Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1996, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996
Fréttir
Árásin á stúlkuna á Akranesi:
Unglingamenningin
eins og hún er orðin
- segir Viðar Stefánsson lögreglufulltrúi
„Þetta er unglingamenningin
eins og hún er orðin,“ segir Viðar
Stefánsson, lögreglufulltrúi á Akra-
nesi, en hann fer með rannsókn
árásarmálsins þar í bænum aðfara-
nótt laugardagsins. Þá gengu fjórar
stúlkur í skrokk á sextán ára stúlku
og veittu henni alvarlega höfuðá-
verka með höggum og spörkum.
Stúlkurnar fjórar voru úrskurð-
aðar i gæsluvarðhald en vegna ungs
aldurs þriggja þeirra voru þær
fengnar barnaverndaryfirvöldum til
gæslu. Elsta stúlkan er á nítjánda
aldursári og situr í gæsluvarðhaldi
á Akranesi. Hinar stúlkurnar eru
fimmtán og sextán ára.
í gær voru vitni yfirheyrð vegna
málsins. Viðar sagði að ölvun hefði
verið almenn meðal unglinga í mið-
bænum þessa nótt. Allar stúlkurn-
ar, sem lentu í átökunum, voru und-
ir áhrifum áfengis.
Óljóst er enn hvers vegna til
átaka kom og stúlkurnar fjórar réð-
ust á kynsystur sína. Heimildir DV
herma að deilan hafi spunnist út af
bjórglasi og síðan magnast þar til
hendur voru látnar skipta. Lögregl-
an á Akranesi vill hvorki játa né
neita að sú frásögn sé rétt.
Stúlkan sem slasaðist var fyrst
flutt á sjúkrahúsið á Akranesi enda
var ekki að sjá í fyrstu að hún væri
alvarlega meidd. Síðar kom í ljós að
jafnt og þétt blæddi inn á heila og
nær meðvitundarlaus var stúlkan
send á Borgarspítalann með þyrlu
Landhelgisgæslunnar að morgni
laugardagsins, nokkrum klukku-
stundum eftir átökin.
í gær var stúlkan að nokkru kom-
in til meðvitundar en enn of
snemmt að segja nokkuð um mögu-
leika á fullum bata. -GK
Lögfræðiálit Eiríks Tómassonar kom í gær:
Biskup hefur úr-
skurðarvaldið í
Langholtsdeilunni
- biskup mun rita deiluaðilum bréf
Eiríkur Tómasson lögfræðipró-
fessor skilaði í gær lögfræðilegu
áliti um ígriparétt biskups í deilu
prests, organista og safnaðarstjórn-
ar í Langholtssöfnuði til herra ðlafs
Skúlasonar biskups. Þar segir hann
að biskup hafi úrskurðarvaldið í
slíkum málum sem þessu. Ekki
bara yflr sóknarprestinum heldur
líka organista, sóknarnefnd og öðr-
um starfsmönnum safnaðanna sem
falla undir hugtakið kirkjulegir
aðilar.
Eiríkur Tómasson hefur tjáð við-
komandi deiluaðilum í Langholts-
kirkjudeilunni frá þessari niður-
stöðu sinni á þeim fundum sem
hann hefur átt með þeim að undan-
fómu.
Herra Ólafur Skúlason biskup
vildi ekki í gær birta lögfræðiálitið
opinberlega.
„Ég þarf fyrst að rita öllum deilu-
aðilum bréf og skýra þeim frá lög-
fræðiálitinu og í hverju úrskurður
minn muni hugsanlega felast,"
sagði Ólafur Skúlason í samtali við
DV.
Samkvæmt stjórnsýslulögum eiga
deiluaðilar rétt á því að gera tvennt
þegar þeir hafa fengið þetta bréf
biskups. Þeir geta komið á framfæri
athugasemdum sínum við því sem í
bréfinu stendur. Hins vegar geta
þeir leitað sátta þannig að ekki
þurfi að koma til úrskurðar bisk-
ups. Þegar deiluaðilar hafa skilað
athugasemdum sínum verður úr-
skurður biskups gefinn út hafi sætt-
ir ekki tekist.
Talið er víst að biskup skrifi um-
rædd bréf í dag og að það ætti að
geta legið fyrir um helgina hvort
koma þarf til úrskurðar hans í mál-
inu.
-S.dór
Langholtskirkj udeilan:
Jón Stefánsson
fundar meö stéttar-
félögum
„Ég mun eiga fund fyrir hádegi á
morgun með formanni Félags ís-
lenskra hljómlistarmanna, for-
manni Félags organista og lögfræð-
ingi þess félags. Við munum þar
fara yfir stöðuna og skoða hvað
hægt er að gera,“ sagði Jón Stefáns-
son, organisti í Langholtskirkju, í
samtali við DV í gær.
Hann ætlar að leita réttar síns
sem organisti kirkjunnar. Séra
Flóki Kristinsson sóknarprestur
hefur kallað Ragnar Jónsson org-
anista til starfa að leika á orgel
kirkjunnar við messur eftir að Jón
Stefánsson, ráðinn organisti og kór-
stjóri, kom úr fríi.
Björn Árnason, formaður FÍH,
sagði að félagið myndi styðja við
bakið á Jóni Stefánssyni eins og það
mögulega gæti í þessu máli.
Ragnar Jónsson organisti er
hvorki félagi í FÍH né Félagi org-
anista. -S.dór
,r ö d d
FOLKSINS
904-1600
viltu karl eða
sem forseta?
Allir í stafræna kerllnu meft tónvalssíma geta nýtt sér þessa þjónustu.
Þú getur svarað þessari
spurningu með því að
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já _lj
Nei 2 |
Hvort
konu
Brynjólfur Hermannsson, beitingarmaður á Trausta, með tvo væna þorska
úr 17 tonna afla eftir dagsróður á Halamið. DV-myndir RS
Vestfirðir:
Mokafli
línubáta á
Halamiðum
DV, Suðureyri:
Mokafli hefur verið á Halamiðum
undanfarið og hafa landróðrabátar
verið að róa þangað og aflað vel.
Trausti frá Suðureyri fékk þar tæp
17 tonn eftir daginn.
Trausti var með 48 bala og aflinn
350 kg á bala að meðaltali en vegna
mikillar físklúsar varð að kasta
nokkru af fiski sem kom ónýtur upp
með línunni. Alls voru sjö bátar þar
á veiðum og var aflinn góður. 5-6
tíma stím er út á Hala og fyrir da-
gróðrabáta er það stanslaust úthald
sem tekur á þolrif skipverja og land-
manna. Línubátar eru að leggja lín-
una á miklu dýpi en dýpið rokkar
frá 100 til 400 fóðmum við kantinn.
Bára ÍS frá Suðureyri hefur verið
að róa út í Nesdýpi - aflinn verið frá
5-8 tonn í róðri og er þorskurinn
stór og fallegur. Þrír bátar eru nú
gerðir út frá Suðureyri og hefur
vinnsla í Freyju hf. verið stöðug og
einnig kemur hráefni frá Flateyri.
Atvinna er því í góðum horfum á
Suðureyri og lítið sem ekkert um at-
vinnuleysi.
-RS
Stuttar fréttir
Réttindi kennara
Lagasetning um réttindi
kennara og skólastjóra er skil-
yrði fyrir því að Kennarasam-
band ísiands vinni áfram að
flutningi grunnskóla frá ríki til
sveitarfélaga og að kjarasamn-
ingur grunnskólakennara gildi
út samningstimann. RÚV
greindi frá þessu.
Krafðir skýringa
Evrópusambandið mun krefja
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra skýringa á tregðu ís-
lendinga við að fullgilda vinnu-
tímatilskipun sambandsins.
Þetta kom fram á RÚV.
Mislæg gatnamót
Áformað er að mislæg gatna-
mót verði gerð á mótum Reykja-
nesbrautar og Fífuhvammsveg-
ar í Kópavogi í sumar. Sam-
kvæmt RÚV er verið að kynna
mat á umhverfisáhrifúm.
Gróðursetning í janúar
Nemendur Garðyrkjuskólans
gróðursettu nokkur hundruð
plöntur í hlíðinni fyrir ofan
skólann í Hveragerði í síðustu
viku. Möguleikar eru á að þær
dafni vel til vors, samkvæmt
frétt RÚV.
Ýtrustu síldarkröfur
Ýtrustu kröfúr íslendinga um
skiptingu sUdarkvótans eru að
fá 30-40% hans, að sögn Þor-
steins Pálssonar sjávarútvegs-
ráðherra. Stöð 2 greindi frá
þessu.
Opinberar kauphækkanir
Milli annars og fjórða árs-
fjórðungs á síðasta ári hækkuðu
laun opinberrra starfsmanna
um 4,1% um leið og almenn laun
hækkuðu um 0,8% á sama tíma.
Tíminn greindi frá þessu.
Iðgjaldalækkun
Alþjóða tryggingamiðlunin
NHK segir tilboð sitt í bUatrygg-
ingar FÍB þýða 30% lækkun á ið-
gjöldum. Samkvæmt Mbl. gætu
meðaliðgjöld lækkað um aUt að
18 þúsund krónur á ári.
1.200 atvinnuleyfi
AUs fengu 1.200 úUendingar
atvinnuleyfi hér á landi á síð-
asta ári sem.er talsverð aukning
frá fyrri árum. Stöð 2 greindi frá
þessu.
Hættir hjá Sony
Ólafur Jóhann Ólafsson hefur
ákveðið að hætta störfum hjá
Sony í Bandaríkjunum. í viðtali
við Sjónvarpið sagðist hann
ekki geta sinn daglegum störf-
um eins vel og af er krafist
vegna annarra verkefna.
-bjb