Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1996, Qupperneq 14
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996 UV
allir þekkja. Ég hef ekki prófað jóga en
mér skilst á fólki að það sem ég er að
gera sé ekki ósvipað jóga. Fólk kemur
beint úr þolfiminni og teygir á með
okkur. Ég ér t.d. mjög ánægð að geta
sagt frá því að fólk sem þurft hefur á
sjúkraþjálfun að halda hefur náð mjög
góðum árangri með þessari kínversku
leikfimi," segir Guan Dong Qing. -sv
tilveran
Kennir kínversku, kínverska leikfimi og kínverska matargerð:
ka menningu
segir Guan Dong Qing, kínversk stúlka búsett á Islandi
Frekar auðvelt
að læra kínversku
„Kínverska er mjög frábrugðin íslensku og þess
vegna hræðist fólk tungumálið. Það telur að mjög
erfitt sé að læra það en ég held að á þessu tíu vikna
námskeiði muni ég sýna fram á annað,“ segir Guan
Dong Qing. Hún segir að vikurnar tíu eigi að duga
fólki til þess að það geti haldið áfram sjálft, notað
orðabækur og þess háttar og ekki þurfi miklu að bæta
við til þess að fólk geti bjargað sér á tungumálinu.
. „Ég hugsa að munurinn á íslensku og kínversku
felist að stærstum hluta í framburðinum. Með smá
breytingu á einstöku hljóði getur merkingin breyst
cdgerlega. Sem dæmi má nefna stafinn ‘i í íslensku.
Við eigum fjögur tákn sem við notum sem 'kommu
yfir hann í kínversku og fyrir fólk sem ekki þekkir
tungumálið kunna framburðarafbrigðin að hljóma
mjög svipuð. Með hverju gerbreytist hins vegar merk-
ingin. Þessu er ekki til að dreifa í beygingarmálinu ís-
lensku,“ segir Qing. -sv
„Ég kom
hingað til
landsins eft-
ir að góð vin-
kona mín,
sem býr hér á
landi, skrifaði
mér og lýsti þessu
yndislega landi. Ég
varð forvitin, hingað kom
ég fyrir tjórum árum og hér er
ég enn,“ segir Guan Dong
Qing, kínversk stúlka sem .er
farin að láta til sín taka við að
kynna íslendingum menningu
og siði Kínverja. Hún hefur
verið að kenna kínverska leik-
fimi á þremur stöðum í
Reykjavlk og nú er hún að
fara af stað með tíu vikna nám-
skeið í kínversku í Tómstunda-
skólanum. í mars verður hún
síðan með stutt námskeið í
kínverskri matargerð, einnig í
Tómstundaskólanum.
íslenskir vinir
hvöttu mig
„Vinir sem ég hef eignast
hér á íslandi hvöttu mig upp-
haflega til þess að fara að
kenna kínversku. Þeim fannst
þetta sjálfum spennandi og
voru vissir um að öðrum kynni
að þykja það líka. Ég hringdi
svo bara upp í Tómstundaskóla
og sagðist hafa áhuga á því að
kenna kínversku. Þeir veltu
málinu fyrir sér og síðan var
ákveðið að prófa þetta þessa
önn,“ segir Qing. Hún segist
halda að fólk hafi mikinn
áhuga á öllu sem kínverskt er,
Kína sé stórt land og það hafi
upp á margt að bjóða sem ekki
þekkist hér á landi. Hún segist
vilja kynna menningu Kín-
verja á íslandi.
Qing var i íþróttaháskóla í
Kína og þaðan segist hún vera
orðin vön því að kenna. Það
stressi sig því ekki að vera að
kenna einstaklingum eða hóp-
um.
-sv
Leikfimikennslan:
Teygjur og
sokun
Guan Dong Qmg segir leikfimitím-
ana byrja með rólegri upphitun og síð-
an byggist þeir á teygjum og slökun.
Unnið sé með líkamann sem heild en
áhersla lögð á þá staði sem fólk stífnar
upp í, svo sem eins og háls, herðar og
bak.
—
Kmversk matargerð:
Nýtt og framandi
Qing stendur hér í eldhúsinu heima hjá sér og reynir að gera það upp við sig hvort hún eigi að lesa kínverska mál-
fræði eða kínverska matreiðslubók. Styttra er í að kínverskukennslan hefjist og því hefur málfræðin líklega orðið
ofan á. DV-mynd BG
Guan Dong Qing verður með
tveggja klukkustunda námskeið í
kínverskri matargerð í Tómstunda-
skólanum nú í mars. Hún segist
ætla að kenna þrjár gerðir rétta og
er efniviðurinn sóttur til veislumat-
ar í Kína.
„Þetta er matur sem ég geri ekki
ráð fyrir að fólk hér á landi hafi
fengið á kínversku veitingahúsun-
um og því er þetta örugglega nýtt og
nokkuð framandi. Ég hafði engan
áhuga á því að kenna eitthvað sem
fólk gæti fengið á næsta veitinga-
húsi.“
Qing segir að hráefnið fáist að
einhverju leyti í næsta stórmarkaði
en að einnig sé sérverslun hér sem
sérhæfi sig í þessum vörum. Hún
segir ódýrt að matreiða á kínverska
vísu og að vinir hennar séu sífellt
að biðja hana að kenna sér að vinna
með kínverskt hráefni.
-sv
Kínversk leikfimi:
Mjög góð viðbót við
líkamsræktarflóruna
Ragnheiður Benedikts-
son er mjög ánægð með
hversu mikið hún fær út
úr kínversku leikfiminni.
DV-mynd GS
- segir Ragnheiður Benediktsson
„Mér finnst þetta feiknalega góð
viðbót við líkamsræktarflóruna á ís-
landi og maður finnur vel hversu
vel menntuð hún er í þessum fræð-
um. Hún þekkir líkamann út og inn
í ÚRVALI
ÞUMALÍNA
PÓSTHÚSSTRŒT113 - SÍMI 551 2136
og það er mikill kostur,“ segir Ragn-
heiður Benediktsson sem sótt hefur
reglulega tíma í kínverskri leikfimi
í Toppformi í Kópavogi. Ragnheiður
segist hafa verið í kvennaleikfim-
inni fyrst, síðan prófað þolfimina og
loks þessa kínversku.
Mýkist allur upp
„Þetta eru svakalega góðar æfing-
ar, ekki síst fyrir svona miðaldra
konur, og síðan ég byrjaði hef ég
losnað við bólgur í herðum. Það
vandamál er alveg úr sögunni því
hér er verið að vinna með alla þessa
vöðva sem manni er hætt við eymsl-
um í. Bakið er tekið fyrir, háls og
höfuð og maður mýkist allur upp.“
Ragnheiður segist hafa dregið
ungu kynslóðina með sér í tíma og
henni hafi líkað þetta afskaplega
vel. Þetta sé því ekkert frekar fyrir
aldna en unga.
„Kennarinn sýnir
allar æfingar, talar
lítið en er með allan
tímann,“ segir Ragn-
heiður. Hún segist
ganga mikið og vera al-
mennt mikil útiveru-
manneskja. Með þess-
ari nýju leikfimi
hafi hún fengið
aukið þol og
meiri kraft. sv