspítalanna sér um að auglýsa stöðu forstjóra og eiga viðtöl viö umsækjendur. Sérstök nefnd leggur mat á hæfni umsækj- enda en heilbrigðisráðherra tekur lokaákvörðun um ráðninguna. -GHS Verð kr. 24.530,- flugsæti með sköttum Verð kr. 30.530,- Flug og hótel með morgunmat, m.v. 2 í herbergi, 9. nóv. HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð, sími 562 4600 Nú seljum við síðustu sætin í helgarferðina 9. nóvem- ber. Undirtektir við Londonferðum Heimsferða hafa verið ótrúlega góðar enda London mest spennandi heimsborg Evrópu. Tryggðu þér síðustu sætin í helgarrispu þann 9. nóvember á frábæru verði og njóttu góðrar þjónustu farar- stjóra Heimsferða í London á með- an á dvöl þinni stendur. Með Black Line myndlampa, 40W Nicam Stereo magnara með Surround, aðgerða- birtingu á skjá, textavarpi með ísl. stöfum, fullkominni fjarstýringu, Timer, klukku á skjá, S-VHS inngangi og tveimur Scart-tengjum. Si&i & jí^kIísíííén SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 UMBOÐSMENN UM LAND ALLT ALLT ÞETTA FYRIR AÐEINS STGR. eni Svomin aflurf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.