Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1995, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1995, Qupperneq 24
76 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1995 Hroturnar í Þjóðleikhúsinu ollu óþægindum. Hrotur í leikhúsi „Ég var svo óheppinn aö að minnsta kosti þrír karlar sem sátu nærri mér sváfu svo fast að þeir hrutu (hátt) og olli það mér talsverðum erfiðleikum að fylgj- ast með sýningunni." Jón Björnsson í Morgunblaðinu. Aumt ASÍ „Mér finnst hlutur forystu ASÍ í þessum málum aumastur af öll- um og það eitt er víst að ef menn Ummæli fara ekki að athuga sinn gang er voðinn vís.“ Sigurður T. Sigurðsson, formaður Hlff- ar, í Alþýðublaðinu. Tapauglýsingar sem angra „Ég get ekki að því gert, en þessar tapauglýsingar hafa lengi valdið mér angri. I þeim felst nefnilega sú hugsun að fyrirtæki megi ekki sýna hagnað." Hjálmar Árnason, í DV. Halda sig á jörðinni „Það verður að reyna að halda sig við jörðina og fara ekki á eitt- hvert fjármagnsfyllirí heldur lifa bara lífinu áfram og vera maður sjálfur." Þórir Erlingsson lottóvinningshafi, í Morgunblaðinu. Mesti og lægsti hiti Hæsta hitastig sem framleitt hefur verið er inni í miðri kjarnasamrunasprengingu en sá hiti er á bilinu 300.000.000-400.000.000 gráður á Celcius. Ef miðað er við hita, sem hægt er að hemja, er hæsta raunhæft hitastig, sem skýrslur úr rannsóknastofum greina frá, 200.000.000 gráöur. Náðist hann í Tokamaktilraunakjarnakljúfn- um í Princeton Plasma Physics rannsóknarstöðinni árið 1986. Blessuð veröldin Lægsti hiti Lægsta hitastig sem náðst hef- ur er 3xl0-áttunda veldi Kelvin- stig sem prófessor Olli V. Loúnasmaa fékk ásamt sam- starfsmönnum sínum í Espoo í Finnlandi. Alstæðan (varmaafl- fræðilegt hitastig) skilgreina menn raunar sem hlutfall en mæligildi á kvarða miðað við al- stæðan núllpunkt (alkul -273,15 gráöur á Celcius) sem aldrei verður hægt að ná. Þannig verð- ur lægsti hiti, sem fengist hefur, 1 á móti 9,1x10 í níunda veldi af bræðslumarki vatns (0 gráður á C eða 273,15 K). HAPPDRÆTTI BÓKATÍÐINDA VINNINCSNÚMER DA6SINS ER: 86641 Ef þú finnur þetta númer á baksíöu Bókatíöinda skaltu fara meö hana í næstu bókabúö og sækja vinninginn: BÓKAÚTTEKT AÐ ANDVIRÐI 10.000 KR. Bókaútgefendur Fer að hvessa og rigna Suðaustlæg átt, kaldi eða stinn- ingskaldi og rigning allra austast, skýjað með köflum norðanlands en smáskúrir eða slydduél annars stað- ar fram eftir degi. Síðan vex vindur af suðaustri og í kvöld verður suð- austan hvassviðri eða stormur og rigning um landið sunnan og vest- Veðrið í dag anvert en allhvasst eða hvasst og skýjað en úrkomulítið norðaust- antil. Veður fer hlýnandi og síðdeg- is verður hitinn á bilinu 2 til 6 stig, hlýjast suðvestan til en kaldast um landið norðanvert. Á höfuðborgar- svæðinu verður suðaustankaldi og dálítil slydduél fram eftir morgni en síðan smá skúrir. Vaxandi suðaust- anátt síðdegis, hvassviðri og rigning í kvöld og nótt. Hiti 1 til 6 stig, hlýj- ast í kvöld og nótt. Sólarlag í Reykjavík: 15.40. Sólarupprás á morgun: 10.59. Síðdegisflóð í Reykjavík: 18.10. Árdegisflóð á morgun: 6.24. Heimild: Almanak Háskólans Vedriö kl. 6 í morgun: Akureyri léttskýjað 1 Akurnes rigning 4 Bergsstaðir léttskýjaó 1 Bolungarvík skýjað 2 Egilsstaöir alskýjaó 2 Keflavíkurflugvöllur léttskýjað 1 Kirkjubæjarklaustur léttskýjað 1 Raufarhöfn rigning 1 Reykjavík léttskýjað 1 Stórhöfði léttskýjaó 3 Bergen léttskýjaó -4 Helsinki snjókoma -16 Kaupmannahöfn léttskýjað 0 Ósló skýjað ■4 Stokkhólmur snjókoma -5 Þórshöfn alskýjað 5 Amsterdam alskýjaö -4 Barcelona skýjað 6 Chicago heiðsklrt -3 Feneyjar hálfskýjaó 3 Frankfurt alskýjaö ■4 Glasgoui skýjað 3 Hamborg skýjað -7 London snjókoma 0 Los Angeles þokumöóa 17 Lúxemborg skýjað -4 Madríd skýjað 2 Malaga léttskýjað 7 Mallorca hálfskýjað 7 New York skúr 9 Nice hálfskýjað 3 Nuuk léttskýjað -8 Orlando þokumóða 16 Paris snjókoma -2 Róm rigning . 6 Valencia hálfskýjaó 5 Vín þokumóða ■1 Winnipeg skýjaó -21 Hreiðar Eiríksson lögreglumaður fer til starfa við ólympíuleikana í Atlanta: Mikið ævintýri að taka þátt í þessu Gylíi Kristjánsson, DV, Akureyri: @Meginmál:„Ég veit ekki enn þá neitt um það hvaða verkefnum mér verður falið að sinna þarna, tek bara því sem að höndum ber. En þetta leggst mjög vel i mig, ég held að það verði mikið ævintýri að taka þátt í þessu, enda tU þess stofnað af ævintýraþrá af minni hálfu,“ segir Hreiðar Eiríksson lög- reglumaður sem verður í hópi um Maður dagsins 1000 sjálfboðaliða við öryggisgæslu á ólympíuleikunum í Atlanta í Bandaríkjunum á næsta ári. Hreiðar, sem er Eyfirðingur, varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1983. Hann starf- aði síðan í tvö ár hjá Kaupfélagi Eyfirðinga áöur en hann hóf störf hjá lögreglunni á Akureyri, fyrst við almenn lögreglustörf en árið 1985 við rannsóknardeUd. Frá síð- Hreiðar Eiríksson. DV-mynd gk ustu áramótum hefur hann séð um boðunarmál fyrir sýslumannsemb- ættið. „Þetta starf í sambandi við ólympiuleikana er ólaunað. Ég verð úti í um 5 vikur, fyrst við þjálfun og síðan við störf á meðan leikarnir standa yfir. Ég á von á að menn hafl reiknað með að fórna sumarleyfínu sínu i þetta en þó hefur verið sótt um að menn fái laun hér heima á meðan, t.d. á þeim forsendum að námskeið sem menn ganga í gegnum þarna úti og sú reynsla sem þar fæst muni nýt- ast þeim hér heima. Ég held að þetta sé tækifæri sem maður fái ekki nema einu sinni á ævinni og það verður án efa bæði fróðlegt og skemmtilegt að sjá hvemig þetta gengur aUt fyrir sig,“ segir Hreiðar. Hann segir að frístundir sínar fari að talsverðu leyti í félagsmála- störf. „Ég hef unnið talsvert fyrir NorðurlandsdeUd SÁÁ og er þar í stjórn. Ég reyni að ferðast talsvert á sumrin, hlusta mikið á tónlist og spUa sjálfur á gítar. Annars eru frí- stundirnar lítið skipulagðar fyrir fram,“ segir Hreiðar. Hann er ógiftur og barnlaus. Umferð í 1. deild hand- boltans Landsleikir íslands við Pól- verjana í handboltanum töfðu aðeins fyrir framgangi í 1. deUd- inni en nú verður allt sett á fuUt í kvöld og verður leikin heil um- ferð. í Laugardalshöllinni leika KR-ingar og Grótta. í Kaplakrika leika FH-ingar við Stjörnuna og íþróttir má búast við hörkuleik. KA er enn ósigrað og er efst í deildinni. Þeir taka á móti ÍBV á heima- velli. Á Selfossi leika Selfoss og Afturelding. ÍR-ingar leika við Hauka og Islandsmeistarar Vals leika við Víking á Hlíðarenda. Skák Svartur lék síðast hrók sínum tU a8 í meðfylgjandi stöðu og ætlar sér aö svara 22. Dxc7 meö 22. - Bxd5 og end- urheimta manninn. Hvaöa ráð kunni hvítur við þessu? Staðan er úr tafli ítalanna Sarno, sem hafði hvítt og átti leik, og Drei á alþjóðlegu móti í Forli á Italíu fyrir skömmu. Eftir 22. Dxc7 Bxd5 kom reiöarslagið 23. Dxe7+! og svartur gafst upp. Ef 23. - Kxe7 24. exd5+ (fráskák), vinnur drottninguna aftur meö biskup í kaup- bæti. Jón L. Árnason Bridge Þaö er ekki oft sem maður er meö 11 spil í einum lit á hendi og líklega lenda fæstir spUarar nokkurn tima í því á ævinni. Þessi staöa kom þó upp viö handgjöf í sveitakeppnisleik í Ðan- mörku á dögunum og eins og vænta mátti voru sagnirnar hressUegar. Þær gengu þannig fyrir sig í opnum sal, norður gjafari og NS á hættu: 4 G732 V D654 ♦ ÁD1064 * — 4 ÁKD10964 » K972 ♦ 7 * 10 4 — •4 -- 4 K5 * KDG98765432 Myndgátan Býður við að horfa Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki Noröur Austur Suöur Vestur 14 1* 6* Dobl pass 7* Dobl p/h Norður leiddi asnann í herbúöirnar meö því að opna á einum tígli án þess aö eiga fyrir opnunarstyrk í punktum. Suður stökk í 6 lauf og hafði engan sér- stakan áhuga á að spila vömina í 6 hjörtum, þó að það hefði eflaust geflst betur. Engu máli skipti hveiju vestur spilaði út, eini gjafaslagurinn var á trompásinn. Sagnir gengu rólegar fyr- ir sig í lokuðum sal: Norður Austur Suður Vestur pass 1*4 5* 5*4 Dobl pass pass 54 Dobl p/h Þessi samningur var óhnekkjanleg- ur því vestur hlaut að finna rétta íferö í hjartað - eða hvað? En bridge er skrítin íþrótt og óvæntir hlutir áttu eftir að gerast við borðið. Norður taldi öruggt að suður væri með eyðu í hjarta og spilaði þess vegna út hjarta- flarka. Sagnhafl setti þristinn í blind- um og suður henti laufatvisti. Sagn- hafl hefur greinilega verið eitthvað utan við sig því hann hélt að suður hefði trompað og setti tvistinn í slag- inn?! Síðan kom nokkurra mínútna þögn við borðið áður en norður áttaði sig allt í einu á því að hann átti slag- inn á hjartaflarkann! Hann lagði þá niður tígulás og beið síðan rólegur eft- ir slag á spaðagosa. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.