Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1995, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1995, Side 22
74 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1995 Fólk í fréttum Reynir Kristjánsson Reynir Kristjánsson, kerfisfræð- ingur og þjálfari úrvalsdeildarliðs Hauka í körfuknattleik, Miðvangi 12, Hafnarfirði, hefur verið í DV íþróttafréttum að undanfómu en lið hans er nú efst í A-riðli ís- landsmótsins. Starfsferill Reynir fæddist á Sólvangi í Hafnarfirði 29.12. 1964 og ólst þar upp, á Hvaleyraholtinu fyrstu árin en síðan i Norðurbænum. Hann gekk í Víðistaðaskóla og síðar í Flensborg og lauk þar stúdentsprófi af náttúrufræði- braut 1983. Reynir var við nám í EDB-skólanum í Kaupmannahöfn og lauk þar námi í kerfisfræði 1987. Á unglingsárum starfaði Reynir við fiskvinnslu og í bygginga- vinnu og eftir stúdentspróf vann hann um tíma við verslunarstörf í Fjarðarkaupum i Hafnarfirði. Hann hóf störf hjá Verk- og kerf- isfræðistofunni árið 1987 og hefur unnið þar síðan. Reynir hefur æft íþróttir með Haukum frá unga aldri og lék bæði körfuknattleik, knattspyrnu og handknattleik með yngri flokk- um félagsins. í fyrsttöldu íþrótta- greininni hefur hann verið í sig- urliði Hauka bæði á Islandsmót- inu og í bikarkeppninni. Með meistaraflokki Hauka vann Reyn- ir einnig íslands- og bikarmeist- aratitil. Siðustu árin hefur hann fengist við þjálfun, fyrst með ung- lingaflokka félagsins en Reynir hefur verið þjálfari meistara- flokks Hauka í körfuknattleik frá 1994. Fjölskylda Reýnir kvæntist 29.12. 1990 Soff- íu Helgadóttur, f. 21.8. 1966, frá Neskaupstað, ferðafræðingur og starfsmaður hjá Ferðaskrifstof- unni Úrval-Útsýn. Foreldrar hennar: Helgi Jóhannsson, stýri- maður, og Kristín Salín Þórhalls- dóttir, meðferðarfulltrúi á sam- býli fyrir fatlaða. Dóttir Reynis og Soffíu er Krist- ín Fjóla, f. 15.2. 1990. Systkini Reynis: Guðrún, f. 18.10. 1954, d. 16.3. 1956; Rósa, f. 14.11. 1955, djákni og hjúkrunar- fræðingur, gift Benedikt Krist- jánssyni, starfsmanni hjá Skjald- borg, þau eru búsett í Hafnarfirði og eiga þrjú böm; Fjóla, f. 19.2. 1959, sjúkraliði, gift Jóni Trausta Harðarsyni, starfsmanni hjá Odda, þau eru búsett í Hafnarfirði og eiga þrjú börn en hafa misst eitt; Kristján, f. 7.3. 1960, blaða- maður Morgunblaðsins, sambýlis- kona hans er Borghildur Kjart- ansdóttir, húsmóðir, þau eru bú- sett á Akureyri og eiga fjögur böm, Kristján á eina dóttur með Svöfu Björgu Einarsdóttur; Sigur- þór, f. 13.2. 1962, matreiðslumeist- ari, kvæntur Guðrúnu Bríet Gunnarsdóttur, húsmóður, þau em búsett í Hafnarfirði og eiga tvo syni, Sigurþór á eina dóttur með Stefaníu Guðjónsdóttur. Hálfbróðir Reynis, samfeðra: Gunnar, f. 1.12.1949, sjómaður, kvæntur Ingigerði Sigurgeirsdótt- ur, þau eru búsett í Hafnarfirði og eiga eina dóttur, Ingigerður á einn son. Foreldrar Reynis: Kristján Þórðarson, f. 13.10. 1928, skrif- stofustjóri, og kona hans, Sigrún Sigurðardóttir, f. 15.9. 1935, tækni- teiknari. Ætt Kristján er bróðir Einars, starfsmanns hjá Hafnarfjarðar- höfn og Ásdísar, móður Sigríðar Valdimarsdóttur djákna. Kristján er sonur Þórðar, sjómanns í Garðabæ í Gerðum Einarssonar Gunnarssonar. Móðir Kristjáns var Guðrún Kristjánsdóttir frá Ólafsvöllum á Skeiðum. Sigrún er systir útgerðarmann- anna Ágústs og Þorsteins í Stál- skip i Hafnarfirði, Garðars fram- kvæmdastjóri, Gests skipstjóra og Steinvarar, móður Sigurðar Ein- arssonar arkiteks. Sigrún er dótt- ir Sigurðar, vélstjóra í Hafna’r- firði, bróður Guðrúnar, móður Helga Haraldssonar er vinnur að rússnesk-íslenskri orðabók. Sig- urður var sonur Eiríks, b. í Gröf i Breiðuvík Sigurðssonar, b. í Mið- húsum í Álftaneshreppi Ólafsson- Reynir Kristjánsson. ar. Móðir Eiríks var Guðrún Þor- steinsdóttir. Móðir Sigurðuar var Steinvör, systir Dalmanns, fóður Ármanns, skógræktarfrömuðar á Akureyri, og Jóns, gullsmiðs, föð- ur Dóru í Gullkistunni. Steinvör var dóttir Ármanns í Fíflholtum Eyjólfssonar og Guðrúnar Bene- diktsdóttur. Móðir Sigrúnar var Jenný, systir Ásgerðar, ömmu Ásgeirs Friðgeirssonar hjá Iceland Revi- ew. Jenný var dóttir Ágústs, b. á Lýsuhóli Ingimarssonar, og Krist- ínar Jóhannesdóttir, b. á Lýsuhóli Jónssonar. Afmæli Páll Skúlason Páll Skúlason pípulagninga- meistari, Furugrund 15, Akranesi, verður fimmtugur á fóstudaginn. Starfsferill Páll fæddist í Hnífsdal og ólst þar upp. Hann var í barnaskólan- um í Hnífsdal, stundaði nám við Héraðsskólann á Núpi í Dýrafirði í tvo vetur, stundaði nám við Iðn- skólann á ísafirði og á Akranesi og lærði bifvélavirkjun hjá Þ. Jónsson og Co í Reykjavik, lauk sveinsprófi 1968 og öðlaðist meist- araréttindi nokkrum árum síðar. Hann stundaði nám við Iðnskól- ann á Akranesi og lærði pípulagn- ir þar hjá Hafsteini Sigurbjörns- syni, lauk sveinsprófi í greininni 1977 og öðlaðist meistararéttindi 1980. Páll var á síldveiðum eitt sum- ar á unglingsárunum, starfaði við bifvélavirkjun í Reykjavík, vann við pípulagnir á Akranesi og var auk þess á togara sumarið 1976 en hefur stundað pipulagnir á Akra- nesi frá því hann lauk námi í þeirri iðngrein. Páll stundaði um skeið sjálf- boðavinnu sem liðstjóri'og farar- stjóri fyrir yngri flokka í knatt- spyrnu á vegum ÍA. Hann hefur starfað í Kiwanisklúbbnum Þyrli Til hamingju með afmælið 6. desember 95 ára Helga Rafnsdóttir, Austurbrún 33, Reykjavík. 85 ára Anna Guðjónsdóttir, Borgarsandi 7, Hellu. 75 ára Halldóra K. Sigurðardóttir, Austurbrún 25, Reykjavík. 70 ára Svanfríður Kristin Bene- diktsdóttir frá Hnífsdal, Espigerði 20, Reykjavík. Eiginmaður hennar var Rafn Magnússon mat- sveinn en hann lést 1966. Svanfríður tekur á móti gestum í Sóknarsalnum, Skipholti 50A, laugardaginn 9.12. eftir kl. 19.00. Emil Guðmundsson, Dalbraut 1, Kópavogi. María Ingólfs- dóttir, Kjartansgötu 7, Borgarnesi. María tekur á móti gestum í fé- lagsheimili hestamanna laugardaginn 9.12. frá kl. 17.00-20.00. Guðrún Tryggvadóttir, Hraunbæ 144, Reykjavík. Sigurgeir Kristinsson, Lyngbergi 5, Þorlákshöfn. Hermína J. Lilliendahl, Krummahólum 10, Reykjavík. 50 ára 60 ára Halldóra Ottós- dóttir frá Sval- vogum, starfsstúlka í Laugagerðis- skóla á Snæfells- nesi. Eiginmaður hennar er Skúli Bjarnason, bygg- ingameistari frá Flatey. Þau verða að heiman. Sigurveig Tryggvadóttir, Skarðshlíð 28B, Akureyri. Þuríður Friðjónsdóttir, Bárugötu 30A, Reykjavik. Camilla Hallgrímsson, Langholtsvegi 143, Reykjavik. Ólafur Gxmnarsson, Ásbúð 7, Garðabæ. 40 ára Ingvi Sigurður Sigurgeirsson, Helgafellsbraut 17, Vestmannaeyj- um. Skúli Thorarensen, Rekagranda 1, Reykjavík. Gyða Jónsdóttir, Miðhúsum 15, Reykjavík. Esther Þorvaldsdóttir, Rauðagerði 56, Reykjavík. Anna Inga Grímsdóttir, Seilugranda 7, Reykjavík. Arnþrúður Jónsdóttir, Flyðrugranda 18, B-3, Reykjavík. Kristján M. Baldursson, Mávahlíð 29, Reykjavík. Hannes Einar Guðlaugsson, Gnoðarvogi 74, Reykjavík. frá 1984, verið forseti klúbbsins og er nú svæðisstjóri Eddusvæðis. Fjölskylda Páll kvæntist 28.3. 1970 Jó- hönnu Einarsdóttur, f. 30.3. 1949, aðstoðarstúlku tannlæknis. Hún er dóttir Einars Árnasonar, mál- arameistara á Akranesi, og k.h., Sigríðar Unnar Bjarnadóttur hús- móður. Börn Páls og Jóhönnu eru Helga Pálsdóttir, f. 15.1. 1970, hár- greiðslumeistari í Bolungarvík, en sambýlismaður hennar er Ástmar Ingvarsson verkstjóri; Einar Ámi Pálsson, f. 17.6. 1972, fiskvinnslu- maður á Akranesi, en sambýlis- kona hans er Lovísa Eva Barða- dóttir húsmóðir og eru synir þeirra Páll Sindri Einarsson, f. 14.12. 1992, og Hákon Ingi Einarsv son, f. 8.7. 1995; Elísabet Ösp Páls- dóttir, f. 28.8. 1981, nemi í for- eldrahúsum. Systkini Páls eru Guðrún Krist- ín Skúladóttir, f. 3.4. 1940, hús- móðir í Reykjavík, gift Carli Berg- mann úrsmið; Hermann Kristinn Skúlason, f. 24.3. 1943, hafnarstjóri á ísafirði, kvæntur Sólveigu Gísla- dóttur, aðstoðarstúlku hjá tann- lækni; Guðfinna Skúladóttir, f. 7.10. 1952, húsmóðir í Reykjavik, gift Kristjáni Guðmundssyni stýrimanni; Helga Guðbjörg Skúladóttir, f. 31.3. 1955, húsmóðir í Hnífsdal, en sambýlismaður hennar er Hilmar Sigursteinsson. Foreldrar Páls: Skúli Her- mannsson, f. 5.5. 1918, d. 1.1. 1959, sjómaður í Hnífsdal, og k.h., Páll Skúlason. Helga Pálsdóttir, f. 19.9. 1917, hús- móðir í Hnífsdal. Páll tekur á móti gestum í Kiwanishúsinu, Vesturgötu 48, Akranesi, fóstudaginn 8.12. eftir kl. 19.30. Ágúst Breiðfj örð Ágúst Breiðfjörð bifreiðarstjóri, Langeyrarvegi 11 A, Hafnarfirði, er fimmtugur í dag. Starfsferill Ágúst fæddist á Mýrum i Eyr- arsveit og ólst upp í Grundarfirði. Hann stundaði fiskvinnslu hjá Hraðfrystihúsi Grundaríjarðar að loknu barnaskólanámi. Ágúst hef- ur verið bifreiðarstjóri hjá Áburð- arverksmiðjunni hf. frá 1968. Fjölskylda Ágúst kvæntist 25.9. 1969 Mariu Ásgeirsdóttur, f. 29.10. 1946, lyfja- fræðingi. Hún er dóttir Ásgeirs P. Ágústssonar og Guðrúnar L. Kristmannsdóttur, sem lést 1988, en þau bjuggu fyrst í Stykkis- hólmi og síðan í Reykjavík. Börn Ágústs og Maríu eru Ás- geir Páll Ágústsson, f. 26.9. 1971; Kristmann Jóhann Ágústsson, f. 12.7. 1975; Hrefna Kristín Ágústs- dóttir, f. 7.2. 1985. Hálfbróðir Ágústs, sammæðra, er Sveinbjörn Kristinn, f. 1.5. 1952, þjónn, búsettur í Hveragerði. Fóstursystkini Ágústs: Freyja Finnsdóttir, f. 11.7. 1922, d. 22.8. 1976, húsmóðir i Stykkishólmi; Halldór Finnsson, f. 2.5. 1924, fyrrv. hreppstjóri í Grundarfirði; Ása Finnsdóttir, f. 7.8. 1926, bóndakona á Hornafirði; Dagfríð- ur Finnsdóttir, f. 20.10. 1932, d. 21.6. 1989, kennari í Vestmanna- eyjum og síðan á Selfossi; Svein- björn Finnsson, f. 8.5. 1934, d. 18.2. 1959, stýrimaður í Reykjavík; Hallveig Guðjónsdóttir (dóttir Dagfríðar), f. 14.1.1954, hjúkrun- arfræðingur og ljósmóðir í Nor- egi. Móðir Ágústs var Hrefna Hjart- ardóttir, f. 31.7. 1924, d. 30.9. 1988, fiskverkakona í Grundarfirði. Ágúst ólst upp í Grundarfirði en þangað flutti hann, ásamt móð- ur sinni, og bjuggu þau á heimili Finns Sveinbjörnssonar, f. 27.9. Ágúst Breiðfjörð. 1889, d. 15.1. 1978, skipstjóra, Höllu Haraldsdóttur, f. 10.12. d. 27.3. 1992, húsmóðir. Ágúst verður að heiman á mælisdaginn. og 1900, af- »•903« 5670 •# Aðeins 25 kr. mínútan. Sama verð fyrir alla landsmenn. DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.